Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Sumum ráðherrum ríkisstjórnar
Íhaldsflokksins og Frjálslyndra
demókrata í Bretlandi er heitt í
hamsi vegna deilunnar um lofts-
lagsmál og umræðu um hvort rekja
megi flóðin í landinu í vetur til
hlýnunar jarðar af mannavöldum.
Orkumálaráðherra Bretlands,
Ed Davey, sem er frjálslyndur
demókrati, sagði í ræðu í gær að
íhaldssamir þingmenn, sem neit-
uðu því að loftslagsbreytingar
hefðu orðið af mannavöldum, væru
„fávísir“ . Hann sagði að „afneitun“
þeirra stofnaði stefnu stjórnarinn-
ar í loftslagsmálum í hættu og gæti
stuðlað að auknum „öfgum í veður-
fari“, m.a. flóðum eins og þeim sem
verið hafa síðustu vikur eftir blaut-
asta vetur í Bretlandi í 250 ár. Da-
vey sagði að Bretar gætu aðeins
tekið á loftslagsbreytingunum í
samstarfi við Evrópusambandið en
því væri stefnt í hættu með
„djöfullegri blöndu“ afneitunar í
loftslagsmálum og ótta við Evrópu-
sambandið meðal þingmanna á
hægrijaðri Íhaldsflokksins og í
UKIP, flokki breskra sjálfstæðis-
sinna.
Davey sakaði þingmenn á hægri-
jaðrinum um að stinga höfðinu í
sandinn og „hafa eftir rök illræmd-
ustu afneitunarmanna í loftslags-
málum eins og páfagaukar, nota
hvert frávik í loftslagsgögnum til
að reyna að draga heildina í efa“.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur sagt að sér
segi „mjög svo hugur um“ að úr-
hellið og flóðin í Bretlandi í vetur
megi rekja til loftslagsbreytinga af
mannavöldum. Umhverfisráðherr-
ann og íhaldsmaðurinn Owen Pat-
erson hefur hins vegar ekki tekið
undir það og sagt að Bretar þurfi
„bara að sætta sig við það að lofts-
lagið hefur verið að breytast öldum
saman“. „Hitinn hefur ekki breyst
síðustu sautján árin,“ sagði hann
nýlega. Hann hefur einnig sagt að
hlýnun geti lengt ræktunartímann
og aukið landbúnaðarframleiðsluna
í Bretlandi.
Ekkert endanlegt svar
Julia Slongo, aðalvísindamaður
bresku veðurstofunnar, sagði á
sunnudag að allt benti til þess að
rekja mætti flóðin til loftslags-
breytinga. „Öll gögnin benda til
þess að þau tengist loftslagsbreyt-
ingum,“ sagði hún og bætti við að
ekki hefðu komið fram nein gögn
sem stönguðust á við þá grund-
vallarforsendu að hlýnun jarðar
leiddi til meiri úrkomu.
Breska veðurstofan sagði þó í
skýrslu, sem birt var á sunnudag,
að ekki hefði verið sannað að
tengsl væru á milli loftslagsbreyt-
inga og flóðanna í Bretlandi. „Hvað
varðar stormana og flóðin veturinn
2013/14 er ekki mögulegt, enn sem
komið er, að svara því endanlega
hvort loftslagsbreytingar hafi
stuðlað að þeim eða ekki,“ sögðu
skýrsluhöfundarnir.
AFP
Hiti færist
í deilu Breta
um hlýnun
Illviðravetur Alda skellur á sjóvarnargarði í Aberystwyth í vesturhluta Wales í illviðri sem gekk yfir Bretland í
fyrrakvöld. Vindhraðinn mældist allt að 44 m/s í vesturhluta Wales og á norðvestanverðu Englandi.
Ráðherra segir þingmenn á hægri-
jaðrinum stinga höfðinu í sandinn
Tugir þúsunda
heimila án rafmagns
» Um 80.000 heimili voru án
rafmagns í gær eftir illviðri
sem gekk yfir Wales og Eng-
land.
» Komið hafði þá verið á raf-
magni til 145.000 heimila til
viðbótar sem voru rafmagns-
laus um tíma í fyrrakvöld.