Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
Tiltektardagar
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
20-40% afsláttur
af völdum garntegundum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum um allt land
Ný sending af
sundfatnaði
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
MARS
TILBOÐ
BASIC DRAGTIN
ALLTAF KLASSÍK
ALLTAF FLOTT
FRÁBÆR
GLÆSIDRAGT
JAFNT Í VEISLUNA
SEM VINNUNA
MÖRG SNIÐ
STÆRÐIR 36-48
laxdal.is
20%
AFSLÁTTUR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Opið málþing um Ísland á norð-
urslóðum verður haldið í ráð-
stefnusal Háskólans á Akureyri á
föstudag og stendur frá klukkan
8.30 til 16. Þingið er skipulagt af
Norðurslóðaneti Íslands, Norð-
urslóða-viðskiptaráðinu, Arctic
Services, Norðurslóðum Reykja-
ness hf., Samvinnunefnd um mál-
efni norðurslóða og Grænlensk-
íslenska viðskiptaráðinu og er lið-
ur í að efla samstarf og fjölþætta
umræðu um málefni norðurslóða meðal margvíslegra hagsmunaaðila.
Nánari upplýsingar ásamt dagskrá málþingsins og skráningarform er að
finna á vef Norðurslóðanets Íslands, www.nordurslodanetid.is.
Opið málþing um Ísland á norðurslóðum
Ísjakar Hafís við strönd Grænlands.
Morgunblaðið/Ómar
Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á fertugsaldri voru dæmd í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fólkið
var sakfellt fyrir fjársvik en þau blekktu starfsfólk IKEA til að afgreiða
nokkrar vörur án þess að þau greiddu fullt verð fyrir þær.
Fólkið var ákært fyrir fjársvik með því að hafa í sameiningu á tímabilinu
1. september til 30. september 2012, í alls fimm skipti, við kaup á vörum í
verslun IKEA í Kauptúni í Garðabæ blekkt starfsmenn við afgreiðslukassa
til að afgreiða nokkrar vörur án þess að þau greiddu fullt verð fyrir þær.
Fram kemur í ákæru að þau hafi komið fyrir eða nýtt sér að strikamerki af
ódýrari vöru, barnastól að verðmæti 3.490 kr., hafði verið komið fyrir á
umbúðum þeirra. Í framhaldi skiluðu ákærðu vörunum, án kvittunar, og
fengu inneignarnótu í versluninni upp á verðmæti þeirrar vöru sem skilað
var. Með þessum hætti fengu þau vörur, samtals að fjárhæð 269.750 kr.,
gegn greiðslu alls 17.450 kr.
Dæmd fyrir að svíkja IKEA
Lögreglan í
Borgarfirði leitar
nú innbrotsþjófa
sem brutust inn í
fimm sumar-
bústaði í landi Öl-
vers undir Hafn-
arfjalli. Tilkynnt
var um innbrotin
í fyrradag en vit-
að er að brotist
hefur verið inn í þá nýlega.
Ekki var miklu stolið en ein-
hverjar skemmdir unnar, svo sem
rúður brotnar og rótað í öllu.
Lögreglan í Borgarfirði biður alla
þá sem veitt geta upplýsingar um
innbrotin eða þá sem þarna voru á
ferð að hafa samband.
Brotist inn í fimm
bústaði í Borgarfirði
Innbrot Brotist var
inn í fimm bústaði.