Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 12
H lédís er um þessar mundir í tíma- bundnu verkefni hjá Akranes- kaupstað að undir- búa markað sem verður í bænum á laugardögum í sumar. Nýverið sá hún um undirbúning og fram- kvæmd matarmarkaðar ljúfmetis- verslunarinnar Búrsins í Hörpu sem sló rækilega í gegn. Hún vann um tíma sem hárgreiðslukona, á fyrirtæki sem gefur fólki kost á að eignast kindur og fer reglulega á sjóinn. Fleira mætti eflaust telja. Líklega er ekki nema von að Hlé- dís, sem er 34 ára, sé stundum spurð hve gömul hún sé í alvörunni vegna þess hve víða hún hefur kom- ið við. Fjölbreytni mikilvæg Henni finnst fjölbreytnin yndisleg. „Ég er fædd og uppalin í sveit og maður áttar sig á því með auknum þroska hve ofboðslega dýrmætt það var. Og að hafa þá breidd í lífinu að geta verið tengd landbúnaðinum og líka stundað sjómennsku er dásam- legt. Að fara í tvo daga á sjó frá Arnarstapa er eins og að koma inn í nýjan heim. Það er ekkert betra en vera á litlum bát og sjórinn frussast yfir mann! Það er ótrúlega hress- andi.“ Hlédís er frá bænum Fossi í Staðarsveit á sunnanverðu Snæ- fellsnesi. Þar var áður blandað bú en foreldrar hennar eru nú með kindur og hesta. Sjálf hefur hún verið búsett í Garðabæ undanfarið en er að flytja á Akranes, þar sem hún bjó áður um tíma. Samtökin Beint frá býli voru stofnuð 2008 og Hlédís var formað- ur þeirra um tíma, fjölskyldan hef- ur selt matvæli beint frá búinu og mjög brennur á henni að tengja meira saman dreifbýli og þéttbýli. Sá áhugi varð t.d. til þess að hún stofnaði fyrirtækið Eigið fé og heimasíðuna kindur.is en tilgang- urinn er sá að fólk geti eignast eig- in kind uppi í sveit. Nánar að því síðar. Hlédís segist óendanlega þakklát þeim sem hafa verið með henni til sjós því þeir hafi kennt henni svo mikið. „Maður öðlast dýpri sýn og meiri virðingu fyrir öllum starfsgreinum ef maður kynnist þeim svona. Það er mjög merkilegt að fá innsýn inn í þennan hluta lífsins og skynja hvers konar hetjur sjómenn eru.“ Sjómennskuna má rekja til sum- arsins þegar Hlédís var 17 ára og vann á fiskmarkaðnum á Arnar- stapa á Snæfellsnesi. „Þá var eins og ég eignaðist 50 afa á einu bretti; alla þessa dásamlegu gömlu smábjótasjómenn sem gerðu þá út þaðan. Ég hafði lengi haft áhuga á að fara á sjó og dreif mig því í pungaprófið eftir að hafa unnið þarna um sumarið og fór svo í nokkra handróðra. Eftir það lærði ég hárgreiðslu og fékk vinnu á hár- greiðslustofu í Smáralind.“ Þar vann hún um skeið „en allt í einu langaði mig vestur aftur, tók mér vikufrí úr vinnunni og var að slæp- ast á bryggjunni á Arnarstapa þeg- ar ég hitti Hjört Sigurðsson sem AKRANES OG ARNARSTAPI „Allir ættu að prófa allt“ HLÉDÍS SVEINSDÓTTIR HEFUR REYNT MARGT. HÚN ER FÆDD OG UPPALIN Í SVEIT, HEFUR BRENNANDI ÁHUGA Á ÍSLENSKUM LANDBÚNAÐI OG SINNIR HONUM AF MIKLUM MÓÐ, LÆRÐI HÁRGREIÐSLU EN ER NÚ „FYRSTI VARAMAÐ- UR Á DEKK“ Á BÁTUM SEM RÓA FRÁ ARNARSTAPA Hlédís með vænan þorsk um borð í Hafdísi SH frá Hraunsmúla í Staðarsveit. Gert er út frá Arnarstapa. Hlédís Sveinsdóttir og Sveindís Helga Hlédísardóttir, nýorðin þriggja ára. * Dreymdi [ ] að Bjarna Ben hefði verið ræntog hann væri geymdur í kofforti í Bæjarbíóií Hafnarfirði. Hvað segið þið nú draumráðendur? Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, á Facebook Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND SUÐURLAND Kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands er hafið og stendur til 6. apríl.Yfirskriftin er Matur - Saga - Menning og um 200 ðir verða hér og þarviðbur um Suðurland. Frítt verður í strætó í boði Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga alla tíu daga leyndardómanna frá Mjódd í Reykjavík um allt Suðurland samkvæmt leiðakerfi Strætó. Sömu sögu er að segja frá Suðurlandi til Reykjavíkur. GARÐUR Pálmi S. Guðmundsson bæjarfulltrúi N-listans í Garði á Reykjanesi gekk hús úr hú og safnaði undirskriftum við áskorum um að í sveitarstjórnarkosningunu verði persónukjör í sveita 600 skrifuðu undir eða 57 þeirra 1040 sem eru á kjö LAUGAR Landsmót Sambands íslenskra harmónikku- helgin ugum í Laugum manns að s nikkuunnen upp á bökku í knattspyrnu á u AKRANES Hannibal Hauksson hefur verið ráðinn ferðamálafulltrúi Akraneskaupstaðar. Umsækjendur voru 22. Hannibal, sem er 35 ára Skagamaður, hefur síðustu ár unnið hjá T ferðum en snýr sér nú að því að kynna Akranes fyrir innlendum og erlendum fe nnö um öðrum tengdum verkefnu YSE 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.