Morgunblaðið - 04.03.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Hvað er inflúensa? er heitið á fyr-
irlestri sem fluttur verður í Hann-
esarholti, Grundarstíg 10, í kvöld,
þriðjudagskvöld, klukkan 20.
Magnús Gottfreðsson, prófessor í
smitsjúkdómum og yfirlæknir á
Landspítala, „mun veita innsýn í
hina dularfullu og ógnvænlegu far-
sótt inflúensu í sögulegu sam-
hengi“, eins og segir í fundarboði.
Fyrirlesturinn er ætlaður almenn-
ingi jafnt sem fræðimönnum.
Samkvæmt skráningu Landlækn-
isembættisins eru líkur á að inflú-
ensufaraldurinn 2014 nái hámarki
á næstu tveimur til þremur vikum
hér á landi.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og má
fá miða á www.midi.is.
Fjallar um inflúensu í
sögulegu samhengi
Í tilefni af degi sjaldgæfra sjúk-
dóma sl. föstudag afhenti félagið
„Einstök börn“ Barnaspítalanum
ýmsar gjafir.
Um var að ræða tvo blóðþrýst-
ingsmæla fyrir börn sem kosta
um hálfa milljón, playstation-
tölvur og leiki í þær og stýri-
pinna, hjólastanda fyrir DVD og
sjónvörp.
Dagur sjaldgæfra sjúkdóma,
Rare Disease Day, var nú haldinn
sjöunda árið í röð. Á sjöunda tug
landa taka þátt í deginum með
einum eða öðrum hætti og tók Ís-
land nú þátt í þriðja sinn. Til-
gangur dagsins er að vekja at-
hygli á sjaldgæfum sjúkdómum.
Það eru á milli 6.000-8.000 sjald-
gæfir sjúkdómar til í heiminum í
dag.
Í félaginu Einstök börn eru
rúmlega 220 fjölskyldur barna
með sjaldgæfa sjúkdóma og hefur
mikil fjölgun orðið á félagsmönn-
um undanfarin ár.
Einstök börn færðu
Barnaspítala gjafir
STUTT
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 5.
mars kl. 15.15 mun Bjarni Diðrik
Sigurðsson, prófessor við Landbún-
aðarháskóla Íslands, flytja erindið
„Gróðurbreytingar á jökulskerjum
Breiðamerkurjökuls“. Meðhöf-
undur hans að erindinu er dr.
Starri Heiðmarsson, fléttufræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun Ís-
lands.
Hrafnaþing er haldið í húsakynn-
um Náttúrufræðistofnunar að Urr-
iðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í
Krummasölum á 3. hæð.
Ræðir gróðurbreyt-
ingar á jökulskerjum
Mikil uppbygging er í gangi um
þessar mundir í ferðaþjónustu í
Fjarðabyggð. Bjartsýni ríkir hjá
fyrirtækjum á svæðinu eins og hjá
öðrum í þessari atvinnugrein og
fjölgar gistirýmum verulega í ár.
Skóflustunga var tekin á laug-
ardag að þremur nýjum húsum í
eigu Ferðaþjónustunnar Mjóeyri á
Eskifirði. Sævar Guðjónsson, eig-
andi, tók skóflustunguna og stefnt
er að því að byggja þrjú hús til við-
bótar á næsta ári. Þá verða þau
hjón, Sævar og Berglind, komin
með ellefu hús fyrir gesti ásamt
herbergjum sem þau eru með á efri
hæð íbúarhússins á Mjóeyri, sem
byggt var 1895, og í gistiheimilinu
Öskju, sem er í gamla hluta Hlíð-
arendans á Eskifirði.
Á Reyðarfirði er mikil uppbygg-
ing í gangi hjá Hótel Austur og Hjá
Marlin. Meðal annars er Marlin að
breyta Valhöll, gömlu húsi á
Reyðarfirði, í gistirými og sömu-
leiðis húsnæði sem áður hýsti m.a.
Húsgagnaverslunina Hólma. Í sum-
ar verða um 200 gistirými í boði
bara á Reyðarfirði.
Íbúðahótel í kaupfélaginu
Í Neskaupstað eru athafnamenn
að koma hótelrekstri af stað í
gamla kaupfélaginu Fram í sam-
vinnu við Samvinnufélag útgerð-
armanna í Neskaupstað og Síld-
arvinnsluna. Hótelið hefur fengið
nafnið Hildibrand Hótel, en það
verður í húsnæði sem m.a. hýsti
starfsemi Kaupfélagsins Fram á
Norðfirði.
Hótelið verður íbúðahótel með
fimmtán íbúðum sem taka 4-8
manns í gistingu, að því er greint
var frá á austurfrett.is. Auk þess
verða innréttuð fimm tveggja
manna herbergi í gamla bak-
aríshlutanum. Á neðstu hæðinni
verður Kaupfélagsbarinn, sjáv-
arréttabistró og grill.
Lokasprettur hjá Minjavernd
Minjavernd er á lokasprettinum
með að breyta Franska spítalanum
á Fáskrúðsfirði og verður nýtt hótel
opnað þar í byrjun maí. Franski
spítalinn á Fáskrúðsfirði var reistur
árið 1903 og tekinn í notkun 1904.
Hann var einn þriggja spítala sem
byggðir voru á Íslandi af franska
ríkinu til að þjóna fjölda franskra
fiskimanna sem stunduðu veiðar við
landið.
Minjavernd hf. tók 2008 ákvörðun
um að endurbyggja húsið og fleiri
hús sem Frakkar reistu á Fáskrúðs-
firði. Fosshótel hafa leigt hótelhluta
frönsku húsanna og Fjarðabyggð
hefur leigt hluta þeirra fyrir sýn-
ingu um veiðar Frakka. Húsin verða
öll tekin í notkun fyrir hótel, sýn-
ingu og kapellu nú í vor. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Jens Garðar Helgason
Eskifjörður Byrjað var að grafa fyrir þremur smáhýsum til viðbótar á Mjóeyri á laugardag.
Uppbygging í Fjarðabyggð
Mikil fjölgun gistirýma Hildibrand í Neskaupstað
Marlin á Reyðarfirði Frönsku húsin á Fáskrúðsfirði