Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Blaðsíða 26
Hamskipti var hugmyndin á bak við herbergi Ólaf- ar og Unnar en sú hugmynd leiddi þær að rjúpunni sem er eini íslenski fuglinn sem breytir um lit eftir árstíðum. „Rjúpan er lykiltegund í íslensku vistkerfi og einn einkennisfugla íslenskrar náttúru. Okkur fannst skemmtilegt að hugsa til þess að ferðamenn sem koma til Íslands eru nokkurn veginn eins og rjúpur, en þá er hægt að „spotta“ hvar og hvenær sem er í bænum í neon-litum útivistarklæðnaði með stórar og fyrirferðamiklar myndavélar. Líkt og með rjúpuna þegar hún er að reyna að falla inn umhverfið sitt í hamskiptum. Efnisnotkun, litaval, form og annað ræðst því út frá rjúpunni og um- hverfi hennar,“ segja þær Unnur sem útskrifaðist með B.A. í arkitektúr vorið 2013 og Ólöf sem út- skrifaðist úr vöruhönnun sama ár. ÓLÖF RUT STEFÁNSDÓTTIR OG UNNUR ÓLAFSDÓTTIR Einkenni íslenskrar náttúru Herbergi Sólveigar og Guðnýjar heitir Hrafntinna og er það innblásið af samnefndum steini en innblásturinn kemur helst fram í lit og áferð veggja og gólfs. „Hót- elherbergi er tímabundinn áfangastaður og við ákváðum að nýta okkur það eðli til að hanna rými sem við kæmust ekki upp með annars staðar. Á móti svarta litnum er spilað með lýsingu sem endurspeglast í öllum flötum rýmisins og eykur dýpt þess,“ segja Sólveig og Guðný sem báðar útskrifuðust 2013 með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands. SÓLVEIG GUNNARSDÓTTIR OG GUÐNÝ PÁLSDÓTTIR Morgunblaðið/Kristinn Nýta eðli áfangastaðarins Herbergi Ylfu og Hörpu ber heit- ið Skjótt skipast veður í lofti og er það vísun í andstæður og hversu stutt getur verið á milli gjörólíkra upplifana á Íslandi. „Vinnan að verkefninu hefur verið mjög skemmtileg, við út- skrifuðumst saman úr vöruhönn- un 2012 og er þessi vika búin að vera hálfgert endurlit í námið, vökunætur, kaffiþamb, skrítlur, hugarflug, hláturköst og skrítnar búðarferðir,“ segja þær Ylfa og Harpa sem útskrifuðust úr vöru- hönnun úr Listaháskóla Íslands 2012. YLFA GEIRSDÓTTIR OG HARPA BJÖRNSDÓTTIR Stutt á milli ólíkra upplifana „Aðalhugmyndin á bak við hönnunina okkar er slabbið, eðal íslenskt slabb. Við erum með marmaraáferð á nátt- borðunum, það minnir á svipaða áferð og á bílasnjó,“ segja þær Helga og Ásta sem fengu innblástur úr hráum íslenskum raunveruleika, en þær eru báðar útskrifaðar úr myndlist. Helga og Ásta segja það áhugavert sem myndlistarmenn að fá að hanna hótelherbergi þar sem mörg listamannarekin rými séu að víkja fyrir nýjum hót- elum. „Við ákváðum þá bara að taka listina inn í hótelin. Þetta er leynilegt ráðabrugg hjá okkur.“ HELGA PÁLEY FRIÐÞJÓFSDÓTTIR OG ÁSTA FANNEY SIGURÐARDÓTTIR Hrár veruleiki Heimili og hönnun *Sigríður Rún, grafískur hönnuður sýnir let-urverk sín, líffræði leturs, í Þjóðmenning-arhúsinu um helgina og er sýningin parturaf HönnunarMars. Að auki mun SigríðurRún verða með vinnustofur í fornlet-ursuppgreftri þar sem gestum, ungum semöldnum gefst kostur á að grafa eftir beina- grindum fornra íslenskra bókstafa. Líffærafræði leturs og uppgröftur F osshótel Lind í samstarfi við Listaháskóla Íslands fékk átta nýútskrifaða nemendur Listaháskólans til þess að umbreyta hótel- herbergjum. Fjögur tveggja manna lið fengu sitt herbergið hvert ásamt styrkjum frá samstarfsaðilum verk- efnisins. Hvert lið keppir síðan um besta her- bergið og munu dómarar keppninnar, þeir Björn Skaptason, Davíð T. Ólafsson og Greipur Gíslason kynna sigurvegarana í lok næstu viku. „Þessi hugmynd kviknaði árið 2012 hjá mér og hótelstýrunni Ernu Dís. Við vildum skapa tækifæri fyrir nýútskrifaða hönnuði og aðstoða þá við að koma sér á fram- færi, einnig er þetta skemmtileg upplifun fyrir túristana,“ segir Anna Sigurðardóttir verkefna- stýra. keppendurnir unnu herbergin út frá þem- anu Ísland en hver hópur valdi sér síðan hug- mynd til þess að vinna út frá þemanu. „Keppendurnir fá 50.000 kr. gjafkort frá Foss- hóteli, 50.000 kr. gjafakort frá IKEA, 20.000 kr. frá Slippfélaginu, 25.000 kr. frá Textílprentun Ís- lands og 15.000 kr. inniegn frá Vogue. Þetta er það sem við veitum þeim en síðan mega þau bara prútta, díla og víla,“ segir Anna og bætir við að enn séu fjögur herbergi eftir á hæðinni og stefnt sé á það að endurtaka verkefnið á næsta ári. Umbreyta hótelherbergjum FJÖGUR TVEGGJA MANNA LIÐ NÝÚTSKRIFAÐRA NEMENDA LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS FENGU ÞAÐ VERKEFNI AÐ UMBREYTA HÓTELHERBERGJUM Á FOSSHÓTEL LIND. KEPPT VERÐUR UM BESTA HERBERGIÐ OG VERÐA ÚRSLITIN KYNNT Í LOK VIKUNNAR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.