Morgunblaðið - 06.03.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hagnaður vegna framkvæmda við
allt að 560 íbúðir á Valssvæðinu við
Hlíðarenda mun verða nýttur til að
fjármagna nýtt knatthús á svæðinu
og greiða niður 3 milljarða skuldir.
Til stendur að hefja framkvæmdir
síðar í ár en forsenda framkvæmd-
anna er að norð-
austur-suðvestur-
brautin á Reykja-
víkurflugvelli verði
aflögð. Forsaga
framkvæmdanna
er sú að árið 1999 er
félagið Valsmenn
hf. stofnað. Er það í
40% eigu Knatt-
spyrnufélagsins
Vals og í 60% eigu
ríflega 400 hluthafa
sem langflestir tengjast félaginu.
Hlíðarendi er erfðafestujörð sem
Knattspyrnufélagið Valur keypti árið
1939, en hún var bújörð.
Árið 2002 var gert samkomulag
milli Vals og Reykjavíkurborgar um
breytta landnýtingu á Hlíðarenda.
Skyldi hluti jarðarinnar sem ekki var
nýttur beint undir íþróttastarfsemi
nýttur til uppbyggingar á atvinnu- og
íbúðarhúsnæði og andvirði sölu á því
landi renna til uppbyggingar íþrótta-
mannvirkja á Hlíðarenda.
Kaupa byggingarlandið 2005
Valsmenn hf. kaupa umrætt bygg-
ingarland á Hlíðarenda hinn 11. maí
2005 á 872 milljónir króna af Reykja-
víkurborg. Voru þar af um 500 millj-
ónir greiddar við undirritun samn-
ingsins, en 372 milljónir voru
útistandandi sem skuld við borgina.
Var stærsti hluti greiðslunnar tek-
in að láni hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum. Í kjölfarið var félagið
Hlíðarfótur ehf. stofnað árið 2006 til
að skilja alla starfsemi Valsmanna hf.
frá þessum lóðaréttindum. Við þann
aðskilnað færðust allar eignir og
skuldir vegna lóðaréttinda í Hlíðarfót
ehf. Meðal skulda Hlíðarfótar ehf. eru
kr. 737 milljónir við Knattspyrnu-
félagið Val en til þeirra var stofnað
þegar lóða- og byggingarréttindi á
Hlíðarenda jukust með auknu bygg-
ingarmagni á Hlíðarendareit.
Þau tíðindi urðu næst í félagastofn-
un Knattspyrnufélagsins Vals að
sjálfseignarstofnunin Hlíðarendi SES
var stofnuð í september 2013.
Að sögn Brynjars hefur stofnunin
þann tilgang að vernda eignir knatt-
spyrnufélagsins og tryggja að þær
séu ekki veðsettar, eða á einhvern
hátt skuldsettar. Fer stofnunin með
hlutafjáreign Knattspyrnufélagsins
Vals í Valsmönnum hf.
Fyrirhugað er að stofnunin fari
jafnframt með allar fasteignir á
Hlíðarenda, þ.m.t. Vodafone-höllina.
Brynjar segir að nokkrum mánuð-
um eftir að Valsmenn hf. gerðu samn-
ing við borgina árið 2005 um upp-
byggingu fjölbýlishúsa og atvinnu-
húsnæðis á svæðinu hafi borgin óskað
eftir því að framkvæmdum skyldi
frestað, fyrst um óákveðinn tíma en
síðan til júlí 2007. Þegar fresturinn
rann út hafi staðan breyst, enda hafi
m.a. samkeppni um skipulag Vatns-
mýrar þá verið komin af stað og borg-
in viljað byggja skv. nýju skipulagi.
„Samningarnir árið 2006 kváðu á um
að ef Valsmenn hf. fengju ekki nýja
lóðasamninga í júlí 2007, þá þyrfti ein-
hver að bera fjármagnskostnaðinn,
enda höfðum við greitt borginni hálf-
an milljarð 11. maí 2005. Árið 2007
vorum við komin með tilboð um sölu á
landinu þegar öllu var frestað.“
Borgin greiddi tafabætur
Reykjavíkurborg greiddi því tafa-
bætur frá september 2008 og þar til
nýtt deiliskipulag var samþykkt í okt.
2010. Eru bætur vegna þessa bók-
færðar á 285 milljónir króna í árs-
reikningi Hlíðarfótar árið 2012.
Samningar Vals við borgina voru
endurnýjaðir árlega á árunum 2006-
2009, í takt við breytingar á skipulagi.
Hluti af samkomulaginu var skuld-
binding Hlíðarfótar um að leggja 737
milljónir til byggingar knatthúss, en
við það hvarf stuðningur borgarinnar
við húsið, að sögn Brynjars.
Kemur fram í ársreikningi að eign-
ir Hlíðarfótar voru 3,8 milljarðar og
voru þar af 2,84 ma. vegna lóðasamn-
inga við borgina. Áðurnefndar tafa-
bætur á hendur borginni að fjárhæð
285 milljónir voru taldar til eigna. Á
móti komu skuldir; 737 millj. vegna
skuldbindinga við Knattspyrnu-
félagið Val, 935 millj. vegna skuldar
við borgina og 148 millj. vegna tekju-
skattsskuldbindingar, og 1.149 millj.
skuldir við Dróma, alls 2.969 millj.
Allt frá hruni og fram til maí 2013
reyndu Valsmenn hf. fyrir hönd
Hlíðarfótar ehf. að ná samningum við
Dróma um skuldbindingar félagsins
og voru þeir samningar oft erfiðir.
„Við endurfjármögnuðum Hlíðar-
fót í maí 2013 og staðgreiddum
Dróma. Drómi er farinn út úr okkar
bókum um mitt ár 2013 og þá loksins
gátum við sest að samningaborðinu
við Reykjavíkurborg og samið um
uppgjör og greiðslu á okkar skuld-
bindingum gagnvart borginni,“ segir
Brynjar en félagið tók langtímalán
hjá Landsbankanum við greiðslu
skuldarinnar hjá Dróma.
Mun gjörbreyta fjárhag Vals
Tölvumynd/Alark arkitektar
Hlíðarendi Svona gæti svæðið litið út fullbyggt. Vodafonehöllin er niðri í vinstra horninu, gegnt nýju knatthúsi.
Valsmenn stefna á að greiða niður 3 milljarða í skuldir og afla fjár fyrir nýju knatthúsi á Hlíðarenda
Tafabætur frá Reykjavíkurborg komu á móti afskriftum skulda dótturfélags Vals hjá borginni
Brynjar
Harðarson
Fulltrúar ríkis, borgar og Icelandair
skrifuðu undir samkomulag í októ-
ber sl. þar sem sagði m.a. að „norð-
austursuðvestur-brautinni verði
áfram tryggður sess í aðalskipulagi
Reykjavíkur til ársins 2022, í stað
2016 eins og fyrirliggjandi tillaga
gerir ráð fyrir“. Brynjar Harðarson,
fr.kv.stj. Valsmanna hf., segist ekki
telja að samkomulagið stangist á
við áformin á Hlíðarenda.
„Við tökum enga afstöðu til þess
hvort flugvöllur eigi að vera í Vatns-
mýrinni eða ekki. Aftur á móti erum
við með lóðasamninga sem eru al-
gerlega kvaðalausir um það að
byggja á þessu svæði. Við ætlum að
halda okkar striki og byggja skv.
þeim samningum. Við trúum því að
það sé stjórnsýsla í þessu landi og
gerðir samningar standi. Það er
ekkert aftur snúið. Ef svo færi að
áformin yrðu stöðvuð, sem ég hef
enga trú á, hlýtur sú spurning að
vakna hver eigi að borga áfallinn
kostnað.
Ef framkvæmdunum yrði slegið á
frest gerðist ekki annað en að það
safnaðist upp mikill fjármagns-
kostnaður. Þá hljóta að vakna
spurningar um hver ber þann
skaða. Við hljótum að horfa til okk-
ar viðsemjenda, þ.e. Reykjavíkur-
borgar. Þá myndi sjálfsagt Reykja-
víkurborg gera kröfu gagnvart
ríkinu, enda er borgin búin að
semja við ríkið um að ljúka þessu.“
Reisa á allt að 850 íbúðir og
stúdentarými og verða um 560
íbúðir á lóðum í eigu Hlíðarfóts.
Valur á líka lóðir undir stúd-
entaíbúðir og stúdentarými.
Myndu krefjast bóta
TAFIR YRÐU VAL DÝRAR
Höskuldur Skarphéð-
insson, fyrrverandi
skipherra hjá Land-
helgisgæslunni, lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja sl. mánu-
dag, 81 árs að aldri.
Höskuldur fæddist
15. júní 1932 á Bíldudal
og ólst þar upp. For-
eldrar hans voru
Skarphéðinn Gíslason,
sjómaður og vélgæslu-
maður, og Guðrún Her-
mannsdóttir, húsfreyja
og verkakona. Þau voru
búsett á Bíldudal.
Höskuldur stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Núpi og við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík en þaðan
lauk hann fiskimannaprófi 1955, far-
mannaprófi 1958 og varðskipaprófi
1962.
Hann var háseti á ýmsum skipum,
stýrimaður á Akureynni, Ms. Elg frá
Osló og á Litlafelli. Höskuldur var
stýrimaður á skipum og flugvélum
Landhelgisgæslunnar frá 1958 og
skipherra frá 1966. Hann varð fastur
skipherra 1972, fyrst á Ægi og síðan
öðrum varðskipum. Hann var því
stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni
í öðru þorskastríðinu, 1958-1961, og
skipherra í þorskastríðunum 1972-
1973 og 1975-1976.
Hann lenti þá oft í elt-
ingarleik við breska
togara og í átökum við
breskar freigátur,
meðal annars þegar
hann var skipherra á
Baldri 1976.
Höskuldur lét af
störfum hjá Landhelg-
isgæslunni 1996 eftir
tæpra fjögurra ára-
tuga starf í þágu henn-
ar. Hann átti lengi
trillu sem hann reri frá
Hafnarfirði en einnig
frá Tálknafirði.
Hann vann ýmis félagsstörf fyrir
stétt sína, var meðal annars formað-
ur Skipstjórafélags Íslands. Hann
var sæmdur riddarakrossi Hinnar
íslensku fálkaorðu 1976. Endur-
minningar Höskuldar, Sviptingar á
sjávarslóð, komu út 1999.
Fyrri kona Höskuldar var Jónína
Sigurlaug Óskarsdóttir húsmóðir
sem lést 1969. Sambýliskona hans
var Jóhanna Kristjónsdóttir, blaða-
maður og rithöfundur. Eftirlifandi
eiginkona Höskuldar er Magndís
Ólafsdóttir, fyrrverandi bóndi og
fiskvinnslukona.
Börn Höskuldar eru Rán, Her-
mann, sem er látinn, og Kolbrá.
Andlát
Höskuldur Skarphéð-
insson fv. skipherra
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út-
hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt
fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vilt þú létta á líkamanum
eftir saltkjötið og baunirnar!