Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 14
Ljósm/Stefán Jón
Malaví Það er ekki allt fengið með vatni, en ekkert er án vatns, segja þarlendir. Brunnar bæta lífsskilyrði.
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Úttekt óháðra sérfræðinga staðfestir
góðan árangur af vatnsverkefni í
Malaví sem Þróunarsamvinnustofn-
un Íslands stýrði. Verkefnið spannaði
árin 2007 til 2011 og á þeim tíma var
komið upp 450 vatnsbólum í héraðinu
Nankumba. Þar í sveit búa um 120
þúsund manns og til skamms tíma
var vatnsskortur allri uppbyggingu
þar fjötur um fót. Nú eru breyttir
tímar:
„Við erum mjög ánægð með hvern-
ig til hefur tekist. Þetta er skýrt
dæmi um hve miklu er hægt að áorka
með til þess að gera einföldum hætti,“
segir Stefán Jón Hafstein, sviðsstjóri
árangursmats hjá ÞSSÍ.
Kostaði 400 milljónir kr.
Stefán Jón starfaði í Malaví meðan
á þessari uppbyggingu stóð. Hann
segir ánægjulegt að sérfræðingarnir,
sem skiluðu skýrslu um verkefnið á
dögunum, telji að vel hafi tekist til. Á
nefndu árabili var um 400 milljónum
króna varið til þessa verkefnis, það er
að koma upp vatnsbólum og fjórtán
þúsund kömrum.
Markmiðið með þessu var að bæta
hreinlæti og hollustuhætti. Það segir
Stefán Jón á margan hátt hafa tekist.
Kostnaðurinn hafi sömuleiðis verið
hóflegur, vatnsbólið hafi að jafnaði
kostað um 900 þúsund krónur og hvert
þeirra nýtist um 40-50 heimilum.
Kostnaðurinn við þetta átak nemur því
innan við 4.000 krónum á hvern íbúa.
Ekkert væri án vatns
Vatnsbólin eru nú undir stjórn
nefnda eða stjórna í hverju þorpi sem
safna fé meðal notenda til viðhalds.
„Höfundar úttektarskýrslunnar telja
að verkefnið sé því vel sjálfbært til
frambúðar. Það má segja að boltinn
sé farinn að rúlla,“ segir Stefán Jón.
Forsögu þessa verkefnis segir hann
þá að héraðshöfðinginn í Nankumba-
héraði setti sig í samband við fulltrúa
ÞSSÍ í landinu og óskaði eftir atbeina
við vatnsöflun.
„Þessi forystumaður færði rök fyr-
ir sínu máli: sagði að þó ekki væri allt
fengið með vatni, þá væri ekkert án
vatns. ÞSSÍ taldi þetta kjörið verk-
efni fyrir Íslendinga, enda væri það
afmarkað og í fyllingu tímans yrði
auðvelt að mæla árangur,“ segir Stef-
án Jón og heldur áfram:
„Kólera var algengur sjúkdómur í
héraðinu. Henni hefur nú verið út-
rýmt. Talið er að allt að 2.500 manns
á svæðinu hafi veikst af blóð-
kreppusótt á ári, en nú er tíðnin 1/3
þess sem var. Niðurgangspestum
hefur fækkað um 80%. Fólkið í
Malaví á vissulega langt í land með að
tileinka sér eðlilegt hreinlæti, því
sóðaskapur veldur mörgum sjúkdóm-
um sem þarna hafa verið landlægir.
Þetta er þó mjög í áttina og þróunin
er til betri vegar.“
Vatnsverkefnið er sjálfbært
450 vatnsból útbúin í Malaví með aðstoð Íslendinga Sérfræðingar ánægðir
með árangur Sóðaskapur olli ýmsum sjúkdómum sem eru nú á undanhaldi
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis telur að gögn
bendi til þess að staðbundin meng-
un í iðnaðarhverfinu í Hellnahrauni
nái ekki út fyrir hverfið. Þetta kem-
ur fram í fréttatilkynningu.
Á fundi í heilbrigðisnefnd Hafn-
arfjarðar- og Kópavogssvæðis á
mánudag voru þungmálmar og
brennisteinn í mosa í Hafnarfirði til
umræðu. Í framhaldi af skýrslu
Náttúrufræðistofnunar Íslands,
„Þungmálmar og brennisteinn í
mosa á Íslandi 1990-2010: Áhrif
iðjuvera“, og umræðu í framhaldinu
ákváðu Hafnarfjarðarbær og heil-
brigðisnefndin að skoða málið enn
frekar og voru sjö mosasýni tekin til
rannsóknar í lok október 2013.
Tvö sýni voru tekin þar sem
mengun hafði áður mælst í iðn-
aðarhverfinu, tvö sýni voru tekin
inni í íbúðabyggðinni á Völlunum,
tvö sýni á milli íbúðabyggðar og
iðnaðarsvæðisins og loks eitt
skammt suður af iðnaðarsvæðinu.
Tilgangurinn var að afla fyllri upp-
lýsinga um styrk þungmálma og
brennisteins í nágrenni iðnaðar-
svæðisins í Hellnahrauni og kanna
hvort ástæða væri til að óttast að
mengunin bærist til íbúðahverf-
isins.
Náttúrufræðistofnun hefur feng-
ið niðurstöður úr mælingunum og
er að vinna úr þeim skýrslu til birt-
ingar. Heilbrigðisnefnd telur í ljósi
upplýsinga sem fengist hafa að
gögn bendi til að staðbundin meng-
un í iðnaðarhverfinu í Hellnahrauni
nái ekki út fyrir hverfið. Sama eigi
við um loftgæðin en rykmælingar
voru framkvæmdar á tímabilinu frá
2. nóvember 2013 til 11. janúar 2014
og liggja niðurstöðurnar nú fyrir
hjá Nýsköpunarmiðstöð.
Beðið er eftir skýrslum bæði frá
Nýsköpunarmiðstöð og Nátt-
úrufræðistofnun og verða niður-
stöður kynntar bæjarbúum að sögn
Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur
bæjarstjóra.
Morgunblaðið/Sverrir
Hafnarfjörður Fjöldi fyrirtækja er á iðnaðarsvæðinu í Hellnahrauni.
Mengun í iðnaðar-
hverfi staðbundin
Í Malaví og Úganda starfa Íslendingar að þróun-
arsamvinnuverkefnum með heimamönnum á
sveitarstjórnarstigi. Gjarnan er unnið í fiski-
mannasamfélögum og viðfangsefnin eru vatns-
öflun, heilbrigðis- og skólamál. Í Mósambik,
þriðja samstarfslandi Íslendinga, er aðstoð í sjáv-
arútvegi helsta verkefnið. Sú breyting sem hefur
verið gerð í þróunaraðstoð Íslendinga er, sem fyrr
segir, samstarf við sveitarstjórnir, í stað þess að
hópur Íslendinga sé í viðkomandi landi. Sú leið
er, segir Stefán Jón Hafstein, ódýrari og ár-
angursríkari enda verður þekking eftir í
landinu.
ÞRÓUNARSAMVINNA Í ÞREMUR LÖNDUM
Stefán Jón
Hafstein
Þekking verður eftir í landinu
Hestamótið Hestar á ís verður hald-
ið um helgina á Mývatni. Á föstu-
dag býður Hestamannafélagið
Þjálfi í reiðtúr út á frosið Mývatn.
Mótshaldið hefst svo á laugardag
þar sem keppt verður í B- og A-tölti
og góðhestakeppni. Verðlaunaaf-
hending verður eftir keppni yfir
kaffihlaðborði og um kvöldið verð-
ur slegið upp hestamannahófi á Sel
Hótel Mývatni með veisluhlaðborði
og kráarstemningu.
Hestar á ís Reiðtúr út á frosið Mývatn.
Hestamót haldið á
frosnu Mývatni
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18
FRÁBÆR TILBOÐ
Í GANGI
SJÓNMÆLINGAR
MIKIÐ ÚRVAL AF
UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR
LINSUMÁTANIR
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 17 ÁR
Félagar í Ungmennafélagi Reyk-
dæla frumsýna nýja íslenska revíu í
Logalandi í Borgarfirði á morgun,
föstudag, klukkan 20.30. Revían er
eftir Bjartmar Hannesson, bónda
og söngvaskáld, á Norður-Reykjum
í Hálsasveit og nefnist Ert’ ekk’ að
djóka (elskan mín)? Leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson.
Revían gerist að miklu leyti á
ferðaþjónustubænum Efri-Bæ þar
sem sjaldnast er lognmolla, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Einnig er litið inn í fjósinu þar sem
eftirlitsmaður frá þannig eftirlits-
stofnun kemur og lítur á svæðið.
Þetta er þriðja verkið sem Bjart-
mar semur fyrir leikdeildina.
Revía Eftirlitsmaður lítur inn á Efri-Bæ.
Revía um lífið í
sveitinni frumsýnd