Morgunblaðið - 10.02.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.02.2014, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu heima og slappaðu af í dag ef þú mögulega getur. Maðurinn hefur inn- byggða þörf fyrir andstæður. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur áhyggjur af því að einhver kunni að vera að misnota þig fjárhagslega eða að misnota eigur þínar. En mundu að fleira skiptir máli en þau verðmæti, sem möl- ur og ryð fá grandað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Misstu ekki sjónar á hlutunum því áður en þú veist eru þeir horfnir og sumir fyr- ir fullt og allt. Einhver gæti tekið upp á því að nýta sér góðmennsku þína. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er enginn tími til að hika eða efast – þú ert of upptekin/n við að gera huga og líkama gott. Vertu vakandi fyrir því hversu miklu þú eyðir og ekki sleppa þér ef þú átt ekki fyrir því. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Í leit þinni að sannleikanum lætur þú auðveldlega blekkjast af aðstæðum sem eru 90% sannar eða nokkurs konar sannindi. Láttu ekki stundargróða byrgja þér sýn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fortíðin nær tökum á þér, bæði góðar minningar og slæmar. Sýndu þínar bestu hliðar og njóttu stundarinnar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver nákominn er að reyna að fela galla sína fyrir þér. Talaðu út um málið við þann sem þú treystir best. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu þér ekki bregða, þótt til þín verði leitað um handtök sem heyra nú ekki beint til þíns lifibrauðs. Vertu ákveðin/n og fastur/föst fyrir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stundum er ekki nóg bara að heyra það sem sagt er heldur þarf líka að taka með í reikninginn hvernig hlutirnir eru settir fram. En þú getur skipt um skoðun eftir tvo tíma svo ekkert vera að æsa þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú lofar einhverjum einhverju í dag. Allt er best í hófi, hófið líka. Fólk kann að meta það hvað þú gerir hlutina af mikilli vandvirkni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú laðast að flóknum vanda- málum og manneskjum. Varastu að eyða of miklum peningum í blessuð börnin eða elsk- una þína. Stattu fast á þínu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Rómantík, listir, afþreying með börn- um og allt sem því viðkemur er í brennidepli núna og á næstunni. Þú endurnærist og fyll- ist orku til krefjandi verkefna. Bjarki Karlsson lætur orð falla um„gnýskyr og fleira gott“ Við viljum ódýran, innfluttan kost án þess að verðlagið svínbeygi fólk: við þurfum gnýskyr og gazelluost gíraffajógúrt og kengúrumjólk. Auk þess væri okkur mjög til sóma að eiga í kaffið nashyrningarjóma. Höskuldi Jónssyni leist vel á hug- myndina (fyrir utan kengúrumjólkina). Áhuginn má ekki dofna við æðum til Bukavu. Þar ættum af alúð að stofna afríkanskt mjólkurbú. Hjálmar Freysteinsson yrkir um „fésbókarfærslu Fríðu“, en segist ann- ars ekki vera á fésbók, – enda veit ekk- ert hvernig fésbókarfærslur eru! Þegar Hannes var farinn á fundinn Fríða losaði blundinn, dreif sig af stað og dreif sig í bað og dreif sig svo út með hundinn. Davíð Hjálmar Haraldsson segist einnig ókunnugur fésbókarfærslum, – en samkvæmt lýsingum sjónarvotta gætu þær verið eitthvað á þessa leið: Ég raðaði myndum í möppu. Málfríður hrasaði í tröppu. Kobbi er með ræpu, ég keypti þó næpu í kvöldmat með kartöflustöppu. Eins og við var að búast tóku hagyrðingar við sér og sendu kveðjur til Hólmfríðar Bjartmars- dóttur á Sandi, þegar hún varð 67 ára. Hér fylgja nokkrar og er þó ekki tæmandi. Þorkell Guðbrands- son orti en lét þess getið um leið, að „eðalhagyrðingur“ eins og Fía verðskuldaði eitthvað betra: Ekki er lífið einskisvert þótt ört í sporin fenni. Að liðnum degi loksins ert löggilt gamalmenni. Sigmundur Benediktsson orti: Láttu fljóta stökustraum, styrktan skopsins rýni. Sendi til þín glasaglaum og góðan ilm af víni. Ármann Þorgrímsson beindi til- mælum til eiginmannsins: Framundan þó fjölmörg liggi friðsöm ár þá nálgast húmið. Farðu vel með Fíu, Siggi, og færðu henni ljós í rúmið. Og Hallmundur Kristinsson orti: Þorsti og hungur þjaka vart þá sem fögrum listum unna; við gamalmennin getum svo margt sem gríslingarnir ekki kunna! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mjólkurafurðir, fésbókarsíð- ur og eðalhagyrðingur Í klípu „FLOTTIR, JÁ. EN HVER ER TILGANGURINN? ÉG MEINA, FYRIR UTAN AÐ SAFNA FERÐAPUNKTUM?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PERSÓNULEGA FINNST MÉR HANN SEGJA MARGT UM ÞIG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... huggandi. ÉG SÁ SVO SÆTA STELPU Í KEILUSALNUM Í DAG. HÚN VAR AÐ VINNA Í VEITINGASÖLUNNI. ÉG HEF ALDREI BORÐAÐ SVONA MARGAR (ROP) FRANSKAR ÁÐUR! ÉG HEF GERT ÞAÐ. SVO ER EITT SEM ER MJÖG GOTT VIÐ ÞESSA TILTEKNU FLÍK ... ... MIÐAÐ VIÐ MATARLYST HANS ER MJÖG LÍKLEGT AÐ HÚN PASSI BETUR MEÐ TÍMANUM! HATTAR Og svo voru haldnir leikar. Vík-verji hefur fylgst með aðdrag- anda og upphafi Ólympíuleikanna sem settir voru síðastliðinn föstudag í Sotsjí í Rússlandi. Það hefur vænt- anlega ekki farið framhjá neinum að staðsetning leikanna hefur verið gagnrýnd víða, og háværustu mót- mælin stafa af lagasetningum og of- beldi sem hinsegin fólk í Rússlandi býr við. Það þykir ekki við hæfi að Ólympíuleikarnir, sem hafa það að markmiði að sameina heimsbyggð- ina, styðji slíkar ofsóknir á hendur minnihlutahóps. Sem er skiljanlegt, þó svo að Al- þjóðaólympíunefndin og helstu styrktaraðilar hafi ekki séð neitt at- hugavert við það. Þegar valið stend- ur á milli peninga og mannréttinda er leikurinn einfaldlega of ójafn. x x x Víkverji er steinhissa á því hversufáir þungavigtarmenn, -fyr- irtæki og -stofnanir hafa léð því við- horfi röddu sína, að leikarnir ættu að vera á öðrum stað. Treflar eru ágæt- ir, en opinberar yfirlýsingar eru betri. Og það má ekki gleyma því að það eru fjöldamargar aðrar ástæður fyr- ir því að staðsetningin er slæm. Að- eins austar í Kákasusfjöllum ríkir al- gjör lögleysa, á svæði sem oft er kallað hættulegasta svæði jarðar. Víkverji vonar að herskáir hópar þaðan komist ekki nærri Sotsjí. Og það má heldur ekki gleyma því að hinsegin fólk er langt frá því að vera eitt á báti þegar kemur að kúg- un rússneskra yfirvalda. Þar í landi er ein ríkisskoðun, sem allir eiga að fylgja, og eitt ríkisfangelsi fyrir þá sem gera það ekki. x x x Það er þó ekki hægt að sniðgangaleikana með öllu. Þar keppir færasta íþróttafólk í heimi, í íþrótt- um sem flestar eru gott sjónvarps- efni. Íslendingar geta verið stoltir af sínum fulltrúum og þeirra þátttöku í leikunum. Keppendur mega ekki líða fyrir þá spillingu sem þrífst að tjaldabaki, það væri að hengja bak- ara fyrir smið. Smið sem virðist hafa verið fjarverandi býsna lengi, miðað við aðbúnaðinn sem keppendum og fjölmiðlafólki er boðið upp á í Sotsjí. víkverji@mbl.is Víkverji Því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. (Efesusbréfið 2:8) Trjáklippingar. NÚ ER TÍMINN TIL AÐ KLIPPA TRÉ OG RUNNA. Síðla vetrar og á vorin er góður tími til að klippa allflestar tegundir trjágróðurs því þá er greinabygging gróðursins best sýnileg. Einnig er þetta góður tími til þess að móta trjágróður. TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.