Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014
Tíska
Það var skemmtileg
stemning á tískusýningunni
sem haldin var á Ísafold.
Morgunblaðið/Eggert
ÚRSLITAKEPPENDUR SÝNDU HÖNNUN SÍNA
Tískusýning
trendnets
ÚRSLITAKEPPENDUR FATAHÖNNUNARKEPPNI Á VEGUM TRENDNETS,
REYKJAVÍK FASHION FESTIVAL OG COKE LIGHT SÝNDU FATALÍNUR
SÍNA Á ÍSAFOLD BAR SÍÐASTLIÐINN FIMMTUDAG. SIGURVEGARI
KEPPNINNAR VAR HILDUR SUMARLIÐADÓTTIR FATAHÖNNUÐUR
EN SÓLEY JÓHANNESDÓTTIR, SÓLLILJA BALTASARSDÓTTIR OG YLFA
GRÖNVOLD KOMUST Í ÚRSLIT OG SÝNDU EINNIG HÖNNUN SÍNA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Falleg hönnun
á sýningunni.
Skærfjólublá dragt
frá Ylfu Grönvold.
Hildur Sumarliðadóttir vann
keppnina með fallegri línu.
Sóley Jóhanns-
dóttir sýndi þessa
skemmtilegu línu.
Ylfa Grönvold
hannaði þennan
fallega kjól.
Orðrómur um samstarf Adidas og
listamannsins með stóra hattinn,
Pharrell, hefur nú verið staðfestur
en þessir tveir risar hvor á sínum
markaðnum munu nú starfa saman
sem ein heild. Pharrell hefur ávallt
neitað – þangað til í vikunni þegar
hann fékkst til að tjá sig um kom-
andi samstarf við tískuvefsíðuna
highsnobiety.
„Ég hef talað við fólk frá Adidas í
langan tíma og nú er þetta loks
orðið að veruleika,“ sagði listamað-
urinn sem er bæði þekktur sem
tískumógúll og tónlistarkappi. Síð-
ustu lög hans, Happy og Get Lucky,
hafa fengið heimsbyggðina til að
dansa.
Lítið er vitað um samninginn að
þessu sinni en miðað við það orð-
spor sem fer af Pharrell að allt sem
hann kemur nálægt verði að gulli
má búast við einhverju glæsilegu frá
íþróttarisanum Adidas og Pharrell,
líklegast með þrem röndum – ein-
kennisröndum Adidas.
Pharrell hefur alltaf áhuga á tísku og aðrir fylgja honum
í því sem hann klæðist. Svokallaður trendsetter.
ADIDAS OG PHARRELL Í EINA SÆNG
Þrjár
rendur með
Pharrell Það verður mikið um að vera í hönn-unar- og mennigarlífinu í Reykjavíkum helgina en hönnunarhátíðinHönnunarMars er nú í fullum gangi.
Einn af þeim spennandi viðburðum sem til-
heyra hátíðinni er sýningin Línur.
Línur eru samsýning Hildar Yeoman, Bark-
ar Sigþórssonar og Ellenar Loftsdóttur þar
sem myndlist, tíska og ljósmyndun er blandað
saman á áhugaverðan hátt. Sýningin veltir fyr-
ir sér á skemmtilegan hátt einangrun Íslands
frá alþjóðlega tískuheiminum.
„Þetta eru nektarljósmyndir sem Börkur
Sigþórsson tók og ég valdi fatnað og Hildur
klæddi fyrirsæturnar með teikningum sín-
um,“ segir Ellen Loftsdóttir. Ellen bætir jafn-
framt við að hver mynd hefur sinn ákveðna
karakter þrátt fyrir að hugmyndin á bak við
myndirnar sé sú sama.
„Þessi hugmynd spratt upp hjá mér þegar
ég flutti heim frá London. Í London er að-
gangur að hátískufatnaði mjög greiður en
á Íslandi eru hinsvegar takmarkaðir mögu-
leikar í boði. Sem gerir mína vinnu talsvert
erfiðari. Út frá þessum pælingum fæddist
þessi hugmynd að taka nektarmyndir af ís-
lenskum fyrirsætum, velja hátískufatnað af
netinu og fá síðan Hildi Yeoman til að klæða
fyrirsæturnar með teikningum sínum. Fríða
María Harðardóttir sá um förðun og fyrir-
sæturnar Kolfinna Kristofersdóttir, Andrea
Röfn Jónasdóttir og Edda Óskars frá Eskimó
models sátu fyrir.“
Línur eru partur af HönnunarMars og
verður sýningin opin um helgina í Hörpu.
Klæða fyrirsætur
með teikningum
Ellen Loftsdóttir stílisti valdi hátískufatnað á
fyrirsæturnar á netinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HVER FLÍK FÆR AÐ NJÓTA SÍN