Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 21
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og um 95% barna á aldrinum 2-5 ára sækja leikskóla og hefur það hlutfall aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Hlutverk leikskólans hefur breyst mikið á undanförnum árum, ekki síst eftir að hann var skilgreindur sem fyrsta skólastigið. Árið 2012 voru um 2.000 börn á fyrsta og öðru ári hjá dagforeldrum, flest sveitarfélög niðurgreiða dvalargjaldið en misjafnt er hversu mikið. LEIKSKÓLAR OG ÞJÓNUSTAVIÐ BÖRN lagaákvæði þyrftu leikskólakennarar að vera tvöfalt fleiri. Karlar um 7% starfsmanna Undanfarin ár hefur dregið mjög úr aðsókn í leikskólakennaranám, t.d. útskrifuðust 24 úr því námi í fyrra. Allt voru það konur. Í skýrslu til eflingar leikskóla- stigsins sem kom út fyrir rúmu ári segir að of fáir líti á námið sem raun- verulegan valkost. Lenging námsins úr þremur árum í fimm árið 2011 er einnig nefnt sem líkleg ástæða þess að sífellt færri velja þetta nám. 356 karlar störfuðu á leikskólum landsins árið 2012, eða um 7% alls starfsfólks leikskólanna. Reyndar hefur hlutfall karla aukist nokkuð undanfarin ár, en árið 1998 var það 2%. Karlar eru 3% félagsmanna í Fé- lagi leikskólakennara, en sumir þeirra eru með aðra háskólamenntun og þegar einungis eru skoðaðir þeir sem eru með leikskólakennara- menntun, þá eru karlar 1% félags- manna. Snýst um að mennta börnin Ýmsar skýringar hafa verið nefnd- ar á þessum kynjamun, m.a. lág laun og viðhorf til starfsins. Farið hefur verið út í ýmiskonar átök og kynningar til að fjölga körl- um í stéttinni, en það hefur lítinn árangur borið. „Það er erfitt að svara því hvers vegna árangurinn hefur ekki verið meiri. En karlar eru reyndar miklu færri en konur í öllum kennarastéttum, þetta er ekki ein- skorðað við leikskólann,“ segir Har- aldur Freyr Gíslason, formaður Fé- lags leikskólakennara. Hann segir að á næstu vikum verði farið í kynn- ingarátak, þar sem starf leikskóla- kennara verður kynnt. Að því standa ýmsir hagsmunaaðilar; Samband ís- lenskra sveitarfélaga, háskólar, Fé- lag leikskólakennara og fleiri. Haraldur segir að fjölgun leik- skólakennara af báðum kynjum sé ekki einkamál stéttarinnar, heldur hagsmunamál samfélagsins alls. „Þetta snýst um að mennta börnin sem best. Við viljum standa okkur vel í könnunun á borð við Pisa. Ef við ætlum að gera það, þá er einn liður í því að tryggja fjölgun leikskólakenn- ara, því í leikskólanum er grunn- urinn lagður.“ Nú er tækifærið Kjarasamningar Félags leikskóla- kennara við Samband íslenskra sveitarfélaga renna út í lok apríl og hófust kjaraviðræður í þessari viku. „Við höfum margoft sagt að skilvirk- asta leiðin til að fjölga í stéttinni sé að við verðum samkeppnisfær í laun- um við aðra sérfræðinga. Það er stærsti þátturinn í því að fá fleiri í starfið, að okkar mati. Við sem sam- félag verðum að taka okkur tak og hætta að tala um þetta, við verðum að fara að gera eitthvað. Við getum endalaust setið á fundum og röflað um þetta. Núna eru kjarasamningar að losna og nú er tækifærið til að fjölga leikskólakennurum,“ segir Haraldur. Stór skref þarf að stíga Spurður um út frá hverju verði gengið í kjaraviðræðunum segist Haraldur ekki vilja nefna neinar töl- ur. Eru kröfurnar svipaðar þeim sem Félag framhaldsskólakennara setur fram? „Ég er ekki tilbúinn til að nefna neinar tölur á þessu stigi, en það er ljóst að það þarf að stíga veru- lega stór skref eigi að leiðrétta laun leikskólakennara til samræmis við aðra sérfræðinga.“ Haraldur Freyr Gíslason MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Sveitarfélögin gegna mikilvægu hlutverki í barnaverndarmálum, en í barnaverndar- lögum segir að á vegum sveitarfélaga skuli starfa barnaverndarnefndir. Árið 2012 voru útgjöld sveitarfélaganna um 1,9 milljarðar króna vegna þjónustu við börn og unglinga. Hún tekur til útgjalda vegna barnavernd- arnefnda og útgjalda vegna vistunar og fósturs barna og ungmenna utan heimilis. Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Barnaverndarstofa fara með yfirstjórn barnaverndar og sinna eftirlitshlutverki með barnaverndarnefndum sveitarfélaga, en á landinu starfa 27 barnaverndarnefndir. Þær starfa sjálfstætt og er sveitarstjórnum óheimilt að gefa barnaverndarnefndum fyr- irmæli um meðferð einstakra barnavernd- armála. Fjölbreytt úrræði Barnaverndarnefndir hafa eftirlit með aðbúnaði, hátterni og uppeldisskilyrðum barna og meta þarfir þeirra barna sem ætla megi að þurfi á úrræðum laganna að halda. Úrræðin eru fjölbreytt og geta bæði verið innan heimilis barnanna og utan. Þegar barnaverndarnefnd fær tilkynn- ingu um óviðunandi aðstæður barns ber henni, eigi síðar en innan sjö daga, að kanna hvort ástæða sé til að taka málið til könn- unar. Tilkynnt vegna 7.000 barna Á síðasta ári bárust barnaverndar- nefndum á landinu rúmlega 8.600 tilkynn- ingar vegna rúmlega 7.000 barna. Flestar voru þær vegna áhættuhegðunar barna og næstalgengasta ástæðan var vanræksla. Ofbeldi var ástæðan í rúmlega fjórðungi til- vika. Tilkynningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart stúlkum voru tvöfalt algengari en gagnvart drengjum, en slík mál sem vörð- uðu stúlkur voru 387, en mál drengja 190. Áhættuhegðun drengja algengari Áhættuhegðun er næstum því tvöfalt al- gengari meðal drengja og þá voru tilkynn- ingar sem vörðuðu afbrot barna talsvert al- gengari hvað drengi varðaði, eða 785 á móti 250 slíkum tilkynningum sem vörðuðu stúlkur. Einnig var talsvert algengara að tilkynnt væri að drengir beittu ofbeldi en stúlkur. Algengast var að tilkynningar bær- ust frá lögreglu, en einnig bárust margar frá skólum og nágrönnum. Foreldrar barnsins tilkynntu í um 9% tilvika. Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda 2013 skipt eftir kynjum Ekki vitað (tilkynningar vegna ófæddra barna) 56 (0,7%) Samtals 8.610 Drengir 4.705 (54,6%) Stúlkur 3.849 (44,7%) Heimild: Barnaverndarstofa Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda 2013 eftir landsvæðum Samtals 8.610 Heimild: Barnaverndarstofa Höfuðborgarsvæðið 5.924 (68,8%) Landsbyggðin 2.686 (31,2%) 27 barnaverndar- nefndir á landinu  Barnaverndarmál kosta 2 milljarða árlega  Árið 2012 störfuðu 465 við daggæslu í heimahúsum víðs veg- ar um landið, 433 konur og 32 karlar. Þetta fólk gætti 1.945 barna, flest voru þau eins árs eða yngri. Rúm 5% barna á fyrsta ári voru í dagvistun á einkaheimili og tæplega 37% eins árs barna. Meirihluti barnanna, rúm 84%, dvaldi í átta stundir eða lengur. Daggæsla í heimahúsum er hluti af félagsþjónustu sveitar- félaganna. Yfirstjórn málaflokksins er á höndum velferðar- ráðherra en félagsmálanefndir sveitarfélaganna bera ábyrgð á umsjón og eftirliti með starfsemi dagforeldra í hverju sveitar- félagi fyrir sig. Auk þess veita nefndirnar leyfi til daggæslu barna í heimahúsum. Um daggæslu gildir reglugerð og þurfa dagforeldrar að upp- fylla tiltekin skilyrði hennar til að hljóta leyfi frá félagsmála- nefnd. Leyfið er m.a. háð því að viðkomandi sé orðin/n 20 ára og þarf að leggja fram læknis- og sakavottorð. Hámarksdvalartími barns í daggæslu eru níu tímar og ekki mega vera fleiri en fimm börn í einu hjá hverju dagforeldri. Mismikil niðurgreiðsla Í flestum tilvikum niðurgreiða sveitarfélög daggjöld vegna barnanna, en mismunandi reglur gilda hjá sveitarfélögum um til- högun niðurgreiðslanna. Flest sveitarfélög niðurgreiða gæslu dvelji barn hjá dagforeldri minnst fjórar upp í átta klukkustundir daglega og sums staðar er niðurgreiðsla vegna barna einstæðra eða tekjulágra foreldra hærri en til annarra foreldra. Hámarksniðurgreiðsla til giftra foreldra var skoðuð í nokkum af stærri sveitarfélögum landsins. Í Reykjanesbæ er hún 35.000, í Árborg 25.000, í Kópavogi 43.650, í Reykjavík 47.479, í Hafn- arfirði 45.000, á Akureyri 47.798, í Fljótsdalshéraði 38.700 og á Akranesi 40.000. Upplýsingarnar fengust af vefsíðum viðkomandi sveitarfélaga. Í þessu sambandi ber að geta þess að engin samræmd gjald- skrá er hjá dagforeldrum, þannig að niðurgreiðsla sveitar- félagsins veitir ekki vísbendingu um hversu mikið foreldrar þurfa að greiða fyrir gæsluna. Morgunblaðið/ÞÖK 465 dagforeldrar pössuðu 1.945 börn í heimahúsum VELDU VIÐHALDSFRÍTT Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700 • Barnalæsing • Mikil einangrun • CE vottuð framleiðsla • Sérsmíði eftir málum • Glerjað að innan • Áratuga ending • Næturöndun PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.