Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Qupperneq 13
gerir út bát þaðan ásamt konu
sinni. Hann spurði hvað ég væri að
væflast þarna, háseti hjá sér hefði
forfallast og hvort ég gæti reddað
sér. Ég var þarna helstrípuð og
með langar neglur en sló til! Þetta
var 2003 þegar ég var 23 ára. Þann-
ig byrjaði sjómennskan hjá mér
fyrir alvöru – fyrir algjöra tilviljun.“
Þau Hjörtur veiddu í net. „Ég er
ekki alin upp í kassa, er óhrædd við
að taka að mér alls kyns verk og
mér finnst raunar að allir ættu að
prófa allt! Enginn ætti að ákveða
fyrirfram að hann geti ekki gert
eitthvað. En það er meira en að
segja það að mæta með þunna
tölvuhúð og segjast til í að fara
nokkra róðra! Hjörtur var dásam-
legur skipstjóri, hann bæði andæfði
– stýrði bátnum og passaði að netið
færi ekki í skrúfuna – og togaði
netið, sem er mjög vandasamt.
Hann kenndi mér þetta, sem er
heljarmikið mál og mér fannst það
ótrúlega fallega gert af honum að
stíga niður úr „hásæti“ skipstjórans
og leyfa naglalakkaðri stelpu að
stýra bátnum. Við gátum því skipst
á þegar fiskeríð var rosalegt. Mér
fannst það magnað að hann skyldi
nenna að kenna mér þetta; hann
var sannarlega ekki fastur í ein-
hverju fyrirfram ákveðnu formi og
ætti auðvitað að fá jafnréttis-
verðlaun fyrir þetta!“
Eftir sumar á sjónum ákvað
Hlédís að segja skilið við hár-
greiðsluna og skráði sig þess í stað
í háskólann á Bifröst. Útskrifaðist
þaðan 2007 eftir nám í HHS sem
svo er kallað; heimspeki, hagfræði
og stjórnmálafræði.
Afþakkaði starf í banka
„Á þessum tíma vildu bankarnir
gleypa flesta sem komu út úr há-
skóla, mér var boðin vinna í banka
eins og fleirum en hafnaði henni og
stofnaði þess í stað fyrirtækið Eigið
fé. Ætli það sé ekki eina fyrirtækið
með þessa skírskotun í nafninu sem
stóð af sér hrunið! Þetta er í raun
bara hobbífyrirtæki og eini arð-
urinn sem hefur verið greiddur eru
áprentaðir pennar!“
Það var þegar Hlédís vann að
lokaritgerð sinni við háskólann á
Bifröst að hugmyndin að Eigin fé
kviknaði. „Ég tók þátt í smala-
mennsku og heyrði á vinum mínum
sem flestir voru fluttir suður að
þeir voru grænir af öfund yfir því
að ég gæti verið uppi á fjöllum að
atast í smalamennsku. Þá fékk ég
hugmyndina um að tengja saman
sveitirnar og þéttbýlið á þennan
hátt.
Ég skil ekki umræðuna um höf-
uðborgina annars vegar og lands-
byggðina hins vegar og meting þar
á milli. Ekki frekar en meting á
milli kynja. Ekki vildi maður vera
án karla og ekki án höfuðborgar.
Við getum haft það svo dásamlegt
ef við viljum og mér finnst að það
sé alveg sama hvar maður býr, fólki
á að þykja vænt um allt landið.“
Á heimasíðunni kindur.is getur
fólk keypt kind uppi í sveit, greiðir
umönnunarkostnað, fær að koma og
hitta kindina sína reglulega, jafnvel
að velja hrút fyrir fengitímann og
getur líka fengið kjöt af lömbum
þessarar kindar.
Hlédís velti því fyrir sér 2011 að
loka fyrirtækinu, eftir að hún eign-
ast dótturina Sveindísi Helgu sem
var og er mjög veik. En æsku-
vinkona hennar, Jórunn Helga Sím-
onardóttir, og Jón Gunnar Hauks-
son, eiginmaður Jórunnar, gengu þá
til liðs við fyrirtækið og Hlédís hélt
ótrauð áfram. Spennandi verður að
fylgjast með framhaldinu.
Hlédís og hrúturinn hennar, Elliði, í fjósinu heima á Fossi í Staðarsveit.
* „Ég vann viðhárgreiðslu áveturna og var á sjó á
sumrin; það eru tveir
ólíkir heimar en fara
dásamlega saman.“
30.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Bræðurnir Jón Þór og Emanúel
Magnússynir á línubátnum Álfi SH
frá Ólafsvík voru að leggja af stað í
róður síðdegis á miðvikudag þegar
Morgunblaðið bar að garði. Veður
var þá orðið skaplegt eftir ofsaveður
nóttina áður. „Við verðum víst að
fara að leggja línuna fyrst Brynja
SH er farinn út,“ sagði Emanúel
skipstjóri og bætti brosmildur við:
„Við getum ekki verið minni menn
en áhöfnin á Brynju.“
ÓLAFSVÍK
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Bræður á sama báti
Fannfergi hefur verið óvenju mikið í
Fnjóskadal í vetur og umsjónar-
maður orlofshúsabyggðarinnar á Ill-
ugastöðum segir snjó meiri nú en
síðustu fjóra áratugi. Erfiðlega hef-
ur gengið að moka á svæðinu.
Fólk var í sumum bústöðunum
um síðustu helgi en ástandið um
miðja þá viku var reyndar ekki
gæfulegt. „Tækin okkar gáfust
hreinlega upp þegar við reyndum að
moka,“ segir Jón Óskarsson, stað-
arhaldari. „Veðrið versnaði mjög hjá
okkur strax á miðvikudegi, var
slæmt á fimmtudag og föstudag en
fólk sem var snemma á ferðinni
komst í bústaðina. Mikill skafrenn-
ingur var svo fram yfir hádegi á
laugardag en lagaðist eftir það.
Flest hús á svæðinu fóru bók-
staflega á kaf. Í eldhúsinu hjá okkur
hjónum hafa reyndar verið nátt-
úruleg gluggatjöld síðan í febrúar,“
sagði Jón hlæjandi, en þau Hlíf Guð-
mundsdóttir búa á svæðinu.
„Hér hefur ekki verið svona mikill
snjór síðan veturinn 1974 til 75,
fyrsta árið okkar hjóna hér á staðn-
um. Snjórinn við eldhúsgluggann
okkar hefur aldrei verið svona mik-
ill, en nú er reyndar farin að sjást
ljósglæta inn. Skaflarnir hafa
minnkað mikið í hlýjununum í vik-
unni,“ sagði Jón fyrir helgina.
FNJÓSKADALUR
Mesta fannfergi á Illuga-
stöðum í fjóra áratugi
Náttúruleg gluggatjöld eru í sumum
húsanna, eins og Jón tók til orða.
Allt á kafi. Ekki var auðvelt að komast inn í þennan bústað, eins og sjá má.
Ljósmynd/Jón Óskarsson
Nýstárlegt bingó verður haldið á Selfossi í dag (laug-
ardag) og Eyrarbakka 6. apríl. Hænu verður þá
sleppt á risabingóspjald og sá sem keypti miða með
númeri þess reits þar sem hænan skítur fær vinning!
Hvar skítur hænan?
Forsetahjónin voru á Hólmavík og nágrenni í vikunni.
Ólafur Ragnar sagði nemendum Grunn- og Tónskólans
m.a. að Dorrit keypti oft föt á útsölu og Dorrit upplýsti
krakkana um að Ólafur svæfi gjarnan í jakkafötunum.
Forsetaleg náttföt
EGGJANDI PÁSKAFLUG
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/F
LU
68
19
5
03
/1
4