Morgunblaðið - 14.02.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 14.02.2014, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 Bílkranar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð JIB 20˚ yfirhalli Gálgi 12˚ yfirhalli Fjölbreytt úrval krana til margvíslegra nota ásamt aukabúnaði Lyftigeta 2,5 - 80 tonn Leitið nánari upplýsinga! Lengi vel skipti engu máli þótt það væri ekki á hreinu hversu stór land- spildan var, enda ekkert sérstakt sem kallaði á nákvæma skilgreiningu á því. Kyrrstaðan var rofin í góðærinu mikla. Árið 2006 hugðist Orkuveita Reykjavíkur, í samvinnu við Klasa ehf., reisa alls um 600 sumarhús, þjónustuhús og golfvöll við Úlfljóts- vatn. Þetta átti m.a. að rísa á stórum hluta þess lands sem Starfsmanna- félagið telur sig hafa fengið til afnota, kvöldið góða fyrir 45 árum. Um þessi miklu byggingaráform var stofnað félag, Úlfljótsvatn frí- tímabyggð ehf. Áformin voru þó um- deild og í stefnu Stéttarfélagsins er minnt á að meðan deilt var um áformin bauð Úlfjótsvatn frí- tímabyggð ehf. að í stað réttinda samkvæmt yfirlýsingunni frá 1969 yrði Starfsmannafélaginu afhent til eignar hið afgirta svæði, auk óbyggðs svæðis. Þessu tilboði hafnaði Starfs- mannafélagið. OR borgaði 125 milljónir Deilur um sumarhúsabyggðina urðu til þess að sumarhúsunum var fækkað í 60, og var samið um að Orkuveitan greiddi Klasa 125 millj- ónir vegna breytinga á samningi. Ekkert varð síðan af framkvæmdum enda höfðu forsendur breyst og tíðarandinn sömuleiðis. Haustið 2010 óskaði Starfsmanna- félagið eftir því við borgina að gengið yrði sameiginlega frá skráningu rétt- inda til frambúðar en þeirri ósk svar- aði borgin aldrei, eins og segir í stefnu Stéttarfélagsins. Um ári síðar, í desember 2011, verða þáttaskil þegar samningur er gerður á milli Úlfljótsvatns frítíma- byggðar ehf. og OR annars vegar og hins vegar Bandalags íslenskra skáta, Skátasambands Reykjavíkur og Skógræktarfélags Íslands um kaup síðarnefndu aðilanna á Úlfljóts- vatnsjörðinni, auk nærliggjandi lóða, með fyrirvara. Starfsmannafélagið heldur því fram að kaupendum beri að virða réttindi þess til jarðarinnar sem borgarráð hafi samþykkt fyrir tæplega hálfri öld. Málið er fyrir dómi, eins og fyrr segir, en áfram er þó reynt að semja. Væntanlega mun því fljótlega skýr- ast hvað það var, nákvæmlega, sem Starfsmannafélagið fékk að gjöf. Deilt um hvað borgarstjóri gaf nákvæmlega á árshátíðinni 1969  Borgin gaf Starfsmannafélaginu landspildu til afnota  Mörk og stærð óljós  Stefnt fyrir dóm Loftmyndir ehf. Mörk Úlfljótsvatnsjarðarinnar Tilboð til Starfmannafélagsins frá árinu 2006 Girðing sem Starfmannafélagið reisti 1971 Land sem Starfsmannafélagið telur að það hafi fengið til afnota Deilur um Úlfljótsvatn Ljósafossvirkjun Írafossvirkjun Úlfljótsvatn Háafell Sogið Þingvallavegur Bíldsfell Jarðarmörkin teygja sig um þrjá kílómetra lengra í SSV Upptök Fossár Úlfljótsvatnsfell Heiðartjörn Gr af ni ng sv eg ur ne ðr i Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsskáli Villingavatn Úlfljótsvatn (bær) 1 km Keypt og selt » Landspildan var hluti af Úlf- ljótsvatnsjörðinni sem Reykja- vík átti en OR eignaðist síðar. » 2011 keyptu Bandalag ís- lenskra skáta (25%), Skáta- samband Reykjavíkur (25%) og Skógræktarfélag Íslands (50%) stærstan hluta jarð- arinnar, þ.m.t. stóran hluta lands sem Starfsmannafélagið telur sig hafa afnotarétt yfir. » Ekki er skýrt af gögnum hversu stór landspildan er. » Norðurmörkin eru þó skýr og mestur hluti af vestur- mörkum. » Mörk landsins í suðri og austri eru ekki eins skýr. Morgunblaðið/Eggert Fjör Á Úlfljótsvatni hafa skátar starfað í áratugi. Frá landsmóti 2012. BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Fyrir dómstólum er nú deilt um hversu stór landspildan var sem Geir Hallgrímsson, þáverandi borgar- stjóri Reykjavíkur, færði Starfs- mannafélagi Reykjavíkurborgar til endurgjaldslausra afnota. Það gerði hann á árshátíð félagsins sem haldin var 1. nóvember árið 1969 í tilefni af 40 ára afmæli félagsins. Borgarráð hafði þremur dögum fyrr samþykkt að gefa Starfsmanna- félaginu kost á endurgjaldslausum afnotum „á landi úr Úlfljótsvatns- jörðinni“ til að reisa þar orlofsheimili fyrir félagsmenn sína. Í samþykkt borgarráðs er landið afmarkað að vissu leyti, en alls ekki nákvæmlega. Þar segir: „Landsvæðið er við suður- enda vatnsins og takmarkast að vest- an af leigulandi Bandalags ísl. skáta, en að austan af landi því úr jörðinni Úlfljótsvatn, er talið var fylgja Sogs- virkjun […].“ Svo kemur lykilsetning í málinu: „Kveðið verður síðar nánar á um mörk og stærð og réttindi Starfsmannafélagsins yfir því.“ Vandinn er sá að þetta var aldrei gert. Umrædd gjöf var aldrei af- mörkuð með skýrum hætti af borg- inni. Og því hefur Starfsmanna- félagið stefnt málinu fyrir dóm. Girðingin sé aðeins um hluta Árið 1971 reisti Starfsmanna- félagið girðingu um svæði þar sem til stóð að reisa sumarhús og er afgirta svæðið um 39 hektarar. Girðingin var til að verja sumarhúsasvæðið fyrir ágangi búfjár og náði aðeins um hluta landsins, alls ekki allt – segir Starfsmannafélagið. Á 9. áratugnum byrjaði Starfs- mannafélagið ásamt fleiri félögum sem tengjast borginni að reisa sumarhús innan girðingar, og nú eru þau alls 16 talsins, auk Úlfljótsskála. „Þetta er alls ekkert stríð,“ segir Gestur Jónsson, lögmað- ur Starfsmanna- félags Reykjavíkur- borgar. Það hafi einfaldlega kom- ið í ljós að nauð- synlegt væri að stefna málinu fyrir dóm til að fá niðurstöðu um hvernig réttindi til jarðarinnar skiptist á milli að- ilanna. „Það sem ég myndi halda að væri rétt samningslausn í málinu væri að afmarkaður væri fullkominn eignarréttur Starfs- mannafélagsins yfir tilteknu landi.“ Ræði um tilboð frá 2006 Þrátt fyrir að málið væri nú fyrir dómi væri enn hægt að ná samningum. Starfsmannafélagið hafi lýst sig reiðubúið til að ræða um að það fái til eignar, ekki aðeins til afnota, það land sem því var boðið til eignar árið 2006. Slík niðurstaða myndi reyndar kalla á að greitt yrði úr fleiri málum, s.s. hvernig eigi að skipta kostnaði fyrir rekstur Úfl- jótsvatnsskála sem borgin, OR og fleiri reistu í sameiningu á sínum tíma. Gestur hefur frest til loka apr- íl til að leggja fram hnitsett kort sem sýnir nákvæmlega hversu umfangsmikið land félagsins er. Best ef hægt væri að semja um full- kominn eignarrétt Gestur Jónsson Þegar skátarnir og Skógræktar- félagið keyptu landið af Úlf- ljótsvatni frí- stundabyggð ehf., sem var í eigu OR, stofn- uðu þau með sér félag um kaup- in. Friðrik Sophusson, sem er stjórnarformaður félagsins, segir að bæði seljandi Úfljótsvatnsjarð- arinnar og kaupendur líti svo á að afnotaréttur Starfsmanna- félagsins nái eingöngu til þess lands sem félagið girti af árið 1971. Það liggi fyrir að borgar- lögmaður líti einnig svo á að af- notarétturinn sé takmarkaður við þau mörk. Fengju yfir 340 hektara Það land sé um 39 hektarar að stærð en það land sem Starfs- mannafélagið geri kröfu til nái yfir 340 hektara. Yrði fallist á þá kröfu yrði heldur lítið eftir af því landi sem skátarnir og Skógrækt- arfélagið keyptu árið 2011. Kaupin hafi náð til nánast allrar Úlfljótsvatnsjarðarinnar, fyrir utan 60 hektara spildu nyrst á jörðinni sem OR hélt eftir og svæðisins innan girðingar Starfsmannafélagsins. Við kaupin var gerður fyrirvari vegna ágreiningsins við Starfsmanna- félagið. Eiga rétt til þess lands sem félagið girti af árið 1971 Friðrik Sophusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.