Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 20
SVEITARFÉLÖGIN LEIKSKÓLAR OG FÉLAGSÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 FRÉTTASKÝRING Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og er ætlaður börnum sem eru undir skólaskyldualdri. Hvert og eitt sveitarfélag ber ábyrgð á starfsemi þeirra leikskóla sem þar eru og hverju sveitarfélagi er að auki skylt að setja sér almenna stefnu um högun leikskólastarfs og kynna hana fyrir íbúum. Í lok ársins 2012 voru starfræktir 263 leikskólar á landinu öllu, þar af var 41 einkarekinn. Þessa leikskóla sóttu tæplega 20.000 börn, þar af voru rúmlega 3.000 í einkareknum leikskólum og í leikskólum störfuðu tæplega 5.000 manns. Beinn rekstrarkostnaður sveitarfélaganna vegna leikskólanna voru rúmir 26 milljarðar króna og hvert heilsdagsígildi, þ.e. hvert átta tíma leikskólapláss, kostaði 1,3 millj- ónir króna. Almennt er leikskólinn fyrir börn upp að skólaskyldualdri, en lög um leikskóla og grunnskóla heimila að börn ljúki leikskólanámi og hefji grunnskólanám fyrr eða síðar. Sífellt lengri viðvera Hlutfall barna sem fara í leikskóla hefur aukist jafnt og þétt á undan- förnum árum og áratugum og árið 2012 sóttu 95 % barna á aldrinum 2- 5 ára leikskóla. Viðveran hefur jafn- framt lengst og árið 2012 voru 82% allra leikskólabarna, frá 0-5 ára, í 8 klukkustundir eða lengur í leikskóla á degi hverjum. Þetta er reyndar nokkuð mismunandi eftir sveitar- félögum. T.d. er um 31% leikskóla- barna á höfuðborgarsvæðinu í níu tíma eða lengur, en í minnstu sveit- arfélögunum er það hlutfall um 10%. Mjög mikil fjölgun hefur orðið meðal yngri barna á leikskólum, árið 1998 voru þar 12% eins árs barna en 2012 var hlutfallið 32%. Tæp 6% leikskólabarna nutu sér- staks stuðnings árið 2012, en með því er átt við börn sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erf- iðleika fá sérstaka aðstoð eða þjálfun undir handleiðslu sérfræðinga. Þetta hlutfall hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár og er hlutfall drengja nokkru hærra en stúlkna. Fáir eru menntaðir Um helmingur starfsmanna leik- skólanna hefur hvorki lært til leik- skólakennara, né er með aðra upp- eldismenntun og er stærsti einstaki hópurinn þar fólk með grunnskóla- próf. Samkvæmt lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórn- enda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla skulu leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og leikskóla- kennarar hafa leikskólakennara- menntun og skipa a.m.k. 2/3 hluta stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi leikskólabarna í hverjum leikskóla. Reyndin er sú að þetta lagaákvæði hefur aldrei tekist að uppfylla, því 1.919 af 5.668 starfs- mönnum leikskólanna árið 2012 voru ýmist með menntun leikskólakenn- ara eða aðstoðarleikskólakennara. Þetta er þriðjungur starfsfólks leik- skólanna, en til að uppfylla fyrrnefnt Morgunblaðið/Ómar Um 20.000 á fyrsta skólastiginu  Um 95% barna á aldrinum 2-5 ára sækja 236 leikskóla  Um þriðjungur starfsmanna með leik- skólakennaramenntun  Aldrei hefur tekist að uppfylla lagaákvæði um fjölda leikskólakennara Fyrsta skólastigið Um 95% barna á aldn- inum 2-5 ára sækja leikskóla hér á landi. 2-5 ára börn í leikskólum, hlutfall af árgangi 100% 95% 90% 85% 80% 75% 70% 65% 60% 55% 50% 19 98 19 99 20 07 20 03 20 11 20 01 20 09 20 05 20 00 20 08 20 04 20 12 20 02 20 10 20 06 Heimild: Hagstofa Íslands 2 ára 3 ára 4 ára 5 ára 65% 95% 87% 96% 88% 95%91% 97% Hlutfall leikskólabarna sem eru í 8 klst eða lengur á leikskóla á dag Heimild: Hagstofa Íslands 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 19 98 19 99 20 03 20 07 20 11 20 01 20 05 20 09 20 00 20 04 20 08 20 12 20 02 20 06 20 10 40%44% 50% 57% 62% 66% 69% 71% 75% 78% 80% 79% 80% 81% 82%  Hlutverk leikskóla á Íslandi hef- ur breyst úr því að vera gæslu- stofnun í að vera menntastofnun og efldist þessi áhersla enn frekar þegar leikskólinn var skilgreindur sem fyrsta skólastigið árið 1994. Þær áherslubreytingar sem orð- ið hafa á námskrám leikskóla á undanförnum árum og aukið sam- tarf við foreldra kalla á meiri fag- mennsku í menntun yngri barna. Menntun leikskólakennara hefur verið efld, en gera þarf stórátak í að mennta fleiri leikskólakennara og þar geta sveitarfélögin lagt hönd á plóg. Togstreita skapast stundum á milli menntunar- og þjónustuhlutverks leikskólanna. Þetta er meðal þess sem kom fram í doktorsrannsókn dr. Örnu H. Jónsdóttur, lektors og formanns námsbrautar í menntun ungra barna í leik- og grunnskóla á Menntavísindasviði Háskóla Ís- lands. Þar rannsakaði Arna faglegt hlutverk, forystu og sjálfsmynd ís- lenskra leikskólakennara. Ömmur og mömmur „Það er okkar akkilesarhæll að hafa ekki fleiri leikskólakennara starfandi. En þessir sem eru þó að störfum hafa lyft sannkölluðu grettistaki í menntun leikskóla- barna,“ segir Arna. „Það er gott samræmi á milli löggjafarinnar og þess hvernig leikskólakennarar vilja vinna á vettvangi. En þeir hafa ekki alltaf svigrúm til þess. Þeim finnst halla á menntunarhlutverkið á kostnað þjónustuhlutverksins og margir telja sig því ekki geta unnið jafn faglega og þeir vildu.“ Á leikskólinn ekki að gegna báð- um hlutverkum; þjónustu og menntun? „Jú, hann gerir það. Sveitarfélögin reka flesta leik- skólana og horfa auðvitað á það hversu mikið kostar að reka þá en það verður að taka tillit til beggja þess- arra hlutverka leikskólans og ná sátt um þau.“ Arna segir að í rannsókn sinni hafi einn- ig komið fram að mörgum leikskólakennurum þætti skorta á að réttindi barna væru tryggð sem skyldi. Markvissari fjölskyldu- stefnu væri þörf hér á landi, langur vinnudagur foreldra og álag væri ein ástæða þess að svo mikil áhersla væri lögð á þjónustu- hlutverk leikskóla. „Ég held að það sé kominn tími til þess að íslensk stjórnvöld setji málefni barna og fjölskyldna í forgang.“ Að sögn Örnu hafa komið upp hugmyndir um að sveitarfélögin styddu við menntun leikskóla- kennara, t.d. með því að veita námsleyfi á launum og að hvetja starfsfólk leikskólanna til náms í faginu. Slíkt fyrirkomulag gæti verið mikilvægt skref við að fjölga leikskólakennurum. Hún nefnir dæmi um að sveitarstjórnarmaður hafi talað um ómenntað starfsfólk leikskólanna sem „ömmur og mömmur“, að það væri engin þörf á að vera með menntað fólk í öllum störfum. Hún segir þetta viðhorf því miður allt of algengt og segir talsvert um að leikskólakenn- aranemar séu spurðir að því hvers vegna þeir hafi valið þetta nám og að þeir þurfi að verja náms- og starfsvalið. „En raunin er sú að þetta starf gefur fólki meira en margt annað, þér finnst hlutverk þitt skipta máli og veist að þú hef- ur áhrif á nám og vellíðan barna. Hvað er mikilvægara en það?“ Dr. Arna H. Jónsdóttir Úr gæslu í menntastofnun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.