Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 9
30.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Í raun og veru hef ég verið að leita að frétt-um sem fjalla um vísindi og kannski aðeinsöðruvísi kima samfélagsins. Allir vefirnir sem
ég hef verið að fara á hafa verið á ensku og
stundum hef ég hugsað: Af hverju er ekki til
svona vefur á íslensku? Svo ég fór að gera
þetta sjálfur og útkoman er neisko.is,“ segir
Guðmundur Oddsson þar sem hann situr á skrif-
stofu sinni, eins og hann kallar það, kaffihúsi
einu í Bankastræti.
Guðmundur setti í vikunni vefinn neisko.is í
loftið en þar má finna allskonar fróðleik,
skemmtun og afþreyingu. Þetta er hálfgerður
tímaþjófur – en skemmtilegur tímaþjófur.
Guðmundur og félagar sem standa að vefnum
með honum hafa áhuga á öllu sem tengist al-
heiminum, öllum eins og hann leggur sig. Ekk-
ert er of lítið eða of stórt, ekkert er of gamalt
eða of nýtt. Ef efnið vekur þau viðbrögð að
Guðmundur og félagar hugsi með sjálfum sér
nei sko! – þá á það heima á vefnum.
Markmiðið að einfalda textann
Fjölmargir koma að síðunni með Guðmundi og
hann leitar oftar en ekki til þeirra sem vita
meira en hann um mál sem hann er að skrifa
um. „En ætli megi ekki kalla mig brimbrjótinn.
Markmiðið er að þetta eigi að vera vefur fyrir
venjulegt fólk því við viljum einfalda vísinda-
texta sem er allt of oft settur upp svolítið erf-
iðlega.
Ég hef alltaf verið nörd, í raun alveg frá því
ég fæddist, og fylgst með svona fróðleik og
fréttum. Þarna inni verður vonandi efni sem
fólki finnst fróðlegt. Allt frá náttúrunni, alheim-
inum, fólki og samfélagi. Ég hef stundum sagt
að þetta sé Nýjasta tækni og vísindi á netinu,“
segir hann.
Guðmundur segir að síðan hafi fengið jákvæð
viðbrögð í netheimum, áætlanir voru um að ná
10 þúsund gestum á viku í lok apríl en það hef-
ur nú þegar gerst og síðan varla byrjuð. Skarð-
ið sem Sigurður H. Richter skildi eftir sig þeg-
ar þáttur hans, Nýjasta tækni og vísindi, var
tekinn af dagskrá forðum daga hefur nú loksins
verið fyllt fyrir fróðleiksþyrsta lesendur.
Ég hef alltaf verið nörd
Guðmundur Oddsson á skrifstofu sinni með kaffi í annarri og tölvu í hinni.
Morgunblaðið/Golli
NÝR VEFUR, NEISKO.IS, FÓR Í LOFTIÐ Í VIKUNNI EN ÞAÐ ER GUÐMUNDUR
ODDSSON SEM STENDUR VAKTINA Á BAK VIÐ LYKLABORÐIÐ. VEFURINN
MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ BRÚA BILIÐ MILLI AFÞREYINGAR OG ÞEKKINGAR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Audi Q5. Notadrjúgur
og glæsilegur.
Fullkomlega
samstillt hönnun.
Skilvirkni er undirstöðuþáttur í hverju einasta smáatriði. Hönnun Audi Q5 skartar rennilegum línum sem gefa útlitinu
sérlega tilkomumikinn blæ. Staðalbúnaður er m.a. rafdrifin opnun og lokun á afturhlera, skyggðar rúður, 3ja svæða
loftkæling, leðuráklæði, bluetooth símkerfi, bi-xenon aðalljós og díóðuljós (LED). Audi Q5 kostar frá kr. 9.040.000.