Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 25

Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Grámóskulegir í snjómuggunni Engu var líkara en að gráu klárarnir sem nöguðu sinuna við rætur fjallsins rynnu saman við gráa, bláa og gulbrúna litatóna náttúrunnar. RAX Íslensk heilbrigðisþjónusta er um margt afar góð og skorar jafnan hátt í alþjóðlegum sam- anburði. Engu að síður eru ýms- ar brotalamir sem þarf að bæta, sóknarfæri sem þarf að nýta og úrbætur sem eru nauðsynlegar til að takast á við margvíslegar áskoranir sem snúa að heilbrigð- iskerfinu í nútíð og framtíð. Við verðum líka að horfast í augu við þá staðreynd að útgjöld til heil- brigðismála fara ört vaxandi hér og alls staðar í hinum vestræna heimi. Spár OECD gera ráð fyrir að útgjöld til heilbrigð- isþjónustu muni margfaldast á næstu áratug- um verði ekkert að gert. Öxin á veggnum Til er saga af ungum manni sem kom gest- ur á bæ og felldu hann og heimasætan hugi saman. Ákveðið var að skála fyrir framtíð hjónaleysanna. Stúlkan og foreldrar hennar fóru í kjallarann eftir víni, opnuðu spons á ví- námu og létu renna í könnu. Þá sáu þau öxi hangandi á vegg og örvingluðust yfir af- drifum ófæddra barna tilvonandi hjóna ef börnin skyldu eiga erindi í kjallarann og öxin detta í höfuð þeirra. Unga manninn tók að lengja eftir þeim, fór að vitja þeirra og fann þau þá sitjandi í kjallaranum, umflotin víni, aðgerðalaus og lömuð af ótta við hina skelfi- legu framtíðarsýn. Framtíð heilbrigðisþjónustunnar Látum ekki fara fyrir okkur eins og fólkinu í dæmisögunni. Látum ekki öxina hanga yfir höfðinu á okkur, tökum hana niður af veggn- um. Þarfir fjöldans fyrir þjónustu heilbrigð- iskerfisins hafa breyst mikið á liðnum áratug- um. Helstu heilsufarsógnir eru nú faraldur ósmitnæmra, lang- vinnra sjúkdóma sem margir teljast til svokallaðra lífsstíls- sjúkdóma. Ástæða er til að ætla að breytingar á sjúkdómabyrð- inni og nýjar lýðheilsuógnir kalli á endurskoðun, nýjar nálg- anir og lausnir. Á liðnum árum hefur farið fram umfangsmikil greining- arvinna á styrkleikum og veik- leikum íslenska heilbrigðiskerf- isins. Ég nefni sérstaklega vinnu sem fram fór í velferðar- ráðuneytinu á árunum 2011- 2012 með aðstoð erlends ráðgjafafyrirtækis og aðkomu hátt í 100 sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðiskerfisins. Á þessum grunni liggja fyrir skýrar tillögur um verkefni sem hrinda þarf í framkvæmd til að styrkja og bæta heilbrigðiskerfið og gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum landsmannan fyrir heilbrigðisþjónustu í nútíð og framtíð á skilvirkari hátt. Verkefnið Betri heilbrigðis- þjónusta 2013-2017 Frá því ég settist í stól heilbrigðisráðherra hef ég farið yfir fyrirliggjandi greiningar og tillögur að úrbótum í heilbrigðiskerfinu og rætt við sérfræðinga um bestu leiðir til að hrinda mikilvægum verkefnum í framkvæmd. Niðurstaða liggur fyrir og verkefnin sem um ræðir hafa nú verið formgerð undir vinnu- heitinu; Betri heilbrigðisþjónusta 2013-2017. Flest verkefnanna eru mörgum kunnugleg og hafa lengi verið til umfjöllunar. Vandinn er einkum hve hægt hefur miðað. Þess vegna ákvað ég að setja fram heildstæða áætlun með skýru skipulagi um stjórnun og verklag. Síðast en ekki síst legg ég áherslu á að verk- efnin séu unnin í samhengi hvert við annað þannig að framkvæmd og innleiðing þeirra sé samhæfð og stefni að einu marki, þ.e. betri heilbrigðisþjónustu. Verkefnin í hnotskurn Í stuttu máli snúast verkefnin um yfirsýn og stjórn á því hvernig heilbrigðisþjónustan er notuð þannig að ávallt séu valin rétt úr- ræði miðað við þjónustuþörf og að yfirsýn og samhæfing tryggi samfellu og komi í veg fyr- ir tví- eða margverknað. Við eigum þá vafa- sömu sérstöðu meðal nágrannaþjóða að beita lítið sem ekkert markvissri stjórnun á því hvert fólk sækir sér heilbrigðisþjónustu. Þessu fylgja margvíslegir annmarkar: Þetta er ekki í þágu sjúklinga, þetta stuðlar að ómarkvissri þjónustu, þetta ýtir undir sóun og dregur úr skilvirkni. Þetta vitum við og höfum vitað lengi og því tel ég ekkert að van- búnaði. Samhliða fleiri verkefnum er lykillinn að úrbótum innleiðing þjónustustýringar. Undirbúningur er hafinn og þar mun heilsu- gæslan gegna meginhlutverki. Önnur stór verkefni eru sameining heil- brigðisstofnana til að efla faglegan og fjár- hagslegan styrk þeirra. Innleiðing hreyfiseðla og verkefni um stórbætta upplýsingagjöf og ráðgjöf til notenda heilbrigðiskerfisins mun efla möguleika fólks á því að vera virkir þátt- takendur í meðferð og að taka ábyrgð á eigin heilsu eftir föngum. Endurskoðun á greiðslu- þátttöku sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu er fyrst og síðast spurning um sanngjarnt og réttlátt greiðslukerfi sem er gegnsætt og auðskiljanlegt. Samtengd rafræn sjúkraskrá er stórt og mikilvægt mál fyrir margra hluta sakir. Hæst ber aukið öryggi sjúklinga, sam- hæfðari þjónusta og aukin skilvirkni. Loks er það endurskoðun á fjármögnun heilbrigðis- þjónustunnar til að byggja skynsamlega hvata inn í kerfið, meta árangur á nýjan hátt miðað við ávinning af þjónustunni og ákveða rekstrarframlög til heilbrigðisþjónustu út frá íbúafjölda á viðkomandi þjónustusvæði og ýmsum lýðfræðilegum og félagslegum þátt- um. Bætt þjónusta – Betra starfsumhverfi – Betri nýting fjármuna Ég er viss um að með innleiðingu þeirra verkefna sem unnið er að undir samheitinu Betri heilbrigðisþjónusta, muni ekki aðeins takast að bæta heilbrigðisþjónustuna, heldur einnig að nýta betur þá fjármuni sem við höf- um úr að spila. Síðast en ekki síst er mark- miðið að bæta starfsumhverfi heilbrigðiskerf- isins sem er nauðsynlegt til að tryggja mönnun þess og vilja hjá okkar færasta fag- fólki til að starfa innan þess. Kynning og upplýsingar Hinn 30. janúar var haldinn fjölmennur fundur í Norræna húsinu þar sem verkefni Betri heilbrigðisþjónustu voru kynnt fyrir stjórnendum stofnana heilbrigðiskerfisins, auk fulltrúa háskólasamfélagsins og fleiri að- ila. Viðtökur voru góðar og auðfundið að það er frjór jarðvegur fyrir umbætur. Annar fundur var haldinn í gær með fulltrúum hags- munasamtaka sjúklinga og aðstandenda. Verkefni verða kynnt frekar eftir því sem þeim vindur fram og á vef velferðarráðuneyt- isins má einnig nálgast upplýsingar um verk- efnið Betri heilbrigðisþjónusta á vefslóðinni: www.velferdarraduneyti.is Eftir Kristján Þór Júlíusson »Ég er viss um að með innleiðingu þeirra verkefna sem unnið er að muni ekki aðeins takast að bæta heilbrigð- isþjónustuna, heldur einnig að nýta betur þá fjármuni sem við höfum úr að spila. Kristján Þór Júlíusson Markviss áætlun um betri heilbrigðisþjónustu Höfundur er heilbrigðisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.