Morgunblaðið - 04.03.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Nýliðinn febrúarmánuður var sá
þurrasti í Reykjavík frá árinu 1966
og sá þurrasti í Stykkishólmi frá
árinu 1977, að því er kemur fram í yf-
irliti Veðurstofunnar yfir tíðarfar í
mánuðinum.
Úrkoma var hins vegar með mesta
móti nyrst á Vestfjörðum og á Norð-
austur- og Austurlandi.
Hlýtt var í veðri og hiti vel yfir
meðallagi áranna 1961 til 1990 en í
meðallagi sé miðað við hin óvenju-
hlýju ár síðasta áratuginn. Besta
veður þótti vera suðvestanlands en
víða var kvartað undan næðingnum
og þrálátum svellum á jörð.
Aldrei varð alhvítt í Reykjavík í
mánuðinum og hefur það ekki gerst í
febrúar síðan 1977. Aldrei varð held-
ur alhvítt í febrúarmánuðum áranna
1932 og 1965. Að meðaltali voru 13
alhvítir dagar í Reykjavík í febrúar á
árunum 1971 til 2000. Á Akureyri
var jörð alhvít allan mánuðinn. Það
er sjö dögum umfram meðallag og
hefur það ekki gerst í febrúar síðan
árið 2000 að alhvítir dagar væru 28.
En þar sem árið 2000 var hlaupár
var ekki alhvítt allan þann febrúar.
Síðasti alhvíti febrúar á Akureyri
var 1990. Á tímabilinu 1924 til 1989
var febrúar tólf sinnum alhvítur á
Akureyri.
Hæsti meðalhitinn í Surtsey
Meðalhiti mánaðarins var hæstur í
Surtey, 4,2 stig, en lægstur við Sátu
norðaustan Hofsjökuls, -6,5 stig. Í
byggð var meðalhitinn lægstur í
Svartárkoti, -4 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist
10,4 stig á Fagurhólsmýri hinn 28. Á
mannaðri stöð mældist hann hæstur
9 stig á Vatnsskarðshólum hinn 28.
Lægsti hiti á landinu mældist í
Svartárkoti hinn 19. febrúar, -28,9
stig. Sjónarmun kaldara, -29 stig,
varð í Svartárkoti í febrúar 2009. Á
mannaðri stöð mældist hitinn lægst-
ur á Grímsstöðum á Fjöllum hinn
19., -20 stig.
Tvö ný landsdægurlágmarksmet
voru sett í mánuðinum. Hinn 18. fór
frost í -28 stig við Mývatn. Mesta
frost sem áður var vitað um þennan
dag var -20,2 stig sem mældist í
Reykjahlíð 1966. Hinn 19. fór frostið
í -28,9 stig í Svartárkoti. Mesta frost
sem áður var vitað um þennan dag
var -23,6 stig sem mældust við Upp-
typpinga árið 2000.
Úrkoma var langt undir meðallagi
um landið vestanvert, norður fyrir
Breiðafjörð. Sömuleiðis var sérlega
þurrt inn til landsins á Norðurlandi
vestanverðu. Austan- og norðaustan-
lands var úrkoma hins vegar talsvert
yfir meðallagi.
19% af meðalúrkomu
Í Reykjavík mældist úrkoman
13,6 mm og er aðeins 19% af með-
allaginu 1961 til 2000. Þetta er
minnsta úrkoma í Reykjavík í febr-
úar síðan 1966 og sú fjórða minnsta í
mæliröðunum (1885 til 1907 og 1921
til 2014). Á Akureyri mældist úr-
koman 101,3 mm og er það meir en
tvöföld meðalúrkoma þar á bæ, sú
mesta í febrúar síðan 1990. Í Stykk-
ishólmi mældist úrkoman aðeins 1,9
mm, eða 3% af meðalúrkomu. Í
Stykkishólmi hófust úrkomumæling-
ar haustið 1856 og hafa staðið nær
samfellt síðan. Aðeins einu sinni hef-
ur úrkoma í febrúar verið minni en
nú. Það var 1977 og mældist úrkom-
an þá 1,0 mm.
Úrkoma hefur verið mæld á Eyr-
arbakka að mestu leyti samfellt frá
1924. Á því tímabili hefur úrkoma
aldrei verið minni í febrúar en nú
(26,2 mm). Úrkoma var einnig mæld
á Eyrarbakka á tímabilinu 1880 til
1911. Þá mældist úrkoman þrisvar
sinnum minni í febrúar en nú, minnst
1,2 mm 1885.
Engin úrkoma mældist í Staf-
holtsey í mánuðinum, en þar hefur
verið mælt síðan 1988 og svo virðist
sem úrkoma hafi aldrei mælst minni
í febrúar en nú á 16 stöðvum öðrum á
landinu.
Aldrei alhvít jörð í
Reykjavík í febrúar
Hlýtt var í veðri og hiti yfir meðallagi Óvenjumikill snjór
víða til fjalla Snjólétt vestan- og suðvestanlands
Morgunblaðið/Ómar
Í muggunni Hríðarmugga var sjaldgæf í Reykjavík í febrúar og aldrei varð
alhvít jörð. Á Akureyri var hins vegar alhvít jörð allan mánuðinn.
ÍSLENSK
HÖNNUN
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
ÁLAFOSS
Álafossvegur 23, Mosfellsbær
Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00
Laugard. 09:00 - 16:00
www.alafoss.is
Falleg vesti
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Str. M-XXXL
kr. 7.900
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Rafræn
allsherjaratkvæðagreiðsla
meðal félagsmanna VR
Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmannaVR vegna kjörs
sjö sæta í stjórn og þriggja til vara, skv. 20. gr. laga félagsins, hefst
kl. 09:00 þann 6. mars nk. og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 14. mars nk.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.vr.is eða með því
að hringja á skrifstofu félagsins í síma 510 1700.
Kjörstjórn VR