Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. F E B R Ú A R 2 0 1 4 Stofnað 1913  38. tölublað  102. árgangur  FÖRÐUN, FATNAÐUR, ILMVÖTN OG GÆÐI FYRIRGEFNING ORÐIN AÐ SÖLUVÖRU 24 SÍÐNA AUKABLAÐ UM TÍSKU OG FÖRÐUN ÞÓRDÍS LEIKSTJÓRI 46 Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík var sett í gær og mun standa yfir fram á laugardag. Á Sónar Reykjavík leika framsæknir raftónlistarmenn. Í gær spiluðu þrettán hljómsveitir í Hörpu þar sem hátíðin fer fram. Á myndinni má sjá Björt Sigur- finnsdóttur úr hljómsveitinni Furu þenja radd- böndin. Samkvæmt heimasíðu hátíðarinnar munu allt að 75 innlendir og erlendir listamenn koma fram á henni. Leikið er á fimm sviðum. Auk tveggja hefðbundinna tónleikasala er búið að breyta hluta af bílakjallara tónlistarhússins í næt- urklúbb. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Framsæknir raftónlistarmenn Sónar Reykjavík var sett í gærkvöldi  Reykjavíkurborg er að undirbúa ræktun æðarunga í vor til að lífga upp á fuglalíf Tjarnarinnar og Vatnsmýrar. Eggjunum verður ungað út í Húsdýragarðinum. Þegar ungarnir verða orðnir stálpaðir verða þeir líklega fluttir í fuglafriðlandið í Vatns- mýri, að sögn Þórólfs Jónssonar garðyrkjustjóra. Viðvarandi viðkomubrest- ur og hnignun varpstofna einkennir fuglalífið við Tjörnina, að því er segir í nýrri skýrslu fuglafræðinganna Jóhanns Óla Hilm- arssonar og Ólafs K. Nielsen um fuglalíf á Tjörninni 2013. „Niðurstöður vöktunar Tjarnar- fugla 2013 eru í fullu sam- ræmi við þá mynd sem dregin hefur verið á liðnum árum og lýsir fuglastofnum í kreppu,“ segir í nýju skýrslunni. „Þrjár af 5 anda- tegundum sem verpa við Tjörn- ina, gargönd, duggönd og æður, eru við það að deyja út.“ gudni@mbl.is »6 Reykjavíkurborg ætlar að rækta æðarfugla til að lífga upp á fuglalíf Tjarnarinnar  Starfshópur embættismanna í ráðhúsinu leggur til í nýrri skýrslu til borgarráðs að ítarlegri upplýs- ingar um fjárhag borgarinnar verði birtar á netinu. Upplýsingar verði jafnframt gerðar myndrænni en þær sem nú er að finna á vef Árbók- ar Reykjavíkurborgar. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir tillögurnar bæði óljósar og ófull- nægjandi. Þær séu ekki í samræmi við einróma samþykkt borgar- stjórnar 2012 um rafræna gagna- gátt þar sem almenningur geti fundið upplýsingar um allar kostn- aðargreiðslur borgarinnar. »20-21 Óljósar og ófull- nægjandi tillögur Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vaxtahækkanir hafa þyngt greiðslubyrði óverðtryggðra íbúðalána og gert þau of dýr fyr- ir marga lántaka, einkum ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu eign. Getur munað tugum þúsunda á greiðslubyrði þeirra og verð- tryggðra lána. „Þegar ung fjöl- skylda stendur frammi fyrir því að fara á ótryggan leigumarkað þar sem er ekkert ör- yggi, eða að taka tiltölulega ódýrt lán og fá þannig öruggt þak yfir höfuðið, finnst mér svarið augljóst,“ segir Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, og vísar til verðtryggðra lána. Seðlabankinn spáir hærri vöxtum á næstu árum en ella vegna áhrifa af leiðréttingu lána. Bann myndi takmarka valmöguleikana Oddgeir Á. Ottesen, aðalhagfræðingur fjár- málafyrirtækisins IFS, segir Seðlabankann og IFS spá vaxtahækkunum, óháð áhrifum leið- réttingar í þá veru. Sú þróun muni gera óverð- tryggð lán enn dýrari. „Bann við 40 ára verð- tryggðum jafngreiðslulánum myndi takmarka valmöguleika fólks. Fólk þarf þá að kaupa minna húsnæði, eða að leigja áfram,“ segir Oddgeir og vísar til hugmynda um slíkt bann innan hóps um afnám verðtryggingar. Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalána- sjóðs, segir auknar vinsældir verðtryggðra lána geta leitt til þess að hlutdeild ÍLS af nýjum lán- um aukist á ný, fari úr 15-20% í fyrra í 30% síð- ar í ár. Sögulegt meðaltal sé rúmlega 50%. MVerðtryggðu lánin »12 Greiðslu- byrðin er of þung  Óverðtryggð lán of dýr fyrir marga lántaka Allt að 8,15% » Vextir óverð- tryggðra íbúðalána eru allt að 8,15%. » IFS spáir vaxta- hækkunum á næstu misserum. » Seðlabankinn tel- ur leiðréttinguna munu leiða til enn frekari hækkana.  Þrátt fyrir allt að þriðjungs verðlækkun á minkaskinnum á uppboði hjá danska uppboðshúsinu í þessari viku og alls meira en helmings lækkun frá síðasta ári eru forystumenn íslenskra loð- dýrabænda sáttir við stöðuna. Mikil umframframleiðsla í heim- inum hefði getað leitt til enn meiri verðlækkunar. Björn Halldórsson, formaður Sambands íslenskra loðdýra- bænda, segir að ef verðþróunin sem verið hefur fyrrihluta vik- unnar haldi út uppboðið megi bú- ast við að íslensku skinnin fari að meðaltali á um 350 danskar kr. eða sem svarar 7.000-7.500 ís- lenskum kr. „Ef það gengur eftir erum við í ágætis rekstri því áætl- að er að 6.500 krónur kosti að framleiða skinnið. Við erum vel yfir því,“ segir Björn. »26 Minkabændur sáttir þrátt fyrir mikla lækkun á skinnaverði á heimsmarkaði Minkur Skinnin eru boðin upp í kippum. Ekkert verður af fyrirhuguðum kaupum MP banka á Íslenskum verðbréfum (ÍV). Sam- kvæmt heim- ildum Morg- unblaðsins hefur viðræðum um sameiningu félaganna verið form- lega slitið. Tilkynnt var hinn 15. maí 2013 að MP banki hefði gert tilboð í allt hlutafé í ÍV og að meirihluti eigenda félagsins hefði gengið að skilmálum tilboðsins. Átti að greiða kaupverðið með hlutabréfum í MP banka. Stærsti einstaki hluthafi ÍV er Ís- landsbanki með 27,5% hlut. Við sam- einingu hefði orðið til eitt af stærstu fyrirtækjum á Íslandi á sviði eigna- stýringar með um 190 milljarða kr. eignir í stýringu. hordur@mbl.is Viðræðum MP banka og ÍV slitið  Ekkert verður af kaupum MP á ÍV Ákveðið var í gær á fundi trúnaðar- manna og formanna kennarafélaga í framhaldsskólum að halda atkvæða- greiðslu í næstu viku um boðun verkfalls. Mun atkvæðagreiðslan fara fram dagana 18. til 21. febrúar nk. og gæti verkfall því hafist eftir um einn mánuð. Aðalheiður Steingrímsdóttir, for- maður Félags framhaldsskólakenn- ara, sagði í gær að markmiðið væri að komast hjá verkfalli. Hins vegar meti þau stöðuna sem svo að brýnt sé að auka þrýsting á kröfur. Laufey María Jóhannsdóttir, formaður Sambands íslenskra framhalds- skólanema, segir nemendur mjög uggandi yfir stöðu mála. Kjósa um verkfall  Gæti hafist um miðjan mars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.