Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 22
Saga rússneskrar íhlutunar RÚSSLAND MOSKVA RÚSSLAND ARMENÍA Moldóva (1992) Georgía (2008) RÚMENÍA ÚKRAÍNA ÚKRAÍNA KRÍM Tadsjíkistan (1992) Rússnesk íhlutun Íhlutanir Rússlandshers í grannríkjunum eftir hrun Sovétríkjanna Suður- Ossetía Abkhasía Transnistría AFGANISTAN KIRG. KÍNA INDLAND BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Áður en Rússar beittuhersveitum sínum til að náKrímskaga á sitt vald umhelgina höfðu þeir sent hermenn inn í þrjú fyrrverandi sovétlýðveldi, meðal annars Georgíu árið 2008. Þrátt fyrir mótmæli vest- rænna ríkja hafði hernaðaríhlutunin í Georgíu litlar afleiðingar fyrir Rússa en miklu meira er í húfi núna í Úkraínu, ekki aðeins fyrir Rússa, heldur einnig Vesturlönd. Rússland og Georgía háðu skammvinnt stríð í ágúst 2008 vegna deilu um héruðin Abkasíu og Suður-- Ossetíu. Rússar höfðu þá árum sam- an vopnað og þjálfað sveitir aðskiln- aðarsinna í héruðunum. Þeir voru einnig sakaðir um að hafa komið á fót vopnuðum „sjálfsvarnarsveitum“ sem buðu georgískum öryggis- sveitum birginn. Georgíuher hóf um- fangsmikinn hernað í Suður-Ossetíu til að ná héraðinu á sitt vald eftir að hafa sakað aðskilnaðarsinna um að hafa gert árásir á þorp georgískra íbúa héraðsins. Mikið mannfall varð meðal óbreyttra borgara í árásum Georgíuhers og Rússar sendu þús- undir hermanna inn í Georgíu. Stjórnin í Moskvu hélt því fram í fyrstu að Georgíumenn hefðu orðið um 2.000 manns að bana en talið er að hún hafi ýkt mannfallið stórlega til að réttlæta hernaðaríhlutun sína. Að sögn Amnesty International gerðust Rússar, Georgíumenn og aðskilnaðarsinnarnir sekir um alvar- leg mannréttindabrot í stríðinu. Eftir að stríðinu lauk viður- kenndu Rússar Suður-Ossetíu og Abkasíu sem sjálfstæð ríki. Rússar eru með um 3.500 hermenn og 150 skriðdreka í hvoru héraðanna. Auk Rússlands hafa aðeins fjögur ríki – Níkaragva, Venesúela og Kyrra- hafseyjarnar Nauru og Tuvalu – viðurkennt sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu. Önnur lönd líta á hér- uðin sem hernumin svæði. Aldagömul tengsl Rússar sendu yfir 3.000 her- menn til friðargæslu í Transnistríu í Moldóvu eftir stríð á árunum 1991- 1992 sem kostaði um 700 manns lífið. Meirihluti íbúa Transnistríu er af rússneskum ættum og stríðið hófst eftir að héraðið lýsti yfir sjálfstæði. Rússar eru enn með hermenn í hér- aðinu þrátt fyrir andstöðu stjórn- valda í Moldóvu. Ekkert ríki viður- kennir sjálfstæði Transnistríu. Rússar sendu einnig hermenn inn í Tadsjíkistan ásamt fleiri fyrr- verandi sovétlýðveldum þegar borg- arastríð hófst þar árið 1992 eftir að Sovétríkin liðu undir lok. Áætlað er að um 150.000 manns hafi beðið bana í stríðinu. Rússnesk stjórnvöld sögðu að eina markmið þeirra með íhlutuninni væri að annast friðar- gæslu og vernda flóttafólk, en her- mennirnir hafa einnig stutt stjórnar- her Tadsjíkistans í baráttunni við íslamska uppreisnarmenn. Deilan um Krím er álitin miklu hættulegri en stríðið í Georgíu vegna þess hversu mikið er í húfi í Úkraínu fyrir Vesturlönd og Rússa. Deilan snýst ekki um lítil og fjarlæg uppreisnarhéruð í bakgarði Rússa heldur um land sem er með landa- mæri að NATO-ríki, auk þess sem Kremlverjar leggja mikla áherslu á að halda því á yfirráðasvæði sínu vegna aldagamalla póli- tískra, menningarlegra, efnahagslegra og hernaðarlegra tengsla Rússa og Úkraínumanna. Miklu meira í húfi nú en í Georgíustríðinu 22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Áþessum vett-vangi varþví spáð að eftir að vetrarleik- unum í Sochi lyki myndi Pútín snúa sér snarlega að Úkraínu. Hann hef- ur þegar orðið sér úti um opna heimild rússneska þingsins til að beita hervaldi til að tryggja öryggi og hagsmuni Rússa (eða rússneskumælandi fólks) utan landamæra Rúss- lands. Þingið tók óskinni fegins hendi og það voru ekki fluttar 400 ræður um fundarstjórn for- seta í sölum þess. Stjórnmálaleiðtogar á Vest- urlöndum tala um síðustu at- burði á Krímskaga sem þá alvar- legustu sem orðið hafi frá stríðslokum í þessum heims- hluta. Þar hafa þó ekki fallið hundruð þúsunda manna, eins og gerðist í bakgarði Evrópu- sambandsins á síðasta áratug, þegar þjóðir og þjóðabrot úr sundursprunginni Júgóslavíu tókust á með hörmulegum af- leiðingum. ESB hélt vissulega marga neyðarfundina þá en ekkert gerðist fyrr en að Bandaríkja- menn voru nauðugir fengnir til að skerast í leikinn. Leiðtogar ESB eru ekki í betri stöðu nú en þá var. Þeir höfðu jú samþykkt fyrir sitt leyti að Janúkovits sæti áfram fram að forsetakosn- ingum í desember daginn áður en honum var steypt af stóli. Og Bandaríkin eru ekki líkleg til stórræðanna heldur. Núverandi forseti þeirra, Barack Obama, hefur mjög veika stöðu á alþjóð- legum vettvangi og er ekki gert mikið með orð hans eða afstöðu. Forsetinn sagði á blaðamanna- fundi að hefðu Rússar bein af- skipti af upplausninni í Úkraínu yrðu þeir að gera sér grein fyrir að „það myndi kosta þá“. Það var ekki útskýrt nánar. Þegar embættismenn forsetans höfðu verið þráspurðir um, hvað í slík- um „kostnaði“ kynni að felast, var upplýst að hugsanlega myndi forsetinn þá ákveða að sækja ekki G-8 fundinn sem á að vera í Rússlandi innan skamms. McCain, öldungadeild- arþingmaður, flutti ræðu um Úkraínu og aðgerðir Rússa á Krímskaga í Washington í gær. Hann sagði framgöngu Pútíns Rússlandsforseta ósvífna og ein meginástæða þess, að hann þyrði að ögra umheiminum með slíkum hætti, væri sú, að það tryði enginn lengur á afl eða að- gerðir Bandaríkjanna undir nú- verandi leiðsögn. McCain viðurkenndi þó í ræðu sinni að ekki væru neinir hern- aðarlegir kostir fyrir Bandarík- in til staðar í núverandi stöðu. En það væri hins vegar að mati hans fjöldi annarra úrræða til. Það eina sem hann útfærði í ræðunni var að nota mætti heimildir til að neita óæskileg- um mönnum um vegabréfsáritanir til vesturheims. Þannig mætti t.d. ná til þeirra sem látið hefðu greipar sópa um eignir almennings í ríkjum Sovétríkjanna fyrrver- andi. Þannig mætti koma í veg fyrir að Rússneskir fyrirferð- armenn gætu gamnað sér fyrir illa fenginn auð sinn í Las Ve- gas! Vladimir Pútín mun ekki láta Úkraínu sleppa auðveldlega undan sínu áhrifavaldi. Hann hefur talað um hrun Sovétríkj- anna sem mestu þjóðarnið- urlægingu sem Rússar hafi orð- ið að þola. Hann ætlar sér að verða maðurinn sem reisi Rússa að nokkru og helst öllu undan þeim illa örlagadómi. Hann telur ógerlegt að ná því meginmark- miði sínu, verði Úkraína hrifin undan áhrifavaldi Moskvu, segja þeir sem best þykjast þekkja til þar eystra. Pútín brá ekki svip eða sýndi að hann væri með huga við Úkraínu á meðan Vetrarólymp- íuleikarnir stóðu enn yfir. Gamli svæðisstjóri KGB í Austur- Þýskalandi heldur andlitinu án þess að depla auga eftir árang- ursríka þjálfun. Lengi býr að fyrstu gerð. Vera má að Janúkovits væri enn í forsetahöllinni í Kiev, ef öðru vísi hefði háttað til í dag- skrá Pútíns. En um leið og stóri draumurinn í Sochi var kominn í gullbryddaðar sögubækurnar rann upp annar tími. „Ég held ekki lengur í þessa meri,“ segist nærstaddur hafa heyrt Pútín muldra. Forsetinn reið svo feitu hrossi sínu alla leið upp til Moskvu. Þar tók hann til óspilltra málanna. Pútín fregnar að viðurlögin við því að ráðast inn í Úkraínu yrðu að Obama myndi verða G-áttaður á stöðunni og and- stæðingur hans í fyrri forseta- kosningum vestra, McCain, hóti því, í fullri alvöru, að banna rússneskum ríkisbubbum að belgja sig út og tapa ógrynni fjár í Las Vegas. Pútín lætur segja sér þetta tveim sinnum eða þrem. Hann veit að slíkum hótunum mætti sem best svara með því að neita bandarískum ferðalöngum um að dvelja í aflögðum óupphit- uðum gúlagabúðum í Síberíu næsta vetur og ef deilurnar harðna enn, þá í þrjá vetur í röð. Það hefur verið flestum lengi ljóst að núverandi valdsmenn á Vesturlöndum eru ekki burðugir þegar upp koma alþjóðlegir at- burðir, en það ætti að vera óþarfi að æpa það framan í um- heiminn hvenær sem tækifæri gefast til þess. Sennilega eiga bjartsýnir baráttu- menn í Úkraínu hrauk í horni vestra en ekki hauk } Reikulir ráðamenn vestra S igríður Ingibjörg Ingadóttir, þing- kona Samfylkingarinnar, kom með athyglisvert sjónarmið inn í um- ræðu dagsins í sl. viku, þegar hún sagði kvenfyrirlitningu felast í því að karlarnir á Alþingi báðu flokkssystur Sig- ríðar, Katrínu Júlíusdóttur, að róa sig eftir að hafa flutt ræðu á Alþingi þar sem stór orð féllu. Sannarlega getur fólki hitnað í hamsi þegar það berst fyrir málum sem því standa nærri hjarta, en að biðja það um að lægja dampinn lítið eitt, gæta hófs, og telja upp að tíu er í mínum huga aðeins velvilji. Hins vegar hentar málstað kvennabaráttunnar alveg prýðilega að telja þetta og hitt fela í sér fyrir- litningu, sem er stór fullyrðing. Það þótti líka kvenfyrirlitning af verstu sort og stappa nærri hinum fullkomna glæp þegar þrjár konur mættu nú nýverið í sjónvarpssal til Gísla Mar- teins Baldurssonar sem sagði þær vera fallegar. Að gera athugasemdir við slíkt er auðvitað ekkert annað en hálf- gerður útúrsnúningur. Á íslensku eru til orð yfir allt sem er hugsað, eins og skáldið sagði, og sannarlega felst mikil og falleg merking í orðinu samfélag. Það hvernig við mannanna börn erum öll undir sama þaki, ef svo má segja, og þurfum að komast af hvert við annað í sæmilegri sátt. Hluti af því er að karlar og konur séu jafnsett um tækifæri. Velflestir hafa náð skilningi á þessu strax í barnaskóla. Við lærum líka fljótt að eitt er hvernig hlutirnir eru orðaðir og annað hvernig þeir eru sagðir. Í hinu daglega masi skynjum við á stundum þann tón að ónot, háð og kerskni liggja í orðunum sem í annarri tóntegund sögð verða aðeins skilin á betri veginn. Þetta hélt ég að flestir bæru skynbragð á, enda ekki nein vís- indi að baki. En til er fólk sem viljandi snýr öllu á hvolf og tortryggir orð og gjörðir þeirra sem vilja vel. Skynsamt fólk á ekki að þurfa að nota „flöskubotnagleraugu“ til að sjá daginn og veg- inn. Bæði karlar og konur – þvert á flokka – eru hins vegar oft alveg blind á þetta, jafnvel viljandi. Svo er þetta með fordómana sem eru af svip- uðum toga og fyrirlitningin. Ýmsir minni- hlutahópar nota það sem eldsneyti í réttinda- baráttu að segjast mæta fordómum, sem yfirleitt eru ekki annað en dómharka og rugl í fólki sem er illa upplýst og lítilsiglt. Við slíku er lítið að gera nema vona að opin umræða breyti ein- hverju í fyllingu tímans. Samkynhneigðir, innflytjendur, fatlaðir, geðsjúkir, konur sem fást við óvenjulega hluti og fólk í fjölmörgum hópum öðrum getur ómögulega notað þessa viðbáru, fordómar eru ekki til staðar nema í und- antekningartilvikum, en sannarlega þurfum við öll að laga okkur að fjöldanum, menningu hans og reglum – skráðum sem óskráðum. Skoðanir fólks hvers á öðru eða einstökum málefnum verða alltaf misjafnar og hver lítur sínum augum á silfrið. Sem betur fer. Þeim fjölbreytileika eigum við að fagna, enda á hann ekkert skylt við fyrirlitningu eða fordóma. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Flöskubotnagler á fordómana STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Dalia Grybauskaite, forseti Litháens, sagði í gær að hætta væri á að deilan um Krím leiddi til „frosinna átaka“ líkt og í Abkasíu, Suður-Ossetíu, Suð- ur-Kákasushéraðinu Nagorno- Karabakh og í Transnistríu. Með hugtakinu „frosin átök“ er átt við óleystar deilur um land- svæði þar sem komin er upp hernaðarleg pattstaða. Litháar hafa oft gagnrýnt íhlutun Rússa í Georgíu og Transnistríu. Gry- bauskaite sagði að deilan um Krím „gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi alls heims- hlutans“ en taldi of snemmt að grípa til refsiaðgerða. Óttast „frosin átök“ PATTSTAÐA Í KRÍM Hermaður í Krím.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.