Morgunblaðið - 04.03.2014, Side 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Kæri Kristján. Eins
og þú kannski veist þá
hefur verið skorið nið-
ur hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins,
grunnheilbrigðisþjón-
ustunni okkar, frá því
löngu fyrir hrun. Og nú
á að ganga enn lengra.
Það má segja að búið
hafi verið að skera af
húðina og fletta frá
vöðvunum og nú er ekki bara höggv-
ið inn að beini heldur í beinið sjálft. Í
ár, rúmum fimm árum eftir hrun,
hélt ég að blaðinu yrði snúið við og
við fengjum meira fé til rekstrarins
eins og ýmsar aðrar heilbrigð-
isstofnanir. Það kom hins vegar á
daginn að starfsfólk heilsugæsl-
unnar hafði sennilega ekki barmað
sér nægilega í fjölmiðlum. Okkur
var því réttur niðurskurðarhnífurinn
og við skyldum draga úr þjónustunni
sem nemur 100 milljónum. Hve oft
höfum við ekki heyrt núverandi og
fyrrverandi ráðherra tala fallega um
heilsugæsluna? Það eigi að efla
hana, hún eigi að taka að sér fleiri
verkefni og vera fyrsti viðkomu-
staður fólks inn í heilbrigðiskerfið.
Ég er hjartanlega sammála öllu
þessu og vildi gjarnan taka þátt í
þeirri vegferð. Það er hins vegar
eins og hugur fylgi ekki máli og
haldið er áfram að höggva og skera.
Miðað við stöðuna sem nú er uppi
á að ganga á heilsuverndina sem hef-
ur það markmið að styðja við heilsu
og þroska barna og fjölskyldna
þeirra sem og eldri borgara. Áður en
lengra er haldið vil ég
þó stíga eitt skref til
baka og rifja upp
stefnu heilsugæslunnar
og hvernig hún skil-
greinir sig.
Stefna heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
er:
Að vera fyrsta val
þeirra sem þurfa á al-
mennri heilbrigð-
isþjónustu að halda.
Að vera framsæk-
inn og ábyrgur aðili í
íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Að hafa jákvæð áhrif á líf al-
mennings.
Að vera talin eftirsóknarverður
vinnustaður.
Heilsugæslan hefur einnig skil-
greint þætti í grunnþjónustu heilsu-
gæslustöðva. Þar skal vera skipu-
lögð móttaka og símaþjónusta
læknis og hjúkrunarfræðings, smá-
slysa- og skyndimóttaka, síðdeg-
isvakt lækna, blóðsýna- og önnur
sýnataka, mæðravernd, ung-
barnavernd, skólaheilsugæsla,
heilsuvernd eldri borgara, ferða-
mannabólusetningar og reglubundn-
ar ónæmisaðgerðir.
Þessa stefnu og skilgreiningu má
finna í ársskýrslu Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins 2012. Nýrri
skýrsla er ekki til. Það er fleira
áhugavert í þessari skýrslu sem vert
er að nefna, s.s. ársverk og mann-
auður. Þar má sjá að stöðugildum
hjúkrunarfræðinga hefur fækkað
um 10 frá 2009-2012 á meðan stöðu-
gildum lækna hefur fjölgað um fimm
á sama tíma. Nú er svo komið að
með nýjum niðurskurðaráformum
mun stöðugildum hjúkrunarfræð-
inga enn fækka um 7,5 og mun það
hafa bein áhrif á heilsuverndarþjón-
ustuna.
Heilsuverndin á sér merka og
langa sögu og hefur staðið af sér
sviptingar í heilbrigðiskerfinu. Hún
er hljóðlát og lætur lítið fyrir sér
fara og kannski á hún að vera það. Í
öllum þeim skýrslum sem gerðar
hafa verið fyrir velferðarráðuneytið
um stöðu heilsugæslunnar er aldrei
minnst á heilsuverndina. Af hverju
ekki? Jú, það er af því að hún er í
lagi og hún virkar. Það þarf ekki að
tala um hana. Hjúkrunarfræðingar
og ljósmæður hafa staðið vaktina við
að sinna barnshafandi mæðrum og
mökum þeirra, foreldrum með ung-
börn, skólabörnum og fjölskyldum
þeirra og eldra fólki sem þarf orðið
aukna þjónustu og veit ekki hvert
það á að leita. Þessir þættir flokkast
undir heilsuvernd. Í heilsuverndinni
eru skýrar og samræmdar verklags-
reglur byggðar á gagnreyndum
rannsóknum og hefur landlækn-
isembættið í samvinnu við heilsu-
gæsluna staðið að þeim. Við státum
okkur af því á tyllidögum að hafa
minnsta mæðradauða og ung-
barnadauða og er það heilsuvernd-
inni að stórum hluta að þakka. Við
getum einnig státað okkur af því að
97% barna sem kveðja grunnskól-
ann eru fullbólusett og ekki er ónýtt
að í þeim hverfum þar sem heilsu-
vernd eldri borgara er virk leggjast
mun færri eldri borgarar inn á
bráðamóttöku Landspítalans. Hægt
væri að halda lengi áfram um mik-
ilvægi heilsuverndarinnar því hún er
grunnur að heilbrigði þjóðarinnar.
Hún er hið hljóðláta forvarnarstarf
sem erfitt er að meta til fjár í dag en
segir til sín seinna meir. Með fækk-
un 7,5 stöðugilda hjúkrunar má ná
36 milljóna sparnaði. Því spyr ég
þig, Kristján, vilt þú draga úr heilsu-
vernd fyrir 36 milljónir og auka
þannig líkurnar á því að heilsu þjóð-
arinnar hraki á næstu áratugum fyr-
ir stundarhagsmuni sparnaðar?
Opið bréf til heilbrigðisráð-
herra: Heilsuvernd í hættu
Eftir Sigrúnu Krist-
ínu Barkardóttur »Nú er svo komið
að með nýjum nið-
urskurðaráformum
mun stöðugildum
hjúkrunarfræðinga
enn fækka um 7,5 og
mun það hafa bein
áhrif á heilsuverndar-
þjónustuna.
Sigrún Barkardóttir
Höfundur er yfirhjúkrunarfræðingur
á Heilsugæslunni í Glæsibæ.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Góðmennt í Stangarhyl
Fimmtudaginn 20. febrúar var
spilaður tvímenningur hjá brids-
deild Félags eldri borgara, Stang-
arhyl 4, Reykjavík.
Spilað var á níu borðum. Efstu
pör í N/S:
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 240
Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 233
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 222
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 219
A/V
Axel Láruss. – Bergur Ingimundars. 273
Ólafur Ingvarss. – Hrólfur Guðmundss. 237
Bjarni Guðnas. – Guðm. K. Steinbach 237
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 220
Mánudaginn 24.febrúar var spil-
aður tvímenningur á 14 borðu-
m.Efstu pör í N/S:
Björn Árnason - Auðunn Guðmss. 397
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 374
Jón Hákon Jónss. - Örn Jónsson 351
Jón Þ. Karlss. - Björgvin Kjartansson 349
A/V
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 376
Bjarni Guðnason - Guðm. Steinbach 373
Gunnar Jónsson - Magnús Jónsson 364
Ormarr Snæbjss. - Sturla Snæbjörnss. 360
Guðmundur og Auðunn
með risaskor
Þriðjudaginn 25. febrúar var spil-
aður 33 para tvímenningur í Brids-
félagi eldri borgara í Hafnarfirði.
Guðmundur Sigursteinsson og
Auðunn Guðmundsson sigruðu í A/V
með 68,7% skor.
Efstu pör í N/S:
Albert Þorsteinsson - Jórunn Kristinsd. 54,8
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 54,7
Örn Einarsson - Guðlaugur Ellertss. 54,2
Ragnar Björnsson - Óskar Karlsson 53,5
Bjarni Þórarinss. - Sigurður Hallgrss. 52,2
AV
Guðm. Sigursteinss. - Auðunn Guðmss. 68,7
Nanna Eiríksd. - Sigfús Skúlason 62,8
Ólafur Ingvarsson - Óskar Ólafsson 59,7
Sturla Snæbjss. - Ormarr Snæbjörnss. 59,3
Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 56,6
Föstudaginn 21. febrúar var spil-
aður tvímenningur með þátttöku 28
para. Efstu pör í N/S (% skor):
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 59,0
Guðm. Sigursteinss. - Auðunn Guðmss. 55,9
Örn Einarsson - Guðlaugur Ellertss. 55,8
Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 54,0
Hrafnhildur Skúlad. - Guðm. Jóhannss. 53,7
AV
Óskar Ólafsson - Ólafur Ingvarsson 63,1
Sturlaugur Eyjólfsson - Birna Lárusd. 59,3
Anton Jónsson- - Ólafur Ólafsson 57,1
Tómas Sigurjónss. - Björn Svavarss. 56,4
Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 53,5
Bridsfélagið spilar á þriðjudögum
og föstudögum í félagsheimili eldri
borgara, Flatahrauni 3 í Hafnar-
firði.
Spilaðir eru einsdags tvímenning-
ar og eru allir spilarar velkomnir.
Er stökum spilurum hjálpað til við
myndun para.
Aðaltvímenningur BR
Helgi og Haukur eru með nauma
forystu í Aðaltvímenningi Brids-
félags Reykjavíkur. Allt getur gerst
í síðustu umferð. Hæstu skor
kvöldsins fengu Guðmundur og
Steinberg 60,7%.
Staðan
Helgi Sigurðss. - Haukur Ingason 1373
Snorri Karlss. - Kristján Blöndal 1364
Oddur Hjaltason - Hrólfur Hjaltas. 1357
- með morgunkaffinu
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
frá 295
PU flex hanskar
frá 2.995
Bíla- og glugga-
þvottakústar
Smíðasvunta
frá 395
Fötur og balar
frá 1.995
Slöngur
15, 20, 25, 50m
frá 4.995
Bílabónvél
Fjölslípari
m/fylgihluti
8.995
frá 995
695
Málningagalli
6.995
Verðmætaskápur
-Viðhaldsfríir
Gluggar & hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187