Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Endurskoða þyrfti lyfjagagnagrunn
Embættis landlæknis frá upphafi og
gæðaprófa hann, að sögn Mímis Arn-
órssonar deildarstjóra upplýsinga-
deildar Lyfjastofnunar. „Ég veit ekki
til þess að það hafi verið gert. Lyfja-
gagnagrunnurinn er gerður fyrir
meira en tíu árum og síðan hefur ansi
margt gerst bæði tæknilega séð og
svo hefur orðið gríðarleg breyting á
söfnun gagna í hann,“ segir Mímir og
bætir við að sérstaklega verði að gera
grein fyrir því hvaða áhrif breyting á
greiðsluþátttökufyrirkomulaginu hafi
haft.
„Þegar greiðsluþátttökukerfi lyfja
var breytt í maí á síðasta ári var aug-
ljóst að það myndi koma skekkja í
kostnaðartölurnar í grunninum, því
það er rofin tengingin á milli kostn-
aðar og lyfs. Kostnaðurinn er núna
bundinn kennitölu en ekki lyfi. Það er
augljóst að þær tölur eru rangar frá
og með þeim degi sem nýja greiðslu-
þátttökukerfið tók gildi.“
Lyfjastofnun kemur ekki að vinnu
við gagnagrunninn en hefur aðgang
að honum. „Við erum með okkar eigin
gagnagrunn sem byggist á sölu-
skýrslum frá heildsölum en gagna-
grunnur landlæknis byggist á af-
greiddum lyfseðlum.“
Mímir segir þá tvo gagnagrunna
stöku sinnum borna saman en tölurn-
ar séu ekki sambærilegar. „Það er
gert til að fá grófa hugmynd um hvort
þetta stemmir, við sjáum hvað apó-
tekin kaupa af lyfjum og í lyfjagagna-
grunninum má sjá það sem fer út í
gegnum lyfseðla. Við gerum þó ekki
samanburð með reglubundnum
hætti, ekki nema við höfum grun um
að það sé eitthvað sem beri ekki sam-
an,“ segir Mímir.
Lyfjastofnun hafa borist ábending-
ar um villur í lyfjagagnagrunni land-
læknis, m.a. fékk stofnunin ábend-
ingu um að dagskammtar væru
ranglega skráðir inn í grunninn sem
leiddi til þess að farið var í þá vinnu
fyrir um 2 árum síðan að leiðrétta
hann.
Tryggt að gögnin séu rétt
Í viðtali við Ingunni Björnsdóttur
lyfjafræðing sem birtist í Morgun-
blaðinu síðasta laugardag kom fram
að ekki væri hægt að útiloka að upp-
lýsingar sem eru gefnar um lyfja-
notkun Íslendinga væru rangar
vegna áreiðanleikabresta í lyfja-
gagnagrunni Embættis landlæknis.
Embættið sendi frá sér fréttatil-
kynningu í gær vegna málsins og þar
kemur m.a. fram að grunnurinn sé í
stöðugri notkun sem feli í sér að sífellt
sé unnið að því að bæta hann og
tryggja að gögnin í honum séu rétt.
Komi villur í ljós sé strax brugðist við
og þær leiðréttar. Stærri innsláttar-
villur hafa t.d. fundist í tölfræði-
keyrslum. Þá séu dæmi um að lyfseðl-
ar séu falsaðir eða að fólk villi á sér
heimildir til að verða sér úti um lyf.
Þá segir að það hafi komið í ljós
með aukinni nýtingu á grunninum
vegna vöktunar og eftirlits með lyfja-
ávísunum að ýmsar stoðskrár þurftu
á uppfærslu að halda og að því verk-
efni hafi komið sérfræðingar ýmissa
stofnana, m.a Lyfjastofnunar. Mímir
segir það ekki rétt. „Við komum ekk-
ert að því. Við erum notendur að
grunninum og höfum bara skoðunar-
rétt.“
Segir rangar tölur í grunninum
Breyting á greiðsluþátttökukerfi lyfja skekkir lyfjagagnagrunn Embættis land-
læknis, að sögn Lyfjastofnunar Embættið segir sífellt unnið að endurbótum
Maðurinn sem handtekinn var í
Hraunbæ í fyrradag er tæpra þrjátíu
ára. Líf hans hefur síður en svo verið
dans á rósum því hann glímir við
verulega greindarskerðingu, hefur
margar greiningar og stríðir við eit-
urlyfjafíkn. Þá hefur hann einnig
framheilaskaða sem hann hlaut eftir
að móðir hans fékk högg þegar hún
gekk með hann, högg sem gerði það
að verkum að fæðing fór af stað.
Systir hans segir hann og fjöl-
skyldu hans koma að lokuðum dyrum
í kerfinu sem hafi brugðist verulega.
Hefur alltaf verið á gráu svæði
Líkt og mbl.is greindi frá í fyrra-
dag og í gær var maður handtekinn í
Hraunbæ í gær þar sem hann ók án
ökuleyfis og er hann grunaður um
akstur undir áhrifum fíkniefna.
„Bróðir minn hefur verið veikur
lengi. Hann hefur alltaf verið á þessu
gráa svæði og passar hvergi inn. Við
höfum verið í basli með þetta alla tíð
og höfum átt í miklum erfiðleikum í
samskiptum við lögreglu, fangelsi og
hinar ýmsu stofnanir samfélagsins,“
segir systir mannsins. „Mamma á
alltaf að taka við honum, þar sem lög-
reglan og kerfið hafa ekki úrræði.
Kerfin vinna ekki saman og okkur er
vísað hingað og þangað. Við erum
hætt að hringja á lögregluna, það
þýðir ekkert.“
Bróðir konunnar hefur verið í
neyslu frá unga aldri. Til að byrja
með var hann vistaður á Stuðlum og á
Háholti, meðferðarheimili á vegum
Barnaverndarstofu. Maðurinn glímir
við verulega greindarskerðingu, er
með ADHD, vott af Tourette, þrá-
hyggjuhegðun og fleiri raskanir.
Hann hefur aftur á móti ekki verið
greindur með geðsjúkdóm og því fell-
ur hann milli kerfa, að sögn systur
hans. Maðurinn dvelur nú í fangelsi,
en þangað var farið með hann eftir
handtökuna í gær. Hann var á skilorði
vegna fíkniefnabrota og á eftir að af-
plána fimm mánuði.
Systir mannsins segir hann þó síð-
ur en svo eiga heima í fangelsi, það sé
ekki rétta lausnin.
Hún vildi með viðtalinu vekja at-
hygli á úrræðaleysinu sem hefur
mætt bróður hennar í kerfinu og því
að móðir þeirra virðist alltaf eiga að
taka við honum, þrátt fyrir að hann
sé tæplega þrítugur og hún ráði ekki
alltaf við son sinn.
„Mamma á alltaf að taka við honum“
Segir bróður sinn og fjölskyldu þeirra koma að lokuðum dyrum í kerfinu Á ekki heima í fangelsi
Glímir við verulega greindarskerðingu og eiturlyfjafíkn Vill vekja athygli á úrræðaleysinu
Þessi fótfráa kona lét ekki snjókomu aftra sér
frá því að hlaupa um Víðidalinn í Reykjavík í
gær. Spáð er snjókomu með köflum eða éljum
víða á landinu í dag og útlit er fyrir él sunnan- og
vestanlands á morgun. Síðan gengur í hvassa
austan- og norðaustanátt með snjókomu á
laugardaginn kemur og horfur eru á slyddu eða
snjókomu víða á landinu á sunnudag, ef marka
má spá veðurstofunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sprett úr spori í snæhvítum Víðidalnum
Horfur á snjókomu og éljum víða á landinu næstu daga
Fjarðalax á Vestfjörðum hefur fengið
BAP-vottun á framleiðsluaðferðir við
laxeldi og umgengni um náttúruna.
Er það fyrsta laxeldisfyrirtækið í
Evrópu sem fær þessa vottun.
„Við fullnægjum miklum umhverf-
iskröfum frá mikilvægasta við-
skiptavini okkar, Whole Foods í
Bandaríkjunum. Með því fullnægjum
við kröfum ýmissa staðla og sækjum
um aðrar vottanir eftir því sem mark-
aðurinn kallar eftir. Það kom okkur
skemmtilega á óvart að við skyldum
verða fyrsta laxeldisfyrirtækið í Evr-
ópu til að fá þessa vottun,“ segir
Höskuldur Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjarðalax.
Stefnt á lífrænan lax
Hann segir að vottun BAP (Best
Aquaculture Practices) og aðrar séu
lykilatriði til að fá besta verð fyrir af-
urðirnar. Fjarðalax er byrjaður að
selja lax til Japans og auka útflutning
til Evrópu.
Fjarðalax er með kynslóðaskipt
eldi. Laxinn er alinn í tvö ár í hverjum
firði og hvíldur þriðja árið. Það er
gert til að draga úr hættu á sjúkdóm-
um og mengun. Það segir Höskuldur
að sé grundvöllur gæða- og umhverf-
isvottunar á afurðum fyrirtækisins.
Næsta skrefið er að framleiða líf-
rænan lax. Höskuldur segir stefnt að
því að fá lífræna vottun fyrir hluta
framleiðslunnar í framtíðinni. Það
taki hans vegar tíma því talsverðan
undirbúning þurfi til að breyta laxa-
fóðrinu. helgi@mbl.is
Laxeldið
fær gæða-
vottun
Fyrsta eldisstöðin
í Evrópu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gæði Gæða- og umhverfisvottanir
tryggja Fjarðalaxi hærra verð.
„Ef við hefðum fengið aðstoð í
vikunni, þegar mamma bað
ítrekað um hjálp, hefði ef til vill
ekki þurft að koma til handtök-
unnar,“ segir systir mannsins.
Dagana fyrir handtökuna hélt
maðurinn móður sinni í gísl-
ingu, gekk ítrekað í skrokk á
henni og hótaði henni meðal
annars með sprautum. Í fyrra-
dag tók hann síðan bíllykla
hennar, rauk út og var því næst
handtekinn í Hraunbænum af
sjö lögreglumönnum.
Bað um hjálp
HÉLT HENNI Í GÍSLINGU
Skannaðu kóðann
til að lesa viðtalið
í heild á mbl.is