Morgunblaðið - 06.03.2014, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 6. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Lögreglan í átökum í Hraunbæ
2. Herra Afríka býr á Akureyri
3. Jafn hættulegt og að reykja
4. „Ég vil heim og búa til annað barn“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar til styrktar hinsegin fólki
í Úganda verða haldnir í kvöld kl. 20 í
Norðurljósasal Hörpu. Á þeim koma
fram Páll Óskar Hjálmtýsson, Hinseg-
in kórinn, Sigga Beinteins og Stjórn-
in, Sykur og Retro Stefson en kynnar
verða Bjarni Snæbjörnsson og Sigríð-
ur Eyrún Friðriksdóttir og Felix
Bergsson mun flytja ávarp. Ágóði af
miðasölu rennur til hinsegin fólks í
Úganda en samkvæmt nýjum lögum
má dæma fólk í lífstíðarfangelsi fyrir
samkynhneigð þar í landi.
Morgunblaðið/Kristinn
Tónleikar til styrktar
samkynhneigðum
Tónlistarmað-
urinn John Grant,
sem býr og starf-
ar hér á landi, er
meðal gesta á
plötu hljómsveit-
arinnar Hercules
and Love Affair,
The Feast of the
Broken Heart,
sem kemur út 26. maí. Grant er á tón-
leikaferðalagi um Bretlandseyjar og
hlýtur fullt hús stiga í Irish Times fyr-
ir tónleika sína í Dublin, 3. mars sl.
Grant á plötu Hercu-
les and Love Affair
Forsala fyrirtækjanna WOW og
Vodafone á miðum á tónleika Justins
Timberlake, 24. ágúst nk., hófst í
gærmorgun kl. 10 og var
orðið uppselt um 20 mín-
útum síðar. Samkvæmt
heimildum voru um fimm
þúsund miðar seldir. Al-
menn miðasala
hefst í dag
kl. 10 á
vefnum
Miði.is.
Uppselt á 20 mínútum
Á föstudag Suðvestan 5-13 m/s, en 13-18 sunnan- og vestantil
um kvöldið. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt nyrðra og eystra,
en él sunnan- og vestanlands. Frost víða 0-5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestanátt, víða 5-13 m/s, en hvessir
vestast í kvöld. Úrkomulítið norðaustantil, annars snjókoma með
köflum eða él. Frost 0-7 stig, en hiti um frostmark við ströndina.
VEÐUR
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu átti ekki góðu
gengi að fagna gegn Wales-
verjum í vináttuleik í Cardiff
í gær því heimamenn fögn-
uðu 3:1 sigri. Dýrasti knatt-
spyrnumaður heims, Gareth
Bale, reyndist íslenska lið-
inu ansi erfiður en þessi
frábæri leikmaður lagði upp
tvö fyrstu mörkin og skor-
aði svo sjálfur þriðja markið
eftir frábært einstaklings-
framtak. »3
Strákarnir réðu
ekkert við Bale
„Þegar ég var spurður hvort ég
gæti hugsað mér að taka við lands-
liðinu þá varð ég strax mjög áhuga-
samur. Þetta er spennandi íslenskt
lið sem ég fæ að þjálfa, lið með
góða bakverði og mjög líkt fé-
lagsliðinu sem ég hef þjálfað í Dan-
mörku,“ segir Kanadamaðurinn Gra-
ig Pedersen sem í gær var
ráðinn landsliðsþjálfari Ís-
lands í körfuknattleik
karla. »1
Varð strax áhugasamur
um að taka við liðinu
Valur tryggði sér fjórða sæti Dom-
inosdeildar kvenna í körfuknattleik í
gær með því að vinna Hamar örugg-
lega í uppgjöri liðanna í fjórða og
fimmta sæti deildarinnar. Valur hefur
þar með fjögurra stiga forskot á
Hamar þegar ein umferð er óleikin.
Efstu fjögur lið deildarinnar taka þátt
í úrslitakeppni um Íslandsmeist-
aratitilinn. »2
Valur varð fjórða liðið
inn í úrslitakeppnina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við byrjuðum á svona ferðum fyrir
þremur árum og þetta er því þriðji
veturinn. Aðsóknin hefur komið okk-
ur skemmtilega á óvart og farið
fram úr okkar björtustu vonum. Við
erum þegar farin að taka við bók-
unum frá ferðaskrifstofum fyrir
næsta vetur,“ segir Hjörtur Hinriks-
son, framkvæmdastjóri Special To-
urs, sem auk hvalaskoðunarferða frá
Reykjavíkurhöfn allt árið um kring
hefur boðið ferðamönnum upp á
norðurljósabátsferðir yfir vetrartím-
ann, fyrst fyrirtækja hér á landi.
Metaðsókn hefur verið í vetur, sér
í lagi eftir áramótin, og stefnir í að
Special Tours muni sýna um 12 þús-
und farþegum norðurljósin með
þessum hætti áður en vertíðinni lýk-
ur í næsta mánuði. Árið þar áður
fóru á bilinu 3-4 þúsund ferðamenn í
norðurljósasiglingar. Aukningin á
milli ára er því í kringum 240%. Að
sögn Hjartar hafa ferðamennirnir
aðallega verið frá Bretlandi og
Bandaríkjunum en Japanir sýni
norðurljósunum einnig mikinn
áhuga. Allt síðasta ár sigldi Special
Tours, áður Sérferðir, með um 50
þúsund ferðamenn en fyrirtækið er
með bátana Andreu og Rósina á sín-
um snærum. Andrea tekur um 200
manns um borð og Rósin um 65
manns. Vegna mikillar aðsóknar
hefur þurft að notast við fleiri báta í
norðurljósasiglingar.
„Þetta hefur algjörlega hitt í
mark hjá okkur. Það er mun
meiri upplifun að sjá norður-
ljósin úti á sjó en í rútu-
ferð og við bjóðum einnig
upp á mjög góða aðstöðu í
þessum ferðum,“ segir
Hjörtur en um borð í Andreu
eru sjö salerni, bar og
þráðlaust netsamband.
„Fólk getur hreyft sig
um og síðan erum við
með leiðsögumann sem syngur, les
ljóð og spilar á gítar,“ segir hann en
ljóð eftir Einar Ben. eru oftast lesin
upp, enda við hæfi að heiðra þannig
minningu Einars sem var upphafs-
maður þess að selja norðurljósin, þó
að honum hafi ekki orðið eins vel
ágengt og ferðaþjónustufyr-
irtækjum í dag.
Hjörtur segir norðurljósaferð-
irnar skipta miklu máli fyrir fyrir-
tæki sem hefur haft aðaltekjur sínar
yfir sumartímann.
„Við náum að halda fleirum í
vinnu yfir allt árið og getum um leið
aukið gæði þjónustunnar. Við erum
með hvalaskoðunarferðir daglega
allt árið frá gömlu höfninni við Æg-
isgarð, lokum bara einn dag – jóla-
dag,“ segir Hjörtur, sem útilokar
ekki að fyrirtækið þurfi að stækka
flotann ef fram heldur sem horfir.
Einar Ben. undir ljósadýrð
Norðurljósa-
siglingar Special
Tours slá í gegn
Norðurljósin Ferðamenn um borð í Andreu virða fyrir sér norðurljósin í einni ferð Special Tours frá Reykjavík.
Norðurljósasiglingar Special Tours
taka tvo til þrjá tíma og að sjálf-
sögðu er siglt þegar kvölda tekur.
Inga Dís Richter, sölu- og
markaðsstjóri, segir að-
stæður til norðurljósasýn-
inga hafa verið einstaklega
góðar í vetur, sérstaklega
eftir áramót. Ekki þarf að
sigla nema í um 20 mínútur
út á Faxaflóa til að kom-
ast í gott færi við
ljósadýrðina. Allir
fá kuldagalla sem
vilja og Inga segir rómantíkina oft
svífa yfir vötnum. „Hér hafa orðið
til bónorð um borð,“ segir hún en
oftar en ekki hafa það verið Jap-
anir, sem hafa mikla trú á norður-
ljósum og áhrifum þeirra á kynork-
una. Getnaður við þessar
aðstæður boði mikla lukku.
„Við höfum ekki boðið upp á
sérstaka klefa fyrir farþega en við
vitum aldrei hvað gerist ef ferða-
mennirnir komast upp á hótel áður
en ljósin fara,“ segir Inga Dís og
hlær.
Bónorð um borð
RÓMANTÍSKAR NORÐURLJÓSASIGLINGAR
Inga Dís Richter