Morgunblaðið - 18.03.2014, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2014
Trjáklippingar.
NÚ ER TÍMINN TIL AÐ KLIPPA TRÉ OG RUNNA.
Síðla vetrar og á vorin er góður tími til að klippa allflestar
tegundir trjágróðurs því þá er greinabygging gróðursins best
sýnileg. Einnig er þetta góður tími til þess að móta trjágróður.
TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR
Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það
að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað.
Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem
við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum
nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is
Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is
Tiltektardagar
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
20-40% afsláttur
af völdum garntegundum.
Höfum bætt í útsölu-
körfurnar Peruvian
Highland wool og
Katia Tirol
Karlmenn sem greinast
með blöðruhálskirt-
ilskrabbamein (BHKK) eiga
erfitt val fyrir höndum þeg-
ar kemur að meðferð.
Skurðaðgerð, geislun, lyfja-
meðferð eða eftirlit ræðst
af ástandi einstaklingsins
og persónulegri ákvörðun.
Undanfarin ár hefur verið
hvatt til PSA-mælinga til
að reyna að greina BHKK
snemma. Samfara fjölgun þeirra
sem fara í PSA-mælingar er vax-
andi umræða um að of margir
menn fari í ónauðsynlega með-
ferð. Vandinn er hins vegar sá að
erfitt er að skilgreina þessa ein-
staklinga. Mögulegar aukaverk-
anir af meðferðum eru m.a. þvag-
leki og getuleysi. Samfara þessari
þróun hefur áhugi aukist fyrir
þeirri nálgun sem nefnd er á
ensku „active surveillance“ og
þýða má sem „virkt eftirlit“ .
„Virkt eftirlit“ (VE) felst í því að
eftir að maður, sem hefur greinst
með BHKK og hefur gildi við
greiningu sem eru undir til-
teknum mörkum, hefur þann val-
möguleika að láta fylgjast með
sér með í stað þess að fara í hefð-
bundna meðferð. Hver er svo VE
viðmiðunin? Skortur er á við-
urkenndum aðferðum til að nota
við valið en nefna má tvær. 1)
D’Amico nálgunin, miðar við Glea-
son-gráðu lægri eða sama og 6,
PSA-gildi lægra eða sama og 10
og krabbamein sem greinist að-
eins öðrum megin innan kirtilsins.
2) Epstein-nálgunin miðar við
Gleason-gráðu lægri eða jafnt og
6, PSA-þéttleika hlutfall 0,15 eða
lægra (PSA-gildi deilt með stærð
kirtils), færri en þrjú vefjasýni
með krabbameini og ekki hærra
krabbameinshlutfall en 50% í einu
vefsýni af tólf. Dr. Klotz, prófess-
or við háskólann í Toronto í Kan-
ada, telur að hætta eigi VE og
hefja meðferð, þegar PSA-gildi
tvöfaldast á innan við þremur ár-
um og Gleason-gráða verður hærri
eða sama og 7 (4+3)(1).
Í kynningarbæklingi frá
NCCN(2) sem er endurnýjaður ár-
lega er rætt um kosti og galla VE.
Fimmtudaginn 20. mars nk. kl.
16.30 boðum við undirritaðir til
fundar í húsnæði Krabbameins-
félags Íslands. Eftir greiningu á
BHKK völdum við VE-leiðina, Sig-
urður fyrir fjórum árum og Þráinn
fyrir níu árum. Markmið fundarins
er að kanna áhuga einstaklinga,
sem greinst hafa með BHKK og
hafa valið VE, á stofnun stuðnings-
hóps. Markmiðið með starfsemi
stuðningshópsins er að vera upp-
lýsandi um VE og stuðningur fyrir
þá menn sem vilja fara þessa leið
eftir greiningu á krabbameininu.
Markmiðið er ekki almenn hvatn-
ing til vals á VE heldur stuðningur
við þá einstaklinga sem hafa valið
þessa nálgun. Talið er að allt að
þriðjungur þeirra sem velja VE
hætti við meðferðina vegna and-
legs álags en ekki vegna þess að
breytingar á gildum gefi ástæðu til
þess.
1) (Active Surveillance Key to Limiting
PSA-Related Overtreatment, but Rema-
ins Difficult Sell). (Tengill: http://
www.onclive.com/publications/obtn/2013/
May-2013/Active-Surveillance-Key-to-
Limiting-PSA-Related-Overtreatment-
but-Remains-Difficult-Sell).
2) Prostate Cancer Guidelines. National
Comprehensive Cancer Network
(NCCN): http://www.nccn.org/patients/
guidelines/prostate/index.html
Frískir menn – stofnun
stuðningshóps – Virkt eftirlit
Eftir Sigurð Skúlason
og Þráin Þorvaldsson »Markmiðið meðstarfsemi hóps-
ins er að vera upp-
lýsandi um VE og
stuðningur fyrir þá
menn sem vilja fara
þessa leið eftir
greiningu á krabba-
meininu.
Þráinn Þorvaldsson
Höfundar greindust með BHKK og
völdu VE-leiðina.
Sigurður Skúlason
÷+
Íkynningarbæklingi frá NCCN (2) sem er endurnýjaður
árlega er rætt um kosti og galla VE
Mælir með VE: Mælir á móti VE:
Forðast meðferð sem
gæti verið ónauðsynleg
Forðast meðferð og
þar með aukaverkanir
Halda óbreyttum lífsgæðum
Minni kostnaður í upphafi
(bandarískar aðstæður)
Nýjar meðferðir gætu komið fram
Krabbameinið gæti breiðst út /
minni möguleikar á lækningu
meinsins
Meiri áhyggjur ef ekki
farið í meðferð
Fleiri læknaheimsóknir
og rannsóknir
Takmarkaðar rannsóknir liggja
fyrir á langtímaáhrifumVE
Þegar vinstri stjórn
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur fékk Alþingi
til að samþykkja, að Ís-
land sækti um inn-
göngu í Evrópusam-
bandið með því að
knýja Steingrím J. og
þorrann af hans þing-
liði til að svíkja stærsta
kosningaloforð Vinstri
grænna, var Íslend-
ingum neitað um þjóðaratkvæði um
málið. Ástæðan var augljós; vinstra
liðið vissi, að við vildum ekki inn í
sambandið. Fyrir síðustu kosningar
samþykkti landsfundur Sjálfstæð-
isflokksins að beita sér fyrir því, að
viðræðum við ESB yrði hætt. Þá var
og samþykkt, að kæmi til þess síðar,
að sækja um aðild að nýju, þá skyldi
það borið undir atkvæði þjóðarinnar
áður en umsókn yrði lögð inn.
Nú hafa aðildarsinnar og stjórn-
arandstaðan lagst á eitt til að gera
rugl úr málinu. Málflutningur þeirra
hefur leitt til þess, að stór hluti kjós-
enda telur að allt snúist um hvort þeir
fái að greiða atkvæði eða ekki. Ekki
hvað eigi að greiða atkvæði um, þ.e.
hvort hætta beri viðræðum eða ekki
eða hvort greiða eigi atkvæði um að
halda áfram viðræðum. Núverandi
formaður Samfylkingar kyndir undir
ruglinu með stóryrðum úr ræðustól á
Alþingi og reynir með því að draga at-
hyglina frá stefnu, sem
mun svipta þjóðina
sjálfstæði og umráðum
yfir auðlindum sínum.
Þessi óheilla-
samvinna aðildarsinna
og stjórnarandstöðu,
þ. á m. Vinstri grænna
og annarra andstæð-
inga aðildar að ESB,
hefur leitt til þess, að
samkvæmt skoð-
anakönnunum vill
meirihluti þjóðarinnar
fá að greiða atkvæði um, hvort um-
ræðum skuli haldið áfram; um-
ræðum, sem hingað til hafa ekki
fjallað um það, sem skiptir Íslend-
inga mestu máli og ekki hillir undir
að komist á dagskrá næstu árin, ef
haldið verður áfram.
Skoðanakannanir benda einnig til
þess, að meirihluti þjóðarinnar vilji
halda aðlögunarviðræðum áfram og
síðan ætli þessi sami meirihluti, að
loknum viðræðunum, að greiða at-
kvæði gegn aðildinni.
Er enginn endir á því, hvað hægt
er að rugla kjósendur í ríminu?
Eftir Axel
Kristjánsson
Axel Kristjánsson
»Nú hafa aðildarsinn-
ar og stjórnarand-
staðan lagst á eitt til að
gera rugl úr málinu.
Höfundur er lögmaður.
ESB-þjóðaratkvæði