Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 VINNINGASKRÁ 42. útdráttur 13. febrúar 2014 146 8949 18320 27705 38382 50650 59895 70304 240 9027 19057 28323 38686 50801 60036 70631 439 9104 19154 28716 38923 51056 60135 71818 546 9354 19753 29218 39066 51184 60423 72113 648 9545 20266 29220 39238 51370 60520 72734 1647 10659 20512 29267 39597 52369 60622 73196 2624 10697 20644 29624 39949 52498 60922 74003 3096 10773 21135 30051 39979 52735 62453 74285 3237 11003 21426 30083 40215 52750 63791 74397 3265 11231 21593 31425 40849 52792 64612 74686 3700 11291 22263 31461 40934 52808 64936 74807 3986 12005 22611 31815 41246 53467 65835 75037 4353 12666 23079 32309 41264 53560 65849 75076 4552 12670 23188 32378 41582 53610 66038 75142 5069 12822 23686 32947 41661 53697 66092 76066 5183 13138 23757 33273 42591 53907 66199 76208 5187 13803 23793 33842 43330 54061 66823 76442 5530 13959 24158 34335 44100 54285 67249 77101 5539 14235 24293 34466 44487 55166 67771 77172 5885 14290 24303 34557 45651 55486 67895 77308 6133 14601 24506 35626 45696 56240 68152 77394 6165 14754 25385 35900 46167 56753 68153 77572 6307 14894 25637 36112 46388 56893 68318 77698 6535 14950 25807 36151 46406 56999 68565 77840 6572 16153 25823 36437 46676 57055 68862 78197 6837 16377 26179 36498 47346 57788 69031 78608 6876 16580 26382 36634 48459 57810 69139 8009 16623 26475 37195 48741 57875 69347 8275 17242 26808 37445 48975 58277 69511 8541 17281 26875 37671 49804 59509 69604 8581 17499 27258 37820 50517 59545 69607 8649 17774 27634 38295 50591 59803 69665 1152 10542 17493 26771 36723 47374 59453 69619 1957 10720 18826 27171 36825 47633 60160 70048 2016 10904 18904 27599 36919 48552 60679 70763 3708 11386 20806 28065 37502 48586 62074 76257 3859 11689 20949 28634 38771 49052 62122 76456 4950 11770 20961 28695 42896 52172 62141 78620 6732 12400 21080 29821 43156 52428 62340 78717 7107 12980 21514 30951 43389 54559 62618 79007 7658 13930 22518 33560 43393 54780 62775 79930 8355 14058 22564 33584 44053 54971 65318 8661 14432 24523 34314 44679 55150 66424 9147 15514 25299 35998 44737 55713 66652 9806 16989 26024 36281 46668 56865 66968 Næstu útdrættir fara fram 20. feb & 27. feb 2014 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2629 4151 71404 74103 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 288 20700 30999 41319 50948 64011 292 22131 36256 44254 51242 69871 899 25819 37209 47735 53756 71968 19215 30415 40740 50568 60170 78879 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 7 7 4 4 Mánudaginn 27. janúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða á Alþingi lagafrumvarp sem afnemur per- sónulegar ábyrgðir fé- lagsmanna í veiði- félögum. Ný málsgrein sem bætt var við 37. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og sil- ungsveiði hljóðar svo: „Félagsmenn bera ekki persónulega ábyrgð á fjár- skuldbindingum veiðifélags.“ Rök- stuðningur fyrir þessari breytingu á lögunum kom fram í greinargerð sem fylgdi frumvarpinu: „Í ljósi skylduaðildar að veiðifélögum er talið nauðsynlegt að kveða skýrt á um þessi efni í lögunum en sem dæmi má nefna að ótækt er að fé- lagsmaður í veiðifélagi beri per- sónulega fjárhagslega ábyrgð á framkvæmd sem samþykkt er á fundi í veiðifélagi gegn mótatkvæði hans.“ Margir minnast enn frétta um af- nám persónulegra ábyrgða valinna starfsmanna Kaupþings korteri fyr- ir bankahrun, en stjórn Kaupþings ákvað hinn 25. september 2008 að fella niður allar persónulegar ábyrgðir starfsmanna sinna af lánum til hlutafjárkaupa. Það hefur ekki farið mikið fyrir slíkum fréttum þar til nú. Samþykkt þessarar undarlegu lagabreyt- ingar skýrðist þó að hluta þegar þingmaður upplýsti þjóðina á Bylgjunni að morgni 3. febrúar sl., að þing- menn viti auðvitað ekk- ert hvað þeir eru að gera þegar þeir eru að innleiða reglur sem koma inn á borð Alþing- is. Ábyrgð félagsmanna í húsfélögum Í lögum nr. 26/1994 um fjöleign- arhús er eftirfarandi ákvæði um persónulegar ábyrgðir félagsmanna í húsfélögum: „ 54. gr. Ábyrgð eig- enda út á við gagnvart kröfuhöfum húsfélagsins á sameiginlegum skyldum og skuldbindingum er per- sónuleg (með öllum eignum þeirra) og eru þeir ábyrgir einn fyrir alla og allir fyrir einn (in solidum).“ Nú eru veiðifélög og húsfélög al- gjörlega sambærileg félög, bæði með skylduaðild. Annað þeirra varðar óskipta sameign, þ.e. veiði- réttindi landeigenda, hitt óskipta sameign húseigenda í fjöleign- arhúsum. Þessi sami rökstuðningur hlýtur þá einnig að gilda um húsfélög, þ.e.a.s. að ótækt sé í ljósi skyldu- aðildar, að félagsmaður í húsfélagi beri persónulega ábyrgð á fram- kvæmd sem samþykkt er á fundi í húsfélagi gegn mótatkvæði hans. Í ljósi jafnræðisreglu stjórnar- skrár lýðveldisins Íslands og al- mennrar sanngirni hlýtur Alþingi að gera samsvarandi breytingu á lögunum um fjöleignarhús, þar sem um er að ræða hagsmuni tugþús- unda íbúðaeigenda, nema Alþingi telji brýna nauðsyn bera til að mis- muna fasteignaeigendum á þennan hátt. Því er þeirri spurningu beint til þeirra 47 þingmanna sem sam- þykktu samhljóða, og án nokkurrar umræðu í þingsal, þetta laga- frumvarp um afnám persónulegra ábyrgða félagsmanna í veiði- félögum, hvenær vænta megi sam- svarandi breytinga á lögum um fjöl- eignarhús, þannig að venjulegir íbúðareigendur njóti hvað þetta varðar sömu réttinda og landeig- endur með laxveiðiréttindi. Einnig væri fróðlegt að heyra viðhorf Húseigendafélagsins, sem er almennt hagsmunafélag allra fasteignaeigenda á Íslandi, hvort sem fasteignin er íbúð, einbýlishús, atvinnuhúsnæði, land eða jörð, til þessa mismunar á persónulegri ábyrgð milli fasteignaeigenda. Afnám persónu- legrar ábyrgðar Eftir Gunnar Briem Gunnar Briem » „Ótækt er að félags- maður í veiðifélagi beri persónulega fjár- hagslega ábyrgð á fram- kvæmd sem samþykkt er á fundi í veiðifélagi gegn mótatkvæði hans.“ Höfundur er fv. kjósandi. Fyrir skömmu heyrð- um við af gróðureldum í Noregi sem erfitt reyndist að eiga við. Sem betur fer varð ekki manntjón en eignatjón er bæði tilfinnanlegt og tilfinningalegt fyrir þá sem urðu fyrir því að missa allt sitt. Aðstæður voru með þeim hætti að úrkomulaust var allan janúarmánuð á stóru svæði, en það mun ekki hafa gerst í meira en öld samkvæmt upplýs- ingum norsku Veð- urstofunnar. Sú stað- reynd gefur okkur tilefni til að álykta að um sjaldgæft hættu- ástand hafi verið að ræða, sem endurtaki sig e.t.v. ekki næstu 100 árin. Það breytir því hins vegar ekki að möguleikinn er alltaf fyrir hendi. Við atburði sem þessa leiðum við gjarn- an hugann að því hvort eitthvað svip- að gæti gerst á Íslandi. Flestum er í fersku minni þegar miklir gróð- ureldar urðu á Mýrunum á vormán- uðum 2006. Þá sýndi sig að ,,svona lagað“ gerist á Íslandi, enda hafa orð- ið nokkrir gróðureldar síðan sem minna okkur á þá staðreynd. Það voru einmitt gróðureldar í Laugardal við Ísafjarðardjúp árið 2012 sem urðu kveikjan að málþingi sem haldið var í Borgarnesi í janúar á síðasta ári, einkum sá mikli kostnaður vegna slökkvistarfs sem af þeim hlaust. Málþingið var ágætlega sótt, en sveit- arstjórnarfólk hefði þurft að mæta betur. Sveitarfélögin fara með fram- kvæmd laga um brunavarnir og á þeim hvílir gríðarleg lagaleg, fjár- hagsleg og siðferðileg ábyrgð í því sambandi. Til þessarar ábyrgðar verða sveitarstjórnarmenn að vakna og ég skora á frambjóðendur til sveit- arstjórna í vor að kynna sér vel mála- flokkinn ,,brunamál“ og móta sér stefnu um úrbætur, því aðbúnaður slökkviliða er háður pólitískum áherslum. Málþingið í Borgarnesi færði okk- ur heim sanninn um það að víða er þörf úrbóta svo tryggja megi það ör- yggi almennings sem mælt er fyrir um í lögum um brunavarnir. Þröng fjárhagsstaða sveitarfélaga er þó oft aðalástæða þess að brunamálin eru ekki í lagi. Það er því orðið mjög brýnt að við horfumst í augu við þá staðreynd og leitum allra leiða til úr- bóta. Bæði stjórnsýslustigin þurfa að taka á þessu sameiginlega og Jöfn- unarsjóður sveitarfélaga, sem orðinn er svo umsvifamikill að telja má þriðja stjórnsýslustigið, verður að koma að þessum málum líka. Ef horft er afmarkað á ,,gróð- urelda“ og viðbrögð við þeim, er ljóst að mikil vinna er eftir hér á landi og á ýmsum sviðum. Til að byrja með þarf pólitíska viðurkenningu á því að um náttúruvá sé að ræða. Afar hægt gengur í þeim efnum. Árið 2010 voru þó tekin inn í kafla um ,,varnir gegn náttúruvá“ í Velferð til framtíðar 2010-2013, eftirfarandi atriði:  Skógareldar verða skilgreindir sem náttúruvá.  Hafin verður vinna við sam- ræmd viðbrögð gegn gróður og skóg- areldum á Íslandi. Þetta gerðist þó ekki á tímabilinu, en Veðurstofa Íslands (VÍ) á sérstakt hrós skilið í þessum efnum. Hún hef- ur stigið það skref að meta gróð- urelda sem náttúruvá og hefur unnið með okkur í Skorradalshreppi frá árinu 2009 á þeim forsendum. Hún hóf árið 2012 tilraunir með rakamæl- ingar í gróðri sem forsendu sjálf- virkra viðvarana um gróðurelda, svipað og gert er í nágrannalöndum okkar. VÍ hefur þó ekki getað sett aukinn kraft í verkefnið þar sem hún hefur ekki skilgreint hlutverk til þess, heldur hefur hún unnið verkefnið að beiðni Skorradalshrepps. Af sömu ástæðu hefur VÍ ekki getað aðstoðað okkur við gerð hættumats í Skorra- dal. Það verkefni er á því stigi að Náttúrufræðistofnun Íslands í sam- vinnu við Skógrækt ríkisins hefur unnið nákvæmt gróðurkort af hreppnum en slíkt kort er ein mik- ilvægasta forsenda fyrir því að við fáum yfirsýn yfir þá vá sem við er að etja. Með því að bæta fasteignum við gróðurfarsupplýsingarnar og skrá yf- ir ástand vegakerfisins erum við komin með gagnagrunn sem er nauð- synlegur til þess að unnt sé að meta áhættuviðmið og hvaða forvarnir skuli ráðast í til að draga úr hættu á svæðinu. Þar erum við hins vegar komin á pólitíska planið aftur. Hver ber/á að bera ábyrgð á því að vega og meta ásættanleg áhættuviðmið? Það þarf nefnilega að taka ákvörðun um það, til hvaða aðgerða eigi/þurfi að grípa og hvað þær mega kosta. Í Skorradal höfum við strandað á þess- um þætti í vinnu okkar að við- bragðsáætlun vegna gróðurelda á svæðinu. Það sýnist sitt hverjum um ábyrgðarsviðin og það þarf vilja til að takast á við vandann. Þetta er stóra verkefni sveitarfélagsins á sviði brunamála og það er fordæmisgefandi fyrir önnur sveitarfélög í landinu hvernig til tekst. Segja má að lög um almannavarnir marki ábyrgð sveitarfélagnna í þess- um efnum enn frekar því þar er skýrt tekið fram að almannavarnanefndir sveitarfélaga eiga að vinna hættumat og viðbragðsáætlanir, prófa þær og endurskoða í samvinnu við ríkislög- reglustjóra. Það er hins vegar varla hægt að ætlast til þess að nefndirnar hafi þá fagþekkingu sem þarf og því þarf að tryggja faglega aðkomu. Eðli- legt er að VÍ fái hlutverk við gerð hættumats, þar sem þar er þekking fyrir hendi á hættumatsaðferðafræði Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) sem beita þarf í hættumati gróðurelda á Íslandi. Auk þess sem að framan greinir þarf að styrkja varnir gegn gróð- ureldum með beinum aðgerðum strax. Það gerum við best með fræðslu til al- mennings og tilmælum um að forðast óþarfa áhættu. Því til stuðnings mætti nú þegar breyta lögum um sinubrenn- ur og banna þær, ásamt notkun ein- nota grilla á víðavangi. Hér með skora ég á umhverfisráðherra að beita sér fyrir því að það verði gert og vona að alþingismenn bregðist hratt og vel við með frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 61/1992. Gróðureldar í íslensku samhengi Eftir K. Huldu Guðmundsdóttur »Eðlilegt er að VÍ fái hlutverk við gerð hættumats, þar sem þar er þekking fyrir hendi á hættumatsaðferðafræði Alþjóðaveðurfræði- stofnunarinnar (WMO) sem beita þarf í hættu- mati gróðurelda á Ís- landi. Hulda Guðmundsdóttir Höfundur er hreppsnefndarkona í Skorradal. mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.