Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 44
Fjármál
heimilanna *
Það er ekki eingöngu láglaunafólk sem lifir frá launaseðli
til launaseðils.Í rannsókn Princeton-háskóla og NYU kom
í ljós að þriðjungur allra bandarískra fjölskyldna á ekkert
aflögu í lok mánaðarins og að tveir þriðju þeirra fjöl-
skyldna sem nota upp allar tekjur sínar í mánuðinum eru
með allgóðar tekjur og ágæta eignastöðu. Rannsóknin
sýndi líka að þessi þrönga fjárhagsstaða varir skemur hjá
hátekjufólki, eða að jafnaði í 2,5 ár, en lengur hjá þeim
sem eru með tekjur í námunda við fátæktarmörk.
Ekki bara þeir fátæku sem skrimta
Sigrún Daníelsdóttir er sálfræðingur og
starfar sem verkefnisstjóri geðræktar hjá
Embætti landlæknis. Hún hefur staðið fyrir
samfélagsbaráttu á sviði líkamsvirðingar um
árabil og gaf á dögunum út barnabók sem
ber heitið Kroppurinn er kraftaverk þar sem
markmiðið er að efla jákvæða líkamsmynd
barna og virðingu fyrir fjölbreytileika. Bókin
fór beint á metsölulista tveggja stærstu bóka-
verslana landsins.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Við erum fimm manna fjölskylda, mamma,
pabbi, þrjú börn og slatti af fiskum.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Það er margt sem verður að vera til ef lífið á
að ganga upp. Ef við eigum til dæmis ekki
mjólk, brauð, egg, smjör, ost, morgunkorn
og kaffi fer allt í vitleysu. Stundum þarf því að
rjúka í Hagkaup um miðnættið til þess að
hægt sé að byrja næsta dag með góðu.
Hvað freistar mest
í matvörubúðinni?
Það er fátt sem freistar mín því ég er alltaf á
hlaupum við að reyna að ljúka búðarferðinni
af á sem skemmstum tíma. Það er meira
vandamál að ég gleymi því sem þarf að kaupa,
þess vegna reyni ég alltaf að vera með inn-
kaupalista og fylgja honum. En ég kaupi eig-
inlega alltaf það sama.
Hvernig sparar þú
í heimilishaldinu?
Við erum nægjusöm og gerum mjög lítið,
kannski of lítið, af því að gera okkur daga-
mun. Okkur foreldrunum finnst svo rosalega
gaman í vinnunni þannig að við sækjum frek-
ar í að gera meira af því heldur en að fara út
og eyða peningum. Það er hagstætt fyrir
budduna.
Eyðir þú í sparnað?
Já, við leggjum fyrir um hver mánaðamót og
reynum að lifa á restinni. Stundum tekst það
og stundum ekki. Við erum dáldið gamaldags
með það að við viljum helst eiga fyrir því sem
við kaupum, hvort sem það er stórt eða
smátt.
Skothelt sparnaðarráð?
Hafa ekki kostnaðarsamar þarfir og vera ekki
svag fyrir dýrum hlutum. Læra að njóta þess
sem kostar lítið. Það er svo ótrúlega margt
sem hægt er að gera sér til dundurs og ynd-
isauka sem kostar ekki neitt.
Hvað fer fjölskyldan með í
mat og hreinlætisvörur á viku?
Það fer eftir því hvar við verslum. Þessar
miðnæturferðir í Hagkaup eru frekar kostn-
aðarsamar.
SIGRÚN DANÍELSDÓTTIR
Miðnæturferðir í Hagkaup
„Ég er alltaf á hlaupum við að reyna að ljúka búð-
arferðinni af á sem skemmstum tíma,“ segir Sigrún.
Morgunblaðið/Kristinn
Aurapúkanum þykir fátt leiðinlegra
en að eyða peningum í að leigja eða
kaupa aðgöngumiða á kvikmynd
sem svo stendur ekki undir vænt-
ingum. Þykir honum þá bæði illa
farið með peningana, og ekki síður
með tímann, því í þrjósku sinni er
Púkinn vanur því að reyna að horfa
á alla myndina til að reyna að fá
peninganna virði.
Púkinn hefur fundið út einfalda
leið til að rata betur á myndirnar
sem falla að smekk hans og skapi
hverju sinni. Lausnin er Google.
Það eina sem púkinn þarf að hafa
fyrir er að reyna að muna eftir
mynd af svipuðum toga og hann er
í skapi fyrir þá stundina. Ef t.d.
Aurapúkann dauðlangar að horfa á
mynd sem býður upp á samskonar
upplifun og the Matrix, þá slær
hann inn leitarorðin „movies like
the Matrix“. Google birtir þá runu
af myndum sem allar eru keimlíkar
ævintýrinu um kung-fú forritarann
Neo.
Með þessari aðferð rambar
Aurapúkinn frekar niður á myndir
sem kæta, og stundum uppgötvar
hann gimsteina sem hann hafði ekki
hugmynd um.
púkinn
Aura-
Horfðu bara á
góðar myndir
Keanu Reeves á
örlagaríku augna-
bliki í The Matrix.
B
íleigendur ættu að kætast
yfir því að veturinn er
senn að baki. Bílar eru
nefnilega ekki eins spar-
neytnir í vetrarveðrum og þeir eru
um hásumar. Hafa mælingar sýnt
að í kringum -7°C notar bíll um
12% meira eldsneyti í innanbæj-
arakstri en ef lofthitinn er 25°C.
Merkilegt nokk eru áhrif kuldans
enn verri á tvinnbíla og versnar
orkunotkunin hjá þeim um 31-34%
við sömu aðstæður, að því er Um-
hverfisverndarstofnun Bandríkj-
anna, EPA, greinir frá.
Kalda veðrið eykur m.a. viðnám í
vélinni, orka fer í að hita farþega-
rými, sæti og rúður, og meira að
segja er kalt loft þéttara í sér svo
að vindmótstaðan er meiri.
Þar með vita lesendur eitthvað
satt og rétt um bensíneyðsluna, en
hvað með allar ranghugmyndirnar?
Fjármálavefurinn MarketWatch
tók á dögunum saman lista yfir út-
breiddar mýtur og misskilning um
eldsneytisnotkun bíla.
Þurfa ekki að vera litlir
Fyrst á lista er sú ranghugmynd
að eina leiðin til að spara eldsneyti
sé að aka um á smábíl. Miklar
frramfarir hafa orðið í smíði bílvéla
á undanförnum árum svo að hægt
er að finna bíla í venjulegri fjöl-
skyldubíls-stærð sem fara mjög vel
með eldsneytið. Af tíu sparneyt-
nustu nýju bensín- og dísil-bílunum
á Bandaríkjamarkaði árið 2014 er
t.d. um helmingur í miðstærð eða
stærri.
MarketWatch segir það líka ekki
rétt að beinskiptir bílar séu alltaf
sparneytnari en sjálfskiptir. Þetta
kann að hafa verið raunin áður fyrr
en gírkassar hafa tekið miklum
breytingum svo að í dag ná full-
komnustu sjálfskiptingar oft betri
eldsneytisnotkun.
Ekkert vit í lausagangi
Eflaust hefur mörgum lesendum
verið kennt að það borgi sig ekki
að drepa á bíl í lausagangi, því vél-
in notar hvort eð er svo mikið elds-
neyti í að ræsa sig upp aftur. Enn
eina ferðina hafa verkfræðingar
bílaframleiðendanna staðið í stykk-
inu og þó svo að gamla reglan hafi
kannski átt við um eldri vélar þá
nota nýjar bílvélar mjög lítið elds-
neyti við ræsingu. Þó er ekki ráð-
legt að drepa á bílnum t.d. í hvert
skipti sem stoppað er á rauðu ljósi
því það getur slitið startaranum.
Hvað með að leyfa bílnum að
hita sig upp áður en ekið er af
stað? Óhætt er að aka nýjum bílum
af stað strax en góð regla er að aka
ekki of geyst í fyrstu heldur leyfa
vélinni að ná upp hita áður en hún
er látin vinna undir miklu álagi.
En allir vita að nýir bílar eru
sparneytnastir en þeir gömlu
drekka bensín í lítravís, eða hvað?
Aldeilis ekki. EPA mælir eldsneyt-
isnotkun bíla eftir 5.000 mílna akst-
ur því þá hefur vélin fengið góðan
tíma til að ganga til og eldsneyt-
iseyðslan batnað frá því þegar bíll-
inn var nýkominn af færibandinu.
Eyðslutölurnar fara batnandi
fyrstu árin sem bíllinn er í notkun
og þurfa ekki að versna mikið eftir
10 eða jafnvel 15 ára notkun, að því
gefnu að vel sé hugsað um ökutæk-
ið.
NOTA BÍLAR MEIRA BENSÍN MEÐ ALDRINUM?
Algengar ranghugmyndir
um bensíneyðslu leiðréttar
ÞARF AÐ LEYFA VÉLINNI AÐ HITNA? EYÐIR ÞAÐ MEIRA BENSÍNI AÐ RÆSA VÉLINA AFTUR
EN AÐ LÁTA HANA GANGA? ERU SMÁBÍLAR EINI SPARNAÐARKOSTURINN?
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Mælingar hafa sýnt að eldsneytiseyðsla bíla minnkar með notkun fyrstu árin. Eyðslan eykst ekki svo nokkru nemi
með áframhaldandi keyrslu svo fremi að vel sé hugsað um farartækið.
Morgunblaðið/Styrmir Kári