Morgunblaðið - 06.03.2014, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Lítið fer fyrir fagnaðarlátum hjá Sunnu Guðrúnu Pétursdótturí tilefni af 31 árs afmæli hennar í dag sökum anna en hún erað byrja í tökum á kvikmynd Bjarna Hauks Þórssonar, Af-
anum, sem annar aðstoðarleikstjóra myndarinnar. Sunna Guðrún
hafði alltaf áhuga á tónlist og kvikmyndum og var meðal annars í
hljómsveit um tíma. „Ég var í hljómsveit í gamla daga sem var ekki
mjög góð. Hún hét Sunguns og spilaði skrýtið rokk. Við vorum með
svart hár og gaddaólar á þessum tíma. Það hefur aðeins breyst síð-
an,“ segir hún.
Í staðinn fór Sunna Guðrún því í kvikmyndanám og datt inn í
þann bransa hér heima. Hún hefur meðal annars unnið sem aðstoð-
arkona við erlendar myndir sem hafa verið teknar hér eins og Nóa
og Leynilegt líf Walters Mittys. „Þetta er svona tilfallandi eins og að
sitja inni í tjaldi með Russell Crowe og segja honum hvenær hann á
að fara út,“ segir hún. Starfið sé skemmtilegt en nokkurt hark, sér-
staklega fyrir stelpur. Langstærstur hluti tökuliðs í kvikmyndum sé
karlar og helstu tækifærin fyrir konur séu í búningum, förðun, leik-
mynd eða framleiðslu.
Í framtíðinni getur Sunna Guðrún hugsað sér að leikstýra eigin
mynd en hún hefur einnig áhuga á að vera aðstoðarleikstjóri. „Þá er
maður svolítið að stjórna settinu og keyra batteríið áfram. Það er
svona framtíðardraumur,“ segir hún. kjartan@mbl.is
Sunna Guðrún Pétursdóttir er 31 árs í dag
Aðstoðarleikstjóri Sunna Guðrún segist e.t.v. ætla að halda upp á
afmælið þegar tökum lýkur verði hún ekki komin í annað verkefni.
Framtíðardraumur
í kvikmyndunum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reyðarfjörður Ingibjörg Rán fæddist
16. júní kl. 20.20. Hún vó 2980 g og
var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru
Jóhanna Reykjalín og Ingi Ragn-
arsson.
Nýir borgarar
Selfoss Hilda Karen fæddist 22. júní
kl. 14.07. Hún vó 3.190 g og var 50,5
cm löng. Foreldrar hennar eru Edda
Linn Rise og Ómar Vignir Helgason.
R
eynir fæddist á Bíldu-
dal 6.3. 1944 og ólst
þar upp: „Ýmislegt
hefur breyst á þessum
æskustöðvum mínum
frá ég var að slíta þar barnsskónum.
Ég er ekki frá því að þar hafi fólki
fækkað frá því ég var krakki. En
það er fallegt við Arnarfjörðinn og
það var gott að alast þar upp.“
Reynir var í Barnaskólanum á
Bíldudal, lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskólanum í Vonarstræti, lauk
stúdentsprófi frá MR 1963, stundaði
nám í stærðfræði við Háskólann í
Göttingen í Þýskalandi 1963-66 og
við Princeton-háskóla í Bandaríkj-
unum 1966-70, lauk doktorsprófi í
stærðfræði við háskólann í Münster
1973 og sinnti þar rannsóknum og
kennslu 1973-75.
Reynir Axelsson stærðfræðingur – 70 ára
Í Þýskalandi Talið frá vinstri: María dóttir Reynis, afmælisbarnið, prófessor Reinhold Remmert, doktorfaðir Reyn-
is, ásamt lífsförunaut, og Rita og Georg Schumacher, en Georg hefur verið samstarfsmaður Reynis um árabil.
Stærðfræði og tónlist,
þýðingar og matargerð
Feðgin Reynir ásamt Birtu, eldri dóttur hans og Önnu Margrétar heitinnar.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is