Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 17

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 PHILIPPE STARCK Philippe Starck hefur útfært hugmyndir svo lengi sem hann man. Þó háþróaðar hugmyndir hans hafi ekki fengið hljómgrunn kennara hans, var hann þó um tvítugt búinn að afla sér heimsfrægðar og viðurkenningar fyrir hönnun og arkitektúr. Velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að Draghálsi 14-16. Gæði fara aldrei úr tísku BAKSVIÐ Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Málaferli Más Guðmundssonar seðlabanka- stjóra gegn Seðlabankanum áttu sér nokkurn aðdraganda. Í viðtali við Morgunblaðið síðasta mánudag sagði hann ósætti í bankaráðinu í júní 2010 hafa komið í veg fyrir að samkomulag um laun sín væri efnt, og að meðal annars hefði ver- ið lekið í Morgunblaðið. Í kjölfarið komu fram umræður um það hver hefði gefið „loforðið“ um óbreytt kjör Más, og neitaði þáverandi forsætis- ráðherra að hún hefði veitt nokkuð slíkt loforð. Kynnti sér launin sem voru í boði Þegar Már hugleiddi það að sækja um stöðu seðlabankastjóra í febrúar-mars 2009 vildi hann kynna sér launin sem í boði voru. Stjórnvöld höfðu þá ekki ákveðið enn hver þau ættu að vera, og kom í ljós degi áður en umsóknarfresturinn rann út að þau myndu nema um 1.575.000 krón- um, auk bifreiðar, sem Má þótti ásættanlegt. Babb kom hins vegar í bátinn þegar frum- varp Steingríms J. Sigfússonar, þáverandi fjár- málaráðherra, um kjararáð var lagt fram á Al- þingi 16. júní 2009, en í því var miðað við að enginn embættismaður ætti að hafa hærri laun en forsætisráðherra, og að kjararáð myndi eft- irleiðis ákvarða laun ýmissa embættismanna, og seðlabankastjóra þar á meðal. Már kannaði þá hjá Láru V. Júlíusdóttur, þáverandi formanni bankaráðs, hvort forsendur fyrir umsókn hans hefðu breyst. Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu- neytisstjóri forsætisráðuneytisins, tók að sér að vera milliliður á milli Más og Láru og hringdi í Má og kynnti þar fyrir honum laun upp á 1.478.000 krónur. Már gat sætt sig við það og var tekið við hann ráðningarviðtal sama dag. Var hann skipaður 26. júní 2009. Eftir að Már hafði verið ráðinn var lögum um Seðlabankann breytt að tillögu efnahags- og skattanefndar Alþingis og bætt inn í þau sér- ákvæði um að bankaráðið skyldi ákvarða rétt til biðlauna og eftirlauna og „önnur atriði sem varða fjárhagslega hagsmuni hans“. Í frétt Morgunblaðsins í maí 2010 sagði Helgi Hjörvar, þáverandi formaður efnahags- og skattanefnd- ar, að breytingin hefði annars vegar komið vegna „ábendingar frá kjararáði um þann þátt sem laut að eftirlaunum og biðlaunum og hins vegar að ósk forsætisráðuneytisins varðandi þann hluta er laut að fjárhagslegum hags- munum seðlabankastjóra“. Með breytingunni átti því að gera bankaráði kleift að efna sam- komulagið sem gert var við Má fyrir ráðningu hans. Í maí 2010 kom hins vegar að því að efna þurfti samkomulagið sem náðst hafði við Má. Í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn mánudag sagði Már að þá hefðu orðið miklar deilur í bankaráðinu og að meðal annars hefði verið lek- ið í Morgunblaðið. „Að lokum treysta hvorki bankinn né stjórnvöld sér til þess að efna sam- komulagið við mig,“ sagði Már. Fréttaflutningur Morgunblaðsins sem Már vísaði þarna til hófst mánudaginn 3. maí 2010, en þá var forsíðufrétt blaðsins sú að hækka ætti laun Más um 400 þúsund krónur. Spurt um loforðið Í fréttinni sagði Lára V. Júlíusdóttir að Má hefði verið lofað að hann gæti treyst því að launakjör hans giltu áfram. Hún vildi hins vegar ekki tjá sig um það hver hefði gefið Má það lof- orð. Böndin beindust fljótlega að forsætisráð- herra, sér í lagi þar sem ráðuneytisstjóri for- sætisráðuneytisins hafði verið milliliður um hver launin áttu að vera. Þá hafði samkvæmt heimildum blaðsins tillagan um launahækkun Más frá úrskurði kjararáðs verið kynnt í banka- ráðinu svo að verið væri að efna loforð sem for- sætisráðherra hefði gefið honum. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jó- hönnu Sigurðardóttir, þáverandi forsætisherra, hafnaði því í svari við fyrirspurn Morgunblaðs- ins og tók fram að Jóhanna hefði „engin loforð eða fyrirheit gefið um væntanleg launakjör Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, enda slíkt ekki á færi ráðherra“. Ítrekaði Jóhanna það á næstu dögum, meðal annars úr ræðustól Al- þingis, en þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust upplýsinga um það hver hefði gefið lof- orðið. Þá neitaði Jóhanna jafnframt að hún hefði haft samráð við formann bankaráðsins eða á nokkurn hátt komið að launamálum Más. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í efnahags- og skattanefnd kröfðust frekari svara, en varð lítt ágengt. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þá- verandi fulltrúi Samfylkingar í efnahags- og skattanefnd, sagði það sinn skilning á málinu að seðlabankastjóra hefði í ráðningarferli verið gefin „fyrirheit varðandi umrædd launakjör, fremur en loforð“. Enginn gekkst því við loforð- inu. Sjálfur sagði Már við Morgunblaðið í júní 2010: „Ég veit ekki hvort ég fékk loforð. Það voru nefndar við mig ákveðnar tölur sem mér skildist að yrði kannski reynt að fara eftir.“ Þessum anga launamálsins lauk svo að bankaráðið hætti við að hækka laun Más, svo sem fyrr var getið. Við tóku vangaveltur um gildistöku úrskurðar kjararáðs og að endingu kaus Már að fara dómstólaleiðina. Loforð, fyrirheit eða samkomulag?  Umfjöllun Morgunblaðsins 2010 um „loforð“ til Más kom í veg fyrir að samkomulag hans um óbreytt laun stæði  Þáverandi forsætisráðherra kannaðist ekki við að hafa gefið slíkt loforð Morgunblaðið/Árni Sæberg Seðlabankinn Enginn kannaðist við „loforðið“ og spurt var hvort um fyrirheit hefði verið að ræða. Lára V. Júlíusdóttir Jóhanna Sigurðardóttir Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.