Morgunblaðið - 06.03.2014, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
✝ Óskar LárusTraustason
fæddist í Hafn-
arfirði 29. ágúst
1965. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 24.
febrúar 2014.
Foreldrar hans
voru Elín Sigurð-
ardóttir, húsmóðir,
f. 19.3. 1931, d.
3.6. 2007, og
Trausti Ó. Lárusson, fram-
kvæmdastjóri, f. 26.5. 1929.
Trausti er í sambúð með
Hönnu Kjeld, f. 16.12. 1933.
Systur Óskars Lárusar eru
Auður, f. 5.11. 1955, Anna
Kristín, f. 17.6. 1958 og Sigrún,
f. 25.9. 1962. Auður er gift
Guðmundi Á. Tryggvasyni, f.
19.7. 1956. Börn þeirra eru: El-
ín Ósk, Trausti, Svava Dís og
Bjarni. Fyrir átti
Guðmundur soninn
Tryggva. Kona
Óskars Lárusar
var Guðrún Páls-
dóttir, f. 21.5.
1971. Sonur henn-
ar er Páll Arnar
Guðmundsson, f.
29.12. 1993. Óskar
Lárus ólst upp í
Hafnarfirði þar
sem hann bjó og
vann alla tíð. Hann stundaði
nám í Öldutúnsskóla, Flens-
borgarskóla og lauk prófi frá
Verslunarskóla Íslands vorið
1987. Óskar Lárus var meðal
stofnenda Vörubretta ehf. árið
1989 og starfaði þar síðan.
Útför Óskars Lárusar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag, 6. mars 2014, og hefst at-
höfnin kl. 15.
Elsku ástin mín, mig skortir
orð, er búin að hugsa mikið síð-
ustu daga. Þú varst yndislegur
maður, fallegur að utan sem inn-
an. Ég veit ekki hvernig ég á að
takast á við lífið án þín, við áttum
8 ár saman en ætluðum að eiga
miklu fleiri. En ég á góðar fjöl-
skyldur að, mína og þína fjöl-
skyldu, við hjálpumst öll að.
Ég veit að þér líður betur núna,
ástin mín, mamma þín og Bjarni
hafa tekið á móti þér. Þú varst bú-
inn að vera veikur lengi en ég hélt
alltaf að þú myndir verða aftur
eins og þegar við kynntumst.
Sérðu ekki við fæddumst til að
standa hlið við hlið
og halda út á veginn saman
og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gamall
og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara
– með þér er ég bara ég.
Menn segja ég sé breyttur
og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli
aðeins fyrir mig.
Eitt mátt þú vita – ég elska þig
meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri
hvorki heilt né hálft
Með þér er vorið yndislegt
og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
koss og stök rós.
(Bubbi Morthens)
Elsku Óskar, sofðu vært og
mega allir Guðs englar vaka yfir
þér.
Þú veist að ég elska þig.
Þín
Guðrún.
Farinn er elsku vinur, mágur
og samstarfsmaður minn, Óskar
Lárus. Mig langar að minnast
hans með nokkrum orðum.
Minningarnar flæða um hug-
ann og liðnar stundir rifjast upp.
Hann var níu ára er við hittumst
fyrst í Fögrukinninni þegar leiðir
okkar Auðar lágu fyrst saman.
Hann var litli bróðir hennar og
henni einstaklega kær.
Þegar við Auður keyptum okk-
ar fyrstu íbúð var hann aðeins ell-
efu ára og þótti ómögulegt að
enginn skápur væri í baðherberg-
inu. Þá ræddi hann við handa-
vinnukennarann sinn og fékk
hann til þess að leyfa sér að smíða
skáp. Nokkrum vikum seinna
renndi svo upp að húsinu okkar
stór svartur bíll og út úr honum
stigu Tarnus handavinnukennari
og Óskar Lárus skælbrosandi
með þennan líka glæsilega skáp.
Þetta lýsir honum vel, alltaf fús til
að rétta hjálparhönd og gleðja
aðra. Ef hann var beðinn um eitt-
hvað var það alltaf sjálfsagt.
Sagði gjarnan ef eitthvað bjátaði
á: „Við stöndum saman og þetta
reddast.“ Hann var einstaklega
handlaginn og vandvirkur og frá
unga aldri var hann að smíða með
pabba sínum. Þetta kom sér vel
þegar við byggðum Ljósabergið.
Þær voru ófáar vinnustundirnar
sem hann átti þar.
Börnum okkar var hann eins
og stóri bróðir og nutu þau þess
að fara með honum á skíði eða í
veiðitúra, þar var hann í essinu
sínu. Það var stutt í kímnina.
Hann sá spaugilegar hliðar mann-
lífsins, sagði vel frá og var mjög
orðheppinn. Mikið gátum við
hlegið saman að uppátækjum
hans og tilsvörum. Hann hafði
sterka réttlætiskennd og gat ver-
ið nokkuð þrjóskur.
Í vinnunni var hann útsjónar-
samur og hörkuduglegur. Stóra
ástin í lífi hans var Guðrún og
henni fylgdi Páll Arnar.
Það eru nokkur ár síðan Óskar
Lárus kenndi fyrst veikindanna
sem drógu hann til dauða og þó
maður vissi að hverju stefndi þá
er missirinn sár. Ég veit að hon-
um líður betur núna. Minningarn-
ar um góðan dreng lifa.
Guðmundur Á Tryggvason.
Óskar Lárus bróðir okkar er
látinn. Nú þegar við kveðjum
hann eftir nokkurra ára veikindi
viljum við minnast þeirra ófáu
gleðistunda sem við áttum sam-
an.
Við minnumst áranna í Fögru-
kinninni þar sem við ólumst upp
og komumst upp með allt eða
nánast allt. Þar áttum við yndis-
lega fjölskyldu. Við minnumst
þess hvað það var gaman á Krít.
Hvað það var kalt og við þurftum
að kaupa okkur úlpur í sólar-
landaferð. Hvað maturinn var
einstaklega góður. Við minnumst
ferðanna til Florida. Að sigla út í
eyðieyju með Bjarna. Að lenda á
fundi með Bush. Að eiga bara 11
dollara og brotið visa-kort með
Hjálmari. Að halda jólin hátíðleg.
Að kaupa bíla. Við minnumst
veiðiferðanna í Laxá í Leirársveit.
Þar var hann alltaf aflahæstur.
Enginn veiðir nema Óskar sé
með, var sagt. Við minnumst ferð-
arinnar til Las Vegas. Hvað bíll-
inn sem við leigðum var flottur.
Hvað það var frábært að keyra
um eyðimörkina. Hvað það var
flott í Grand Canyon og við Hoo-
ver Dam.
Við minnumst ferðarinnar til
Aspen. Hvað snjórinn var frábær.
Hvað veðrið var gott. Þar
brunuðu allir niður brekkurnar
eins og ekkert væri og þar var
heiti potturinn tekinn með Berg-
þóri. Við minnumst ferðanna til
Boston og akstursins um Ver-
mont í haustlitunum. Við minn-
umst þess að halda upp á 40 ára
afmæli Óskars í New York, þar
sem við áttum samastað á Staupa-
steini, borðuðum á Smith & Wol-
lensky og sigldum kringum Man-
hattan. Við minnumst
breytinganna á Suðurgötunni þar
sem Óskar var einstaklega laginn
við að brjóta niður veggi og
byggja upp aftur, ómetanleg
hjálp. Við minnumst ferðanna á
Apavatn. Þar sem sumarbústað-
urinn okkar var byggður og end-
urbyggður eftir bruna.
Elsku Óskar Lárus. Þetta eru
dýrmætar stundir sem við geym-
um í minningu okkar og verðum
þakklátar fyrir alla tíð.
Anna Kristín, Sigrún
og Auður.
Fallinn er frá góður drengur,
Óskar Lárus, tengdasonur minn.
Nú leitar hugurinn til margra
góðra stunda þar sem oft var mik-
ið hlegið; ferðanna okkar saman
til Stykkishólms, Apavatns, í
Skorradalinn og til Spánar. En
þið Guðrún voruð hjá okkur um
síðustu jól, það voru góðir dagar.
En oft var nú erfitt, elsku karlinn
minn, en nú er því lokið, þú kom-
inn til mömmu þinnar sem þú hef-
ur saknað svo mikið. En nú er
komið að kveðjustundinni, við
Siggi þökkum þér góð kynni og
megi góður Guð umvefja þig og
ástvini þína og gefi henni Guð-
rúnu minni styrk á erfiðri stundu.
Farðu í friði.
Þín tengdamamma,
Þórunn.
Kær frændi, félagi og vinur
hefur kvatt alltof snemma og mig
langar að minnast hans með
nokkrum orðum.
Óskari frænda mínum man ég
fyrst eftir þegar ég var um fjög-
urra ára gamall. Þá fluttum við
fjölskyldan í Fögrukinn og hann
bjó í húsinu við hliðina á okkur.
Æxlaðist það svo þannig að við
áttum heima hvor við hliðina á
öðrum nánast alla okkar ævi, líka
á fullorðinsárum okkar þar sem
við byggðum saman parhús.
Við brölluðum margt saman
sem litlir strákar. Vorum með
dúfur, kveiktum sinuelda á Raf-
hatúninu og hjóluðum um allan
Hafnarfjörð svo fátt eitt sé nefnt.
Veiðiáhuginn kviknaði snemma
hjá okkur og fyrstu stangveiðitil-
burðir okkar voru í Læknum í
Hafnarfirði sem annars er nú
ekki þekktur sem gjöful veiðistöð.
Eftir að Óskar fékk bílprófið
og eigin bíl var mikið rúntað. Ósk-
ar átti alltaf rosalega góða bíla og
sinnti þeim vel. Fórum við marg-
ar jeppaferðir og í veiðitúra.
Skipti þá engu máli hvort áin var
á Vestfjörðum, Vopnafirði eða
annars staðar á landinu. Alltaf
var hann til í að skreppa með mér
í veiðitúra. Hann var besti stang-
veiðimaður sem ég hef þekkt.
Óskar var vinur vina sinna og
ef hann gat hjálpað manni þá
gerði hann það með glöðu geði og
án nokkurra vandkvæða.
Við frændurnir fengum úthlut-
aða parhúsalóð í Áslandinu árið
2000 og var það skemmtilegur
tími hjá okkur að reisa húsin okk-
ar með dyggri aðstoð Trausta föð-
ur hans. Óskar var góður vinur og
nágranni og synir mínir nutu góðs
af því og fannst hann mjög flottur
frændi.
Í nóvember 2004 skruppum við
frændurnir saman til Baltimore
til að kaupa sinn bílinn hvor. Það
var mikil ævintýraför og
skemmtileg sem ég mun lengi
minnast með ánægju.
Svona væri lengi hægt að halda
áfram en ég læt hér staðar numið
og er þakklátur fyrir kynni mín
við frábæran frænda og vin. Ég
mun sakna hans mikið en hugga
mig við það að mamma hans hefur
tekið vel á móti honum.
Að lokum sendi ég og fjöl-
skylda mín ættingjum Óskars
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Minningin um góðan dreng lif-
ir.
Þórður Örn Erlingsson.
Elsku Óskar.
Nú er komið að kveðjustund,
ég var 12 ára þegar þið mamma
kynntust fyrir átta árum. Mér er
minnisstætt þegar þið trúlofuðuð
ykkur á afmælisdaginn hennar
mömmu þegar hún var 35 ára, ég
kom með hringana á púða til ykk-
ar, það var góð stund.
Ég minnist þess mest þegar ég
var uppi í sumarbústað með
mömmu þinni og pabba þegar við
vorum að smíða, mamma þín var
svo góð við mig og pabbi þinn allt-
af með vínarbrauð handa mér.
Ég veit að þér er búið að líða
illa lengi, og ert búinn að vera
veikur en mamma trúði því alltaf
að þú yrðir aftur eins og þú varst.
Gaman var þegar við fjögur, þú
mamma, ég og Sindri fórum
hringinn á Hummernum, það var
skemmtilegur tími. Og þegar við
vorum að endurbyggja sumarbú-
staðinn þá varstu frískur og
hress. Ég veit að þér líður vel
núna, kominn til Ellu mömmu
þinnar og í dag þegar ég sá þig þá
fannst mér vera friður yfir þér.
Ég skal lofa þér því að ég skal
Óskar Lárus
Traustason
HINSTA KVEÐJA
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Pabbi.
Elsku Kuggi okk-
ar.
Nú ert þú farinn
þá leið er við öll þurf-
um að fara. Ljós, kærleikur og
friður guðs umvefur þig núna.
Erfið veikindi eru að baki og nú
ertu frjáls. Sjúkdómurinn sótti á
en aldrei gafstu upp, hugrekki þitt
og glaðlyndi var einstakt. Þú lifðir
lífinu lifandi, hafinn yfir sársauka
og sjálfsvorkunn og þú færðir
okkur hinum hugarró með æðru-
leysi þínu. Okkar minning um þig
ert þú í góðu skapi, stutt í stríðn-
ina og með hárbeittan og
skemmtilegan húmor, örlítið kald-
Baldur Ófeigur
Einarsson
✝ Baldur ÓfeigurEinarsson,
Kuggi, var fæddur
8. janúar 1962.
Hann lést 22. febr-
úar 2014. Útför
Baldurs Ófeigs fór
fram 1. mars 2014.
hæðinn þó, harðjaxl
með gott hjartalag.
Við erum svo óend-
anlega þakklátar
fyrir að hafa fengið
að kveðja þig áður
en þú fórst frá okk-
ur. Við kveðjum þig
með sorg í hjarta, en
trúum að nú sért þú
á góðum stað, veik-
indin yfirstaðin og
þér líði betur.
Þín minning öllu skærar skín
þó skilji leið um sinn.
Þó okkur byrgi sorgin sýn
mun sólin brjótast inn.
Við biðjum Guð að gæta þín
og greiða veginn þinn.
(G.Ö.)
Elskum þig og munum alltaf
varðveita minningu þína í hjörtum
okkar. Þínar frænkur,
Svanhildur Edda
og Eyrún Sif.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR OLIVERSDÓTTIR
frá Hellissandi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
miðvikudaginn 26. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 7. mars kl. 13.00.
Lovísa Árnadóttir, Viðar Pétursson
Finnur Árnason, Anna María Urbancic
Ingibjörg Árnadóttir, Jónas Þór Guðmundsson
Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni,
Árni Grétar, Ebba Katrín,
Oliver Páll, Viktor Pétur, Guðmundur Már,
Lovísa Margrét, Stefán Árni og Viðar Breki.
✝
Ástkær eiginmaður minn, yndislegi pabbi
okkar, sonur, bróðir, mágur og vinur,
TEITUR BIRGISSON,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
Stóragerði 14, Akureyri, að kvöldi 1. mars.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 14. mars kl. 13.30.
Ruth Viðarsdóttir,
Andri Leó Teitsson, Birta María Guðmundsdóttir,
Almar Teitsson,
Telma Rut Teitsdóttir,
Alma K. Möller, Birgir Björn Svavarsson,
Eygló Birgisdóttir, Hjörtur Sigurðsson,
Gígja Birgisdóttir, Jerome Wigny
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFINNA HULDA JÓNSDÓTTIR,
sem lést að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
2. mars verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 10. mars kl. 13.00.
Jóhannes Kristinsson,
Kristinn Jóhannesson, Brynja Pála Helgadóttir,
Steingrímur Jóhannesson,
Sóldís Dröfn Kristinsdóttir, Fanney Rán Arnarsdóttir,
Kristinn Andri Kristinsson, Jóhannes Smári Kristinsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
HERVÖR HÓLMJÁRN,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnu-
daginn 2. mars.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Líf styrktarfélag, s. 696 4600.
Hildur Helgadóttir, Hörður Helgi Helgason, Elsa Björk
Valsdóttir, Eva Bjarnadóttir, Styrmir Goðason, Snorri
Örn Arnarson, Helga Harðardóttir, Bragi Styrmisson
og bræður hinnar látnu.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Kolsstöðum,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi
mánudaginn 3. mars.
Útför mun fara fram frá Kvennabrekkukirkju
föstudaginn 14. mars kl. 14.00.
Kristín Guðmundsdóttir, Örn R. Ingólfsson,
Ólafía G. Guðmundsdóttir (Stella), Gunnar E. Svavarsson,
Guðveig Guðmundsdóttir, Kjartan Sigurðsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR SOFFÍU JÓNSDÓTTUR,
Sléttuvegi 17,
Reykjavík.
Fanney Jónsdóttir,
Sólveig Jónsdóttir, Gestur Þorgeirsson,
Björg Jónsdóttir, Grímur Sæmundsen,
barnabörn og langömmubörn.