Morgunblaðið - 10.02.2014, Síða 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014
www.nortek.is Sími 455 2000
Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú
getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu,
miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki.
Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á
öryggiskerfum.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
FYRIRTÆKJAÖRYGGI
• Aðgangsstýring
• Brunakerfi
• Myndavélakerfi
• Innbrotakerfi
• Slökkvikerfi / Slökkvitæki
• Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur
• Áfengismælar / fíkniefnapróf
Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is
Bílalakk
Blöndum alla bílaliti
og setjum á spreybrúsa
Bjóðum uppá
heildarlausnir
í bílamálun
frá DuPont og
getum blandað
liti fyrir allar
gerðir farartækja
Hvernig og hvenær á að afnema
verðtryggingu neytendalána?
Nú hefur sérfræð-
ingahópur forsætisráð-
herra um afnám verð-
tryggingar af nýjum
neytendalánum skilað
verkefni sínu, 23. jan-
úar 2014. Hópurinn
skilar af sér tveimur
tillögum, minni og
meiri hluta. Það er
ljóst að mikil yfirlega
og vinna hefur farið í
verkið.
Það eru tvö atriði sem ég vil vekja
athygli á og gera athugasemdir við:
1. Verkefninu er skilað 23. janúar
2014. Verkinu átti að skila fyrir árs-
lok 2013. Það er algjörlega óboðlegt,
þegar hópur sérfræðinga tekur að
sér verkefni þar sem skilafrestur er
settur fram, að ekki sé staðið við
hann. Það gilda engar afsakanir, ef
hópurinn sér fram á að geta ekki
unnið verkið eins og fyrirmæli segja
til um, þá á hann að segja sig frá
verkinu, en ekki hafa bara sína
hentisemi.
2. Hvert var hlutverk hópsins?
Orðrétt úr skýrslu meirihluta hóps-
ins kemur fram: „Verkefni sérfræð-
ingahópsins verði að útfæra afnám
verðtryggingar nýrra neytendalána.
Tillögur og tímasetning liggi fyrir í
árslok 2013. Hópurinn
meti áhrif þessara
breytinga í víðum
skilningi og geri til-
lögur til þess að lág-
marka neikvæð áhrif.
Tillögur um útfærslu
og tímasett áætlun
liggi fyrir í lok árs
2013.“
Ég tel að þetta sé
skýr texti sem ekki er
hægt að misskilja. Þá
er ennfremur rétt að
benda á það að hóp-
urinn er skipaður af forsætisráð-
herra. Það má öllum vera ljóst að
forsætisráðherra lofaði afnámi verð-
tryggingar á neytendalán í aðdrag-
anda kosninga og í framhaldi af því
skipaði hann þennan hóp með skýr
fyrirmæli.
Skv. lið 1.2 í skýrslu hópsins segir
ennfremur „Hlutverk hópsins er að
útfæra afnám verðtryggingar af
nýjum neytendalánum og koma með
tillögur um tímasetta áætlun um af-
nám“.
Það er því algjörlega óskiljanlegt
hvernig hópur sérfræðinga, flestir
með háar háskólagráður, geti leyft
sér að fara svona frjálslega með
verkefnið.
Í samantekt hópsins eru lagðar til
fjórar tillögur:
a. Óheimilt verði að bjóða neyt-
endum verðtryggð lán með jöfnum
greiðslum til lengri tíma en 25 ára.
b. Lágmarkstími nýrra verð-
tryggðra neytendalána verði lengd-
ur í 10 ár.
c. Takmarkanir verði gerðar á
veðsetningu vegna verðtryggðra
íbúðalána.
d. Hvatar til töku og veitinga á
óverðtryggðra lána.
Ég fæ ekki með nokkru móti skil-
ið hvernig ofangreind samantekt
geti á nokkur hátt verið svar við
verkefninu. Þá er eins og nefndin
hafi misskilið hlutverk sitt og sé að
leggja mat á það hvort ákvörðun
ráðherra sé gáfuleg eða ekki og
hvort hún sé framkvæmanleg.
Ákvörðun liggur fyrir og nefndin
átti að koma með tillögur um að lág-
marka neikvæð áhrif breytinganna
og tímasetningar.
Spurningin er, hvernig og hvenær
á að afnema verðtryggingu neyt-
endalána? Ekkert svar…
Eftir Birgi
Skaptason » Gagnrýni á vinnu-
brögð sérfræð-
ingahóps um afnám
verðtryggðra neyt-
endalána.
Birgir Skaptason
Höfundur er bóndi.
Eftir að Drífandi
stéttarfélag ásamt
fjölda annarra stéttar-
félaga í landinu felldi
kjarasamninga þá sem
forysta ASÍ og at-
vinnurekenda gerði á
dögunum hefur nokk-
uð verið rætt um
ábyrgð og skyldur
verkalýðsfélaga í land-
inu. Ég hef rætt við
ýmsa hér í Eyjum um þessi mál og
hafa skoðanir þeirra verið skiptar.
Reyndar hafa þeir sem telja að fé-
lagsmenn Drífanda hafi sýnt
ábyrgðarleysi með því að fella
samningana verið mun háværari en
raddir hinna. Þessar háværu raddir
telja að afstaða verkafólks í
Vestmannaeyjum til kjarasamnings-
ins þýði aukna verðbólgu og sé ógn
við stöðugleikann í landinu, hvorki
meira né minna. Búið sé að eyði-
leggja möguleikana á uppbyggingu
atvinnulífsins og bættum kjörum al-
mennings í landinu. Einn viðmæl-
enda minna bætti því meira að segja
við að einhver aðkomustrákur sem
ekkert vissi í sinn haus um hags-
muni Vestmannaeyinga réði ferðinni
og hann hefði platað verkafólk í
Vestmannaeyjum til þess að fella
samningana. Hann og hans menn
væru bara lýðskrumarar. Það var
einkum þessi síðasta athugasemd
viðmælanda míns sem fékk mig til
að stinga niður penna
um þessi mál nú.
Athugasemdin lýsir
nefnilega svo mikilli
mannfyrirlitningu og
heimsku að undrum
sætir og ég get ekki
orða bundist. Mig lang-
ar af þessu tilefni að
benda lesendum á
nokkrar staðreyndir
sem öllum sem um
þessi mál ræða verða
að vera ljósar:
Samningurinn
sem ASÍ-forystan lagði til að sam-
þykktur yrði hafði í för með sér
áframhaldandi smánarlaun fyrir þá
sem lægst hafa launin.
Samningurinn gerði ráð fyrir
því að skattalækkanir þær sem lofað
hefur verið næðu ekki til þeirra sem
lægst hafa launin, verkafólksins sem
Drífandi hefur innan sinna vébanda.
Forseti ASÍ lýsti því yfir í
sjónvarpsviðtali að laun verkafólks
samkvæmt samningnum nægðu
ekki til þess að lifa af þeim mann-
sæmandi lífi.
Þessi sami forseti hvatti samt
sem áður verkafólk til þess að sam-
þykkja samningana og þar með að
lifa lífi sem hann telur ekki mann-
sæmandi.
Með því að fella samning ASÍ-
forystunnar og atvinnurekenda
sýndi verkafólk í Vestmannaeyjum
hins vegar mikið hugrekki og
ábyrgð. Það sýndi að fagurmæli, lof-
orð og jafnvel hótanir eru einskis
virði þegar lífsbaráttan er hörð og
lífsbaráttan er sannarlega réttlát
barátta. Verkafólk í Vestmanna-
eyjum veit það einnig af langri
reynslu að kröfur þess um mann-
sæmandi laun setja hvorki verðbólg-
una af stað né valda óstöðugleika í
landinu. Þar koma allt aðrir við
sögu. Þar koma m.a. við sögu þeir
sem sjálfir hafa margföld laun
verkafólks, þeir sem geta greitt sér
milljarða í arðgreiðslur og gefið
verkafólki langt nef á sama tíma.
Þar koma við sögu þeir sem settu
landið okkar nær því á hausinn fyrir
nokkrum árum og eru nú sem óðast
að festa sig í sessi á nýjan leik. Þetta
hafði verkafólk í Vestmannaeyjum
meðal annars í huga þegar það án
hiks og með fullri ábyrgð felldi
smánarsamninga ASÍ-forystunnar
og atvinnurekenda nú á dögunum.
Eftir Ragnar
Óskarsson
Ragnar Óskarsson
» Samningurinn sem
ASÍ-forystan lagði
til að samþykktur yrði
hafði í för með sér
áframhaldandi smánar-
laun fyrir þá sem lægst
hafa launin.
Höfundur er fyrrverandi
bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum.
Verkafólk í Vestmannaeyjum
sýndi hugrekki og bar ábyrgð
Aukablað alla
þriðjudaga