Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýlegar þing-kosningar íNorður- Kóreu hafa vakið athygli fyrir þá sök að leiðtoginn mikli, Kim Jong-Un, náði þeim árangri að allir á kjör- skránni í hans kjördæmi mættu á kjörstað og allir ákváðu að kjósa hann. Lýðræðið í Norður- Kóreu er enda eins og allir vita miklu betra en „ófullkomna lýð- ræðið“ á Vesturlöndum, sem Sovétmönnum og aðdáendum þeirra hérlendis sem erlendis varð svo tíðrætt um í gamla daga. Kim slær þó líklega ekki við Stalín, sem mun hafa náð því eitt sinn að fá rúmlega 120% kjörsókn, þar sem fólk í ná- grannasveitarfélögum flykktist yfir kjördæmamörkin til að sýna honum stuðning sinn. Því er þetta rifjað upp að ætl- unin er að íbúar Krímskagans greiði um það atkvæði á sunnu- daginn hvort skaginn muni til- heyra Rússlandi eða ekki. Stundum kann að eiga við að reynt sé á sjálfsákvörðunarrétt þjóða eða þjóðabrota með þeim hætti, líkt og mun gerast í Skot- landi síðar á árinu og hugs- anlega í Katalóníu einhvern tím- ann eftir það. En aðstæður þar eru aðrar en á Krímskaganum, þar sem rússneskt herlið fer sínu fram í óleyfi og mun óhjá- kvæmilega hafa áhrif á kosning- arnar. Og raunar mun það varla skipta máli, því að spurningin sem íbúum skagans er gert að svara er sú hvort ganga eigi til liðs við Rússland, eða hvort stjórnar- skráin frá 1992 taki aftur gildi. Það er hentugt, því að í þeirri stjórnarskrá fær þing Krímskagans völd til þess að ákveða það fyrir hinn almenna kjósanda hvar skaginn eigi heima. Spurningin er því í raun hvort Krímverja langi til þess að ganga til liðs við Rússland núna eða eftir nokkrar vikur. Líklegra verður þó að teljast að slíkar hundakúnstir muni ekki þurfa, þar sem meirihluti þeirra sem búa á Krímskaganum mun vera af rússnesku bergi brotinn. Sá meirihluti fékkst á Sovéttímanum með miklum nauðungarflutningum á töturum út og samsvarandi flutningi á Rússum inn. Slíkir flutningar voru ekkert einsdæmi, og má því finna rússneskumælandi fólk víða um þau lönd sem áður mynduðu Sovétríkin. Það er því áleitin spurning hvort fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur í boði rússneskrar herverndar verði haldnar á næstu árum. Jósef gamli, sá sami og flutti tatarana nauðungarflutningum, mun hafa sagt eitt sinn að þeir sem greiddu atkvæði skiptu litlu máli samanborið við þá sem teldu atkvæðin. Það væri því ekki úr takti við annað ef gam- alreyndir talningamenn frá Moskvu yrðu fengnir í það veiga- mikla hlutverk að fara yfir at- kvæði Krímverja. Atkvæðagreiðslur verða að fara fram eftir réttum leik- reglum} Talning atkvæðanna getur ráðið úrslitum Nú étur hverþingmaðurinn upp eftir öðrum að ekkert liggi á að af- greiða formsatriðið um að hverfa frá að- lögunarviðræðunum við ESB. Virðast þeir hinir sömu vera að fiska eftir klappi á koll frá þing- bræðrum í Samfylkingu, flokkn- um sem beið sögulegt afhroð með þetta mál, ekki bara á odd- inum í seinustu kosningum, heldur sem pólitískan einstæð- ing í farteski flokksins. Stjórn- arandstaðan hefur flutt yfir 400 ræður um „fundarstjórn“ for- seta. Forseti Alþingis, sem ætl- ar að rísa undir embætti sínu, þarf hvorki að láta slíka niður- lægingu ganga yfir sjálfan sig né þingið. Hann getur hvenær sem er stöðvað slíka misnotkun af áður óþekktu tagi og séð um að þingið fái að hefja efnis- umræður um það mál sem er á dagskrá. Tveir stjórnlagaprófessorar hafa nýlega bent á hið alkunna, að hvorki þing- heimur né ríkis- stjórn séu bundin af þingsályktunar- tillögu frá kjör- tímabilinu á undan. Frekast hlýtur það að eiga við tillögu sem var byggð á blekk- ingum þar sem atkvæðaskýr- ingar báru með sér að þingmenn andsnúnir tillögunni greiddu at- kvæði með henni. Seinustu kosningar gerðu út um þetta mál. En hin milda ríkisstjórn sem nú situr í landinu ákvað engu að síður að gefa þingheimi færi á að ræða það mál efnis- lega. Minnihlutinn þar hefur ekki aðeins sýnt heldur beinlínis æpt að hann vill ekki efnislegar um- ræður. Þá það. Ríkisstjórnin hlýtur þá að tilkynna, að í sam- ræmi við vilja kjósenda í síðustu kosningum, meirihlutavilja þings og þjóðar, sé aðildar- umsókn, sem hafnað var að bera undir þjóðina, formlega aftur- kölluð. Það felst í því að vera í stjórn að menn séu það} Seinni hluti orðsins ríkisstjórn má ekki missa merkingu Á Austurvelli síðastliðinn laugar- dag var í fjölmennum hópi mót- mælenda eldri maður sem sagð- ist hafa gengið í Sjálfstæðis- flokkinn á þeim tíma er Ólafur Thors var formaður og hefði verið þar síðan. „Þetta er fyrsti mótmælafundur minn á æv- inni,“ sagði þessi vinalegi eldri maður sem hefur örugglega séð margt og mikið um sína daga, en aldrei séð ástæðu til að mótmæla fyrr en nú. Stjórnmálaflokkur sem kallar yfir sig vanþóknun slíks flokksmanns þarf að líta í eigin barm og íhuga hvað hafi farið úrskeiðis. Ekki ætti nú að taka ýkja langan tíma að koma auga á það, svo fremi menn hafi til að bera skynsemi og skarpsýni. Ríkisstjórnin hefur vakið upp mótmæla- og reiðiöldu með aðgerðum sínum í Evrópu- málum sem einkennst hafa af einkar vondri blöndu af of- forsi og vitleysisgangi. Fólki finnst hafa verið logið að sér og telur sig hafa verið svikið. Það getur ekki verið að stjórnarherrarnir hafi vitað hvað þeir voru að gera. Eng- inn stjórnmálamaður kemur sér vitandi vits í vandræði eins og þau sem ríkisstjórnin er nú í. Ríkisstjórnin, illa sködduð af eigin völdum, reynir nú að lágmarka skaðann. Það verður ekki auðvelt verk því ímynd hennar er löskuð og tortryggnisfræjum hefur ver- ið sáð í hjörtu fjölmargra landsmanna. Þegar forsætis- ráðherra og fjármálaráðherra bundust böndum og boð- uðu fæðingu nýrrar ríkisstjórnar voru skilaboðin til þjóðarinnar þau að nú ætti að vinna bug á sundurlyndisfjandanum sem þjóðin hefur á köflum daðrað blygðunarlaust við. Þarna hef- ur ríkisstjórnin gengið þvert á orð sín og virð- ist fremur leitast við að efla sundurlyndið en eyða því. Slík ríkisstjórn er ekki að ganga til góðs götuna fram á veg. Ríkisstjórnin hefur nóg að glíma við þó að hún sé ekki að baka sjálfri sér óþarfa vand- ræði. Hér á landi eru gjaldeyrishöft, matar- verð er hátt og skattpíning mikil. Ríkis- stjórnin þarf að vinna að því að koma skikki á þessi mál og er það ærinn starfi. Skuldavandi heimilanna er svo enn óleystur og í þeim mál- um var miklu lofað. Ef lítið verður um efndir er hætt við að óánægja kjósenda gjósi upp á þann hátt að mótmælin vegna offorsins í Evr- ópumálum verði eins og barnahjal í sam- anburði. Sú var tíð að litið var á kosningaloforð stjórnmála- manna sem skemmtilega en ekki sérlega marktæka frasa, svona rétt eins og loforð um ísbjörn í Húsdýra- garðinn. Fólk átti ekkert sérstaklega von á því að kosn- ingaloforð yrðu efnd og því varð engin ólga í þjóðfélaginu þegar þau voru ekki uppfyllt. Þeir tímar eru að baki. Stjórnmálamenn geta syrgt liðna tíð en munu hins vegar ekki geta breytt því að kjósendur gera nú sterkari kröfu en nokkru sinni fyrr um að staðið sé við það sem lofað var. Sé það ekki gert eru kjósendur reiðubúnir að refsa stjórnmálaflokkum allrösklega. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Sjálfskaparvíti ríkisstjórnarinnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Réttarhöld yfir þýsku knatt-spyrnugoðsögninni UliHoeneß hófust í Münchení byrjun þessarar viku en hann er ákærður fyrir að hafa svikið milljónir evra undan skatti með því að halda leynilegan svissneskan bankareikning. Saksóknarar hafa farið fram á sjö ára fangelsisdóm yf- ir honum. Hinn 62 ára gamli Hoeneß er forseti Bayern München og þjóð- hetja jafnt í Bæjaralandi sem í Þýskalandi fyrir afrek sín innan og utan knattspyrnuvallarins. Með þýska landsliðinu varð hann Evr- ópumeistari árið 1972 og heims- meistari tveimur árum síðar. Sem forseti hefur hann gert Bayern eitt stöndugasta lið heims, bæði fjár- hagslega og knattspyrnulega. Fékk upphringingu við hlið Merkel Fyrst tók að falla á ímynd Hoe- neß í apríl í fyrra þegar fjölmiðlar sögðu frá fjármálamisferli hans. Sjálfur segist hann hafa ætlað að gera hreint fyrir sínum dyrum, áður en fjölmiðlar fengu pata af málinu, og fá þannig sakaruppgjöf gegn því að hann endurgreiddi skattinn með vöxtum. Saksóknarar segja hins vegar að Hoeneß hafi ekki gefið sig fram fyrr en eftir að hann hafði fengið veður af því að verið væri að rann- saka mál hans. Komið hafi í ljós að svissneski bankinn Vontobel hafi varað hann við því að fjölmiðlar væru að spyrjast fyrir um fjármál hans í janúar 2013. Sé það rétt eigi hann ekki rétt á sakaruppgjöf. Það er til marks um stöðu Hoe- neß í þýsku samfélagi að hann sat að snæðingi með Angelu Merkel, kansl- ara, þegar starfsmaður bankans hringdi og lét hann vita af því að mál hans kynni að rata í fjölmiðla. Viðurkenndi enn meiri svik Hoeneß er ákærður fyrir að svíkja jafnvirði rúms hálfs milljarðs króna undan skatti með því að upp- lýsa þýsk skattayfirvöld ekki um tekjur að jafnvirði um 5,2 milljarða króna sem hann geymdi á banka- reikningi í svissneska bankanum. Um var að ræða fjármuni úr við- skiptum hans á gjaldeyrismarkaði á árunum 2001 til 2010. Þegar mál hans var svo tekið fyrir á mánudag upplýsti lögmaður Hoeneß að hann hefði svikið enn meira undan skatti en kemur fram í ákærunni á hendur honum. Alls hefði hann haft jafnvirði um 2,9 milljarða króna af samlöndum sín- um. „Ég er feginn að nú sé allt gegnsætt og fyrir opnum tjöldum. Ég sé innilega eftir misgjörðum mínum. Ég mun gera allt til þess að binda enda á þennan erfiða kafla,“ sagði Hoeneß þegar hann bar vitni. Ekki er þó víst að iðrunin ein dugi til að forða honum frá fangels- isvist enda voru orð hans hrakin af embættismanni skattsins á þriðju- dag. Hann sagði upphæðina sem Hoeneß stakk undan hafa verið um 4,2 milljarðar króna. Verjendur hans báru ekki brigður á þá tölu. Þá kom í ljós að Hoeneß hélt brotum sínum leyndum í meira en ár. Sjálfur hafði hann sagt að honum hefði ekki verið fært að afhenda all- ar bankaupplýsingar sínar fyrr en tveimur vikum áður en réttarhöldin hófust. Rannsókn á gögnunum leiddi hins vegar í ljós að Hoeneß hafði fengið þau afhent frá bankanum þegar í janúar í fyrra. Dómur verður kveðinn upp í dag ef ekki verður óskað eftir að leggja fram frekari gögn. Sjálfsmark fótbolta- hetju fyrir dómstóli AFP Ákærður Hoeneß gengur í réttarsalinn í München. Hann bauðst til að hætta sem forseti Bayern í fyrra vegna málsins en stjórnin hafnaði því boði. Þýsk skatt- yfirvöld hafa skorið upp herör gegn auðkýfingum sem reyna að víkja sér und- an því að greiða skatt. Frægt varð þegar þýsk yf- irvöld greiddu fyrir upplýsingar um svissneska bankareikninga Þjóðverja sem talið er að hafi afl- að fjár með ólöglegum hætti. Þær upplýsingar og loforð um sakauppgjöf til þeirra sem gefa sig sjálfviljugir fram hafa verið notuð óspart til að hafa hendur í hári skattsvikara. Þessar aðferðir, auk málaferla gegn þekktum mönnum eins og Hoeneß og fleirum, hafa leitt til þess að þúsundir manna hafa gefið sig fram við skattyfirvöld og fengið að endurgreiða það sem þeim ber til skattsins. Herferð gegn skattsvikum SKATTYFIRVÖLD Aðdáandi Bayern með andlit Hoeneß á treflinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.