Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Reykvíkingar! Ekki gleyma að kjósa um betri hverfi kjosa.betrireykjavik.is Virkjum íbúalýðræðið! Opið er fyrir atkvæðagreiðslu 11.-18. mars Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Það kom aldrei neitt annað til greina,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir sem fyrir tveimur vikum gaf Gunnlaugi syni sínum annað nýra sitt. Feðgunum heilsast vel, þeir safna nú kröftum eftir aðgerð- irnar og líta bjartsýnir fram á veg- inn. Gunnlaugur er 28 ára gamall lög- fræðingur hjá innanríkisráðuneyt- inu. Hann greindist með IgA- nýrnamein árið 2005, þá 19 ára gam- all, en meinið hefur þau áhrif að nýrun hreinsa ekki blóðið í lík- amanum. Þá hóf hann lyfjameðferð sem hélt framrás sjúkdómsins niðri í nokkur ár, þar til í árslok 2012, en fram að því hafði sjúkdómurinn lítil áhrif á líf Gunnlaugs. Í lok ársins 2012 kom í ljós að sjúkdómurinn fór versnandi og ljóst að stefndi í ígræðslu innan 2-5 ára. „En mér hrakaði enn og ígræðsla varð því nauðsynleg við fyrsta mögulega tækifæri,“ segir Gunnlaugur. Valið var mjög auðvelt Þegar fyrir lá að hann þyrfti nýragjöf báðu foreldrar hans, þau Geir og kona hans, Jónína Ein- arsdóttir, um að þau yrðu rann- sökuð með nýragjöf í huga. Fljót- lega kom í ljós að Geir var heppilegri kostur og að rannsóknum loknum lá fyrir að hann væri hent- ugur gjafi fyrir Gunnlaug. „Þegar við stóðum frammi fyrir því að það stefndi í þetta, þá kom aldrei neitt annað til greina í huga okkar en að bjóðast til að gefa honum nýra,“ segir Geir. Hafðir þú einhverntím- ann áður íhugað að gefa líffæri? „Ég hafði aldrei áður staðið frammi fyrir þeirri spurningu. En þegar sonur minn var að fara á lokastig nýrnabil- unar, þá var valið mjög auðvelt.“ Margir vinir og ættingjar Gunn- laugs buðust til að gefa honum nýra. Hann segir það hafa komið sér á óvart. „Þetta er stór aðgerð fyrir fullfrískan einstakling að leggja þetta á sig og ekki sjálfgefið.“ Hver væri staðan í dag, hefðir þú ekki fengið nýtt nýra? „Þá hefði ég væntanlega farið á biðlista eftir nýju nýra og síðan farið reglulega í blóð- skilun þangað til mér byðist nýra.“ Eftir að annað nýrað hefur verið fjarlægt úr fólki stækkar hitt nýrað og tekur við hlutverki beggja. Geir segir brottnám nýrans hafa heppn- ast vel. „Mín aðgerð er annars minnsti hlutinn af þessu öllu saman og það væri varla hægt að segja að hún væri vel heppnuð nema nýrað hefði tekið vel við sér, lifað áfram og unnið sína vinnu hjá Gunnlaugi.“ Nýrað úr Geir hóf að starfa um leið og það var komið í Gunnlaug og þess beið ærinn starfi að hreinsa úr- gangsefni úr blóði hans sem safnast höfðu fyrir. „Það fór strax í yfir- vinnu og nú er ég með 63 ára gamalt nýra. „Það er reyndar ekki nema 62 ára,“ leiðréttir faðir hans hann snar- lega og feðgarnir skella upp úr. Þetta var fjölskylduverkefni Gunnlaugur hyggst snúa aftur til starfa eftir 3-4 mánuði og Geir í lok mánaðarins. „Ég finn fyrir því að ég hafi verið í aðgerð. En ég finn engan annan mun á mér, mér líður vel og mér fer fram á hverjum degi, enda eru nýragjafar yfirleitt fljótir að jafna sig,“ segir Geir. „Það er svo ánægjulegt að sjá hvernig Gunn- laugur styrkist dag frá degi. Við styðjum hvor annan. Þetta er verk- efni sem við fengum, við fjölskyldan. Enginn óskar sér að vera í þessari stöðu, en ef það gerist þá tekur maður á því. Þetta var langbesta lausnin og ég er einlæglega mjög hamingjusamur yfir því að hafa get- að tekið þátt í þessari lausn,“ segir Geir. Það kom aldrei neitt annað til greina  Geir Gunnlaugsson landlæknir gaf Gunnlaugi syni sínum nýra  „Ég er einlæglega mjög hamingjusamur yfir því að hafa getað tekið þátt í þessari lausn“  Fékk mörg tilboð um nýru Morgunblaðið/Ómar Með nýrað úr pabba Geir Gunnlaugsson landlæknir gaf Gunnlaugi syni sínum annað nýra sitt fyrir tveimur vikum. MLengri útgáfa af viðtalinu er á mbl.is. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sýslumaðurinn á Selfossi hafnaði í gær lögbannskröfu Bjarna Bene- diktssonar fjármálaráðherra á gjald- töku við Geysissvæði. Landeigenda- félag Geysis sendi í kjölfarið frá sér tilkynningu þar sem niðurstöðunni er fagnað og áréttað að gjaldtaka muni hefjast innan fárra daga. Gjaldtaka af ferðafólki átti að hefjast sl. mánudag. Landeigendafélagið ákvað hins vegar að fresta gjaldtök- unni vegna lögbannskröfu ráð- herrans. Landeigendafélagið hefur undir- búið gjaldtökuna síðustu mánuði og um leið þjónustu á svæðinu. Þannig hafa níu starfsmenn verið ráðnir og tóku þeir til starfa 1. mars. Tæknimálin hafa verið undirbúin og bæklingar prentaðir. Ríkið á hluta Geysissvæðisins en ágreiningur hefur verið um af- mörkun hans. Gjaldtakan var ákveðin í andstöðu við ríkið og gekk lögbannskrafa fjár- málaráðuneytisins út á að bann yrði sett við því að landeigendafélagið innheimti gjald af ferðafólki sem heimsækir Geysissvæðið. Garðar Eiríksson, talsmaður land- eigendafélagsins, segir að innheimt- ar verði 600 krónur í aðgangseyri fyrir 17 ára og eldri. Samið hefur verið við verslunina Geysi sem stað- sett er andspænis hverasvæðinu um að innheimta gjaldið en ekki verða settir upp sérstakir skúrar til að sjá um innheimtuna. Íslendingar fái sérkjör „Við erum að verja náttúruna og gera hana móttækilega fyrir þessu mikla álagi. Íslendingar eru lítill hluti þeirra sem heimsækja okkur,“ segir Garðar. Að sögn hans koma um og yfir 600 þúsund manns á Geysis- svæðið á ári hverju. Þar af eru innan við 5% Íslendingar. Garðar segir að til greina komi að koma til móts við Íslendinga með einhverjum hætti seinna meir en það verði ekki gert til að byrja með. Sýslumaður hafnaði lög- bannskröfu á gjaldtöku  Gjaldtaka hefst á Geysissvæði á næstu dögum Geysir í Haukadal. „Ég sé ekki fram á að það verði hægt að halda próf í skólanum í vor ef verkfall háskólakennara verður komið til framkvæmda þegar þau eiga að hefjast,“ sagði Hreinn Páls- son, prófstjóri Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Kennarar við háskólann greiða atkvæði í næstu viku um boð- un verkfalls í vor. Ef af verður munu þeir leggja niður störf á hefðbundn- um próftíma, 25. apríl til 10. maí, sem þýðir að nemendur munu ekki ljúka tilskildum einingum og Háskólinn ekki fá greidda fjárveitingu sem því nemur. Tæplega fjórtán þúsund nemend- ur eru skráðir í Háskóla Íslands. Verkfallið mundi hafa mikil áhrif á námsframvindu stórs hluta þeirra. Að sögn Hreins eru 500 próf skráð í vor og 25 þúsund próftökur.Verk- fall mundi einnig hafa áhrif á störf um eitt hundrað prófvarða. „Við höfum átt í viðræðum við full- trúa samninganefndar ríkisins og það hefur ekki náðst samþykki æðstu stjórnvalda við þeim tillögum sem við höfum lagt fram. Það hefur hvorki gengið né rekið og því miður þurfum við að grípa til aðgerða til að leggja áherslu á okkar kröfur,“ sagði Jörundur Guðmundsson, formaður Félags háskólakennara, við mbl.is í gær. Aðgerðirnar ná eingöngu til kenn- ara við Háskóla Íslands, en í þeim hópi eru um þúsund manns. Jörund- ur segist hafa haft spurnir af því að félag kennara við Háskólann á Ak- ureyri íhugi sambærilegar aðgerðir. „Við erum líka að þessu vegna þess að stjórnvöld eru búin að lýsa því yfir að það þurfi að leiðrétta hlut háskólanna, og sérstaklega Háskóla Íslands,“ segir Jörundur. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboð- unina hefst á mánudag og stendur út næstu viku. Frekari samningafundir við ríkið hafa ekki verið boðaðir. Mikil áhrif á þúsundir nema  Háskólakennarar íhuga verkfall á próftíma nemenda í vor Morgunblaðið/Ernir Verkfall Ekki yrði hægt að halda próf í háskólanum í vor. Fulltrúar Vinstri grænna, Besta flokks og Samfylkingar samþykktu á fundi umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur í gær að skora á Alþingi að setja fyrningarákvæði í skipu- lagslög, þannig að hægt verði að end- urskoða skipulagsáætlanir ef fram- kvæmdir hefjast ekki innan ákveðins tíma. Er bókunin sett fram í ljósi þess mats flokkanna að deiliskipulag Skuggahverfis sé „barn síns tíma“. Er sérstaklega tilgreint að turn sem til stendur að reisa við Skúlagötu eigi eftir að hafa áhrif á ,,veðurfar, útsýni og ásýnd borgarinnar og mun skerða mikilvægan sjónás norður Frakkastíg“. Deiliskipulag sem farið er eftir við Skúlagötu er átta ára gamalt. Í bókuninni kemur fram að ráðið feli skipulagsfulltrúa að hefja við- ræður við verktaka og höfða til sam- visku þeirra vegna framkominnar gagnrýni. Framkvæmdir við minni turn af tveimur sem eiga að rísa við Lindargötu 39 og Skúlagötu 22 eru hafnar en eins og kom fram í Morg- unblaðinu 3. mars mun háhýsið breyta götumynd Frakkastígs um- talsvert og skyggja á útsýni frá Skólavörðuholti niður götuna að sjónum. Byggingarleyfi fyrir turnana tvo sem á að reisa við Lind- argötu 39 og Skúlagötu 22 voru sam- þykkt í janúar sl. og 2012 í samræmi við deiliskipulag frá árinu 2006. Leyfin eru samþykkt af byggingar- fulltrúa og fara ekki fyrir pólitísk ráð borgarinnar nema til afgreiðslu. vidar@mbl.is Alþingi setji fyrningarákvæði  Áskorun VG, BF og Samfylkingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.