Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höfum ekki séð jafn mikinn snjó á Há-
reksstaðaleið frá því nýi vegurinn var opnaður
um 2000. Það er eiginlega samfelldur skafl frá
Skjöldólfsstaðahnjúk og þangað til fer að sjá í
Möðrudal, alls um 40 kílómetrar,“ segir Magn-
ús Jóhannsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni í
Fellabæ. Hann stjórnar snjóruðningi á hluta
fjallveganna á milli Austurlands og Norður-
lands. Sömu sögu má segja um veginn niður í
Vopnafjörð og þar má bæta 20-25 kílómetrum
við.
Snjógöngin á þessari leið eru frá því að vera
einn metri og upp í tvo
metra á dýpt. Telur Magn-
ús að meðaltalið geti verið
um hálfur annar metri.
Ekki er nóg með að
snjórinn sé mikill heldur
hefur veður verið snjóruðn-
ingsmönnum afar óhag-
stætt. „Við höfum aldrei
fengið frið til að moka al-
mennilega. Alltaf hálf-
gerður bylur hluta úr deg-
inum eða allan daginn,“ segir Magnús. Hann
segir að austan- eða norðaustanhátt hafi ríkt
frá því fyrir jól.
Þegar tækin þurfa að moka á hægri ferð
þeytist snjórinn ekki nógu langt út fyrir veg og
hleðst upp í ruðninga.
Mikil vinna bíður vegagerðarmanna. Þeir
þurfa að moka upp vegstikurnar eða setja nýj-
ar á löngum köflum. Svo þarf að blása burt
snjónum til að lækka gangaveggina og draga
úr líkum á að göngin fyllist jafnóðum og mokað
er. „Við notum þá klukkutíma eða daga sem
við fáum frið til að laga þetta. Annars heyrist
mér að hann spái norðan- og norðaustanátt
næstu daga og smá úrkomu og þá verður
áframhaldandi skafrenningur á heiðum,“ segir
Magnús.
Vegagerðin ákvað á dögunum að draga úr
snjómokstri á veginum á milli Mývatnssveitar
og Jökuldals og niður í Vopnafjörð, vegna erf-
iðleika við snjómoksturinn. Nú er mokað alla
daga, eftir því sem veður leyfir.
Magnús var á Fjarðarheiði í gær, á milli
Seyðisfjarðar og Héraðs. Þar er mikill snjór.
Magnús segir að snjórinn liggi þétt yfir öllu,
hvergi sjáist í gil eða ójöfnur. „Eina gilið sem
sést er vegurinn og þangað fýkur snjórinn af
þessum stóru sléttum,“ segir hann. Snjógöng-
in á Fjarðarheiði eru orðin um þriggja metra
djúp og liggja alla leiðina yfir heiðina. „Stund-
um sér maður ekki tilganginn í því að moka
þegar allt er orðið fullt daginn eftir en þetta
verður að gera, fólkið þarf þessa þjónustu.“
Ljósmynd/Örlygur Svavarsson
Háreksstaðaleið Endalaus vinna er hjá snjóruðningsmönnum á fjallvegum á milli Norðurlands og Austurlands. Þeir hafa lítinn frið haft fyrir veðri alveg frá því fyrir jól.
60 kílómetra samfelld snjógöng
Meiri snjór á Háreksstaðaleið en sést hefur frá því vegur var lagður Ekki hefst undan að laga til
Magnús
Jóhannsson
Kínverski stórmeistarinn Li Chao
varð hlutskarpastur á skákmótinu
Reykjavík Open 2014 sem lauk í
gærkvöldi. Hann hlaut 8,5 vinn-
inga. Helgi Ólafsson stórmeistari
stóð sig með miklum glæsibrag
og endaði í 2.-5. sæti með 8 vinn-
inga ásamt þeim Robin Van Kam-
pen frá Hollandi, Kanadamann-
inum Eric Hansen og Eduardas
Rozentalis frá Litháen.
Chao fékk í sinn hlut 5 þúsund
evrur sem jafngilda rúmum 780
þúsund krónum en heildar-
verðlaunafé á mótinu var 15 þús-
und evrur eða sem nemur rúmum
2,3 milljónum króna.
Gunnar Björnsson, forseti
Skáksambandsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
mótið hefði heppnast með ein-
dæmum vel og að mótshaldarar
væru himinlifandi með útkomuna.
Þetta var 50. Reykjavíkurskák-
mótið. Aldrei hafa fleiri tekið
þátt en á mótið komu rúmlega
260 keppendur frá um 45 löndum.
vidar@mbl.is
Chao vann og
Helgi í 2.-5. sæti
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Verðlaunaafhending Li Chao, fyrir miðju, varð hlutskarpastur á mótinu.
Norðmenn og Færeyingar hafa náð
samkomulagi við Evrópusambandið
um lausn á makríldeilu þjóðanna. Ís-
lendingar eiga ekki aðild að samn-
ingnum sem undirritaður var í Lond-
on í gærkvöldi.
Samkomulagið felur í sér að Evr-
ópusambandsríkin fá að veiða 611
þúsund tonn úr stofninum (49,4%),
Noregur 279 þúsund tonn (22,5%) og
Færeyingar 156 þúsund tonn (12,6%).
Þetta er veruleg aukning fyrir Fær-
eyinga, en talsverð minnkun fyrir
ESB og Noreg. Þá mun gert ráð fyrir
að Íslendingar og Rússar fái kvóta
upp á samtals 193 þúsund tonn
(15,6%). Virðist sem hlutur Rússa
gæti orðið um 42 þúsund tonn, sem
þýðir að um 150 þúsund eru ætluð Ís-
lendingum.
Ekki komið hreint fram
Tíðindin um samkomulagið komu
íslenskum ráðamönnum og embætt-
ismönnum mjög á óvart þegar þau
bárust hingað síðdegis í gær. „Við er-
um ennþá að reyna að kynna okkur
þetta betur og fá einhver svör. En
eins og þetta lítur út þá eru þetta vit-
anlega mikil vonbrigði. Við teygðum
okkur mjög langt og töldum að við
hefðum verið komin með skilning hjá
Evrópusambandinu hvernig hægt
væri að lenda málum. Þannig að það
eru vonbrigði að þeir skuli fara svona
fram hjá okkur,“ sagði Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra í samtali
við mbl.is í gærkvöldi.
„Menn hafa verið að reyna alveg
fram á síðasta dag að ná einhverri
heildrænni sátt, en það virðist hafa
verið unnið að þessu einhvers staðar á
bak við tjöldin, fjarri okkur,“ sagði
Gunnar. „Okkur líkar ekki að Evr-
ópusambandið hafi ekki komið hreint
fram við okkur – og auðvitað líkar
okkur ekki heldur að Færeyingar
skuli taka þátt í þessu, þar sem við
höfum verið miklir bandamenn í
þessu öllu saman,“ bætti hann við.
Þá sagði Gunnar, að miðað við þær
tölur sem liggi á borðinu þá virðist
sem svo að Norðmenn, Færeyingar
og ESB taki til sín allan makrílkvót-
ann. „Og skilja ekkert eftir handa
okkur. Við höfum lagt áherslu á að
menn myndu virða vísindin í þessu.
Miða nýtingu allra út frá vísindun-
um,“ sagði hann.
Maria Damanaki, sjávarútvegs-
stjóri ESB, segir að dyrnar standi
enn opnar fyrir Ísland að koma að
samkomulaginu í nánustu framtíð.
Spurður út í það segir Gunnar: „Mitt
mat í dag er að þetta sé einskis virði
miðað við þá framkomu sem við höf-
um séð. En auðvitað kann að vera að
það sé eitthvað í þessari yfirlýsingu
sem þarf að skýra betur – þannig að
við sjáum til. Við munum nota kvöldið
í kvöld og morgundaginn til þess að
meta þetta,“ sagði ráðherra að lokum.
Vekur margar spurningar
„Þetta eru forkastanleg vinnu-
brögð,“ sagði Kolbeinn Árnason,
framkvæmdastjóri LÍÚ, sem tekið
hefur þátt í samningaviðræðunum af
Íslands hálfu. Hann sagði að tölur um
kvótaskiptinguna vektu margar
spurningar sem fá yrði svör við.
Hvorki Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra né Sigurgeir
Þorgeirsson, aðalsamningamaður Ís-
lands, vildu tjá sig um málið í gær-
kvöldi.
Utanríkismálanefnd kemur saman
til fundar í dag til að fjalla um samn-
inginn. gudmundur@mbl.is
ESB samdi óvænt við
Noreg og Færeyjar
„Unnið á bak við tjöldin,“ segir utanríkisráðherra
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Makríll Samkomulag án þátttöku
Íslendinga skapar nýja stöðu.