Morgunblaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 19
AFP
, Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
frönsku höfuðborginni.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Úkraínumenn saka rússneska her-
inn um að hafa ráðist á fjarskipta-
búnað í Úkraínu og truflað m.a.
símasamband. BBC greinir frá. Þá
hafa minni árásir átt sér stað á
fréttasíðum og ýmsum samskipta-
vefjum, þar sem ýmis áróðurstengd
skilaboð, sem tengja má við Rúss-
land hafa skotið upp kollinum.
En árið 2008 sátu Rússar undir
ámæli um að standa á bak við net-
árásir gegn Georgíu. Georgísk
stjórnvöld fullyrtu að Rússar stæðu
á bak við árásirnar, en þeir sóru þær
af sér.
Fyrr í vikunni tilkynnti úkraínski
öryggismálaráðherrann Valentín
Nalívatsjenkó, að símar úkraínskra
stjórnmálamanna hefðu orðið fyrir
árásum. Í máli hans kom einnig fram
að átt hefði verið við netkapla og það
valdið sambandsleysi fyrir fjölda
notenda.
Öryggisráð Rússa hefur hvorki
neitað né játað að hafa staðið á bak
við umræddar netárásir.
Sérfræðingar í öryggismálum
velta því upp hvort Rússar séu að
æfa sig fyrir frekari netárásir.
Haft er eftir Marty Martin, fyrr-
verandi starfsmanni bandarísku
leyniþjónustunnar, að hugsanlega
gætu frekari netárásir átt sér stað ef
ofbeldið á Krímskaganum stigmagn-
aðist.
Þá er bent á að þar sem herflotinn
er sýnilegur þá sé erfiðara að rekja
netárásir.
thorunn@mbl.is
Saka Rússa um netárásir
AFP
Netárásir Herjað var á Úkraínu.
Rússar neita hvorki né játa að standa á bak við þær
Gætu aukist ef ofbeldið stigmagnast á Krímskaga
Rússar segj-
ast ekki hafa
vald yfir
herjum sem
hafa nú í
raun tekið
völdin á
Krímskaga.
Herirnir
styðja rúss-
nesk stjórn-
völd en taka
ekki við skipunum. Þetta sagði
Sergej Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, á blaða-
mannafundi í Madríd í gær.
Þá sagði rússneski varnar-
málaráðherrann, Sergej Shoigu,
að myndir af rússneskum bif-
reiðum hermanna í Krím væru
falsaðar. Sem og myndskeið af
vopnuðum hermanni sem segist
vera rússneskur. Verið væri að
ljúga upp á Rússa til þess eins
að ögra þeim. Þá hafa birst fjöl-
mörg myndskeið sem sýna bif-
reiðar hermanna með rúss-
neskum númeraplötum akandi
um á Krímskaga.
Hillary Clinton, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, líkti í gær aðgerðum
Rússa í Krím við hernað Hitlers
til að verja Þjóðverja sem voru
búsettir fyrir utan Þýskaland á
fjórða áratug aldarinnar sem
leið.
Segja mynd-
irnar falsaðar
SEGJAST EKKI HAFA VALD
YFIR HERMÖNNUNUM
Hermenn á
Krímskaga.
Nokkrum starfs-
mönnum Eng-
landsbanka
(enska seðla-
bankans) hefur
verið vikið frá
störfum vegna
gruns um gjald-
eyrisbrask. BBC
greinir frá.
Rannsakað er
hvort starfs-
fólkið hafi hugsanlega nýtt sér að-
stöðu sína og hagnast á viðskiptum
með gjaldeyri.
Í tilkynningu frá bankanum kom
fram að ekki lægi fyrir hvaða refs-
ingu starfsfólkið myndi sæta. Enn-
fremur var tekið fram að þetta
tengdist ekki markaðsmisnotkun á
nokkurn hátt. Ekki fengust frekari
upplýsingar frá bankanum.
Bankastarfsfólki
vikið frá störfum
Grunur um
gjaldeyrisbrask.
BRETLAND