Morgunblaðið - 18.03.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2014
Stuttar fréttir ...
● Tap CCP á síðasta ári, upp á 21,3
milljónir Bandaríkjadala, eða 2,4 millj-
arða króna, var það fyrsta síðan EVE
online leikurinn kom út árið 2003.
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri fé-
lagsins, segir í samtali við mbl.is að
tapið tengist ekki beint rekstri félags-
ins, enda hafi tekjur þessa aldrei verið
hærri og rekstrarhagnaður varð á árinu.
Hins vegar hafi fyrirtækið gert upp for-
tíðina og afskrifað þróunarkostnað
sem hafi verið bókfærður á eignahlið og
um sé að ræða eina staka niðurfærslu
eftir mjög nákvæma skoðun og áherslu-
breytingu.
Nánar á mbl.is
CCP afskrifaði ákveðinn
þróunarkostnað í fyrra
63 á milli ára. Rekstrarkostnaður
ársins nam 0,3% af nafnvirði heildar-
eigna sem voru 2.014 milljarðar
króna í árslok og 0,7% af verðmæti
heildareigna. Tæplega helmingur
kostnaðarins er vegna aðkeyptrar
erlendrar sérfræðiráðgjafar. Þá
nema greiðslur Kaupþings vegna
virðisaukaskatts 399 milljónum
króna, eða sem svarar til tæplega 8%
af heildarkostnaði.
Samþykktar kröfur í kröfuskrá
nema 2.803,6 milljörðum króna. Að
meðtöldum ágreiningskröfum nema
útistandandi kröfur á hendur Kaup-
þingi 2.879,3 milljörðum króna og
hafa þær lækkað um 115,5 milljarða
á tímabilinu. Ástæður þessarar
lækkunar má rekja til úrlausna
ágreiningsmála, krafna sem kröfu-
hafar hafa afturkallað, greiðslna
vegna forgangskrafna og krafna sem
endanlega hefur verið hafnað.
Eignir eru metnar
á 778 milljarða
Langstærsti hluti eigna Kaupþings er erlendis
Morgunblaðið/Ómar
Vogunarsjóðir umsvifamiklir Kröfuhafar Kaupþings, sem féll í banka-
hruninu 2008, eru flestir bandarískir vogunar- og skuldabréfasjóðir.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Verðmæti heildareigna Kaupþings í
lok árs 2013 nam 778,1 milljarði
króna og lækkaði um 68,7 milljarða á
milli ára. Lækkunin skýrist nær al-
farið af neikvæðum gengisáhrifum
vegna styrkingar krónunnar sem
námu 59,6 milljörðum auk greiðslna
vegna samþykktra og umdeildra for-
gangskrafna sem námu 35,2 millj-
örðum króna. Raunvirði heildar-
eigna hækkaði um 23,2 milljarða
króna. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu.
Erlendir aðilar skipa 92% af
kröfuhafahópi Kaupþings, sem féll í
bankahruninu 2008, þar af eru
bandarískir vogunar- og skulda-
bréfasjóðir umsvifamestir.
Heildareignir Kaupþings í erlend-
um myntum eru metnar á 630,3
milljarða króna en eignir í íslenskum
krónum eru metnar á 147,8 millj-
arða. Kaupþing, sem á 87% hlut í Ar-
ion banka, verðmetur hlutinn í bók-
um sínum jafnt og eigið fé bankans,
en miðar ekki við mögulegt mark-
aðsvirði. Bankasýsla ríkisins heldur
utanum 13% í bankanum. Eigið fé
bankans var 145 milljarðar króna við
árslok.
„Áþreifanlegur“ áhugi
Fram kom í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í upphafi mánaðar að
könnunarviðræður á undanförnum
mánuðum við ýmsa erlenda fjárfesta
hafi leitt það í ljós að „áþreifanlegur“
áhugi sé fyrir hendi á að þeir komi að
kaupum á 87% eignarhlut erlendra
kröfuhafa Kaupþings í Arion banka.
Við hugsanlegri sölu á Arion banka
þyrfti að óska eftir undanþágu frá
Seðlabankanum um skilaskyldu
gjaldeyris. Að öðrum kosti myndu
kröfuhafar ekki fá kaupverðið greitt
til sín í gjaldeyri.
Rekstrarkostnaður Kaupþings
lækkaði um 41% á milli ára og nam
5,1 milljarði króna árið 2013. Á sama
tíma hækkuðu laun og launatengd
gjöld um 7% og námu 1,3 milljarði
króna. Stöðugildum fækkaði í 56 úr
Eignir Kaupþings
» Heildareignir Kaupþings í
erlendum myntum eru metnar
á 630,3 milljarða króna en
eignir í íslenskum krónum eru
metnar á 147,8 milljarða.
» Kaupþing á 87% í Arion
banka. Skilanefndin horfir til
eiginfjár bankans við mat á
virði hans í uppgjörinu. Eigið fé
Arion var 145 milljarðar króna
við lok árs.
!"
##$
##$
%"
%$
#
!#
!$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
#$$
#
!%
#$
"%
!!
$%
#
#$
#%$"
"
!
#$
$$%
!"
#"$$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Íslenskar krónur í eigu erlendra aðila,
svonefndar aflandskrónur, námu 327
milljörðum króna í lok árs 2013. Þær
stóðu í 565 milljörðum króna í kjölfar
hruns bankanna haustið 2008.
Þetta kemur fram í nýrri greinargerð
um framgang áætlunar um losun fjár-
magnshafta sem fjármála- og efna-
hagsráðherra birti á vefsíðu ráðuneyt-
isins í gær. Þar segir að Seðlabanki
Íslands hafi lækkað stöðu aflandskróna
bæði með sérstökum viðskiptum og út-
boðum í samræmi við áætlun um af-
nám hafta frá marsmánuði árið 2011.
Með útboðum Seðlabankans hafi er-
lendum skammtímafjárfestum í af-
landskrónum markvisst verið hleypt út
og þar með dregið úr þeim hluta af-
landskróna sem eru í höndum þeirra
sem vilja innleysa fjárfestingu sína nær
óháð gengi. Samhliða þessari lækkun
hefur samsetning þessara eigna breyst
verulega, að því er segir í greinargerð-
inni. Meirihluti lækkunarinnar hefur ver-
ið í innstæðum en erlendir aðilar hafa
einnig aukið líftíma eigna sinna í
skuldabréfum ríkissjóðs.
Aflandskrónum fækkað
um 240 milljarða
Krónur Íslenskum krónum í eigu erlendra
aðila hefur fækkað frá hruninu 2008.
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Óbr
eytt
verð í 4 ár
ÍSLENSK
HÖNNUN
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
ÁLAFOSS
Álafossvegur 23, Mosfellsbær
Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00
Laugard. 09:00 - 16:00
www.alafoss.is