Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 23
Aðalfundur N1 hf. verður haldinn fimmtudaginn 27. mars 2014 klukkan 16:00
á Hilton Reykjavík Nordica.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um
hvernig fara skuli með hagnað félagsins.
4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2013.
5. Stjórnarkjör.
6. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar.
8. Tillaga að starfskjarastefnu félagsins.
9. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum.
10. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur:
A) Ársreikningur (liður 3)
Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2013 verði samþykktur.
B) Arðgreiðsla (liður 4)
Stjórn leggur til að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð kr. 1.650.000.000 vegna
rekstrarársins 2013 og fyrri ára, eða kr. 1,65 fyrir hverja eina krónu af nafnverði hlutafjár
í félaginu. Arðurinn verður greiddur til hluthafa 28. apríl 2014. Síðasti viðskiptadagur
þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars 2014 og arðleysisdagur því 28. mars 2014.
Arðsréttindadagur er 1. apríl 2014, sem þýðir að arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá N1 hf. hjá Verðbréfaskráningu Íslands í lok dags 1. apríl 2014.
C) Kjör endurskoðanda (liður 6)
Stjórn leggur til að endurskoðunarfirmað Ernst & Young sjái áfram um endurskoðun á
ársreikningi félagsins vegna rekstrarársins 2014.
D) Þóknun til stjórnar (liður 7)
Stjórn leggur til að þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar
verði óbreytt frá fyrra ári.
E) Starfskjarastefna (liður 8)
Stjórn leggur til að starfskjarastefna frá fyrra ári verði óbreytt.
F) Kaup á eigin bréfum (liður 9)
Stjórn leggur til að félagið fái heimild til kaupa á eigin hlutum allt að 10% af heildar-
hlutafé félagsins í samræmi við 55 gr. hlutafélagalaga. Kaupverð skal vera á gengi sem
ekki er hærra en 10% yfir og ekki lægra en 10% undir skráðu meðalgengi hlutabréfa
félagsins tveimur vikum á undan kaupunum. Heimildin standi til fimm ára.
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins
www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a.
hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst
fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 laugardaginn 22. mars
2014. Framboðum skal skila á skrifstofu N1 hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi eða á netfangið
hluthafar@n1.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 15:30
á aðalfundardegi.
Stjórn N1 hf.
Aðalfundur N1 hf.
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Sú ánægjulega frétt
barst landsmönnum,
að utanríkisráðherra
hefði lagt fram tillögu
á Alþingi um að slíta
viðræðum um inn-
limun Íslands í Evr-
ópusambandið. Þeir
sem kusu Framsókn-
arflokk og Sjálfstæð-
isflokk í Alþingiskosn-
ingunum 27. apríl
2013 hafa beðið þess-
arar tillögu í 10 mánuði! Hvað hefur
tafið stjórnarflokkana svona lengi að
efna kosningaloforð sitt?
Það vekur einnig undrun og von-
brigði, að við tillöguna um slit við-
ræðna hefur verið klínt óskyldri til-
lögu um nánara samstarf við
Evrópusambandið. Tími Jóhönnu
Sigurðardóttur er liðinn í aldanna
skaut, en á sínum tíma hefði hún lík-
lega nefnt þetta hráskinnaleik.
Landsmenn treysta því að þessi boð-
flenna í tillögu utanríkisráðherra
verði gerð útlæg. Varla er víða á Ís-
landi að finna eftirspurn eftir und-
irlægju-hætti Icesave-stjórnarinnar
fyrir nýlenduveldum Evrópu.
Baráttumál Samstöðu þjóðar
loks að komast í höfn
Eins og flestir landsmenn, hefur
Samstaða þjóðar fylgst með fram-
vindu mála og sent frá sér ályktanir
sem flestir fjölmiðlar hafa af sam-
viskusemi þagað yfir. Fyrsta yfirlýs-
ing félagsins um málið var send út 19.
maí 2013 og er hægt að lesa hana hér:
(http://samstada-thjodar.blog.is/blog/
samstada-thjodar/entry/1298880/).
Þess var krafist að viðræðunum við
ESB yrði tafarlaust slitið og að það
yrði gert með ályktun Alþingis. Í yf-
irlýsingunni segir meðal annars:
„Samstaða þjóðar skorar á forustu
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks að setja skýr ákvæði um
formleg slit viðræðna við ESB, í sátt-
mála þessara flokka um nýja rík-
isstjórn. Viðræðunum þarf að slíta
með yfirlýsingu frá Alþingi, strax eft-
ir að Alþingi hefur hafið störf. Alþingi
hóf viðræður um aðild án samþykkis
þjóðarinnar og Alþingi
ber skylda til að ljúka
þeim strax, án kostn-
aðarsamrar þjóðarkönn-
unar.“
Brot á stjórnarskrá
þjóðarinnar leiðir til
ákæru fyrir Lands-
dómi
Með tilraunum rík-
isstjórnar Jóhönnu Sig-
urðardóttur til að inn-
lima Ísland í
Evrópusambandið, var
ekki bara rofinn trún-
aður við almenning heldur var fram-
kvæmd umsóknarinnar brot á stjórn-
arskrá þjóðarinnar. Umsóknin, sem
undirrituð var af Össuri Skarphéð-
inssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur,
var stjórnarerindi af hæstu gráðu og
samkvæmt 19. grein Stjórnarskrár-
innar skal forseti landsins undirrita
öll stjórnarerindi. Forsetanum var
haldið frá að gegna stjórnarskrár-
bundnum skyldum og meinað að und-
irrita umsóknina. Þetta stjórn-
arskrárbrot kærði Samstaða þjóðar
til Ríkissaksóknara með bréfum 23.
janúar 2014 og 8. febrúar 2014, sjá
hér: (http://samstada-thjodar.blog.is/
blog/samstada-thjodar/
entry/1349610/).
Ríkisstjórn Jóhönnu hlaut maklega
refsingu í Alþingiskosningunum 27.
apríl 2013 fyrir trúnaðarrofið gegn al-
menningi, en þjóðin á ennþá eftir að
gera upp við þáverandi ráðherra sem
brutu 19. grein stjórnarskárinnar.
Kæra Samstöðu þjóðar til rík-
issaksóknara varðar kröfu um: rann-
sókn á kæruefnum, málflutning fyrir
Hæstarétti til að fá stjórnarskrár-
brotin dæmd ógild og tilmæli til Al-
þingis um að draga Össur og Jóhönnu
fyrir Landsdóm. Ríkissaksóknari er
sjálfstætt stjórnvald og er æðsti
handhafi ákæruvalds í landinu, sam-
kvæmt lögum 88/2008 um meðferð
sakamála. Ekki verður því trúað, að
ríkissaksóknari bregðist embætt-
isskyldum sínum með því að skjóta
hlífiskildi yfir hina brotlegu.
Auk þess að senda frá sér stjórn-
arerindi, án stjórnarskrár-bundinnar
undirskriftar forsetans er sér-
kennilegt, að samþykktar Alþingis,
sem heimilaði umsóknina, var að
engu getið. Ástæða er til að kanna
hvort ráðherrar í öðrum ríkjum sem
sótt hafa um aðild að ESB, hafa snið-
gengið venjulegar stjórnskip-
unarreglur með hliðstæðum hætti og
þau Össur og Jóhanna gerðu.
Þegar kemur að því að draga um-
sóknina til baka er eðlilegt að fylgja
sömu háttum og þegar sótt var um.
Hins vegar má núverandi ríkisstjórn
ekki brjóta stjórnarskrána og ekki
gleyma að geta heimildar sinnar til að
senda frá sér stjórnarerindið, með til-
vísun til ályktunar Alþingis. Nú gildir
að fara að lögum svo að viðræðuslitin
verði ekki tilefni dómsmála fyrir
Landsdómi og Hæstarétti, eins og
verður með umsóknina.
Einnig stjórnarskrárbrot í lög-
um 4/1963 um ráðherraábyrgð
Það hefur verið notað til varnar
þeim Össuri og Jóhönnu, að persónu-
leg brot þeirra væru fyrnd vegna að-
gerðarleysis Alþingis. Í þessu sam-
bandi er vísað til fyrningarákvæðis í
lögum 4/1963 um ráðherraábyrgð.
Staðreyndin er hins vegar sú, að
fyrningarákvæðið sjálft er brot á
stjórnarskránni! Fyrningarákvæðið
byggist ekki á neinu ákvæði í stjórn-
arskránni og ef Alþingi getur óhindr-
að sett fyrningarákvæði í lög um ráð-
herraábyrgð, þá getur Alþingi alveg
eins afnumið 19. grein stjórnarskrár-
innar með einni allsherjar fyrningu.
Það liggur því fyrir að stjórn-
arskrárbrot fyrnast ekki, hvorki á
löngum tíma né stuttum. Núverandi
ríkissaksóknari og fyrrverandi sak-
sóknari Alþingis, fær væntanlega
fljótt að bregða sér aftur í skikkju
saksóknara Alþingis og ákæra fyrir
Landsdómi þá sem sannanlega hafa
gerst brotlegir gegn stjórnarskránni.
Eftir Loft Altice
Þorsteinsson » Lög 4/1963 um ráð-
herraábyrgð inni-
halda stjórnarskrár-
brot, því að þar er
ólöglegt ákvæði um að
brot ráðherra fyrnist
eftir tiltekinn tíma.
Loftur Altice
Þorsteinsson.
Höfundur er verkfræðingur og
stjórnarmaður í félaginu Samstaða
þjóðar.
Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
verði ákærð fyrir Landsdómi
Fjórir ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins
sýna einbeittan vilja til
að svíkja loforð sem
þeir gáfu fyrir kosn-
ingar. Einn fjórmenn-
inganna er formaður
flokksins. Hugsanlegt
er að annar varafor-
maður flokksins
hrökklist úr embætti
vegna leka úr ráðuneyt-
inu. Hinn varaformaðurinn setti
sjúkraflutninga í landinu í uppnám,
sem varð til þess að slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins ákvað að hætta
sjúkraflutningum. Honum tókst líka
að gera lítið úr samstarfsfólki sínu í
samningum við sjúkraþjálfara.
Menntamálaráðherrann er kominn
upp á kant við námsmenn í útlöndum.
Þetta er gæfulegt lið sem auðvelt
verður að sniðganga í næstu kosn-
ingum. Það verður erfitt að taka
mark á frambjóðendum flokksins í
komandi sveitarstjórnarkosningum.
Foringjarnir eru búnir að gefa for-
dæmi um lygar og svik. Þetta er ljótt.
Ráðherrar Framsóknarflokksins
eru síst skárri. Forsætisráðherrann
hyglar (gælu)verkefnum í kjördæmi
sínu með fjárframlögum. Hann er tví-
eða þrísaga í mörgum málum. Hugs-
anlegar lánaleiðrétt-
ingar eru í litlu sam-
ræmi við það sem
ráðherrann lofaði fyrir
kosningar. Lítið bólar á
afnámi verðtryggingar.
Landbúnaðarráðherr-
ann skipar jábræður
sína úr Skagafirði í
nefnd sem á að fjalla um
mikilsverð hagsmuna-
mál almennings, en
sniðgengur aðra sem
ættu að koma að mál-
inu. Svo er utanríkisráðherrann –
Guð minn almáttugur. Þá er Sarah
Palin flokksins – virðist vera óvenju-
lega heilsteypt í fáfræðinni. Manni
líður orðið illa þegar fréttir berast frá
Alþingi.
Margir héldu að hlutirnir gætu
ekki versnað eftir „norrænu velferð-
arstjórnina“. Var ekki búið að lofa því
að þetta yrði eitthvað skárra núna?
Er ekki best að þessu ljúki sem fyrst?
Þetta er ekki boðlegt.
Eigum við þetta
skilið?
Eftir Tryggva P.
Friðriksson
» Foringjarnir eru
búnir að gefa for-
dæmi um lygar og svik.
Tryggvi P. Friðriksson
Höfundur er fyrrverandi
sjálfstæðismaður.