Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Síðdegis í gær hófst yfirvinnubann
undirmanna á Herjólfi. Er það liður í
aðgerðum skipverja í kjaraviðræð-
um við Eimskip. Þar til samningar
nást í viðræðum Sjómannafélags Ís-
lands, fyrir hönd starfsmanna Herj-
ólfs, við SA, fyrir hönd Eimskips,
mun skipið sigla eins oft og það
kemst á milli lands og Eyja til klukk-
an 17 á daginn í miðri viku. Engar
ferðir verða um helgar.
„Ef það er ekki hægt að sigla í
Landeyjahöfn þá munum við fara í
Þorlákshöfn. Í þeim tilvikum er ljóst
að það verður bara farið í eina ferð á
dag […] Þetta mun fyrst og fremst
hafa áhrif um helgar. Við munum
láta þetta ganga í miðri viku,“ segir
Ólafur William Hand, upplýsinga-
fulltrúi hjá Eimskip.
Ekkert tilboð á borðið
Samkvæmt upplýsingum frá Sjó-
mannafélagi Íslands eru 12-14 undir-
menn um borð í Herjólfi sem skipta á
milli sín vöktum. Jónas Garðarsson
hjá SÍ segir að samningarnir snúist
um vinnutíma, hærri laun og sjó-
mannaafslátt. „Það er t.a.m. með
ólíkindum að þarna er níu tíma dag-
vinnuskylda. Þá kemur eitthvert sér-
kennilegt yfirvinnuálag sem heitir
33% sem tíðkast nú ekki í þessum
geira,“ segir Bergur og bætir við að
venjan sé sú að yfirvinnuálag sé 80%.
Hann segir að deiluaðilar hafi hist
5-6 sinnum en ekkert samningstilboð
hafi verið borið á borð. Ólafur Willi-
am Hand segir að kröfur undir-
manna á Herjólfi séu mun hærri en
það sem samið hafi verið um á al-
mennum vinnumarkaði.
Samningur er á milli Eimskipa-
félagsins og Viking tour um að skipið
Víkingur sigli tvisvar á dag á milli
Landeyjahafnar og Eyja. Að sögn
Ólafs komast 63 með skipinu í hverri
ferð en það geti eingöngu sinnt sigl-
ingum inn í Landeyjahöfn, ef öldu-
hæð leyfir, en ekki til Þorlákshafnar.
Jónas Garðarsson segir að ekki
verði litið á fjölgun á ferðum Víkings,
meðan á yfirvinnubanninu stendur,
sem verkfallsbrot.
Samfélagið einangrist hratt
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, telur ástæðu til að
hafa áhyggjur af þróun mála. „Herj-
ólfur er þjóðvegurinn til Vestmanna-
eyja […] Áhrifanna mun gæta mjög
hratt þar sem um samgöngur er að
ræða. Ef gripið verður til frekari
verkfallsaðgerða mun samfélagið
eingangrast á tiltölulega skömmum
tíma,“ segir Elliði. Hann segir það
koma til greina að leitast við að auka
flugsamgöngur meðan á kjaradeilum
stendur.
Ríkiskaup hafa fyrir hönd innan-
ríkisráðuneytisins óskað eftir tilboð-
um í hönnun á ekju- og farþegaferju
til nota á siglingaleiðinni milli Vest-
mannaeyja og Landeyjahafnar. Nú-
verandi Herjólfur er sá þriðji í röð-
inni og var tekinn í notkun árið 1992.
Hann tekur um 60 fólksbíla og allt að
388 farþega.
Kostar um 2,3 milljarða kr.
Samkvæmt fjárfestingaráætlun
ríkisstjórnarinnar frá árinu 2013 eru
um 2,3 milljarðar króna áætlaðir til
smíði skipsins. Gera má ráð fyrir að
hönnun og prófanir taki 6-8 mánuði.
Nýrri ferju er ætlað að leysa þann
vanda sem skapast við aðsiglingu að
Landeyjahöfn. Hún hefur nýst mis-
jafnlega yfir vetrartímann sökum
þess að fella hefur þurft niður ferðir
á síðastliðnum fjórum árum eða frá
því höfnin var opnuð. Mikill sandur í
höfninni gerir siglingu Herjólfs erf-
iða og dæluskip hafa varla undan við
að dæla upp sandi. Herjólfur ristir
4,3 metra. Í prófunum hermilíkans
kom meðal annars fram að skip sem
rista 2,8 metra henta mun betur til
aðsiglingar að Landeyjahöfn.
Herjólfur Yfirvinnubann er meðal undirmanna á ferjunni.
Ferðum fækkar vegna kjaradeilna
Yfirvinnubann undirmanna á Herjólfi hófst síðdegis í gær Mun fyrst og fremst hafa áhrif um helgar
Vilja umtalsverða kjarabót Vestmannaeyjar geta einangrast fljótt að mati bæjarstjórans
Sökum þess hve oft Herjólfur
hefur þurft að sigla til Þorláks-
hafnar í stað Landeyjahafnar við
komu frá Vestmannaeyjum
vegna aðstæðna til aðsiglingar
hafa komið upp tilvik þar sem
fólk er ekki nærri bíl sínum þeg-
ar í land er komið. Það hafi því
þurft að koma sér sjálft á milli
staðanna en það er um ein og
hálf klukkustund í akstri.
Ólafur William Hand, upplýs-
ingafulltrúi hjá Eimskip, segir að
þegar óvæntar breytingar verði
sé leitast sé við að aðstoða fólk
að komast á milli án gjalds. Hann
viðurkennir þó að upplýsingar
um þetta séu ekki nægilega
skýrar á heimasíðu Herjólfs. „Við
ráðleggjum fólki að skilja bíla
sína ekki eftir við Landeyjahöfn
yfir vetrartímann,“ segir Ólafur.
Hann segir að vandamálið ein-
skorðist að mestu við þá sem
fari sjaldan milli lands og Eyja og
Vestmannaeyingar þekki betur
hvers sé að vænta þegar lagt er
af stað til meginlandsins.
Viðskila
við bílana
ÓSKÝRAR UPPLÝSINGAR
Vegna fyrirhugaðrar hótelbygg-
ingar á Hljómalindarreit, milli
Laugavegar og Hverfisgötu, verða
hús rifin við Smíðjustíg og Hverf-
isgötu. Unnið er við niðurrif á
Smíðjustíg 4 en gamla Factorý er
horfið af sjónarsviðinu, sem stóð
við Smiðjustíg 4a. Lítil grafa var í
vikunni notuð í risinu á Smiðjustíg
4 en fyrst er allt rifið niður innan úr
húsinu og flokkað, áður en tekið er
til við útveggina. Húsin við Hverfis-
götu 32 og 34 verða einnig rifin en
á reitnum stendur til að reisa Ice-
landair Hotel Cultura.
Að sögn Jóns Ragnars Magnús-
sonar, verkefnisstjóra hjá Þing-
vangi, er um flókna framkvæmd að
ræða sem kallar á margskonar leyfi
frá borgaryfirvöldum. Engin hús
við Laugaveg verða rifin, en byggt
verður aftan við þau. Vonir standa
enn til að opna hótelið á næsta ári.
Niðurrif á
Hljómalind-
arreitnum
Morgunblaðið/Golli
Hús við Hverfisgötu og Smiðjustíg víkja fyrir hótelbyggingu
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra, las fyrsta passíusálminn í
Grafarvogskirkju í gær, en sú hefð
hefur skapast að þingmenn og ráð-
herrar fari með einn sálm á hverj-
um virkum degi föstunnar kl. 18. Í
dag les Bjarkey Gunnarsdóttir 2.
sálm og svo koll af kolli þar til Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
sætisráðherra les síðasta sálminn
16. apríl næstkomandi. sgs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjármálaráðherra Þingmenn lesa
passíusálma kl. 18 á virkum dögum.
Bjarni las
fyrsta sálm
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tillaga sjálfstæðismanna um að
leynd yrði aflétt af niðurstöðum
reykvískra grunnskóla í Pisa-
könnuninni var felld í skóla- og frí-
stundaráði Reykjavíkur í gær með
fimm atkvæðum Samfylkingar,
Besta flokksins og Vinstri grænna. Í
tillögunni fólst að sundurgreindar
upplýsingar um árangur hvers skóla
í einstökum greinum yrðu sendar
viðkomandi skólastjórnendum,
skólaráði og stjórn foreldrafélags í
því skyni að hvetja til upplýstrar
umræðu um kennsluhætti og náms-
árangur.
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks segir að ljóst
sé að yfirlýsingar meirihlutans um
aukið gagnsæi séu orðin tóm. „Við
teljum að það þurfi að rökstyðja það
sérstaklega ef svona upplýsingar
eru ekki veittar og sá rökstuðningur
kom ekki fram,“ segir Kjartan.
Hann vísar til þess að einkunnir
úr samræmdum prófum hafi verið
birtar frá aldamótum og viðurkenni
flestir að birting slíkra upplýsinga
hafi verið til góðs og veitt foreldrum
mikilvægar upplýsingar um skóla
barna þeirra. „Birting þeirra hefur
stuðlað að opnara skólakerfi, sem
ekki veitir af, því að það verður aldr-
ei nein framþróun án gagnrýninnar
umræðu,“ segir Kjartan.
Í bókun meirihlutans sagði að lyk-
illinn að góðri skólaþróun væri ekki
sá „að benda í ásökunarstíl á þann
sem er verstur og hampa þeim sem
er bestur hverju sinni á grundvelli
einkunna.“ Kjartan segir að það sé
ekki markmiðið með tillögunni, enda
hafi ekkert slíkt gerst með sam-
ræmdu prófin, þrátt fyrir ótta þar
um. „Það er ljóst að við þurfum að
bæta menntakerfið, og það á tölu-
vert inni, en það verður ekki gert án
upplýstrar umræðu.“
Ekki skólaþróun til hagsbóta
Eva Einarsdóttir, fulltrúi Besta
flokksins í skóla- og frístundaráði
segir að hver skóli fái að sjá sína eig-
in niðurstöðu og hvar á kvarðanum
hann standi, án þess þó að sjá nöfn
annarra skóla. Svo fari skólinn
ásamt skólaráði, þar sem foreldrar
sitji einnig, yfir niðurstöðuna og geri
umbætur ef ekki hafi gengið nógu
vel. Eva segir að meirihlutinn telji
því að það sé ekki skólaþróuninni til
hagsbóta að greina frá hvar skól-
arnir standi. Þannig sé verið að etja
skólunum saman í stað þess að þeir
geti hver um sig farið yfir það hvað
þurfi að bæta.
Eva leggur áherslu á það að ekki
aðeins hafi fulltrúi VG í ráðinu tekið
undir með meirihlutanum, heldur
hafi fulltrúar grunnskólakennara og
skólastjórnenda í Reykjavík einnig
stutt bókun meirihlutans. „Við vilj-
um bara vinna þetta mál vel í sam-
einingu, og það er mikilvægt að for-
eldrar séu meðvitaðir um sína skóla
og hvetji til góðrar skólaþróunar.“
Leynd ekki aflétt af Pisa-könnunum
Tillaga sjálfstæðismanna felld í skóla- og frístundaráði af fulltrúum meirihlutans og VG
Kjartan
Magnússon
Eva
Einarsdóttir