Morgunblaðið - 06.03.2014, Qupperneq 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Listasafn Íslands verður opið leng-
ur í dag, frá kl. 17-19, vegna kynn-
ingar á vídeólist mánaðarins. Sýnd
verða 13 verk eftir listamenn bú-
setta í Hong Kong, syrpa sem nefn-
ist „Looking at the Big Sky“ sem
sýnir þverskurð af verkum sem
unnin voru af listamönnum sem
tengjast borginni á einn eða annan
hátt, að því er fram kemur í til-
kynningu. Verkin verða sýnd í
kaffistofu listasafnsins til 27. mars
og sýningarstjóri er Ellen Peu,
stjórnandi Videotage í Hong Kong.
Vídeósýningar á kaffistofunni eru
samstarfsverkefni Listasafns Ís-
lands og hátíðarinnar 700IS Hrein-
dýraland og mun það standa til 27.
nóvember nk.
Því má við bæta að fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar, kl. 17,
verður kynntur til leiks listamaður
eða hópur listamanna og mynd-
bandsverk hans eða þeirra sýnd.
Frekari fróðleik má finna á vefsíð-
unum listasafn.is og 700.is.
Vídeólist frá Hong
Kong sýnd í LÍ
Vídeólist Stilla úr verki Wai Kit Lam, „Broken Existence“.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Óhætt er að segja að mamma mín
hafi verið minn helsti áhrifavaldur
þegar kemur að tónlistinni því hún
kynnti mig fyrir töfrum tónanna.
Hún var sjálf fiðluleikari og -kennari
og kenndi bæði mér og bróður mín-
um á hljóðfærið. Þar sem bróðir
minn er sextán árum yngri en ég
naut ég þess að fylgjast með móður
minni kenna honum og lærði mikið af
því,“ segir japanski fiðluleikarinn
Midori, en hún leikur á tónleikum
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30
og á aukatónleikum á sama tíma ann-
að kvöld. Á tónleikunum leikur Mi-
dori fiðlukonsert í e-moll eftir Felix
Mendelssohn, en auk þess flytur
hljómsveitin fjórðu sinfóníu Pjotrs
Tsjajkovskíj og konsertforleikinn
Glaðsheimr eftir Oliver Kentish und-
ir stjórn Eivinds Adlands, sem er að-
alhljómsveitarstjóri Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Þrándheimi.
Allt svo framandi hérlendis
Aðspurð segist Midori reglulega
leika fiðlukonsert Mendelssohn á
tónleikum enda sé hann einn sá vin-
sælasti. „Þetta verk Mendelssohn á
sér samastað í hjarta mínu, enda er
það óviðjafnanlega fallegt. Ég held
að alla fiðlunemendur dreymi um að
ná þannig tökum á hljóðfærinu að
þeir geti leikið þetta undurfallega
verk og miðlað fegurð þess til áheyr-
enda. Mér finnst alltaf sérlega
ánægjulegt að takast á við verkið,“
segir Midori og tekur fram að túlkun
hennar á verkinu mótist af samspili
hennar við hljómsveitina og hljóm-
sveitarstjóra kvöldsins.
Þegar blaðamaður náði tali af Mid-
ori í Hörpu í gærmorgun rétt fyrir
æfingu með SÍ var tónlistarkonan til-
tölulega nýlent. Því lá beint við að
forvitnast um hvernig flakkið um
heiminn leggist í hana, en tónleika-
haldið kallar óneitanlega á fjölda
ferðalaga. „Vissulega er það áskorun
að ferðast svona mikið, en það er líka
mjög spennandi. Mér finnst gaman
„Tónlistinni ber að deila“
Midori leikur fiðlukonsert í e-moll eftir Felix Mendelssohn með Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld
Hún segist ekki geta gert upp á milli tónleikahaldsins, kennslunnar og góðgerðarstarfsins
Morgunblaðið/Eggert
Draumur „Þetta verk Mendelssohns á sér samastað í hjarta mínu, enda er það óviðjafnanlega fallegt. Ég held að
alla fiðlunemendur dreymi um að ná þannig tökum á hljóðfærinu að þeir geti leikið þetta undurfallega verk.“
að heimsækja framandi staði og
kynnast nýju fólki. Þetta er t.a.m.
fyrsta heimsókn mín til Íslands og
mér finnst einstaklega spennandi að
koma hingað. Það er allt svo fallegt,
en um leið framandi,“ sagði Midori
og fagnaði sérstaklega fallegu vetr-
arveðri í borginni.
Virkur friðarsendiherra SÞ
Óhætt er að segja að Midori hafi
haft nóg að gera í gær, því að lokinni
æfingu með SÍ lék hún í Vin, fé-
lagsmiðstöð Rauða krossins, og í
Bataskólanum á Kleppsspítala. Með-
an á Íslandsdvöl hennar stendur
mun hún einnig heimsækja grunn-
skóla, menntaskóla og eldri borgara í
Reykjavík ásamt því að halda mast-
erclass-námskeið í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík. „Á hverjum tón-
leikastað reyni ég ávallt að fara um
viðkomandi borg og leika á ólíkum
stöðum. Tónlistinni ber að deila með
öðrum og þessar heimsóknir mínar
eru framlag mitt til þess. Tónlistin á
ekki aðeins heima í tónleikasölum
heldur í hjörtum almennings,“ sagði
Midori, sem um langt árabil hefur
unnið að því að kynna tónlist fyrir al-
menningi og ekki síst hinum efna-
minni. Í því samhengi má nefna að
árið 1992 stofnaði hún samtökin
Midori & Friends sem árlega standa
fyrir röð tónleika í skólum New
York-borgar til að kynna tónlist fyr-
ir ungu og efnalitlu fólki. Á grund-
velli þessa starfs var hún árið 2007
skipuð friðarsendiherra Sameinuðu
þjóðanna.
Midori hefur sinnt kennslu við
Háskólann í Suður-Kaliforníu sl.
áratug. Aðspurð segist hún ekki geta
gert upp á milli ánægjunnar sem fel-
ist í kennslunni, tónleikahaldinu eða
ofangreindum samfélagsverkefnum
sem hún sinnir af ástríðu. „Allt teng-
ist þetta tónlistinni og styður í reynd
hvað annað. Ég er svo lánsöm að
hafa getað sinnt öllum þremur hlut-
verkum á ferli mínum,“ segir Midori
og tekur fram að hún leggi mikinn
metnað í kennsluna. „Nemendur
mínir eru mér ávallt ofarlega í huga.
Það felast ákveðin forréttindi í því að
vinna með ungu og metnaðarfullu
hæfileikafólki. Það er alltaf gaman
að hjálpa öðrum að láta drauma sína
rætast og hollt að setja sjálfan sig til
hliðar á meðan.“
Menntun eykur víðsýni
Þrátt fyrir annasaman feril gefur
Midori sér einnig næði til að sinna
öðrum hugðarefnum. Þannig lauk
hún BA-prófi í sálfræði og kynja-
fræði frá New York-háskóla og
meistaragráðu í sálfræði við sama
skóla í framhaldinu. Spurð hvers
vegna hún hafi valið að mennta sig
líka á öðrum sviðum en tónlist segir
Midori að sér hafi þótt mikilvægt að
auka víðsýni sína og reynslu. „Mér
þótti sérlega áhugavert að læra
kynjafræði, því hún opnaði augu mín
fyrir samskiptum og samspili ólíkra
hópa þjóðfélagsins. Öll menntun nýt-
ist manni, enda er hún nokkuð sem
maður býr að alla ævi. Menntun er í
senn fjársjóður manns og upp-
spretta gleði,“ segir Midori og tekur
fram að hún sé sér mjög meðvituð
um þau forréttindi sem felist í því að
hafa haft möguleika á að mennta sig.
Midori vakti heimsathygli þegar
hún kom fram með Fílharm-
óníusveit New York árið 1982, þá
aðeins ellefu ára gömul.
Hún lauk tónlistarnámi sínu frá
Juilliard-listaháskólanum í New
York og hefur leikið með öllum
þekktustu hljómsveitum heims.
Midori nam sálfræði og kynjafræði
við New York-háskólann þaðan
sem hún lauk mastersnámi árið
2005. Hún var kjörin meðlimur
Bandarísku lista- og vís-
indaakademíunnar og hlaut heið-
ursdoktorsnafnbót frá Yale-
háskóla árið 2012.
Vakti ung heimsathygli
JAPANSKI FIÐLUSNILLINGURINN MIDORI
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Verslunin í
Spönginni
LOKAR
– allt á að seljast
SILFUR
50% afsláttur
GULL
30% afsláttur
ÚR
50% af
sláttur
DKNY
- Casio
- Fossil
- Diese
l