Morgunblaðið - 26.04.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
Gr
eið
slu
mi
ðlu
n
Vissir þú að . . .
Með ferlum Alskila í
greiðslumiðlun tryggjum
við viðskiptavænt viðmót
fyrir þína greiðendur!
Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is
Ka
nnaðu Málið!alskil.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meint ólögleg urriðaveiði í Þing-
vallavatni var kærð til lögreglustjór-
ans á Selfossi í gær. Ólafur Örn Har-
aldsson, þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum, sendi inn kæruna.
Ólafur Örn sagði að kæran beind-
ist að tilteknum veiðimanni. Hugs-
anlega ætti hann vitorðsmann.
Grunur leikur á að hann hafi veitt og
drepið töluvert af urriða innan þjóð-
garðsins á Þingvöllum í vor. Það hafi
hann gert án veiðileyfis og utan leyfi-
legs veiðitíma. Einnig leikur grunur
á að bátur hafi verið notaður við
veiðarnar en það er með öllu óheim-
ilt, samkvæmt reglum þjóðgarðsins.
Þjóðgarðsvörðurinn fékk ábend-
ingar um urriðaveiðina. Auk þess
birti veiðimaðurinn birt mynd af sér
með fjölda urriða á Facebook og
skrifar: „Fengum fullan bát af
svona.“ Færslan var sett inn 13. apríl
sl., viku áður en veiðitíminn hófst.
Ólafur Örn bendir á að sérstök lög
gildi um þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Þau gangi framar almennum lögum.
Grunur leikur á að með veiðunum
hafi verið brotin lög um þjóðgarðinn
á Þingvöllum, lög um verndun Þing-
vallavatns og vatnasviðs þess, lög um
lax- og silungsveiði, reglugerð um
þjóðgarðinn á Þingvöllum, verndun
hans og meðferð, almennar um-
gengnisreglur á Þingvöllum og regl-
ur um veiði í Þingvallavatni innan
þjóðgarðsins.
Eftirlitið hert
Samkvæmt reglum um veiði innan
þjóðgarðsins er veiðitímabilið frá 20.
apríl til 15. september. Eingöngu má
veiða á flugu frá 20. apríl til 1. júní og
skal öllum urriða sleppt á þeim tíma.
Stangveiði má einungis stunda frá
landi og er notkun hvers konar báta
eða flota við veiðar bönnuð.
Eftirlit með veiðimönnum hefur
verið hert í þjóðgarðinum að gefnu
tilefni. Til viðbótar við veiðivörslu
þjóðgarðsins hafa 15 sjálfboðaliðar
gengið til liðs við þjóðgarðinn við eft-
irlit með veiðum og bættri veiði-
menningu.
Meint ólögleg
urriðaveiði kærð
Grunur um ólöglegt urriðadráp í
Þingvallavatni Þjóðgarðsvörður kærir
Hægviðri var á landinu í gær og gott að fá sér göngutúr við Reykjavíkur-
tjörn. Léttskýjað um austanvert landið en annars staðar var skýjað og
sums staðar væta. Áfram er spáð björtu veðri um austanvert land í dag.
Morgunblaðið/Þórður
Hægviðri og hækkandi sól
Á göngu við Tjörnina í góða veðrinu
Vélarbilun varð í mælingabáti þar
sem hann var staddur um 6,5 km
austur af Landeyjahöfn og 700
metra frá landi síðdegis í gær.
Tveir menn voru um borð. Skip-
stjórinn lét stjórnstöð Landhelg-
isgæslunnar vita af vélarbiluninni.
Kallað var til báta í nágrenninu
og óskað eftir aðstoð þeirra. Þá
voru nærliggjandi björgunarsveitir
kallaðar út. Skipstjórinn kom vél-
inni í gang og sigldi báturinn til
hafnar fyrir eigin vélarafli í fylgd
dýpkunarskips. Gott veður var á
staðnum. gudni@mbl.is
Vélarbilun í báti
700 metra frá landi
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Samtök atvinnulífsins áætla að
gjaldeyristap þjóðarbúsins vegna
boðaðs verkfalls flugvallastarfs-
manna Isavia muni nema milljarði
króna fyrir hvern dag sem flug ligg-
ur niðri. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í minnisblaði sem sam-
tökin tóku saman fyrir Isavia um
stöðu viðræðna í kjaradeilum Isavia
og flugvallastarfsmanna, en í þeim
mætast stálin stinn.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir ljóst að
tekjutap þjóðarbúsins verði eitthvað
umfram áætlanir samtakanna en
erfitt sé að leggja mat á heildar-
kostnaðinn. „Það er ljóst að þetta
hefur töluverð áhrif á útflutning, t.d.
ferskfiskútflutning,“ segir hann.
„Það er umtalsvert magn af ferskum
fiski sem fer út á hverjum degi,
þannig að það er í öllu falli alveg ljóst
að það verður verulegt tjón ef svo fer
að flugumferð til og frá landinu fell-
ur alveg niður,“ segir hann.
Þorsteinn segir SA ekki hafa átt
samræður við ríkið um aðgerðir til
að koma í veg fyrir verkfall, enda
segir hann það ekki á forræði sam-
takanna. Hann segir deiluna í hnút
eftir atburði síðustu daga en á næstu
dögum verði allt reynt til að landa
samningi.
„Það er stefnt að því að taka stöð-
una undir forystu sáttasemjara yfir
helgina, sjá hvaða fletir kunna að
vera á málinu og, í ljósi alvöru máls-
ins, að reyna til þrautar að ná saman
áður en til verkfalls kemur,“ segir
hann.
Alvarleg staða
Innanríkisráðuneytinu hefur verið
gerð grein fyrir efni minnisblaðsins
en Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra segir stjórnvöld
fylgjast vel með þróun mála.
„Ráðuneytið og ríkisstjórnin fylgj-
ast bara með og við vonumst auðvit-
að til þess að menn leysi þetta og
þetta klárist en aðkoma okkar er
ekki til neinnar skoðunar fyrr en við
vitum hvernig málum lyktar,“ segir
ráðherrann.
Hún segir alvarlega stöðu blasa
við ef menn ná ekki saman fyrir boð-
að verkfall. „Sú staða er auðvitað af-
ar erfið og þess vegna vonast allir til
að málið klárist og menn nái að
semja og tryggja það að hér sé ör-
yggi í samgöngum,“ segir hún.
Milljarður fyrir hvern dag
Verkfall flugvallastarfsmanna verður kostnaðarsamt, að mati Samtaka atvinnu-
lífsins Innanríkisráðherra segir stjórnvöld fylgjast náið með þróun mála
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Verkfall flugvallastarfsmanna gæti orðið þjóðfélaginu dýrt.
Sýslumaðurinn á Selfossi staðfesti í
gær lögbann á innheimtu aðgangs-
eyris að Geysissvæðinu. Ríkinu var
gert að setja tryggingu að upphæð
tæpar 60 milljónir og þarf hún að
berast sýslumannsembættinu fyrir
kl. 10 hinn 30. apríl. Að öðrum kosti
fellur lögbannið niður. Berist trygg-
ingin innan frestsins hefur ríkið viku
til að þingfesta staðfestingu lög-
bannsins. Þá getur meðferð málsins
hafist fyrir dómstólum, samkvæmt
yfirlýsingu Landeigendafélags
Geysis í gær.
Landeigendafélagið telur nauð-
synlegt að fá úr því skorið fyrir dóm-
stólum hvað felst í eignarrétti land-
eigenda og hvaða kröfur ríkið geti
gert um yfirráð á svæðinu.
Fram kom í fréttum RÚV í gær að
Umhverfisstofnun ætlaði að ráða
fjóra landverði við Geysi í sumar.
Talsmaður Landeigendafélagsins
heyrði þau áform fyrst í fréttinni.
Lögbannið við Geysi staðfest
Ríkið með 60 milljóna tryggingu Landverðir ráðnir
Félagsmenn í Sjúkraliðafélagi Ís-
lands og SFR, sem starfa hjá Sam-
tökum fyrirtækja í velferðarþjón-
ustu, hafa boðað til verkfallsaðgerða.
Um er að ræða þrjú tímabundin
verkföll, 12. og 15. maí milli kl. 8 og
16 og sólarhringsverkfall 19. maí, en
allsherjarverkfall hefst að óbreyttu
kl. 8 hinn 22. maí. Aðgerðirnar voru
samþykktar með miklum meirihluta
atkvæða í báðum félögum. Alls
sögðu 93,7% viðkomandi félags-
manna SLFÍ já við verkfalli og
79,7% félagsmanna SFR.
„Ég bjóst alveg við þessu. Það er
búin að krauma mikil óánægja í
mjög langan tíma,“ sagði Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ,
um niðurstöður atkvæðagreiðsln-
anna í gær. Hún sagðist finna fyrir
miklum pirringi og reiði meðal
þeirra félagsmanna SLFÍ sem störf-
uðu hjá SFV, ekki eingöngu vegna
launamála heldur einnig vegna
vinnufyrirkomulagsins.
„Margar þessara stofnana hafa
stundað það að láta sjúkraliða ekki
fá fulla vinnu ef þeir vilja vinnu,
heldur vilja þær hafa þá í hlutastörf-
um og dreifa þeim á styttri og lengri
vaktir, allt eftir því sem stofnuninni
hentar. Þannig að manneskja sem er
kannski í 75% vinnu er farin að
mæta jafnoft og ef hún væri í 100%
vinnu og jafnvel taka stubbavakt að
morgni, fara heim um miðjan daginn
og koma aftur seinnipartinn,“ segir
hún.
Boðað hefur verið til samninga-
fundar á mánudag en Kristín segir
ljóst að komi til verkfalls muni það
reynast viðkomandi vinnustöðum
þungur baggi. holmfridur@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Óánægja Verkfallið nær m.a. til
Hrafnistu í Reykjavík.
Hluti starfs-
manna SFV
í verkfall
Mikil reiði og pirr-
ingur hjá sjúkraliðum