Morgunblaðið - 04.03.2014, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014
Hinn kunni franski kvikmyndaleik-
stjóri Alain Resnais lést á laug-
ardag, 91 árs að aldri. Síðasta kvik-
mynd hans, Líf Rileys, var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín nú í febrúar og hlaut þar Alf-
red Bauer-silfurbjörninn. Resnais
var ein af stjörnum frönsku ný-
bylgjunnar í kvikmyndagerð og
leikstýrði hann fjölda athyglis-
verðra kvikmynda á sex áratuga
ferli. Alls gerði hann um fimmtíu
kvikmyndir, bæði leiknar og heim-
ildakvikmyndir. Þær þekktustu eru
líklega Nuit et brouillard (Nótt og
þoka) frá 1955, Hiroshima mon
amour, 1959, og L’Année dernière
à Marienbad (Síðasta ár í Marien-
bad), frá 1961. Þær, öðrum fremur,
gerðu hann að einum mikilvægasta
leikstjóra Evrópu á sínum tíma.
Eins og fleiri franskir leikstjórar
af hans kynslóð var Resnais ungur
þegar hann kom fram á sjónar-
sviðið og hélt hann áfram að gera
kvikmyndir af markverðum þrótti
allt til dauðadags. Kvikmyndafræð-
ingum þykir hann hafa komið með
hvað markverðasta framlag sitt til
miðilsins á sjötta og sjöunda áratug
liðinnar aldar, en engu að síður hélt
Resnais áfram að kanna möguleika
frásagnartækninnar og vann á
merkilegan hátt með leikrit og leik-
húsverk í kvikmyndaforminu. Til
að mynda kvikmyndaði hann nokk-
ur verk breska leikskáldsins Alans
Ayckbourn og segir kvikmyndarýn-
ir The Guardian hann hafa í þeim
verkum dregið fram absúrd þætti í
lífi smáborgaranna.
Resnais vann iðulega með sama
fólkinu, til að mynda leikaranum
André Dussollier og leikkonunni
Sabine Azéma sem hann kvæntist
við lok síðustu aldar.
Árið 2009 voru Resnais veitt sér-
stök heiðursverðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes fyrir ævi-
starfið.
EPA
Virtur Alain Resnais var í áratugi í hópi virtustu listamanna Frakka.
Leikstjórinn Alain
Resnais látinn
Leikstýrði kvikmyndum í sextíu ár
„Andlit ástarinnar“ er yfirskrift há-
degistónleika Helgu Rósar Indr-
iðadóttur sópransöngkonu og Ant-
oníu Hevesí píanóleikara í
Hafnarborg í dag. Munu þær flytja
aríur úr óperum og óperettum eftir
Verdi og Strauss á tónleikunum sem
hefjast klukkan 12.
Helga Rós segist syngja hlutverk
ólíkra karaktera úr þessum verkum.
„Þær eru að takast á við vonbrigði í
ástum á ólíkan hátt. Þetta eru stolt-
ar konur,“ segir hún.
Helga Rós syngur til að mynda
mikla aríu úr Don Carlo eftir Verdi
sem hefur fylgt henni lengi. „Hún er
mjög mögnuð og persónan er döpur
yfir örlögunum en er jafnframt að
rifja upp góðu dagana; þetta er
margþætt aría. Þá erum við líka með
svonefnda „hæga aríu“ úr Il trova-
tore, og aríu Rosalinde úr óperett-
unni Leðurblökunni eftir Strauss.
Þá er gott að hafa Antoníu sér við
hlið, með ungverska andann. Hún
hefur þessa tónlist í genunum og við
skemmtum okkur konunglega við
flutninginn. En þetta eru ólík verk.“
Helga Rós stundaði nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og Staatliche
Hochschule für Musik und Dar-
stellende Kunst í Stuttgart. Hún var
lengi fastráðin við Óperuhúsið í
Stuttgart og hefur auk þess sungið
við fjölmörg önnur óperuhús og
starfað með hljómsveitarstjórum
víðs vegar um Evrópu. Auk óp-
erusöngs hefur Helga Rós komið
fram á fjölda ljóða- og kamm-
ertónleika, heima og erlendis. Þar á
meðal má nefna Tíbrár-tónleika og
Sönglög Jórunnar Viðar ásamt Guð-
rúnu Dalíu Salómonsdóttur píanó-
leikara, en þær gáfu út samnefndan
geisladisk árið 2009. Helga Rós
stjórnaði Karlakórnum Heimi í
Skagafirði um tveggja ára skeið og
stjórnar nú Skagfirska kammer-
kórnum ásamt því að kenna tónlist
við Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Hún segir skemmtilegt að koma
suður og halda tónleika sem þessa.
„Það er í raun nauðsynlegt. Ég kom
einnig suður í nóvember og þá flutt-
um við verk eftir Verdi og Wagner,“
segir hún og bætir við að það sé erf-
itt að helga sig því að vera einungis
söngvari hér á landi. „Nú kem ég
suður og einbeiti mér alfarið að
söngnum í nokkra daga. Svo fer ég
aftur heim að stjórna og kenna.“
efi@mbl.is
Upplýst um ást og
sorgir í aríum kvenna
Helga Rós Indriðadóttir kemur fram á hádegistónleikum
Margþættar aríur Antonía Hevesí og Helga Rós Indriðadóttir koma fram í
Hafnarborg í dag og flytja aríur nokkurra vonsvikinna kvenna.
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
NONSTOPVIP KL.5:50-8-10:20
WINTERSTALE KL.5:30-8-10:30
GAMLINGINN KL.8
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL.5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.5:50
THELEGOMOVIEENSTAL2DKL.8
WOLFOFWALLSTREET KL.5:30
AMERICANHUSTLE KL.9-10:10
KRINGLUNNI
NONSTOP KL.10:40
GAMLINGINN KL.5:30-8-9-10:30
12YEARSASLAVE KL. 5:20 -8
AMERICANHUSTLE KL. 6
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
GAMLINGINN KL.5:35-8-10:25
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
THELEGOMOVIEENSTAL2DKL.5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.5:50
OUTOFTHEFURNACE KL.10:20
LÍFSLEIKNIGILLZ KL.8
WINTERSTALE KL.8
NÚMERUÐ SÆTI
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
NONSTOP KL.8-10:20
WINTERSTALE KL.10
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL.5:50
KEFLAVÍK
AKUREYRI
NONSTOP KL.8-10:30
WINTERSTALE KL.10:20
GAMLINGINN KL.8
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL.5:50
THELEGOMOVIEENSTAL2DKL.5:50
HLÓGUMVANDRÆÐALEGA
MIKIÐ...
GDÓ - MBL
AFTENBLADET
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI
Í 2D OG 3D
EXPRESSEN
SVERIGES RADIO
SVENSKA DAGBLADED
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK
COLIN FARRELL - RUSSELL CROWE
JESSICA BROWN FINDLAY
ÞAÐERENGINNHARÐARIENLIAMNEESON
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
L OÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
12
12
12
12
L
ÍSL TAL
Besti leikari í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE MONUMENTS MEN Sýnd kl. 8 - 10:25
RIDE ALONG Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10
DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8
THE LEGO MOVIE 2D Sýnd kl. 5:50
ROBOCOP Sýnd kl. 10:25
„Óvæntasta mynd sem
ég hef séð lengi í bíó“
T.V. - Séð og Heyrt/
BíóvefurinnG.D.Ó. - MBL
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is