Morgunblaðið - 04.03.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 04.03.2014, Qupperneq 32
Kæri frændi, það er sárt að þurfa að kveðja þig í blóma lífsins. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Eiríkur Ómar Sveinsson ✝ Eiríkur ÓmarSveinsson fæddist 13. febr- úar 1955. Hann lést 25. desember 2013. Útför hans fór fram 14. jan- úar 2014. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Biðjum við góðan Guð að styrkja fjölskyldu þína í sorg sinni. Ástvaldur Eiríksson, Ólafur, Lárus, Helga, Erla og fjölskyldur. 32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 Stefán Arngríms- son er fallinn frá á góðum aldri. Horfinn er glæsilegur félags- málamaður, glað- sinna og aðlaðandi. Stefán var Svarfdælingur og tryggur uppruna sínum alla tíð. Var hann burðarás í starfi Svarfdælingafélagsins í Reykjavík og var formaður þess um hríð. Hann var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór, söng- maður góður og dansmaður svo sem margir Svarfdælingar. Starfs- vettvangur hans var alla tíð hjá Ra- rik. Gegndi hann þar ýmsum störf- um og naut hvarvetna trúnaðar og mannhylli. Stefán var framsóknar- maður og starfaði mikið að málefn- Stefán Arngrímsson ✝ Stefán Arn-grímsson fædd- ist 16. mars 1951. Hann lést 27. jan- úar 2014. Stefán var jarðsunginn 7. febrúar 2014. um flokksins, einkum í Kópavogi. Vann hann þar af ósérhlífni og árvekni. Alla tíð fannst mér sérstakt hvað leiðir okkar Stefán lágu saman á skemmtunum hjá Svarfdælingum, Ra- rik og Framsóknar- flokknum. Ógleym- anlegt er þegar við hittum hann með söngfélögum Rarik að kvöldlagi á útiveitinga- húsi í Barcelona síðsumars árið 2007, algjörlega óvænt. Fyrir hönd Framsóknarflokksins þakka ég þessum ötula foringja góð og farsæl störf í þágu flokks okkar. Stefán sneri heim á æskustöðv- arnar á Dalvík vorið 2012. Hann var jarðsunginn frá Dalvíkur- kirkju 7. febrúar síðastliðinn. Ég sendi aðstandendum Stefáns inni- legar samúðarkveðjur. Sigrún Magnúsdóttir. Nú kveð ég elskulega Siggu móðursystur mína og vinkonu í síðasta sinn. Mínar fyrstu minningar um Siggu frænku tengjast eldhúsinu í Hlunnavogi 7 þar sem alltaf var boðið upp á eitthvert góðgæti. Eftir því sem árin liðu urðum við Sigga góðar vinkonur. Þær voru ófáar stundirnar sem við eyddum í eldhúsinu á Sléttuvegi, með kaffi í annarri og súkkulaði í hinni. Margt var skrafað þar við eldhúsborðið, bæði atburðir líðandi stundar sem og liðnir tímar. Sigga hafði nefnilega lif- að tímana tvenna. Hún ólst upp á Akureyri og sleit þar barns- skónum. Sigga sagði mér ótal sögur frá Akureyri, hernáminu, daglega lífinu og menntaskóla- árunum, sem voru ein skemmti- legustu ár hennar. Sigga varði einnig tíma á Ísafirði sem barn og unglingur hjá ömmu sinni og móðursystrum sem voru henni allar mjög kærar. Lenti Sigga í ýmsum ævintýrum á sínum yngri árum og hlógum við mikið frænkurnar þegar bernskubrek hennar voru rifjuð upp. Æskuár Siggu frænku urðu ljóslifandi í Sigríður Soffía Jónsdóttir ✝ Sigríður SoffíaJónsdóttir fæddist á Akureyri 11. september 1921. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 9. febrúar 2014. Útför Sigríðar Soffíu fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 19. febr- úar 2014. sögum hennar og í gegnum sögurnar kynntist ég ætt- ingjum mínum sem löngu voru fallnir frá. Heimilið var staður Siggu frænku. Hún lagði mikinn metnað í að halda fallegt heim- ili fyrir mann sinn og dætur. Hún sagði mér að vinkonur hennar hefðu stundum gantast með það að þegar hún félli frá yrði af- þurrkunarklúturinn settur með í kistuna. Sigga var sannur fag- urkeri. Það var alveg sama hvert litið var á heimili hennar, alls staðar voru fallegir hlutir. Sama gilti um hana sjálfa, hún var alltaf óaðfinnanleg til fara, enda fékk hún viðurnefnið Sigga Queen þegar hún vann í Leitarstöð Krabbameinsfélags- ins. Sigga frænka var örlát og ætíð tilbúin að aðstoða og ljá hjálparhönd eða eyra, hvað sem vantaði. Þegar ég eign- aðist dóttur mína, Snæfríði Fanneyju 2003, gerðist Sigga sjálfskipaður verndari hennar, og aðstoðaði mig af fremsta megni. Sigga kallaði hana Fríðu Fanneyju til aðgreining- ar frá hinum Fanneyjunum, og var óskaplega góð við litlu stúlkuna. Mér er einkar minn- isstæð ein heimsókn til Siggu. Fríða Fanney var þá kannski þriggja mánaða. Ég þurfti að skreppa eftir „með kaffinu“ og sagðist Sigga passa barnið á meðan. Þegar ég kom til baka og forvitnaðist um hvernig gengið hefði, sagði Sigga mér að Fríða Fanney hefði eitthvað farið að kvaka, en hún hefði nú bara gert eins og í gamla daga, dýft snuðinu í sykurkarið og svo upp í barnið og hún verið alsæl eftir það. Hún dó ekki ráðalaus hún Sigga mín. Sigga frænka var talsmaður æðri menntunar. Hún átti sjálf langa skólagöngu að baki, sem fátítt var fyrir stúlkur á hennar tíma. Sigga hvatti og studdi barnabörnin sín í námi. Hún hvatti mig áfram í námi mínu og var ein helsta talsmanneskja þess að ég léti draum minn ræt- ast og færi til Bandaríkjanna í framhaldsnám. Hún lofaði mér líka að kveðja ekki fyrr en ég hefði útskrifast og hún stóð við það. Sigga frænka var mjög stolt af afkomendum sínum og taldi þau sitt ríkidæmi. Elsku Fanney, Solla, Björg og frændsystkini mín, ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Björg Jóhannsdóttir. Amma Sigga var yndislegur vinur. Hún var ekki alvöru amma mín, heldur ömmusystir mín, en ég kallaði hana alltaf ömmu Siggu. Amma Sigga mun alltaf eiga mjög sérstakan stað í hjarta mínu. Þegar ég átti heima á Íslandi þá heimsóttum við hana í hverri viku. Hún tók alltaf vel á móti okkur og sá til þess að okkur liði sem best. Hún gaf okkur að borða og var mjög skemmtileg. Hún átti fullt af gömlum postulínsdúkkum og gaf mér þrjár því að hún sá hvað mér þótti gaman að leika mér með þær. Fljótlega varð amma Sigga lasin og þurfti að fara á elliheimili. Þá fluttum við til Bandaríkjanna. Alltaf þegar ég heimsótti Ísland fór ég að heimsækja ömmu Siggu. Síðan fór hún að gleyma og hún vissi ekki hver ég var. En það var samt gaman að heimsækja hana, út af því að hún var gamla, góða amma Sigga. Snæfríður Fanney Bjargardóttir. Með nokkrum orðum vil ég minnast Siggu móðursystur minnar. Sigga var yndisleg kona og var gott að vera í fjöl- skyldu hennar. Sigga var órjúf- anlegur hluti af æsku minni. Hún tók mig í fóstur pínulitla þegar mamma veiktist af berkl- um og þurfti að dvelja lang- dvölum á Vífilsstöðum. Í minningunni eru margar skemmtilegar heimsóknir í Hlunnavog 7, fallega heimilið hennar Siggu. Hún hafði gaman af að kaupa fallega hluti og bar heimili hennar þess merki. Jólaboðin á jóladag voru fjöl- menn og glæsileg. Alltaf borið fram hangikjöt að norðan sem amma Fanney á Akureyri sendi suður fyrir jólin. Í eftirrétt var frómas. Allt borið fram með glæsibrag enda var Sigga lista- kokkur og fór létt með að halda glæsilegar veislur. Eftir að Sigga varð ekkja flutti hún á Sléttuveg 17 og átti þar einnig glæsilegt heimili. Gaman var að koma þangað í kaffi og rifja upp gamla tíma og spjalla. Það var fróðlegt að hlusta á hana segja frá og kynnast aðeins hvernig lífið var á fyrri hluta 20. aldar. Ég kveð Siggu með söknuði og geymi í huga mér góðar minningar um yndislega móð- ursystur. Elsku Fanney, Solla og Bagga og afkomendur. Innileg- ar samúðarkveðjur. Fanney Úlfljótsdóttir. Hannes vinur minn er fallinn frá og langar mig að minnast hans í örfá- um orðum. Við Hannes vorum vinnufélag- ar í á annan áratug hjá Möl og sandi hf. á Akureyri. Ég kynntist Hannesi á sjöunda áratugnum þegar hann og faðir minn heitinn Hólmsteinn Egilsson unnu sam- an að byggingu íbúðarhúsa og iðnaðarhúsa á Akureyri á vegum fyrirtækis sem hét Dofri hf. og síðar hjá Strengjasteypunni og Möl og sandi. Hannes var síðari árin verk- stjóri yfir einingaframleiðslu og uppsetningu íbúðarhúsa, fjós- bygginga og vélageymslna í sveitum norðanlands. Hann kom Hannes Pálmason ✝ Hannes Hún-fjörð Pálmason fæddist 31. desem- ber 1929. Hann lést 30. janúar 2014. Út- för Hannesar fór fram 7. febrúar 2014. einnig að stærri verkefnum svo sem byggingu skólahúss á Sólgörðum í Fljót- um. Í þessum verk- efnum nýttist vel þekking hans og reynsla sem múr- arameistara. Hann- es lagði metnað sinn í öll verk sem hann vann, hvort sem þau voru stór eða smá. Hann var farsæll í öllum sín- um störfum á þessum vettvangi. Það var gott að vinna með Hannesi, ætíð létt yfir honum og stutt í gamansemina. Hann var vinsæll meðal samstarfmanna og vel liðinn. Verk sín vann hann af stakri prýði, röggsamur og vildi láta hlutina ganga hratt fyrir sig. Þegar mikið var um að vera og mörg verk voru í gangi þá var Hannes í essinu sínu. Með Hannesi er genginn góð- ur drengur. Ég votta Ágústu og fjölskyldu samúð mína. Hólmsteinn Hólmsteinsson. Elsku Pétur – mágur og vinur. Þetta er það bréf sem ég óttaðist mest að þurfa að skrifa til þín og oft hef ég beðið almættið að allt færi á besta veg, þú næðir aftur heilsu og kæmir heim og lífið yrði eins og það var Pétur Pétursson ✝ Pétur Pét-ursson fæddist 24. desember 1930. Hann lést 7. janúar 2014. Útför Péturs fór fram 17. janúar 2014. og allt yrði gott á ný. Þetta eru þær væntingar sem við öll vorum með í huga og fylgdumst með þinni hetjulegu baráttu við erfið veikindi, en örlögin tóku aðra stefnu sem enginn fær ráðið við. Það er mikið far- ið og mikið sem breytist þegar þín nýtur ekki við og það eru margir sem sakna þín og vilja þakka fyrir að hafa fengið að verða samferða þér á lífsleiðinni. Það eru margar góðar og skemmtilegar minningar sem koma fram eftir rúmlega 40 ára kynni. Þú varst mikið fyrir góð- an húmor, saklaust grín og stríðni og þá voru það oftast fjöl- skyldumeðlimir sem fengu að njóta þess. Þú gast t.d farið á kostum í fjölskylduveislum með þínu flotta innleggi og búið til fjörugar og skemmtilegar um- ræður við matarborðið svo allt varð vitlaust og allir vildu kom- ast að með æsing og hlátri. Þessu gast þú komið af stað og fórst létt með. Þetta voru ynd- islegar stundir. Fjallganga var þitt uppá- haldssport sem þú tókst mjög alvarlega og náðir þínu mark- miði og árangri. Oft dáðist ég að hvað þú fórst létt með að skutl- ast upp á fjöll og gaman var að heyra ferðasöguna þegar þú komst niður og við hittumst næst. Ég náði að fara með þér á tvö fjöll, Keili og Esjuna, þetta voru bara léttar æfingar fyrir þig en persónulegt afrek fyrir mig. Elsku Pétur, þú varst góður og flottur félagi – blessuð sé minning þín. Ég vil senda Jónu, unnustu þinni, mömmu Hjördísi, systk- inum þínum og fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Megi Guð varðveita góðan dreng. Magnús Ólafsson. Elsku Mási. Það er með döpru hjarta sem ég skrifa þessar fáu línur vegna þess að ég er að segja bless í seinasta sinn. Þegar ég og Gunni, strák- urinn þinn, urðum vinir fyrir 31 ári tókst þú mér strax opnum örmum og ég fann mitt annað heimili hjá þér og Ínu. Þó að ég sé búin að vera erlendis flest mín fullorðinsár voru það alltaf tvö „heima“ sem ég þurfti að heimsækja þegar ég kom til landsins og mér fannst eins og það hefðu liðið vikur frá því að við töluðumst síðast við frekar en árið eða árin. Þessi seinni ár kynntist þú frönsku fjölskyldunni minni þegar þau komu til Íslands og talar tengdamamma ennþá um Már Rögnvaldsson ✝ Már Rögn-valdsson fædd- ist í Reykjavík 19. ágúst 1942. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. febr- úar 2014. Útför Más fór fram 20. febrúar 2014. þessa dásamlegu máltíð sem hún fékk hjá þér, já máltíðarnar, mál- tíðirnar voru alltaf ein af mínum uppá- halds stundum þegar ég kom heim, frábær mat- ur og enn betra fólk. Þú tókst á móti konu minni eins og þú hefðir alltaf þekkt hana og auðvitað eins og ég bjóst við spilltir börnunum mínum og talar Zoe ennþá um stóra góða kallinn. Ég gæti skrifað bók um allar þær dásamlegu stundir sem ég fékk með þér, elsku Mási minn, og því miður er ég ekki með þér til að kveðja og það eina sem ég get huggað mig við er það að ég kom heim í haust til að sjá þig og gat þá sagt þér hvað þú varst mikils virði í mínu lífi og hvað ég var gæfu- mikill að hafa þig alltaf til taks ef ég þurfti á að halda. Þín verður sárt saknað á mínu heimili. Ástarkveðjur, hinn strák- urinn þinn, Guðsteinn Oddur (Gussi). ✝ Sigurbjörg Jó-hanna Þórðar- dóttir fæddist 5. febrúar 1924. Hún lést 18. febrúar 2014. Útför Sig- urbjargar fór fram 28. febrúar 2014. mikilli list. Í byrjun aðventu voru skorin út og steikt dýrindis laufabrauð sem allir nutu vel yfir hátíð- irnar. Mér eru minnis- stæðar allar góðu og skemmtilegu stund- irnar með ömmu og afa í Dölunum í Leyni. Á leið okkar þangað spurði amma mig út í hvert bæjarnafn og stað- arheiti og þurfti ég að kunna skil á því. Í Leyni var mikið spilað og sagðar sögur milli þess sem ég fékk að taka þátt í sauðburði eða heyskap. Og toppurinn var kvöld- hressingin, heitt kakó og kex. Amma kenndi mér margt, bæði að lesa, skrifa og föndra. Elsku amma mín, ég þakka þér fyrir allt það sem þú kenndir mér og fyrir allar góðu samverustundirnar okkar. Ég kveð þig með miklum söknuði og veit að þú ert komin til afa Gísla. Hvíl í friði. Hrafnhildur Ósk Magnúsdóttir. Í dag kveð ég elskulega ömmu mína. Amma Sigga eins og hún var alltaf kölluð var glæsileg, ákveðin og staðföst. Hún var vel máli farin, var mjög góður penni og hafði ein- staklega fallega rithönd. Var virk í félagsstarfi, og var meðal annars í Kvenfélagi Kópavogs, Skógrækt- arfélagi Kópavogs og í Ömmu- kórnum. Þar spilaði hún og söng og gáfu Ömmurnar út geisladisk. Amma var kennari og starfaði í Kársnesskóla allan sinn starfsferil þar sem hún kenndi yngstu börn- unum af mikilli fagmennsku. Það voru margar gleðistund- irnar á Þinghólsbrautinni, á sunnudögum mættu allir sem gátu til að gæða sér á ljúffengum pönnukökum, kleinum eða hjóna- bandssælu sem amma bakaði af Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.