Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014 Í slendingar eiga þess kost einu sinni á ævinni að breyta um eiginnöfn. Þannig er hægt að taka eiginnafn upp til við- bótar öðru nafni, fella eitt eiginnafn nið- ur ef manneskjan heitir öðru nafni sem og að fella eitt eiginnafn niður og taka annað upp í staðinn. Í heild létu yfir 2.000 Íslend- ingar gera einhverjar slíkar breytingar á eig- innöfnum frá 1992-2011 eða um 100 Íslend- ingar á ári. Árið 2012 var metár í nafnabreytingum en breytingar á eiginnöfnum, millinöfnum og kenninöfnum voru það ár í það heila 8.730. Ólivía Gísladóttir í viðtalinu hér til hliðar lét fella út tvö eiginnöfn og tók upp eitt nýtt eig- innafn í staðinn. Slíkum breytingum hefur fjölgað síðustu árin. Á árunum 2002-2006 voru það að meðaltali 34 Íslendingar sem tóku upp nýtt eiginnafn og létu fella niður annað í stað- inn. Frá 2007-2011 var það meðaltal orðið 51 einstaklingur á ári. Á sömu tímabilum fjölgaði breytingum á eiginnöfnum einnig mikið í heild. Þjóðskrá Íslands sinnir umsóknum um breytingar á eiginnöfnum en það kostar 6.600 krónur. Árið 2008 kostaði slík breyting um 4.400 krónur og hefur gjaldið því hækkað um 50% á sex árum. Þess má geta að auk Ólivíu Gísladóttur eru fjórar aðrar Ólivíur á landinu en þær eru allar 3 ára og yngri. Af öðrum áhugaverðum breytingum má nefna ættarnöfn. Þannig hefur það færst í vöxt síðustu árin að fólk vilji taka upp ættarnöfn, bæði í karllegg og kvenlegg. Á árunum 2002- 2006 tóku 888 einstaklingar upp ættarnafn en 2007-2011 var sú tala 1070. Mun algengara var að fólk tæki upp ættarnöfn í byrjun 10. ára- tugar síðustu aldar og í dag er sú tíðni að fær- ast í svipað horf og var þá. Þá er algengara en áður að ættarnafn sem náinn fjölskyldu- meðlimur hefur borið sé gert að millinafni. Þjóðskrá Íslands ann- ast nafnbreytingar. Morgunblaðið/Sverrir Nafnabreytingar algengari EKKI AÐEINS ER ALGENGARA EN ÁÐUR AÐ FÓLK BREYTI EIGINNAFNI HELDUR ER EINNIG VINSÆLARA AÐ TAKA UPP ÆTTARNÖFN, BÆÐI Í KVEN- OG KARLLEGG. NOKKUR LÁDEYÐA VAR Í UPPTÖKU ÆTTARNAFNA Á ÁRUNUM 1997-2006. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is * Á vef Hagstofunnar er hægt að fletta því upp hve margirheita tilteknu nafni og einnig hve margir eiga afmælihvern dag. Á Íslandi búa 918 manns sem eiga afmæli 30.mars.Þjóðmál Ólivía Gísladóttir snyrti-fræðimeistari hét ÓlöfEyrún fyrir ekki margt löngu. Eins og lög gera ráð fyrir mega Íslendingar breyta nafni sínu einu sinni á ævinni og Ólivía ákvað að nýta sér þann rétt sinn. Hún hafði þá lengi gengið með Ólivíu-drauminn í maganum. „Valið snýst í raun ekki um annað en það að mér hefur alltaf þótt nafnið ákaflega fallegt. Þeg- ar foreldrar mínir völdu mér nafn stakk amma mín reyndar upp á því að ég héti Ólafía sem mér finnst vera annað nafn en einnig fallegt. Svo fór að ég var skírð Ólöf. En mér hefur alltaf þótt hitt nafnið miklu fallegra og passa miklu betur við mig og mína heitu sál,“ segir Ólivía hlæj- andi. „Ég hef notað Ólafar-nafnið allt mitt líf nema þegar ég hef verið að fara til út- landa þá hefur þetta pirrað mig svo mik- ið. Sérstaklega á Norðurlöndunum því fólk spurði mig þá hvort Ólöf væri ekki karlmannsnafn, eins og Ólaf. Ég hef því notað Ólivía úti og fór að hugsa af hverju ég léti bara ekki slag standa og breyta nafninu mínu í það sem mig lang- ar raunverulega að heita.“ Þegar Ólivía ákvað endanlega að láta vaða áttaði hún sig á því að það tæki tíma fyrir vini og ættingja að venja sig af því að kalla hana Ólöfu og nota nýja nafnið. „Það er held ég erfiðasti þátturinn, að fá fólk til að kalla mig nýja nafninu og margir í fjölskyldunni hafa spurt mig: Bíddu nú við, hvað ertu að spá? En ég viðurkenni það alveg að ég er hvatvís og kem yfirleitt þeim hugmyndum sem mig langar að gera eitthvað úr í framkvæmd. Ég gekk frá þessari breytingu fyrir þremur mánuðum en ég kalla mig reynd- ar sjálf stundum Ólöfu óvart. En auðvitað svara ég því ef vinkonur mínar kalla mig ennþá Ólöfu. En að skipta um vegabréf, kort og allt er auðvitað svolítil vinna og smá ferli en um leið skemmtilegt.“ Af hverju Ólivía en ekki Ólafía? Ólivía er auðvitað fremur nýtt nafn hérlendis, ekki nema 2-3 ára. Það var alltaf hægt að nefna Ólafía og Ólavía en aldrei með i – Ólivía. En mér fannst það hreinlega fallegast og er ofboðslega ást- fangin af þessu nafni. Svo er ég að flytja til Noregs í sumar og finnst því mikill plús að þurfa ekki að heita Ólafur þar, passar ekki alveg við mína dívu!“ Ólivía viðurkennir að tveimur dögum eftir nafnbreytingu, þegar hún sá nafnið sitt í heimabankanum, hafi hún fengið smá sjokk. „Hvað var ég að gera! Og í nokkra daga var ég frekar ringluð.“ Börn Ólivíu þurfa að vanda sig við að kalla móður sína nýja nafninu hennar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lét draum sinn um nýtt nafn rætast ÁNÆGÐ MEÐ AÐ LÁTA VERÐA AF ÞVÍ AÐ FÁ NÝTT NAFN ÓLIVÍA GÍSLADÓTTIR ER EIN ÞEIRRA SEM HAFA LÁTIÐ BREYTA EIGINNAFNI SÍNU. Helgustaðanáma við Reyð-arfjörð dregur að sér mik-inn fjölda ferðamanna á hverju ári. Engar tölur eru til um hve margir ferðamenn fara um námuna þar sem lítið er fylgst með henni. Ferðamennirnir, innlenndir sem erlendir, taka minjagripi, silf- urberg, með sér úr námunni enda silfurberg eitt fallegasta afbrigði af steinum og sannkallað stofudjásn. Frá 2010 hefur náman verið á rauðum lista Umhverfisstofnunar. Í skýrslu stofnunarinnar um rauða staði segir: „Þar er að finna þau svæði sem eru undir miklu álagi sem bregðast þyrfti við strax.“ Sævar Guðjónsson, ferðaþjón- ustubóndi á Eskifirði þar sem hann rekur gistihúsið Mjóeyri, segir ástandið á námunni allt ann- að en glæsilegt. „Það eru engir merktir stígar eða neitt og þá fer fólk auðvitað bara hingað og þang- að. Það komu einhverjir peningar í þetta verkefni í fyrra en vanda- málið er að það er alltaf króna á móti krónu þannig að sveitarfélag- ið þarf að leggja peninga á móti ríkinu. Það er meðal annars vandamálið.“ Sævar segir að hann ímyndi sér að fjöldinn sem fari um svæðið sé á bilinu 5-10 þúsund á hverju ári. „Trúlega hefur það verið meira síð- asta sumar enda komu margir inn- lendir gestir hingað austur, flúðu rigninguna suðvestanlands. Þarna hverfur endalaust af steinum en það veit enginn hversu mikið það er – en það er mikið, svo mikið get ég sagt.“ Unnið hefur verið deiliskipulag fyrir svæðið af sveitarfélaginu í samráði við Umhverfisstofnun og eru teikningar og í raun allt klapp- að og klárt til að koma í veg fyrir steinatökuna. Stærstu silfurbergskristallar sem fundist hafa komu úr Helgustaða- námu en sá stærsti fannst í kring- um aldamótin 1900 þegar 300 kílóa steinn fannst í námunni. Vá við heimsfræga námu vegna ágangs túrista HELGUSTAÐANÁMA ER EIN FRÆGASTA SILFURBERGSNÁMA Í HEIMI. HÚN VAR FRIÐUÐ 1975. KRISTALLARNIR ERU MEÐ ÖLLU ÓVARÐIR FYRIR ÁGANGI FERÐAMANNA SEM TAKA STEINA MEÐ HEIM SEM MINJAGRIPI. NÁMAN ER Á RAUÐUM LISTA UMHVERFISSTOFNUNAR. Benedikt Bóas Hinriksson benedikt@mbl.is Steinataka ferðamanna í Helgustaðanámu hefur lengi verið áhyggjuefni. Ljósmynd/Pétur Sörensson Silfurbergið var notað í margt, t.d. smásjár, áður en gerviefni komu til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.