Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Líflegt var á Akureyri í gær, eins
og venjan er á öskudaginn. Ungviðið
gekk á milli verslana, eða var ekið á
milli staða eins og mjög hefur færst í
vöxt, söng fallega og þáði góðgæti
fyrir. Stemningin var einna
skemmtilegust í fyrirtækinu Blikk-
rás við Óseyri, eins og oft áður; þar
leggja allir niður hefðbundin störf
fram yfir hádegi, klæða sig upp á og
hlýða á börnin.
Mikið verður um dýrðir í Hlíð-
arfjalli á laugardaginn þegar alþjóð-
legir leikar, Iceland Winter Games,
fara fram. Þar verður keppt í skíða-
fimi og á snjóbrettum. Leikarnir eru
nú haldnir í fyrsta sinn en skipu-
leggjendur stefna að því að um ár-
legan stórviðburð verði að ræða.
Keppendur í skíðafimi eru flestir
erlendir og hafa keppt á ýmsum
stórmótum síðastliðin ár. Nokkrir
Íslendingar taka líka þátt. Bretta-
menn eru flestir íslenskir en gert er
ráð fyrir útlendingum í þeirri keppni
líka.
Hópurinn hefur æfingar í Hlíð-
arfjalli í dag. Á morgun verður
keppt í samhliða sviði á vegum
Skíðafélags Akureyrar.
Meðal keppenda í skíðafimi er
norski landsliðsmaðurinn PK Hun-
der sem varð í 14. sæti á Ólympíu-
leikunum í Sotsjí á dögunum.
Bjartasta vonin í brettaheim-
inum í dag, að sögn mótshaldara,
Norðmaðurinn Marcus Kleveland,
er er á meðal keppenda. Hann er að-
eins 13 ára og sá yngsti í heiminum
til að gera triple cork; stekkur þá af
palli, snýr sér í fjóra hringi auk þess
að fara í þrjá og hálfan kollhnís! Sjón
er væntanlega sögu ríkari. Vonandi
að hann reyni þessar listir í Hlíð-
arfjalli.
Benedikt Friðbjörnsson, kall-
aður Benni, er aðeins níu ára og þyk-
ir einn efnilegasti brettaiðkandi Ís-
lands. Akureyringurinn ungi hefur
keppt hefur víða erlendis og tekur
að sjálfsögðu þátt í leikunum í Hlíð-
arfjalli.
Margrét Kristín Helgadóttir lög-
fræðingur verður í fyrsta sæti á lista
Bjartrar framtíðar á Akureyri við
sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Í
öðru verður Áshildur Hlín Valtýs-
dóttir grunnskólanennari og Preben
Jón Pétursson varaþingmaður í
þriðja sæti.
Hljómsveitin Melrakkar leikur
plötu Metallica, KILL ‘EM ALL, í
heild sinni á Græna hattinum á
föstudagskvöldið. Melrakkar eru
Aðalbjörn Tryggvason úr Sólstöfum,
Bjarni M. Sigurðarson og Björn
Stefánsson úr Mínus, HAM-liðinn
Flosi Þorgeirsson og Snæbjörn
Ragnarsson úr Skálmöld. Hljóm-
sveitin Nýdönsk spilar á Græna á
laugardagskvöldið.
Hvar varstu þegar Kennedy var
skotinn? er algeng spurning. Á Ak-
ureyri líklega spurt enn oftar: Hvar
varstu þegar þakið fauk af Lindu? Í
gær voru 45 ár liðin frá Linduveðr-
inu sem svo er kallað.
Að morgni miðvikudagsins 5.
mars 1969 var rjómablíða en „versta
veður, sem hér hefur komið árum
saman, gekk yfir Akureyri um há-
degisbil,“ sagði Sverrir Pálsson
fréttaritari Morgunblaðsins í frétt
sem hann sendi blaðinu og birtist
daginn eftir. „Skyggni var nákvæm-
lega ekki neitt og frost ört vaxandi.“
Sverrir segir svo frá að um
morguninn hafi verið sunnan gola,
bjartviðri og um 5 stiga hiti „og hélzt
svo fram undir hádegi. Um klukkan
12 skall fárviðrið á, afar snögglega
og mátti heita ófært hverjum manni
fram yfir kl. 13, en þá tók óðum að
draga úr veðrinu, þó að byljótt væri
og vondar hryðjur fram eftir deg-
inum.“
„Börn voru nýfarin heim í mat úr
barnaskólunum, þegar veðrið skall á
og áttu þau mörg í miklum erf-
iðleikum að komast heim til sín og
tókst það ekki nærri öllum, fyrr en
versta veðrið var gengið yfir. Vita-
skuld ríkti alger óvissa um afdrif
þeirra á heimilunum og nokkur ótti
greip um sig bæði heima fyrir og í
skólunum,“ sagði í frétt Sverris.
Heiti veðurofsans er til komið
vegna þess að þakið á súkku-
laðiverksmiðjunni Lindu við
Hvannavelli fauk af í heilu lagi; 900
fermetrar og kirfilega fest vitaskuld.
Nú er öldin önnur. Sjaldnast
bærist hár á höfði Akureyringa og
Lindu súkkulaði er framleitt í
Garðabæ.
Hvar varstu er þakið fauk af Lindu?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Litskrúðugt Starfsmenn Toys R Us á Glerártorgi, fyrir aftan, tóku vel á móti öskudagsliðunum í gærmorgun.
Allt klárt Búið er að setja upp nauðsynleg tæki fyrir mótið í Hlíðarfjalli.
Í dag, fimmtudaginn 7. mars, eru
102 ár liðin frá því að Kvenfélagið
Hringurinn í Hafnarfirði var stofn-
að, en það er eitt elsta starfandi fé-
lag í bænum, fjórum árum yngra en
bæjarfélagið sjálft.
Það voru 18 konur sem stofnuðu
Hringinn 7. mars 1912. Kveikjan að
stofnun félagsins var berklaveiki,
sem herjaði á þeim tíma í Hafn-
arfirði, sem og annars staðar á
landinu, og baráttan gegn sjúk-
dómnum.
Félagskonur Hringsins hafa í
þessi 102 ár starfað ötullega að
líknarmálum og aflað fjár til ýmissa
góðgerðarmála, bæði innanbæjar
sem og utan.
Nýlega keyptu Hringskonur
spjaldtölvur fyrir um 3 milljónir
króna og færðu öllum leik- og
grunnskólum bæjarins.
Fjáröflun Hringskonur hafa unnið að vel-
ferðarmálum í meira en heila öld.
Hringskonur gáfu
skólum Hafnar-
fjarðar spjaldtölvur
Samtök sjálfstæðra skóla á Íslandi
halda árlega ráðstefnu föstudag-
inn 7. mars á Hilton Reykjavík
Nordica kl. 15. Undanfarin ár hafa
um 300 manns sótt ráðstefnuna. Í
samtökunum eru um 50 leik- og
grunnskólar á Íslandi. Aðalerindin
flytja Catherine Hainsworth,
skólastjóri í Bretlandi, og Adda
Birnir. Adda er af íslensku bergi
brotin. Hún er búsett í New York
og einn stofnandi og eigandi
Skillcrush.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir,
skólastjóri Ísaksskóla og formaður
SSSK, setur ráðstefnuna og Illugi
Gunnarsson menntamálaráðherra
flytur ávarp. Ráðstefnustjóri verð-
ur Unnar Geir Unnarsson.
Ráðstefna Samtaka
sjálfstæðra skóla
STUTT
Sr. Vigfús Bjarni Albertsson
sjúkrahúsprestur fjallar um barns-
missi á samveru hjá Nýrri dögun í
kvöld, fimmtudaginn 6. mars, en
hann hefur mikla reynslu af því að
starfa með foreldrum sem hafa
misst barn.
Fyrirlesturinn er haldinn í safn-
aðarheimili Háteigskirkju og hefst
kl. 20.00. Samveran er öllum opin.
Í kjölfarið fer af stað stuðnings-
hópur fyrir þau sem hafa misst
barn og mun hópurinn hittast viku-
lega í sex skipti.
Fyrirlestur um
barnsmissi