Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Síða 2
Eru englar í alheiminum?
Já, þeir eru útum allt. Ég held að englar séu jákvæðar og fal-
legar hugsanir sem koma til okkar.
Ræktin eða bakaríið?
Það verður að vera hvort tveggja, maður verður að fara í rækt-
ina og maður verður að fara í bakaríið.
Borðarðu hollt?
Ég borða góðan mat, þ.e úr góðu hráefni. Lífrænt og beint frá
býli, hamingjusöm egg og þess háttar. En svo inná milli fær
maður sér einhvern viðbjóð, þetta er línudans lífsins.
Drama, grín eða spenna eða söngur?
Allt saman, fjölbreytileikinn er málið. Allir verða þreyttir á því að
fá bara eina bragðtegund.
Ræktarðu Færeyinginn í þér?
Já, ég er hálfur Færeyingur. Ég rækta hann ekki mikið en fylgist
með færeyskum fréttum og reyni að viðhalda málinu eins og ég
get.
Hvað vildirðu vinna við ef þú værir ekki leikari?
Lögfræðingur eða hagfræðingur, mér finnst róandi að vinna
með staðreyndir, svart og hvítt, excelskjöl og rúðustrikanir.
Listræn hugsun tekur á.
Hefurðu áður leikið á sviði í Þjóðleikhúsinu
og verið í beinni útsendingu á sama tíma?
Nei, enda hefur þetta ekki verið gert í 19 ár, eða síðan Þrek
og tár var sýnt í beinni 1995. Þetta verður epískt og pínu
glatað fyrir þá sem missa af, sem verða væntanlega ekki
margir. Ég býst við áramótaskaupsáhorfstölum.
Morgunblaðið/Kristinn
JÓHANNES HAUKUR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Englar
útum allt
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014
Svar „Nei.“
Pavel Ermolinski, 27 ára
Svar „Nei. Ég hef ekki búið á landinu í 30 ár.
Ég bý í Kristianstad í Noregi.“
Þórður Ágústsson, 62 ára
Svar „Nei. Ég þarf þess ekki. Ég skulda ekki
neitt.“
Guðmundur Þórðarson, 58 ára
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Svar „Lauslega já. Ég sá að Sigmundur sagði
að þetta ætti að vera auðveldara en að panta
pitsu. Það er bara spurning hvernig á að
skipta pitsunni?“
Sturlaugur Kristjánsson, 60 ára
Morgunblaðið/Þórður
SPURNING DAGSINS ERT ÞÚ BÚINN AÐ KYNNA ÞÉR SKULDANIÐURFELLINGARFRUMVARP RÍKISSTJÓRNARINNAR?
Að útbúa pylsur er víst
auðveldara en að steikja
kjötbollur. Því heldur 12
manna hópur fram, sem hitt-
ist reglulega til að búa til
heimalagaðar pylsur með
ýmsu girnilegu meðlæti 32
Í BLAÐINU
Launaþróun kynjanna
269.000
338.000 338.000
411.000
2008 2008 2012 2012
Heimild: Hagstofan. (Regluleg mánaðarlaun alls í krónum).
Forsíðumyndina tók
Kristinn Ingvarsson
Í matvöruverslunum má finna ýmsar
tegundir grænmetis. Grænmeti
sem er minna notað í heim-
ilismatinn en er alls ekki síðra en
hinar klassísku tegundir. Viktor
Örn matreiðslumeistari fræðir
okkur um kosti fennels 30
Tækninni fer sífellt fram og hefur frumkvöðlafyrirtæki í
London sett upp sýndarmátunarklefa. Ef þetta er
framtíðin verður hægt að máta föt í verslunum án
þess að þurfa að klæða sig úr og í 36
Verkefnastýra Reykjavík
Fashion Festival segir ís-
lenskan tískuiðnað kraum-
andi suðupott. Tískuhátíðin
fer fram nú um helgina og er
óhætt að segja hana uppske-
ruhátíð fag- og áhugafólks
um íslenska tísku 43
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn
leikara í Englum Alheimsins í Þjóðleikhúsinu. Loka-
sýning verksins verður jafnframt í beinni útsend-
ingu á RÚV. Leikgerð Engla alheimsins er eftir Þor-
leif Örn Arnarsson og Símon Birgisson en
Þorleifur Örn leikstýrir verkinu. Hinni viðamiklu
útsendingu stjórnar Egill Eðvarðsson sem sér einn-
ig um dagskrárgerð ásamt Brynju Þorgeirsdóttur.
Útsendingin hefst kl.19.40 á sunnudagskvöld.