Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 12

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 12
BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Landsvirkjun stendur nú frammi fyrir því að yfirstandandi vatnsár geti mögulega orðið jafn slæmt og hið síðasta, sem var næstversta vatnsár í sögu Landsvirkjunar vegna úrkomuleysis og kulda á há- lendinu síðasta vor og sumar. Af þeim sökum náðist ekki að fylla öll miðlunarlón Landsvirkjunar síðasta haust. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir aðstæðurnar í vatnsbúskapnum afar sérstæðar í ljósi þess hve tíðarfarið og inn- rennslið hefur lengi verið óhag- stætt. Þar áður hafi innrennsli í lónin verið óvenjumikið á tíu ára tímabili. Horfurnar í vatnsbúskapnum hafa hins vegar farið versnandi á undanförnum vikum þar sem innrennsli í Þórisvatn og Blöndulón hefur verið sögulega lítið. Tíðarfarið á hálendinu hefur haldið áfram að leika Landsvirkjun grátt, með ríkjandi norðaustanáttum, kulda og lítilli úrkomu á lykilsvæðum fyr- irtækisins. Horfa stíft á veðurfréttirnar „Síðasta vatnsár var eitt hið slak- asta í sögu fyrirtækisins en við komumst í gegnum það án skerð- ingar á raforku. En síðan hefur þetta ár einnig farið illa af stað, sér- staklega á Tungnaár- og Blöndu- svæðinu. Á Tungnaársvæðinu er innrennslið hið minnsta sem við höfum séð í 55 ára sögu þessara mælinga og í Blöndulóninu er þetta nálægt sögulegu lágmarki. Það er hins vegar of snemmt að spá um framhaldið. Hlutirnir geta breyst hratt og við höldum í vonina um að tíðarfarið á hálendinu verði okkur hagstæðara með meiri úrkomu og hlýindum. Við horfum stíft á veður- fréttirnar þessa dagana fyrir há- lendið, ekki fyrir Reykjavík,“ segir Hörður. Síðasta ár skar sig úr Í áætlunum Landsvirkjunar er miðað við sögulegar upplýsingar um rennsli síðustu 55 árin, að teknu til- liti til þeirra breytinga sem orðið hafa á veðurfari vegna hlýnunar loftslags. Undanfarin tíu ár hefur óvenjuhátt hlutfall ára verið með innrennsli ofan meðallags og aðeins eitt ár, þ.e. 2013, með rennsli langt undir meðallagi. Í fyrra var rennsli mjög nálægt lægstu spám og náðu hvorki Blöndulón né Þórisvatn að fyllast. Vegna lélegs vatnsbúskapar í miðlunarlónum hefur Landsvirkjun orðið að grípa til skerðingar á raf- orku til stóriðju og í heildsölu, í samræmi við gerða samninga. Áætl- anir hafa gert ráð fyrir að draga úr heild úr orkuafhendingu sem nemur 260 gígavattstundum, eða um 2% af orkuvinnslu Landsvirkjunar. Í ljósi aðstæðna nú er verið að endurmeta skerðingarþörfina en Hörður segir of snemmt að fullyrða hvort auka þurfi skerðinguna. „Það mun ráðast af því hvernig veðurfarið verður næstu vikurnar. Þrátt fyrir meiri úrkomu á hálendinu í marsmánuði er of stuttur tími liðinn til að fyllast bjartsýni.“ Tekjutap Landsvirkjunar vegna þessara skerðinga skiptir hundr- uðum milljóna króna og hið sama má segja um stærstu viðskiptavini fyrirtækisins. „Þetta hefur veruleg áhrif á báða aðila, við erum öll á sama báti hvað þetta varðar,“ segir Hörður. Samið um sveigjanleika Um 75% af allri raforkuvinnslu eru með vatnsafli, sem er háð af- rennsli af þeim vatnasviðum sem virkjanir Landsvirkjunar nýta. Rennslið er sveiflukennt, bæði á milli árstíða en einnig á milli ára. Eru miðlunarlónin nýtt til að jafna sveiflur innan ársins en samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun eru lónin ekki næganlega stór til að jafna sveiflur á milli ára. Þá er grip- ið til umsamins sveigjanleika í af- hendingu á orku og eru flestir við- skiptavinir Landsvirkjunar með slíka samninga. Þannig eru stórnot- endur eins og álverin með um 10% af sínum samningum sveigjanlega. „Í lokuðum vatnsorkukerfum leita menn leiða til að halda þokka- legri nýtingu. Þar af leiðandi semja menn annars vegar um trygga orku og hins vegar skerðanlega orku. Okkar viðskiptavinum er algjörlega ljóst á hvaða forsendum þeir kaupa orkuna. Við höfum fullan skilning á því óhagræði sem þessar skerð- ingar hafa í för með sér,“ segir Hörður Aðspurður hvort þessi óvissa í af- hendingaröryggi geti ekki haft áhrif á viðræður við nýja orkukaupendur vonast Hörður til að svo verði ekki. Landsvirkjun vilji líta svo á að um einstaka atburði sé að ræða, sem haldist ekki til eilífðarnóns. Auðveldara með sæstreng Landsvirkjun hefur sem kunnugt er skoðað möguleika á lagningu sæ- strengs milli Íslands og Evrópu. Hörður segir að með slíkum streng væri auðveldara að takast á við það tíðarfar sem ríkt hefur undanfarið. Í góðum vatnsárum sé að sama skapi hægt að nýta sér þá orku sem ekki sé möguleiki á í dag. Stefnir aftur í slæmt vatnsár  Úrkomuleysi og kuldi á hálendinu leikur Landsvirkjun grátt  Versnandi horfur í vatnsbúskap  Innrennslið á Tungnaársvæðinu ekki minna í 55 ár  Endurmeta þörf á skerðingar á raforku Morgunblaðið/Einar Falur Miðlunarlón Blöndulón á Auðkúluheiði í ágætu horfi fyrir nokkrum árum. Innrennslið í lónið á síðasta ári var hins vegar nálægt sögulegu lágmarki. Miðlunarforði Landsvirkjunar Ámyndinni má sjá stöðu miðlunarforða Landsvirkjunar það sem af er vetri (rauð lína) í samanburði við þróun miðlunarforðans á síðasta ári (brotin lína). Í bakgrunni er spá sem var gerð 1. október 2013 ummögulega þróun miðlunarstöðu út frá sögulegu innrennsli í lónin frá 1950. Þau eru flokkuð í þurr ár, meðalár og blaut ár. Fo rð iG W h Blautt Meðal Þurrt Miðgildi 2012-13 Staðan nú 5.500 5.000 4.500 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2013 2014 okt. nóv. jan. mars maí júlí sept. nóv.des. feb. apr. júní ág. okt. des. Innrennsli til virkjana Landsvirkjunar G W st * Miðað við að rennsli það sem eftir lifi árs sé í samræmi við rennsli það sem af er ári. 20.000 19.000 18.000 17.000 16.000 15.000 14.000 13.000 12.000 19 91 /1 99 2 19 92 /1 99 3 19 96 /1 99 7 20 00 /2 00 1 20 04 /2 00 5 20 08 /2 00 9 20 12 /2 01 3 19 94 /1 99 5 19 98 /1 99 9 20 02 /2 00 3 20 06 /2 00 7 20 10 /2 01 1 19 93 /1 99 4 19 97 /1 99 8 20 01 /2 00 2 20 05 /2 00 6 20 09 /2 01 0 20 13 /2 01 4* 19 95 /1 99 6 19 99 /2 00 0 20 03 /2 00 4 20 07 /2 00 8 20 11 /2 01 2 Hörður Arnarson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Um miðjan janúar sl. tilkynnti Landsvirkjun stórnotendum raf- orku að vegna lélegs vatnsbú- skapar gæti þurft að grípa til skerðingar á raforku. Í lok febr- úar var síðan tilkynnt um tíma- bundna en jafnframt samnings- bundna skerðingu á skerðan- legri raforku til stórnotenda, sem kaupa orkuna í heildsölu. Um var að ræða HS Orku, Raf- veitu Reyðarfjarðar, Orkubú Vestfjarða og Orkusöluna. Álver Alcoa og Rio Tinto Alcan hafa fengið að kenna á skerðingunni, auk Elkem og Becromal. Áhrif á stór- notendur SKERÐING RAFORKU Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.