Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 Skipulagsstofnun gerir ekki frekari athugasemdir við nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar til ársins 2030, samkvæmt bréfi sem lagt var fyrir fund borgarráðs í gær. „Það er ánægjulegt að þetta sé komið í höfn,“ sagði Dagur B. Egg- ertsson, formaður borgarráðs, í samtali við mbl.is um bréf Skipu- lagsstofnunar. „Þetta er stór áfangi, nú þurfum við bara að bretta upp ermar og fara á fullt við að byggja upp borgina í samræmi við aðal- skipulagið.“ Í lok janúar óskaði Skipulags- stofnun eftir skýringum og leiðrétt- ingum borgarinnar á tilteknum at- riðum sem liggja þurftu fyrir áður en stofnunin gat staðfest umræddar skipulagsáætlanir. Varðaði það að- allega áform um uppbyggingu í Vatnsmýri og samræmi aðalskipu- lagsins við svæðisskipulag höfuð- borgarsvæðisins hvað varðar íbúða- uppbyggingu og stofnbrautarkerfi. Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins, segist í samtali við Morg- unblaðið vera þeirrar skoðunar að þótt búið sé að samþykkja aðal- skipulagið þá sé ljóst að það þarfnist endurskoðunar. Hann muni hvetja til þess að sú endurskoðun fari fram strax á næsta kjörtímabili. Sam- kvæmt skipulagslögum beri sveitar- stjórnum að fara yfir aðalskipulag sitt á hverju kjörtímabili. „Miklar breytingar eiga sér stað í umhverf- inu sem þarf að bregðast við, eins og borgarþróunin,“ segir Júlíus og vís- ar til nýlegra gagna Samtaka iðn- aðarins um að 19% uppbyggingar á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu fari fram í Reykjavík. Það séu alvarleg tíðindi. Borgin þurfi að gera sitt til að ungt fólk leiti ekki í auknum mæli til annarra sveitarfélaga. Júlíus lagði fram tillögu á fundi borgarráðs í gær um að borgin fari í vinnu með byggingaverktökum hvernig hægt sé að auðvelda sam- skipti við borgarkefið og svara þeirri eftirspurn sem er eftir nýjum íbúðum. Þá sé áhyggjuefni að að- alskipulagið geri ekki ráð fyrir upp- byggingu nýrra atvinnusvæða. bjb@mbl.is Aðalskipulag án athugasemda  Verði endurskoðað á næsta kjörtímabili Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjavík Borgarráð fjallaði um aðalskipulagið á fundi sínum í gær. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Verkefnið Hjólaleiðir á Íslandi hlaut nýsköpunarverðlaun forseta Ís- lands. Höfundar að því eru Eva Dís Þórðardóttir úr Háskólanum í Reykjavík og Gísli Rafn Guðmunds- son, nemandi í Háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Verkefnið fólst í því að vega og meta hjólaleiðir á Íslandi út frá kröfum EuroVelo-verkefnisins með það að markmiði að koma einni leið á Íslandi inn á kort EuroVelo. Vekur athygli hjólreiðamanna EuroVelo heldur utan um megin- kerfi reiðhjólaleiða í Evrópu og er ætlað að stuðla að sjálfbærri ferða- mennsku. Á korti EuroVelo eru í dag 14 leiðir, sem eru samtals um 45.000 km langar. Í fréttatilkynningu segir að skrán- ing Íslands inn á kort samtakanna sé mikilvægur þáttur í að vekja athygli á landinu sem viðkomustað fyrir hjólaferðamenn og auka tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu hér á landi. Jafnframt er bent á að með þessu framtaki sé safnað saman á einn stað mikilvægum upplýsingum um leið- irnar fyrir ferðaþjónustuaðila og umsjónarmenn EuroVelo hér á landi. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim náms- mönnum sem hafa unnið fram- úrskarandi starf við úrlausn verk- efnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sum- arið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaun- in. Leiðbeinendur Evu Dísar og Gísla Rafns í verkefninu voru Guð- björg Lilja Erlendsdóttir og Ólafur Árnason hjá Eflu, verkfræðistofu. Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson Verðlaunahafar Eva Dís Þórðardóttir og Gísli Rafn Guðmundsson. Hjólaleiðir fá ný- sköpunarverðlaun  Hjólaleiðir út frá kröfum EuroVelo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.