Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
„Ég vil ekki draga athyglina að
mér. Viltu segja að þú hafir gert
þetta.“ Þetta sagði hnefaleika-
maðurinn Kevin Lerena að Oscar
Pistorius hefði sagt eftir að hann
skaut úr byssu á veitingastað í Jó-
hannesarborg, í janúar 2013. Þetta
kom fram í réttarhöldunum yfir Pi-
storius í gær, að sögn BBC.
Pistorius er sakaður um að hafa
ráðið kærustu sinni, Reevu Steen-
kamp, bana af ásettu ráði. Hann
neitar því og segist hafa haldið að
hún væri innbrotsþjófur.
Pistorius bað Darren Fresco, eig-
anda byssunnar, sem var ásamt
þeim félögum á veitingastaðnum,
um að segja að hann hefði hleypt
skotinu af. Fresco hefði gert það,
að sögn Lerena.
Skrámaðist lítillega á fæti
Lerena segir að þá hafi Fresco
rétt Pistorius byssuna með þeim
orðum að hún væri hlaðin. Án frek-
ari orða heyrði Lerena skothvell en
skotið hafnaði við fætur hans þar
sem það reið af undir borðinu.
Hann sakaði ekki en hruflaðist og
marðist lítillega á tá.
Lerena er fjórða vitnið sem kall-
að var til yfirheyrslu í gær, á þriðja
degi réttarhaldanna sem hófust á
mánudaginn var. Fréttamaður
BBC, sem er viðstaddur rétt-
arhöldin, segir hann að þetta sýni
fram á að Pistorius fari óvarlega
með skotvopn.
Byssueign er almenn í Suður-
Afríku. Íbúar nota byssur til þess
að verja sig þar sem glæpatíðni er
nokkuð há.
Við réttarhöldin var bent á að
það væri óalgengt að hleypt væri af
byssu á opinberum stöðum.
thorunn@mbl.is
Bað vin sinn að
taka skellinn
Skaut úr byssu á veitingastað
AFP
Réttarhöld Pistorius er sagður
hafa skotið af byssu á veitingastað.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Á meðan spennan eykst á Krím-
skaga milli Úkraínumanna og Rússa
þá reyna evrópskir stjórnarerind-
rekar í París að þrýsta á um friðar-
umleitanir milli þjóðanna. Margir
þeirra voru þar saman komnir í gær
vegna fundar um málefni Líbanons
en vonir standa til að sátt náist milli
Úkraínu og Rússlands.
Utanríkisráðherrar Rússlands,
Sergej Lavrov, og Bandaríkjanna,
John Kerry, hittust í París í gær.
Fréttaveitan AFP hafði eftir vest-
rænum diplómata að þeir hafi spjall-
að í nokkrar mínútur um ástandið á
Krímskaga. Fast var lagt að Lavrov
að hitta utanríkisráðherra Úkraínu.
Ekkert varð af þeim fundi þar sem
Lavrov fór án þess að hitta hann.
Ásamt þeim sátu fundinn breskir,
franskir og þýskir embættismenn.
Vilja leysa deiluna
„Við viljum leysa deiluna við
Rússa friðsamlega. Við viljum ekki
fara í stríð við þá,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir Andrí Destsjítsja, utan-
ríkisráðherra Úkraínu, á fundi hans í
gær með Laurent Fabius utanríkis-
ráðherra Frakklands, í París.
Destsjítsja bætti við að Úkraína vildi
halda uppi samræðum á vinsamleg-
um nótum við Rússa og halda góðu
sambandi við þá.
Laurent Fabius sagði að Frakkar,
ásamt Þjóðverjum og fleiri löndum,
legðu áherslu á að vera mjög fastir
fyrir gagnvart Vladímír Pútín, for-
seta Rússlands, og beita sér fyrir
viðræðum.
„Við ætlum ekki að lýsa yfir stríði
á hendur Rússum en það sem þeir
eru að gera er óviðunandi; að ráðast
inn í annað ríki,“ sagði Fabius.
Fabius greindi Destsjítsja frá því
að Frakkar ásamt Þjóðverjum hefðu
skipulagt áform um að leysa deiluna.
Með því að koma á tilteknu sam-
bandi sem bæði Rússar og Úkraínu-
menn, ásamt vestrænum ríkjum
væru aðilar að.
„Við sjáum til hvort Rússar sam-
þykkja að ræða það,“ sagði Fabius.
Fransk-þýska tillagan miðar m.a.
að því að fá Rússa til að hörfa með
herlið sitt, og að alþjóðleg stjórnvöld
vinni að því að skipuleggja forseta-
kosningar í Úkraínu sem fyrst.
Fabius sagði að ef Rússar myndu
samþykkja að taka þátt í þessum
samskiptum yrði litið á það sem já-
kvætt skref í þá átt að draga úr
spennu á milli landanna tveggja, auk
þess myndi það hugsanlega leiða til
þess að Evrópusambandið myndi
draga til baka mögulegar viðskipta-
þvinganir.
Destsjítsja lýsti yfir vilja sínum til
að ná fundi með Sergej Lavrov.
ESB veitir aðstoð
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, tilkynnti í gær að fyrirhug-
að væri að láta Úkraínu í té 11 millj-
arða evra til aðstoðar á næstu árum.
„Pakkinn er ætlaður sem aðstoð við
úkraínsk stjórnvöld,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Barroso. Hann seg-
ist ætla að ræða þetta frekar í Bruss-
el á morgun við Arsení Jatsenjúk,
forsætisráðherra Úkraínu. Enn-
fremur sagði Barroso að brýnt væri
að finna friðsamlega lausn á málum á
Krímskaga sem fælist í því að Rúss-
ar myndu hverfa á braut með herinn.
Aukið hernaðarsamstarf
Chuck Hagel, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjamenn hefðu í hyggju að
auka hernaðarumsvif sín á svæðinu.
Þeir vilja auka hernaðarsamstarf
sitt við Pólland og Eystrasaltsríkin
með það að markmiði að sýna banda-
mönnum sínum stuðning. Banda-
ríkjamenn munu koma meira að loft-
rýmiseftirliti Atlantshafsbanda-
lagsins yfir Eystarasaltsríkjunum.
Leiðtogar þrýsta á
um friðarumleitanir
Fast lagt að Lavrov að ræða við utanríkisráðherra Úkraínu
Ráðamenn hittast í París Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, Francois Hollande, forseti Frakklands,
lands, John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, fyrir fund þeirra í f
Sýrlendingar
gerðu skyndi-
árás á svokallað
Arsal-svæði, við
landamæri Sýr-
lands og Líb-
anons, í gær.
Svæðið er ekki
fjölmennt en tal-
ið er að ein-
hverjir hafi særst
en það var ekki
staðfest. Á tveimur öðrum stöðum
féllu tvær eldflaugar á óbyggð
svæði. Samkvæmt heimildum
fréttaveitunnar AFP gera sýrlensk-
ar herflugvélar og þyrlur reglulega
árásir innan landamæra Líbanons,
einkum á Arsal-svæðið. Þar hafast
flóttamenn við og um svæðið fara
einnig vopn sem smyglað er milli
landanna. thorunn@mbl.is
LÍBANON
Skyndiárás Sýrlend-
inga við landamærin
Arsal-svæði
Flóttamannabúðir.
„Þetta er orðið ansi langur tími,“
sagði Misao Okawa þegar hún var
beðin um að segja eitthvað í tilefni
af 116 ára afmæli sínu en hún er
elsta kona í heimi. Haldið var upp á
afmælið á hjúkrunarheimilinu sem
hún dvelur á í úthverfi Osaka í Jap-
an. Hún fékk afmælisköku í tilefni
dagsins og færði bæjarstjórinn
henni blómvönd. Í tilefni dagsins
klæddi hún sig upp í bleikan kim-
ono.
Okawa er við góða heilsu. Hún
fæddist 5. mars 1898 og gekk í
hjónaband árið 1919. Hún á þrjú
börn, fjögur barnabörn og sex
barnabarnabörn. Eftirlætismatur
hennar er sushi og á hún í engum
vandræðum með að borða og borð-
ar hvað sem er. Hún hefur alltaf
sagt að lykillinn á bak við langa ævi
sé að borða góðan mat og slaka á.
JAPAN
Lykillinn að borða góðan mat og slaka á,
segir elsta kona í heimi sem er 116 ára
AFP
Elst í heimi Okawa er 116 ára og er við
góða heilsu enda kann hún að slaka á.
Nýttu svalirnar allt árið um kring
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
Skjól
Lumon svalagler veitir skjól
gegn rigningu og roki. Mjög
einfalt er að opna svalaglerið
og renna því til og frá.
Hljóð- og hitaeinangrun
Svalaglerin veita hljóð- og hita-
einangrun sem leiðir til minni
hljóðmengunar innan íbúðar
og lægri hitakostnaðar.
Óbreytt útsýni
Engir póstar eða rammar
hindra útsýnið sem helst
nánast óbreytt sem og ytra
útlit hússins.
Auðveld þrif
Með því að opna svalaglerið
er auðvelt að þrífa glerið að
utan sem að innan.
Stækkaðu fasteignina
Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina
þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring.
hefur svalaglerin fyrir þig!