Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Föstudaginn 21.
febrúar ákváðu
stjórnarflokkarnir á
Alþingi að draga bæri
umsókn Íslands að
Evrópusambandinu
til baka. Í kjölfarið
voru áróðursvélarnar
gangsettar, fjölmiðlar
höfðu sig alla við að
senda út hverja frétt-
ina á fætur annarri þar sem þessi
ákvörðun var gerð tortryggileg.
Lagt var til atlögu að flokkunum
fyrir að standa við þá stefnu sem
flokksmenn þeirra mótuðu á lands-
fundum flokkanna, en þar var
skýrt kveðið á um að draga ætti
umsóknina til baka.
Athyglisvert er að skoða hverjir
það eru sem fremst fara í árásum
á stjórnarflokkana. Fulltrúar
stærri og minni Samfylkingar
mæta í pontu, fullir vandlætingar
gagnvart ákvörðun stjórnarinnar.
Þeir virðast ekki bera skynbragð á
eigin hræsni í þessu máli. Ítrek-
aðar tilraunir síðasta kjörtímabil
til þess að leyfa þjóðinni að taka
ákvörðun um ESB voru kveðnar
niður. Ekki er sök Vinstri grænna
minni í þeim efnum, flokkur sem
lofaði sínum kjósendum að sækja
ekki um ESB-aðild en gerði það
samt, ábyrgð þeirra á klúðrinu
sem þetta mál er orðið er í raun
meiri en annarra. Stefna núverandi
stjórnarflokka í málinu er skýr og
í fullu samræmi við þær ákvarð-
anir sem mótaðar voru af flokks-
félögum.
Skaðinn er skeður
Tímasetning þessarar ákvörð-
unar er umdeilanleg og færa má
sterk rök fyrir því bíða hefði átt
með hana. Skaðinn er samt skeður,
búið er að kreista tannkremið úr
túpunni og ómögulegt er að troða
því aftur inn, það verður bara
subbulegt. Eðlilegt fyrir ríkis-
stjórnina við þessar aðstæður er
að standa við áform sín og draga
umsóknina til baka. Þeir sem nú
eru ósáttir við ákvörðunina verða
það áfram og einungis tíminn mun
lækna þau sár. Dragi ríkisstjórnin
umsóknina ekki til baka þá mun
hún glata trúverðugleika sínum og
mun ekki geta gengið að þeim
stuðningi sem hún býr við í dag,
hún mun því standa eftir slypp og
snauð.
Fjölmiðlar hafa hagað sér í
þessu máli líkt og um heimsendi sé
að ræða, væri það áhugavert sem
sjálfstætt rannsóknarefni. Þeir
hafa ítrekað dregið upp ranga
mynd af ástandinu. Það er látið
líta út fyrir að þetta mál klúfi
þjóðina í herðar niður og að fólk
geti varla haldið áfram sínu dag-
lega lífi vegna þess og að líf
stjórnarinnar sé samtvinnað ESB-
umsókninni. Staðreyndin er í raun
sú að það eru ákveðin mál sem
munu hafa meiri áhrif á fylgi
stjórnarflokkanna heldur en þessi
ESB-umsókn, munar þar mest um
skuldamál heimilanna. Úrlausn
stjórnarinnar í því máli mun skipta
sköpum þegar kemur að því að
endurnýja umboð flokkanna. ESB-
viðræðuferlið mun blikna í þeim
samanburði, við meg-
um ekki gleyma því að
allar kannanir sýna
sömu niðurstöðu,
landsmenn vilja ekki
ganga inn í ESB.
Auðvitað gremst
fólki þegar því er sagt
að það fái ekki að
ákveða lausn ein-
hverra mála, en fólkið
fékk að velja og valdi
flokka sem sendu skýr
skilaboð um að vilja ekki ganga
inn í ESB. Ólíkt því sem gerðist
með síðustu ríkisstjórn. Ég þekki
sjálfur dæmi um að fólk hafi kosið
VG með það að leiðarljósi að koma
í veg fyrir aðildarumsókn að ESB
árið 2009, þeir kjósendur voru
sannarlega sviknir. Þessi þings-
ályktunartillaga leiðréttir misráðna
vegferð fyrri stjórnar, hún hreins-
ar andrúmsloftið þannig að þegar
og ef þjóðin er tilbúin að sækja um
aðild að sambandinu þá verður það
ekki gert nema með því að spyrja
þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu,
því hlýtur fólk að fagna.
Pólitískur vindur
Það er mikið vísað í fyrrverandi
formann Sjálfstæðisflokksins um
þessar mundir, Þorstein Pálsson,
þann mæta mann sem er eindræg-
ur aðildarsinni og hefur fullan rétt
á sinni skoðun. Ég vil leyfa mér að
vísa í annan formann flokksins sem
hefur aðra skoðun, Davíð Oddsson.
Hann hélt góða ræðu á landsfundi
árið 2009 og sagði meðal annars:
„Það er sagt að sjálfstæðismenn
séu með vindinn í fangið núna, það
má vera, en hvað með það? Þetta
er pólitískur vindur sem á okkur
beljar, pólitískur vindur lýtur ekki
lögmálum veðurstofunnar. Öflugur
flokkur sem ekki hefur svipt sjálf-
an sig sjálfstraustinu getur annað
tveggja, siglt vindinn eða breytt
vindáttinni sér í hag. Stjórn-
málamenn gera skyssur, það hefur
allur heimurinn vitað lengi. Það
má fyrirgefa skyssur og það er oft-
ast gert, en það er ófyrirgefanlegt
ef menn guggna fyrir rás atburð-
anna. Það má aldrei bogna þó að á
móti blási, það má aldrei hika þótt
herði að, og það má ekki einu sinni
líta undan þótt sýnin sé ekki frýni-
leg, og það má aldrei svíkja sjálfan
sig og það sem maður í hjarta sínu
trúir á, fyrir stundarávinning.“
Ég hvet stjórnarflokkana til að
standa við tillögu sína og draga
umsókn Íslands að ESB til baka,
þannig munu þeir standa sterkir
eftir, allar tilraunir þeirra til að
draga í land eða hætta við munu
bara skaða þá og sýna veikleika af
þeirra hálfu. Ef þeir bogna fyrir
stundarávinning sem ekki er víst
að þeir njóti, þá eru þeir að svíkja
sjálfa sig og munu sjá eftir því, ég
veit að ég mun líta þá allt öðrum
augum.
Áróðurs-
vélarnar syngja
Eftir Ólaf
Hannesson
Ólafur Hannesson
» Búið er að kreista
tannkremið úr túp-
unni og ómögulegt er að
troða því aftur inn, það
verður bara subbulegt.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Svarið við spurningu dagsins
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur)
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
- svarið við spurningu dagsins
SESAM BLEIKJA
Eldunaraðferð:
Á pönnu: 1,5 mínúta á hvorri hlið.
Í ofni: 12 mínútur við 200°C í forhituðum ofni.
Góð með sætu chilli sósunni okkar