Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 44
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
HÁR
Vertu vinur á facebook: Redken Iceland
Frábærar fermingargjafir
Hárburstinn
sem leysir
allar flækjur
Losaðu þig við byrðina - Handgerðir blásarar
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Menningarverðlaun DV voru af-
hent í 35. skipti fyrr í vikunni.
Verðlaunin voru veitt í níu flokk-
um, en veitt voru verðlaun fyrir
framúrskarandi árangur á lista-
sviðinu á sl. ári. Flokkarnir eru
bókmenntir, fræði, byggingarlist,
hönnun, myndlist, kvikmyndir,
tónlist, danslist og leiklist. Þá af-
henti forseti Íslands árleg heiðurs-
verðlaun sem tónlistarmaðurinn
Ragnar Bjarnason hlaut.
Sjón bar sigur úr býtum í flokki
bókmennta fyrir skáldsögu sína
Mánastein. Í flokki fræðibóka
hlaut verðlaunin Sölvi Björn Sig-
urðsson fyrir Stangveiðar á Íslandi
og Íslenska vatnabók. Gláma Kím
arkitektar hlaut verðlaunin fyrir
framúrskarandi byggingarlist
vegna Háskólans á Akureyri. Fata-
hönnuðurinn Guðmundur Jörunds-
son var verðlaunaður fyrir hönnun
vegna fatamerkisins JÖR. Kristín
Gunnlaugsdóttir var verðlaunuð á
sviði myndlistar fyrir sýninguna
Sköpunarverk í Listasafni Íslands.
Á sviði kvikmyndar var Mar-
teinn Sigurgeirsson verðlaunaður
fyrir ævistarf sitt, en Marteinn
hefur verið umsjónarmaður og
aðaldriffjöður Myndvers grunn-
skólanna síðustu þrjá áratugina.
Tinna Þorsteinsdóttir var verð-
launuð fyrir tónlistarflutning. Sig-
ríður Soffía Níelsdóttir var verð-
launuð á sviði danslistar fyrir
Eldar sem sýnt var á menning-
arnótt.
Loks var Atli Rafn Sigurðarson
verðlaunaður á sviði leiklistar fyr-
ir túlkun sína á Páli Ólafssyni í
sýningunni Englum alheimsins
sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu.
Þess má geta að lokasýning verks-
ins verður sýnd í beinni útsend-
ingu á RÚV sunnudaginn 30. mars
nk.
Menningarverðlaun
DV veitt í 35. sinn
Sjón Kristín
Gunnlaugsdóttir
Tinna
Þorsteinsdóttir
Atli Rafn
Sigurðarson
Á sýningunni Mannlegar víddir, sem opnar
í Listasafni Reykjanesbæjar á laugardag
klukkan 14, gefur að líta verk eftir tvo mál-
ara sem hafa sérhæft sig í gerð manna-
mynda, þá Stefán Boulter og Stephen Lár-
us Stephen. Báðir eiga erlenda feður og
hafa sótt listmenntun sína til annarra
landa, Stefán til Noregs og Ítalíu, Stephen
Lárus til Bretlands. Að öðru leyti eru þeir
sagðir afar ólíkir.
Mannamyndir Stef-
áns Boulters eru mest-
megnis lágstemmd
einkasamtöl hans við
vini og kunningja, eða
myndrænar einræður
hans sjálfs, tilraunir til
að laða fram og festa á
striga kenndir og hugs-
anir þeirra sem hann
fjallar um, með útlistun
á látbragði þeirra. Um
leið einkennast manna-
myndir hans af dulúð.
Stefán býr og starfar
á Akureyri, en hefur
sýnt verk sín víða; hann
var um tíma einn að-
stoðarmanna norska
málarans Odds Ner-
drums.
Stephen Lárus hefur
getið sér gott orð fyrir
portrettmyndir af ýmsum „opinberum“ Ís-
lendingum. Málverk hans af Sólveigu Pét-
ursdóttur, fyrrverandi alþingismanni og
forseta Alþingis, vakti nokkurt umtal þeg-
ar það var vígt fyrir tveimur árum en það
gefur að líta á sýningunni. Markmið Steph-
ens við vinnuna er sagt vera að koma á
framfæri viðmóti fyrirsæta sinna, án þess
að ganga of nærri einkalífi þeirra. Þarna er
um að ræða jafnvægislist þar sem listmál-
arinn þarf að taka tillit til margra þátta,
sjálfsvirðingar þeirra sem sitja fyrir, þjóð-
félagsstöðu þeirra og ekki síst þess hlut-
verks sem portrettmyndirnar eiga að
gegna. Meðan á vinnuferlinu stendur er
listmálarinn í stöðugu „viðræðusambandi“
við margar þekktustu mannamyndir lista-
sögunnar; þær eru honum allt í senn áskor-
un, viðmið og hugmyndabanki.
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Portettverk tveggja málara
Mannamyndir á
sýningu í Listasafni
Reykjanesbæjar
Einkaveröld „Rakel“, verk eftir Stefán Boulter. Myndir hans búa yfir dulúð.
Viðmótið „Anna“ eftir Stephen Lárus Stephen. Hann tekur tillit til margra þátta.
Stefán Boulter
Stephen Lárus
Stephen
Hið goðsagnakennda hljómsveit Rolling Stones er um
þessar mundir á ferð um heiminn á tónleikaferðalaginu
14-On-Fire. Kínverjar tóku hinum fullorðnu og út-
haldsgóðu rokkurum vel og hylltu þá með langvinnu
lófataki. Orðrómur er uppi um að Rolling Stones muni
koma fram víða í Evrópu á vormánuðum, meðal annars
í Ósló í maí, og í Frakklandi, Ítalíu og Svíþjóð í júní.
AFP
Sá gamli Mick Jagger er blásinn upp á risaskjá yfir sviðinu í
Shanghai þar sem Rolling Stones lék í gærkvöldi
Steinarnir velta enn áfram
Á morgun, föstudag klukkan 16,
verður opnuð einkasýning Linn
Björklund „Sketches for Habitat 1 /
Skissur að íverustöðum 1“ í Kubbn-
um, sýningarsal Listaháskóla Íslands
að Laugarnesvegi 91.
Sýning Linn er hluti af sýningaröð
meistaranema á fyrra ári við mynd-
listardeild og er hún í samstarfi við
meistaranámsbraut í listfræði við
Háskóla Íslands. Samstarfið hefur
gefið af sér samræður milli þessara
tveggja nemendahópa og er listfræðineminn Helga
Arnbjörg Pálsdóttir höfundur efnis sem gefið er út í
tengslum við sýninguna sem er opin til 18. mars frá kl.
13 til 16, alla dagana.
Skissur að íverustöðum
Hluti af verki eftir
Linn Björklund.
Leikkonan Angelina Jolie gekkst
undir brjóstanám í fyrra eftir að í ljós
kom að hún væri með gen sem 87 pró-
senta líkur væru á að ylli brjósta-
krabbameini. Jafnframt tjáðu læknar
henni að helmingslíkur væru á því að
hún fengi krabbamein í eggjastokka.
Í samtali við Entertainment Weekly
segir Jolie, sem er 38 ára gömul og
sex barna móðir, að hún hafi gengist
undir aðgerðina til að draga úr líkum
á að fá krabba. Það hafi gengið vonum framar en þó eigi
hún eftir að gangast undir frekari aðgerðir. Eiginmaður
Jolie, leikarinn Brad Pitt, segir hana vera algjöra hetju.
Jolie aftur undir hnífinn
Angelina Jolie