Morgunblaðið - 04.03.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Sjö sækja um stöðu rektors við Há-
skólann á Akureyri sem auglýst var
til umsóknar í janúar. Umsækjend-
ur eru Anna Elísabet Ólafsdóttir,
aðstoðarrektor við Háskólann á
Bifröst; Eyjólfur Guðmundsson,
yfirhagfræðingur hjá CCP; Javier
Sánchez Merina, aðstoðarprófessor
hjá Alicante Háskólanum á Spáni;
Sigurður Kristinsson, prófessor við
HA; Sveinn Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Starfsafli; Sveinn
Viðar Guðmundsson, prófessor hjá
Toulouse Business School, Frakk-
landi og Ögmundur Knútsson, for-
seti viðskipta- og raunvísindasviðs
HA.
Sjö sækja um stöðu
rektors við HA
Háskólinn á Akureyri Sjö manns sóttu
um lausa stöðu rektors.
stíg núna heldur rís hann langt upp
fyrir hana að sögn Hjálmars.
„Hann hefur því verulega nei-
kvæð áhrif á þessa fallegu sjónlínu.
Mín skoðun er að þessi stóra turna-
bygging við Skúlagötuna séu ein
verstu skipulagsmistök borgarinnar
síðustu áratugi. Á sínum tíma þótti
þetta mjög smart en í dag held ég
að langflestir séu sammála um að
þetta er alltof stórt og tekur of lítið
tillit til gömlu Reykjavíkur með fín-
gert mynstur og fallegar götulínur
og sjónása,“ segir hann.
Ekki mögulegt aftur
Hætt er við því að lítið sé hægt
að gera í málinu úr því sem komið
er en Hjálmar segir þó að málið
hafi verið rætt óformlega innan
meirihlutans. Útilokað sé þó að
álíka mistök verði gerð aftur þar
sem í nýsamþykktu aðalskipulagi sé
ekki heimild fyrir frekari turnbygg-
ingum á miðborgarsvæðinu.
Verstu skipulagsmistök
síðustu áratuga í Reykjavík
Fyrirhugað háhýsi neðst við Frakkastíg muni spilla sjónási niður götuna út á sjó
Morgunblaðið/Ómar
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Framkvæmdir við háhýsi í Skugga-
hverfi við Skúlagötu hafa ekki kom-
ið inn á borð umhverfis- og skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar þar
sem byggingarleyfi hafa byggst á
deiluskipulagi sem hefur áður verið
samþykkt. Að sögn Hjálmars
Sveinssonar, fulltrúa Samfylkingar-
innar í ráðinu, er turnabyggðin við
Skúlagötuna ein verstu skipulags-
mistök síðustu áratuga í borginni.
Framkvæmdir við minni turn af
tveimur sem eiga að rísa við Lind-
argötu 39 og Skúlagötu 22 eru hafn-
ar en eins og kom fram í Morg-
unblaðinu í gær mun háhýsið
breyta götumynd Frakkastígs um-
talsvert og skyggja á útsýni frá
Skólavörðuholti niður götuna að
sjónum.
Veruleg neikvæð áhrif
Við hrunið fóru framkvæmdir á
svæðinu á ís og segir Hjálmar að
menn hafi ef til vill ekki verið vak-
andi fyrir því þegar þær fóru af
stað aftur og það hafi komið flatt
upp á hann sem hafi talið að varla
yrði haldið áfram með sama bygg-
ingarmagn og í fyrstu var lagt upp
með.
Hann hafi jafnframt ekki gert sér
grein fyrir hversu mikið turninn
skemmdi sjónlínuna í götunni fyrr
en hann sá mynd af honum, séðum
frá Frakkastíg, í blaðinu í gær.
„Mér finnst þetta alveg hörmu-
legt því að þetta er einstaka fal-
legur sjónás niður Frakkastíginn og
listaverkin tvö, Sólfar [við Sæbraut]
og Leifur heppni á Skólavörðuholti
kallast fallega á,“ segir hann.
Þegar deiliskipulagi var breytt
árið 1989 stóð til að fjarlægja hlykk
sem er á neðsta hluta Frakkastígs
og gera götuna beina alla leið niður
að Skúlagötu. Af því varð þó aldrei
er því ekki er nóg með að turninn
skagi út úr húsalínunni við Frakka-
Byggingar Hjálmar Sveinsson í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar: „Mín skoðun er að þessi stóra
turnabygging við Skúlagötuna séu ein verstu skipulagsmistök borgarinnar síðustu áratugi.“
Tólf ný störf skapast í Ólafsvík með
starfsemi lifrarverksmiðju Ægis –
sjávarfangs, en starfsemi hennar
hófst fyrr í mánuðinum. Þar er unn-
in þorsklifur, sem er soðin niður,
sett í dósir og seld sem eftirsótt vara
á sælkeramörkuðum í Evrópu, í
Rússlandi og víðar. „Við vildum færa
út kvíarnar og vera nær auðlindinni.
Núna á vetrarvertíðinni eru á bilinu
40-50 bátar gerðir út héðan frá Snæ-
fellsbæ og á þessum tíma berst mik-
ið af góðum þorski á land. Lifrin úr
þorskinum er hráefnið sem við þurf-
um,“ segir Óli Olsen rekstrarstjóri.
Verksmiðjan er í svonefndu Vala-
fellshúsi sem er við höfnina í Ólafs-
vík. Það er um 700 fermetrar að flat-
armáli, að meðtalinni stækkun
vegna þessarar nýju starfsemi. Þá
þurfti að koma fyrir framleiðslulínu
og ýmsum tækjum og segir Óli að nú
séu menn að fínstilla þann búnað.
Höfuðstöðvar Ægis – sjávarfangs
eru í Grindavík og er starfrækt
verksmiðja þar sem um 2.000 tonn af
þorsklifur eru soðin niður á ári
hverju. „Við teljum okkur þurfa á ári
hverju um 1.200 tonn af lifur svo
þessi verksmiðja hér fyrir vestan
gangi og erum bjartsýn á að það
magn hraéfnis fáist frá bátunum
hér,“ segir Óli Olsen.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Lifur Tólf manns vinna við vinnslu í lifrarsuðunni í Ólafsvík, þar sem auð-
lind fengsælla fiskimiða er skammt undan sem fjöldi báta sækir í.
Sjóða þorsklifur í
verksmiðju í Ólafsvík
Byggingarleyfi fyrir turnana tvo
sem á að reisa við Lindargötu
39 og Skúlagötu 22 voru sam-
þykkt í janúar sl. og 2012 í sam-
ræmi við deiliskipulag frá árinu
2006. Leyfin eru samþykkt af
byggingarfulltrúa og fara ekki
fyrir pólitísk ráð borgarinnar
nema til afgreiðslu.
„Það er margt gagnrýnivert
við þetta skipulag og óheppilegt
að það hafi gerst,“ segir Björn
Stefán Hallsson, byggingar-
fulltrúi Reykjavíkurborgar.
Hann segir ekkert útilokað
með það að breyta áætlunum ef
nægur vilji sé fyrir hendi þrátt
fyrir að fram-
kvæmdir séu
þegar hafnar.
„Þeir eru ekki
komnir upp úr
jörðinni. Það
er ekkert orð-
ið raunveru-
legt fyrr en
það er klár-
að,“ segir
Björn.
Pólitískan áhuga þyrfti fyrir
því að endurskoða málið því
byggingarleyfi séu gefin út í
samræmi við gögn sem séu lög-
formlega frágengin.
Breytingar ekki útilokaðar
BYGGINGARFULLTRÚI REYKJAVÍKURBORGAR
Björn Stefán
Hallsson
Báturinn Nonni í Vík kom bátnum
Geysi SH, sem Haukur Randvers-
son rær á, til aðstoðar í gær eftir að
bilun kom upp í þeim síðarnefnda.
Nonni í Vík dró Hauk á Geysi til
hafnar í Ólafsvík.
Haukur var hinn hressasti, þrátt
fyrir þessa smábilun, og sagði að
aflinn hefði verið um 300 kíló eftir
stuttan róður.
Handfærabátar frá Ólafsvík eru
byrjaðir að veiða eftir vetrarhlé og
getur ýmislegt komið upp á hjá bát-
unum fyrstu dagana eftir langa vet-
ursetu.
Mokveiði hefur verið hjá neta- og
dragnótabátum og í gærmorgun
fékk báturinn Esjar SH frá Rifi um
sautján tonn í tveimur köstum.
Morgunblaðið/Alfons
Ólafsvík Nonni dregur Geysi til hafnar.
Geysir SH var
dreginn til hafnar
vegna bilunar