Morgunblaðið - 14.02.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014
VARANLEG
VERÐLÆKKUN
Á HEIMILISTÆKJUM
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
HLUTI AF BYGMA
73.900 kr
Frábært verð!
Electrolux þvottavél
6 kg,1200 snúninga
Með nýjum samningum
við okkar helstu
birgja getum við nú
boðið umtalsverða
verðlækkun á stórum
heimilistækjum.
LÆGRA VERÐ! VERÐ
LÆKKUN
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef spilað allskonarborðspil síðan ég maneftir mér, en ég hef spilaðFlames of War frá því ár-
ið 2006,“ segir Jökull Gíslason sem
er í félagsskap sem kallar sig Ein-
herja, en þeir spila borðspilið Fla-
mes of War á Íslandi og ætla nú um
helgina í samstarfi við Nexus að
halda alþjóðlega keppni í herkænsku
með módelum. „Flames of War ger-
ist í seinni heimsstyrjöldinni og leik-
menn koma með sína eigin heri og
það er barist yfir vígvelli sem þekur
heilu borðin. Mótið er nefnt eftir 49.
fótgönguliðadeild breska hersins,
Polar Bears, en það nafn tóku þeir
sér eftir að hafa verið hersetulið á
Íslandi 1940 til 1942.“ Hann segir að
hver leikmaður komi sér upp sínum
eigin her, innan ramma sem hann
fær og síðan er keppt eftir
ákveðnum reglum. „Við byggjum
herina upp eins og þeir voru í seinni
heimstyrjöldinni. Sá her sem hver
og einn velur sér verður að vera í
mjög föstu formi og þarf að líkjast
sem mest þeim raunverulega her
sem er fyrirmyndin. Við reynum
alltaf að hafa þetta þannig að enginn
þurfi að berjast við heri úr eigin röð-
um, að Þjóðverjar lendi ekki á móti
Þjóðverjum og að bandamenn berj-
ist ekki sín á milli, að Ameríkanar
takist ekki á við Breta.“
Fara til Evrópu að spila
Jökull segir að þeir sem taki
þátt í leiknum þurfi ekki nauðsyn-
Herkænska krefst
mikillar heilaleikfimi
Einherjar nota frítíma sinn til að spila borðspil með tindátum þar sem beita þarf
herkænsku til að sigra. Um helgina halda þeir stórt mót þar sem sögusviðið er
seinni heimsstyrjöldin. Tveir menn gera sér ferð alla leið frá Bandaríkjunum og
Kanada til að taka þátt í mótinu. Einherjar ætla að vera með kynningarleik á
þriðjudag á borði sem er sérhannað fyrir væntanlega bíómynd Dags Kára.
Módel Að mála öll módelin krefst vandvirkni og tíma.
Sviðsetning Allt á borðinu er eins og það var, líka hús og götur.
Hinn 14. febrúar í fyrra kom saman
einn milljarður manna í 207 löndum
og dansaði í tilefni af Milljarður rís.
Íslendingar létu sitt ekki eftir
liggja og 2.100 karlar, konur og börn
á öllum aldri komu saman í Hörpu og
dönsuðu af lífi og sál. Íslendingar
tóku þannig þátt í femíniskri flóð-
bylgju og létu jörðina hristast með
samtakamætti sínum. Í ár ætlar UN
Women í samstarfi við Lunch Beat og
tónlistarhátíðina Sónar að endurtaka
leikinn og er markmiðið að fá 3.000
manns um allt land til þess að mæta.
Mætum öll í Hörpu í dag kl. 12 og
dönsum af krafti fyrir allar þær konur
og stúlkur sem upplifað hafa ofbeldi
og sýna í verki að okkur stendur ekki
á sama. Staðreyndin er að ein af
hverjum þremur konum verður fyrir
ofbeldi á lífsleiðinni. Helsta dán-
arorsök evrópskra kvenna á aldrinum
16-44 ára er heimilisofbeldi.
Vefsíðan www.Facebook/Milljarður rís
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samtakamáttur Í fyrra tóku rúmlega 2.000 manns þátt í viðburðinum.
Samtakamáttur í Hörpu í dag
Í kvöld ætla tvær hljómsveitir að
spila á Íslenska rokkbarnum í Hafnar-
firði. Hafnfirska hljómsveitin Story-
teller kemur fram en ekki hefur farið
mikið fyrir henni síðan hún gaf út
plötuna Riding the stars. Hljóm-
sveitin hefur verið starfandi síðan
2006 og fór á sínum tíma til Banda-
ríkjanna og var þar á samningi við
plötuútgáfu. Einnig kemur fram
hljómsveitin Lucy In Blue, sem er
rokkhljómsveit skipuð ungum mönn-
um sem fá mikinn innblástur frá
„psychedelic“ og „progressive“
böndum sjöunda og áttunda áratug-
arins. Hefst kl. 23, frítt inn.
Endilega…
…heyrið og sjáið Storyteller
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Mikið hefur verið rætt um klæðnað
poppstjarna á borð við Beoncey, Mil-
ey Cirus og Rihönnu eða öllu heldur
skort þar á. Margir óttast mjög þau
skilaboð sem verið er að senda óhörn-
uðum unglingum, það sé komið bak-
slag í baráttu kvenna og í raun sé
heimurinn að farast.
Á sama tíma og Lenu Dunham er
hampað fyrir að bera sig í sjónvarps-
þáttunum sínum Girls, þá er Beyoncé
gagnrýnd fyrir að vera fáklædd á
sviði. Hvernig er Dunham meiri fem-
ínisti en Beyoncé fyrir nákvæmlega
það sama?
Þá verður mér litið til baka þegar
Madonna var upp á sitt besta. Hún
var síður en svo háttprúð og vakti
hörð viðbrögð margra. Sviðs-
framkoma hennar þótti grófasta
klám svo ekki sé minnst á allt fjaðra-
fokið sem myndbandið við Like a
Prayer olli en þar gerir hún sér dælt
við svartan dýrling. Þrátt fyrir að
mín kynslóð hafi átt þessa djörfu
fyrirmynd þá efast ég um að hún
hafi leitt ungar sálir til glötunar,
alla vega tók ég ekki eftir því að
jafnöldrur mínar vildu
eignast keilulagaða
brjóstahaldara. Ma-
donna þótti ein-
faldlega áræðin
og sjálfstæð.
Sama má gera ráð
fyrir að eigi við um
Beyoncé og Miley.
Það er líka hlutverk
listamanna að ögra.
Ungar konur verða að
fá svigrúm til þess að skapa sinn eig-
in stíl. Til þess þurfa þær að búa við
ákveðið frelsi og fordómaleysi. Þær
þurfa að vita að þær eigi sinn eigin
líkama og beri ábyrgð á honum sjálf-
ar. Þannig verður kona sjálfstæð.
Hún lærir það ekki með því að hlusta
á kröfur um að konur hylji sig og séu
svona en ekki hinsegin.
Til staðar eru líka fjölmargar fyrir-
myndir. Við sjáum reglulega jakka-
fataklædda Ellen DeGeneres, fá-
klædda Beyoncé og íturvaxna
Opruh. Lærdómur
ungviðsins er því öllu heldur
sá að konur eru alls konar
og eiga að vera alls konar.
Hér áður fyrr snerist
kvenréttindabaráttan um
kynfrelsi og yfirráða-
rétt kvenna yfir eigin
líkömum. Nú er því
miður forsjárhyggjan
áberandi. Hvenær ætli
sá tími komi að fólk
hætti að hafa skoðanir á
því hverju konur klæðast
eða klæðast ekki?
»… alla vega tók égekki eftir því að jafn-
öldrur mínar vildu eignast
keilulagaða brjóstahald-
ara.
HeimurMaríu Margrétar
María Margrét
Jóhannsdóttir