Morgunblaðið - 13.03.2014, Side 1
lítið það sem af er vetri. Þannig hef-
ur rennslið í Tungnaá og Þórisvatn
ekki verið minna í 55 ára sögu mæl-
inga og rennslið í Blöndu hefur verið
nálægt sögulegu lágmarki.
Hefur þetta haft í för með sér
röskun á framleiðslu álveranna í
Straumsvík og Reyðarfirði, auk El-
kem á Grundartanga og Becromal á
Akureyri.
Óhagstætt tíðarfar
» Tíðarfarið á hálendinu hefur
verið Landsvirkjun sérlega
óhagstætt, einkum í febrúar.
» Þó að úrkoma hafi aukist í
mars er of stutt liðið af mán-
uðinum til að fyllast bjartsýni.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Síðasta vatnsár var eitt hið slakasta
í sögu fyrirtækisins en við komumst í
gegnum það án skerðingar á raf-
orku. En síðan hefur þetta ár einnig
farið illa af stað, sérstaklega á
Tungnaár- og Blöndusvæðinu,“ seg-
ir Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, en vegna minnkandi
vatnsforða í miðlunarlónum á há-
lendinu hefur Landsvirkjun orðið að
grípa til skerðingar á raforku til
stóriðju og í heildsölu til annarra
orkufyrirtækja. Ekki er útilokað að
til frekari skerðingar þurfi að koma
en Landsvirkjun er að endurmeta þá
þörf þar sem horfur í vatnsbúskapn-
um hafa farið versnandi á undan-
förnum vikum.
Vegna úrkomuleysis og kulda á
hálendinu hefur innrennsli í miðlun-
arlón Landsvirkjunar verið óvenju-
Versnandi vatnsbúskapur
Stefnir aftur í slæmt vatnsár í miðlunarlónum Landsvirkjunar Innrennsli í
Þórisvatn ekki minna í 55 ár Endurmeta þörf á frekari raforkuskerðingu
MStefnir aftur í slæmt … » 12
F I M M T U D A G U R 1 3. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 61. tölublað 102. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
KOM ALDREI
ANNAÐ TIL
GREINA
SKATTKERFIÐ,
LEGO-RISINN,
EVRUKREPPAN
ÓSKÝR MÖRK
GÓÐS OG ILLS
Í MYND MAAS
VIÐSKIPTABLAÐ LEIKSTJÓRI TVEGGJA LÍFA 42GAF SYNI NÝRA 4
www.mats.is
Grímsey Baugurinn liggur um eyna.
Norðurheimskautsbaugurinn var
í gær á 66°N33’52,7". Hann er á
stöðugri hreyfingu en í heildina
færist hann jafnt og þétt til norðurs
þessi árin. Baugurinn mun fara
norður fyrir Grímsey á árunum
2031 til 2038 og skilja endanlega
við hana í kringum árið 2047. Út-
reikningar benda til þess að heim-
skautsbaugurinn hafi fyrst gengið
inn á Grímsey árið 1717.
Árleg meðalhreyfing heim-
skautsbaugsins er um 14,5 metrar.
Færsla baugsins er skrykkjótt í
báðar áttir og færist hann mismikið
frá einum tíma til annars. »19
Heimskautsbaug-
urinn færist norður
Baldur Arnarson
Stefán Gunnar Sveinsson
Gunnar Helgi Kristinsson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, telur að Seðlabankinn
hefði átt að upplýsa fjármálaráðu-
neytið um að bankinn myndi greiða
kostnað Más Guðmundssonar
seðlabankastjóra vegna málsóknar
gegn bankanum, en tilefni bréf-
anna var fyrirspurn þingmanns.
Komið hefur fram að ákvörðun um
greiðslu SÍ lá fyrir þegar bréfin
voru send.
Bar að upplýsa ráðuneyti
Prófessor telur Seðlabankann hafa átt að veita rétt svör
„[É]g tel að það hljóti að felast í
eftirlitsskyldu ráðuneytis með
sjálfstæðum stofnunum að það geti
beðið um upplýsingar og eigi að fá
rétt svör.“
Ásmundur G. Vilhjálmsson, að-
junkt við viðskiptafræðideild Há-
skóla Íslands, telur ýmis álitamál
vakna varðandi greiðslu SÍ. Til
greina komi að hún sé hlunnindi.
Már sagði við Morgunblaðið sl.
mánudag að eftir leka í blaðið um
deilur í bankaráði sumarið 2010
hefðu stjórnvöld ekki treyst sér til
að efna loforð um launakjör hans.
Á þeim tíma kannaðist forsætisráð-
herra ekki við slíkt loforð. »6, 17
Frávísun
» Seðlabankinn krafðist þess
fyrir héraðsdómi að máli Más
gegn bankanum yrði vísað frá.
» Þess er ekki getið í dómum
að Már hafi höfðað málið til að
leggja lóð á vogarskálar sjálf-
stæðis bankans líkt og hann
hefur haldið fram.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tryggði
sér bronsverðlaun á hinu sterka Algarve-móti í
Lagos í Portúgal með því að vinna óvæntan en
sætan sigur á Svíum, 2:1, í gær. „Aldur og
reynsla breytir engu. Við spiluðum bara saman
sem eitt lið og þá skiptir engu hversu marga
landsleiki maður hefur spilað,“ segir Glódís
Perla Viggósdóttir, 18 ára miðvörður íslenska
liðsins. » Íþróttir 2-3
Brons eftir óvæntan og sætan sigur á Svíum
Ljósmynd/KSÍ
Samstaða lykillinn að góðum árangri á Algarve-mótinu
Smásölurisinn
Costco skoðar nú
að opna verslun í
Reykjavík. Hafa
fulltrúar á veg-
um fyrirtækisins,
sem er næst-
stærsta smásölu-
keðja í Banda-
ríkjunum, af
þessu tilefni m.a.
fundað með ýms-
um aðilum í stjórnkerfinu.
„Við lítum jákvæðum augum á
þetta mál,“ segir Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra. hordur@mbl.is »Viðskipti
Costco hefur áhuga
á verslun á Íslandi
Risi Tekjur eru 105
milljarðar dala.
Fjármálafyrir-
tækið Lýsing er
að ganga frá
kaupum á eigna-
leigufyrirtækinu
Lykli sem er
hluti af MP
banka. Sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins verður
skrifað undir kaupsamning á allra
næstu dögum.
Við kaupin mun Lýsing taka yfir
meira en tvö þúsund bílasamninga,
bílalán og kaupleigusamninga
vegna ýmissa atvinnutækja.
hordur@mbl.is »Viðskipti
MP banki selur Lykil
til Lýsingar
Höfuðstöðvar MP.